Kosningablað Félags frjálslyndra stúdenta og Stúdentafélags lýðræðissinnaðra sósíalista - okt 1948, Qupperneq 8

Kosningablað Félags frjálslyndra stúdenta og Stúdentafélags lýðræðissinnaðra sósíalista - okt 1948, Qupperneq 8
8 KOSNINGABLAÐ eigi eftir þeim samþykktum. Nú hefur há- skólaráð ákveðið, að dansleikurinn fari ekki fram. Þar með er tekinn einn aðaltekju- stofninn af stúdentaráði og vinsælasti dans- leikur á íslandi undanfarin ár niður felldur. Við þá, sem valdið hafa er ekkert hægt að segja, en eigi væri ótrúlegt, að stoð stúd- entaráðs í málinu væri sterkari, ef farið hefði verið eftir samþykktum þess á sínum tíma. 5. STÚDENTABLAÐIÐ Merkasta nýjung í starfi ráðsins hefur verið regluleg útgáfa stúdentablaðsins. Er þess að vænta, að slíkri tilhögun verði hald- ið áfram, 6. UTANRÍKISMÁL Stúdentaráð hefur haft mikil skipti við erlend stúdentasamtök á þessu starfsári. Það hefur átt fulltrúa á ýmsum stúdenta- samkomum erlendis. Merkust er þó þátt- taka þess í norræna stúdentaþinginu í Osló í júnímánuði. Ákveðið hefur verið, að hald- ið verði hér norrænt stúdentamót næsta sumar. Sérstök nefnd sér um undirbúning mótsins. Verða allt að 100 norrænum stúd- entum gefinn kostur á þátttöku. íslenzk stúdentasamtök verða að halda uppi greið- um samböndum við hin erlendu stúdenta- samtök og þá sér í lagi við „collegana" á Norðurlöndum. 7. „YFIRLÝSINGAR“ Sú skoðun hefur átt sér stað í stúdenta- ráði, að þeir níu menn, sem hér eiga sæti séu til þess sjálfkjörnir að segja álit sitt á ýmsu því, sem fyrir kemur hérlendis og er- lendis. Hafa kommúnistar í ráðinu verið „duglegir" við að koma fram með tillögur til „yfirlýsinga“. Efnislega hefur þar kennt ýmissa grasa, t. d. að skáld nokkurt, sem misnotað hafði skáldastyrk sinn, hafði eigi fengið nógu háan styrk, að framkvæmd refsidóma í Grikklandi væri aðfinnsluverð o. fl. Þarf enginn að furða sig á framkomu kommúnista til þessara tilvika, því að þeir eru þá með stjórnmálaleg sjónarmið í huga, enda álíta þeir sig verða í stúdentaráði í pólitískum tilgangi, en eklci til að rumska við hagsmunamálum stúdenta. En það, sem furðulegra er í sambandi við þetta „yfir- lýsinga“-fargan, er það, að ýmsir „Vöku- menn“ líta á kommúnista í stúdentaráði sem andlega leiðtoga sína í þessari „yfir- lýsinga“-baráttu. Þegar litið er yfir störf hins núverandi stúdentaráðs mun það mála sannast að þau eru ekki mikil að vöxtum. Fáar nýjungar hafa komið fram hjá stjórnarforystunni í ráðinu. Formaður stúdentaráðs, sem stöðu sinni samkvæmt á að vera lífið og sálin í starfseminni, er dagfarsprúður og velviljað- ur í alla staði, drengur góður og samvinnu- þýður, en þó hygg ég eigi ofsagt, að betur væri hann fallinn til ýmissa annarra starfa, en hafa á hendi forystuna í félagsmálum háskólastúdenta. Mannkynssagan hefur sýnt, að þá er sama konungaættin hefur setið lengi að völdum, þá úrkynjast hún, meðlimir ætt- arinnar verða værukærir, starfsþrekið dofn- ar, ýmis spilla á sér stað og annað eftir því. Áframhaldið verður svo það, að ættin verð- ur rekin frá völdum.. Ég held að líkja mætti „Vöku“ við slíka konungsætt. Hnignunarmerkin hafa þegar gert vart við sig. Væri ekki rétt fyrir stúd- enta, að steypa ættinni frá völdum, áður en hnignunin hefur komizt á hærra stig. Andstœðmgar íbalds og kommúmsma sameinast um A-listann

x

Kosningablað Félags frjálslyndra stúdenta og Stúdentafélags lýðræðissinnaðra sósíalista

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kosningablað Félags frjálslyndra stúdenta og Stúdentafélags lýðræðissinnaðra sósíalista
https://timarit.is/publication/2074

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.