Alþýðublaðið - 19.03.1935, Page 4
Nýir Mkvnnm iifevn SDiinDdaysbiað ilbíðnblaðsins
mIiP ¥ f 118 K Ifl Ael 1 f 1 er ódýrasía skemtiblað á íslandi.
kaupendur fá Alþýðublafið L Enn þá
ókeypis til næstu mánaðamóta. er hægt að fá það frá upphafi í
ÞRIÐJUDAGINN 19. MARZ 1935. afgreiðslu blaðsins.
VÍGBÚNAÐUR ÞÝZKALANDS
Frh. af 1. síðu.
„Viðreisnin á fullveldi Þýzka-
lands á sviði hernaðarmálanna|
skerðir aðeins þau ákvæði Ver-
salasamninganna, sem önnur ríki
hafa neitað að uppfylla, með því
að þau hafa ekki afvopnað, eins
og þeim bar skylda til. Þau hafa
því í raun og veru rofið samn-
ingana. Þýzku stjórninni er það
i'ullkomlega ljóst, að landamæra-
ákvæðum alþjóðlegra samninga
verður. ekki breytt með einhliða
jkvörðunum nokkurs ‘einstaks
ríkis.“
Saraeiginleg mótmæli
Breta, Frakka og ítala
væntanleg í Berlín í
dag.
Utanfríkisráðuneytin í London,
París og Róm standa í stöðugu
sambandi hvort við annað um
það, hvaða ráð skuli tekið gagn-
vart samningsrofi Þýzkalands.
Alment er búist við því, að sendi-
herrar Breta, Frakka og ítala í
Berlín muni, þegar á þriðjudag-
inn, senda þýzku stjórninni sam-
eiginleg mótmæli gegn ákvörðun-
um hennar.
Sendiherra Breta í Berlín, Sir
Eric Phipps, átti seinni partinn
á mánudaginn langt viðtal við
von Neurath, utanríkisráðherra
þýzku stjórnarinnar; en það hefir
enn ekkert verið látið uppi um
árangur þess.
Frá Briissel er síinað, að Hy-
mans, fræðslumálaráðherra belg-
Isku stjórnarinnar, hafi lýst því
fyfir í viðtali við belgiska blaða-
menn, að ákvarðanir þýzku
stjórnarinnar væru ákaflega al-
varlegar og útheimtuðu, að
stjórnin snérist alveg óskift að
þeim. •
Belgiska stjórnin er þó ráðin
í því, að taka með ró og festu á
málinu.
Lloyd George tekur svari
Hitlers.
Það hefir vakið gífurlega at-
hygli um alla Evrópu, að Lloyd
George hefir opinberlega fallist á
og afsakað gerðir Hitlers. Hinn
gamli stjórnmálamaður sagði í
viðtali við enska blaðið „News
Chronicle", að hann sæi alls enga
ástæðu til þess að æðrast Það
væri engin ástæða til þess að á-
lasa Þýzkalandi fyrir það, sem.
það hefði gert. Og svo bætti hann
við efíirfarandi orðum:
„Þeir, sem skrifuðu undir Ver-
salasamningana með Þýzkalandi,
hafa engan siðferðislegan rétt til
þess að heirnta, að þau ákvæði
hans verði uppfylt, sem þeir sjálf-
ir hafa brotið á svo opinberan og
óskammféilinn hátt.“
Litia bandalagið og Baik-
anríkjasamtoandið sendir
Tituiescu utanríkismála-
ráðherra Rúmena til
London og París.
Loksins er símað frá Bukarest,
að Titulescu atanríkismálaráðh.
Rúmena fari í næstu viku frá
Bukarest áleiðis til Parísar, Lon-
don og Briissel, til þess að taka
í nafni Litla bandalagsins og
Balkanríkjasambandsins, þátt í
umræðum og samningum við
Vesturríkin um það ástand, sem
skapast hefir við samningsrof
Þjóðverja.
STAMPEN.
Alþýðuhús Reykjavíkur h. f.
heldur aðalfund sinn í Iðnó
sunnudaginn 31. þ. m. Hluthafar
vitji aðgöngumiða sinna að fund-
inum, í skrifstofu Iðnó virka daga
kl. 4—6 og hafi bráðabirgðaskír-
teini sín með. Á sama stað og
tíma liggur frammi hluthöfum til
athugunar endurskoðaður árs-
reikningur félagsins svo og til-
lögur stjórnarinnar um viðfangs-
efni þau, er úrlausnar bíða.
NORSKA STJÓRNIN:
Frh. af 1. síðu.
1889. Hann er þingmaður fyrir
Hörðafylki.
NILS HJELMTVEIT kirkju-
málaráðherra er 42 ára að aldri,
fæddur 1892. Hann var fyrst kos-
inn á þing 1925 og hefir átt
sæti í bæjarstjórn í héraði sínu
síðan 1920.
TRYGGVE LIE dómsmálaráð-
herra er 39 ára, fæddur 1896.
Hann er yfirdómslögmaður, varð
1919 ritari Alþýðuflokksins og
lögfræðilegur ráðunautur verka-
mannasambandsins síðan 1922 og
í stjórn Alþýðuflokksins síðan
1926. Hann hefir gefið út bók um
„tugthúslögin“ svo nefndu og
baráttuna gegn þeim.
HANS YSTGAARD landbúnað-
arráðherra er bóndi.
Togararnir í Hafnarfirði.
Síðastliðinn laugardag komu af
veiðum til Hafnarfjarðar: Venus
með 67 föt lifrar, og, í gær Kóp-
ur með 70 föt, Sirprize með 80
föt og Júpíter með 57 föt.
Lyra
er væntanleg kl. 5—6 í kvöld.
Skipafréttir.
Gullfoss er á leið til Vest-
mannaeyja frá Leith. Goðafoss er
í Hull. Lagarfoss er á Patreks-
firði. Brúarfoss er í Kaupmanna-
höfn. Selfoss er í Reykjavík.
Dronning Alexandrine er í Kaup-
mannahöfn. íslandið er á Akur-
eyri í dag.
Verklýðsfélag Bolungavíkur
hefir sagt upp kaupgjaldssamn-
ingu,m sínum við atvinnurekend-
ur.
Höfnin.
Enskur togari kom! í gærkveldi
með veikan mann. Otur kom af
veiðum með 74 tunnur, Gulltopp-
ur með 130 tunnur. Hafsteinn
með 67 tunnur. Tryggvi gamli
með 90 tunnur. Enskur togari
kom með brotið spil.
Aðalfundur
Bókbindarafélags Reykjavíkur
verður haldinn í Baðstofu Iðnað-
armanna í kvöld kl. 8V2 síðd.
I DAG
Næturlæknir er í nótt Þórður
Þórðarson, Eiríksgötu 11. Sími
4655. V
Næturvörður er í Laugavegs-
og Ingólfs-apóteki.
Veðrið: Hiti í Reykjavík 3 st.
Yfirlit: Djúp lægð við suður-
strönd Islands, en hæð fyrir norð-
an. Otlit: Hvass austan. Dálítil
slydda eða rigning.
ÚTVARPIÐ:
15,00 Veðurfregnir.
19,00 Tónleikar.
19,10 Veðurfregnir.
19.20 Þingfréttir.
20,00 Fréttir.
20,30 Erindi: Atvinnusaga íslend-
inga, VI. (Dr. Þorkell Jó-
hannesson).
21,00 Píanósóló (Emil Thorodd-
sen).
21.20 Upplestur (Þorst. Ö. Ste-
phensen leikari).
21,40 Tónleikar (plötur): a) ís-
lenzk lög; b)Danzlög.
Fiskaflinn
á landinu var 15. þ. m. orðinn
8 267 tonn, miðað við verkaðan
fisk. Á sama tíma í fyrra var
hann 10 272 tonn. [
Fískafli Norðmanna
var 4. þ. m. orðinn 34 205 tonn,
miðað við hausaðan og slægðan
fisk. Þar af hafa verið hert 4 746
tonn og söltuð 23 781 tonn. Á
sama tíma í fyrra var fiskafli
Norðmanna 52 271 tonn.
Hjónakvöld
verður á Borginni í kvöld.
Verða þar danzaðir gömlu
danzarnir.
Vðrnbíl! ósfeast
keyptnr.
Tilboð með tilgreindu
verði, „modell“ og númeri
sendist Alþýðublaðinu
merkt „374“.
Garanleikurinn
Hinrik og Pernilla verður leik-
inn í kvöld í siðasta sinn.
Dr. Þorkell Jóhannesson
flytur framhaldserindi sitt í út-
varpið í kvöld um atvinnusögu
Islendinga.
Þorstoinn Ö Stephenssen
leikari Jes upp í útvarpið í
kvöld.
Skemtifund
heldur glímufélagið Ármann í
Iðnó (uppi) annað kvöld kl. 9.
Fundir þessir eru vel þektir inn-
an félagsins og bíða margir þeirra
með óþreyju, enda má gera ráð
fyrir að glatt veröi á hjalla eins
og vant er.
§Él Nýja Bié ■
Sæludagar.
Spennandi og skemtileg
þýzk tal- og tónmynd.
Aðalhlutverkin leika
Brigitte Helm,
Gustav Griindgens,
Wolfgang Liebeneiner ofl.
Börn fá ekki aðgang.
Stúlfeaóskastlvist
Framnesvep! 36 L
Lögtak.
. Eftir beiðni bæjargjaldkera Reykjavíkur, og að und-
angengnum úrskurði, verður lögtak látið fram fara fyrir
ógreiddum fasteigna- og lóðargjöldum, með gjalddaga
2 jan. s. 1. ásamt dráttarvöxtum af þeim, að átta dög-
um liðnum frá birtingu þessarar auglýsingar.
Lögmaðurinn í Reykjavík, 18. marz 1935.
Bfðrn Þórðarsson.
1 ,:j !i 1 . i I lifiJ \M WÚ «
. -■= ísa. c SS£ œx, ta&
Eimskipafelag Reykjavikur, h.f.
S.s. „EATLA“
tekur vörur til flutnings beint til Reykjavíkur:
í MaLAGA 22. marz.
í ALICANTE 24. marz.
í BARCELONA 25. marz.
í GENOA 30. marz.
Einnig verður komið við í VALENCIA í byrjun
apríl ef um nægan flutning er að ræða þaðan.
Faaberg & J^kobsson,
Sími 1550.
Málmhúðun
Chrome - Nikkel - Silfnr - Zink - Eir..
BJðrn Elriksson, Klapparstfg 1S.
• ■ |
I , • j ,
Ef um vlðgerð er að ræða þá tekur hr. Árnl B. Björns-
son gullsmiður að sér að gera þær.
Hann tekur einnig á móti hlutum til húðunar og gefur
ailar upplýsingar.
Ghromháðunarverksiiðjan,
Klappa.sttg 18. Simi 3691.
Silfurhiiða nil aXIar pleti-
vörcir og geri þær sem nýjar.
*
Chroane-hilðaðir bifreiðahlutar.
Æskiiegt væri, að bifreiðaeigendur, sem vilja gera bíla sína í stand
fyrir vorið, tali við mig sem fyrst.
Siifurhilðaður pleíí-borð-
búuaður og fleiri hlutir.