Kosningablað Félags frjálslyndra stúdenta og Stúdentafélags lýðræðissinnaðra sósíalista - okt. 1948, Blaðsíða 8
8
KOSNINGABLAÐ
eigi eftir þeim samþykktum. Nú hefur há-
skólaráð ákveðið, að dansleikurinn fari ekki
fram. Þar með er tekinn einn aðaltekju-
stofninn af stúdentaráði og vinsælasti dans-
leikur á íslandi undanfarin ár niður felldur.
Við þá, sem valdið hafa er ekkert hægt að
segja, en eigi væri ótrúlegt, að stoð stúd-
entaráðs í málinu væri sterkari, ef farið
hefði verið eftir samþykktum þess á sínum
tíma.
5. STÚDENTABLAÐIÐ
Merkasta nýjung í starfi ráðsins hefur
verið regluleg útgáfa stúdentablaðsins. Er
þess að vænta, að slíkri tilhögun verði hald-
ið áfram,
6. UTANRÍKISMÁL
Stúdentaráð hefur haft mikil skipti við
erlend stúdentasamtök á þessu starfsári.
Það hefur átt fulltrúa á ýmsum stúdenta-
samkomum erlendis. Merkust er þó þátt-
taka þess í norræna stúdentaþinginu í Osló
í júnímánuði. Ákveðið hefur verið, að hald-
ið verði hér norrænt stúdentamót næsta
sumar. Sérstök nefnd sér um undirbúning
mótsins. Verða allt að 100 norrænum stúd-
entum gefinn kostur á þátttöku. íslenzk
stúdentasamtök verða að halda uppi greið-
um samböndum við hin erlendu stúdenta-
samtök og þá sér í lagi við „collegana" á
Norðurlöndum.
7. „YFIRLÝSINGAR“
Sú skoðun hefur átt sér stað í stúdenta-
ráði, að þeir níu menn, sem hér eiga sæti
séu til þess sjálfkjörnir að segja álit sitt á
ýmsu því, sem fyrir kemur hérlendis og er-
lendis. Hafa kommúnistar í ráðinu verið
„duglegir" við að koma fram með tillögur
til „yfirlýsinga“. Efnislega hefur þar kennt
ýmissa grasa, t. d. að skáld nokkurt, sem
misnotað hafði skáldastyrk sinn, hafði eigi
fengið nógu háan styrk, að framkvæmd
refsidóma í Grikklandi væri aðfinnsluverð
o. fl. Þarf enginn að furða sig á framkomu
kommúnista til þessara tilvika, því að þeir
eru þá með stjórnmálaleg sjónarmið í huga,
enda álíta þeir sig verða í stúdentaráði í
pólitískum tilgangi, en eklci til að rumska
við hagsmunamálum stúdenta. En það, sem
furðulegra er í sambandi við þetta „yfir-
lýsinga“-fargan, er það, að ýmsir „Vöku-
menn“ líta á kommúnista í stúdentaráði
sem andlega leiðtoga sína í þessari „yfir-
lýsinga“-baráttu.
Þegar litið er yfir störf hins núverandi
stúdentaráðs mun það mála sannast að þau
eru ekki mikil að vöxtum. Fáar nýjungar
hafa komið fram hjá stjórnarforystunni í
ráðinu. Formaður stúdentaráðs, sem stöðu
sinni samkvæmt á að vera lífið og sálin í
starfseminni, er dagfarsprúður og velviljað-
ur í alla staði, drengur góður og samvinnu-
þýður, en þó hygg ég eigi ofsagt, að betur
væri hann fallinn til ýmissa annarra starfa,
en hafa á hendi forystuna í félagsmálum
háskólastúdenta.
Mannkynssagan hefur sýnt, að þá er
sama konungaættin hefur setið lengi að
völdum, þá úrkynjast hún, meðlimir ætt-
arinnar verða værukærir, starfsþrekið dofn-
ar, ýmis spilla á sér stað og annað eftir því.
Áframhaldið verður svo það, að ættin verð-
ur rekin frá völdum..
Ég held að líkja mætti „Vöku“ við slíka
konungsætt. Hnignunarmerkin hafa þegar
gert vart við sig. Væri ekki rétt fyrir stúd-
enta, að steypa ættinni frá völdum, áður en
hnignunin hefur komizt á hærra stig.
Andstœðmgar íbalds og
kommúmsma
sameinast um A-listann