Bjarki - 20.03.1897, Síða 2
42
skilyrðislaust álíti keisaragjamm guðsrödd og byssustíng-
ina æðsta rjettlæti.
Neitun Breta um, að loka höfnum Grikkja, scm getið
var í síðasta blaði, varð Vílhjálmur að hafa sem annað hunds-
bit; hann þorir ekki að herða á reipinu, hann gæti mist
Itali við það út úr þrenníngarsambandinu, því þeir draga
taum Grikkja.
Austurrikismenn fylgja Vilhjálmi; þeir vilja hafa Tyrki
sjer vinveitta, því báðir hata Rússa.
Frakkar fylgja Rússum að h'kindum en þó mjög nauð-
ugir, því þjóðín ann Grikkjum, en þeir hafa nú einu sinni
hnýtt þjóðveldinu aftan í taglið á Svartrússanum og þar
verða þeir nú að díngla sjer tíl eilífrar smánar.
Auk Itala eru það því Bretar, scm ófúsastir eru á að
kúga Grikki og styðja »morðfngjann í Miklagarði*. Getur
verið að Salisbury búi hjer yfir einhverju stjórnarbragði,
cn hitt mun þó sannara að meginþorri allrar ensku þjóð-
arinnar telur það smán bæði Bretum og allri mannúð og
menníngu vorra tíma að Eingland styrki Miklagarðsmorð-
íngjann til að pína og kúga þessa litlu kristnu þjóð og
þetta land, sem 1' andlegum skilníngi er móðurjörð als
hins mentaða heims. Frjálslyndi flokkurinn á Einglandi
hefur og tekið hjer svo kröftuglega í streinginn að Salis-
bury getur búist við, að sjer verði hrundið ef hann ljær
cnska flotann til að kúga Grikki.
Svona sýníst alt þetta að standa af sjer milli stórveld-
anna og Grikkja og Tyrkja, því munu stórveldin reyna að
láta Tyrki halda Krítey ef þau geta, að minsta kosti að
hafninu til, en gefa eynni annars sjálfstjórn. Aðeins ef
Grikkir geta komið af stað uppreist um allan Balkanskag-
ann eins og þeir hafa hótað nú seinast, svo ríki Tyrkja
verði hætta búin, eða þjóðir Evrópu fylgi svo fast máli
Grikkja, að stjórnirnar verði að láta undan, þá getur svo
faríð að þær verði að láta Grikki fá Krítey eins og þeir
heimta.
Seinustu fregnir hafa flutt þessar Ieiðrjettíngar og viðauka við
frjettirnar i síðasta blaði: Aðalorsökin tíl uppreistarinnar á Krít
voru ekki morðin ílok Janúar og fyrra hlut Febrúar, heldur hitt
að Tyrkir þar á eynni, að því er sagt er, með vitund stjórnar-
innar tyrknesku, reyndu bæðí með vjelum og ofríki að hindra
hinar lofuðu stjórnarbætur. í>að var orsökin til morðanna, en
þau kveyktu eldinn. Tað er og ekki alveg rjett hermt að floti
stórveldanna hafi skotið á Grikkí fyrir utan Ivaneaborg af því
að Grikkir hefðu farið að verða Tyrkjum of nærgaungulir í það
sinn. Síðari tclegrömm segja að fiotaforingjar hafi aðeins heyrt
skothríð frá hcrbúðum Grikkja og því haldið að þeir væri að
þokast nær borginni, en sannleikurinn var sá, að Tyrkir höfðu
einmitt ráðið á Grikki þá og voru þeír því að verja sig þegar
stórvclda flotinn skaut á þá. Verkið er því enn þá svívirðilegra
en fyrst var sagt. Kríteyíngar hafa Iýst því, að þeir vilji ekkeit
annað en sameiníngu við Grikkland, og þetta virðast Grikkir hafa
ætlað að framkvæma án þess þó að boða Soldáni stríð, en að beita
vopnum á eignir eða þegna annars ríkis, án þess að hafa boðað
því styrjöid, er beint brot á hinum svo nefnda alsherjar þjóða-
rjetti, og það svíður stórveldunum jafnvel sárast, að sjá litiaþjóð
troða alt siíkt undir fótum fyrir augum þeim. Kristni flokkur-
inn á Krítey hefur sagt Soldáni upp trú og hoilustu og valið
sjer bráðabirgðarstjórn.
Um aliar aðfarir stórveldanna bæði nú og fyrri hefur gamli
Gladstone farið þessum orðum við frakkneskan blaðamann:
»Ef þjer óskið að vita álit mitt á aðförum stórveidanna yfir-
leitt í þessi tvö síðustu ár, svo má jeg játa, aö þær hafa verið
mjcr bæði til hrygðar og reiði, og mjer finst beinlínis á þessum
dögum eins og stórveidin kosti kapps um að mælir þcirra eigin
svívirðíngar skuli fyllast á barma«.
Seinustu fregnir. Síðustu kröfu stórveldanna: að Grikkir og
Tyrkir skyldu verða burt af Krítey innan 6 sólarhrínga, hafa
Gríkkír neitað. Kristnir menn og Tyrkir á Krftcy eiga saman
hvern bardagann öðrum blóðugri. Grikkír fiytja úr eynni kristnu
flóttamennina. svo þúsundum skiftir hrjáða og húngraða. Stór-
veldin halda flotanum vígbúnum fyrir Kaneu og hafa sett lið í
4 bæina; nokkrum halda Gríkkir og berjast um hina við Tyrkí
og ýmsar vfgstöðvar vfðs vegar um eyna. Hvorki Gríkkjum nje
Tyrkjum er Ieyft að senda meira lið til eyarinnar. Alt á Grikk-
landi á ferð og flugí; hver vopnfær maður hervæðist og klerkar
líka. Lið sent í hópum tíl landamæra og ætla Tyrkir að mæta
þar með 120 þús. og er það nærri því tvöfalt við lið Grikkja,
en þeir ætla að setja allan Balkanskagann í uppnám og fá þá
Tyrkir nóg að vinna. Sjálfboðalið er og farið að koma til
Gríkkja víðs vegar að úr Evrópu og peníngar hafa þeim þegar
verið sendir að gjöf svo mörgum milljónum skiftir, og þurfti
þess ekki ’síður. Frjálslyndi flokkurinn á Einglandi heldur stór-
fundi víða um land og stappa þeir allir stálinu í Grikki, og
sjálfir segja þeir, að annaðhvort skuli þeir frelsa hina kristnu
bræður sína úr klóm Tyrkjans nú eða þeir sjálfir hverfa úr sög-
unni og Parþenon (hið víðfræga Aþenumusterí) og Akrópólis
(vígið forna í Aþenuborg) verða jöfnuð víð jörðu. Um síðustu
kröfu stórveldanna hefur Gladstone sagt þetta: »Að reka Grikki
burt af eynni, og skilja Armeníngaslátrarann þar eftir sem hús-
bónda, gerði ósóma stórveldanna enn þá meiri en hann er þeg-
ar orðinn*. Ætla stórveldin að Ieyfa Tyrkjum að skjóta Grikki
niður? Um þerta spurði allur hinn siðaði heimur núna 8. Mars.
Svartidauðinn indverski ólmaðist enn í Bombay þegar
síðast frjettist, og var farið að setja vörð um hana og fleíri borg-
ir, og ýmsar ráðstafanir gcrðar tii að hindra för hennar til Ev-
rópu. Annars segja læknar að pestgerillinn sjc mjög veikur fyr-
ir, og þrífist ekki nema í vestu sóða- og svínabæium. Einkar
hætt er hún Persum, því trú þeirra mcinar þeim að grafa dauða
menn. Teir færa líkin upp á turn, flatan að ofan og láta hræ-
fugla jeta náina, en nú snerta ekki fugiarnir þessa pestdauðu
menn, svo nú liggja líkadýngjurnar þar og senda ódaun og drep-
sótt út yfir borgirnar og löndin. Allír flýja drepsóttarbælin sern
geta og sagt, að úr Bombay sje flúnir læknar og okurkarlar,
hvað þá aðrir.
Hungrið a Indialandi er voðalegt, sagt að stjórnin enska
hafi veitt hálfri milljón manna vinnu eða mat, og sjái þó lítið á.
Fra Chicago er sagt húngur og harðrjetti. Tar, eins og f
öllum öðrum stórborgum, er grúi manna, sem ekki á þak yfir
höfuðið og skríður aðeins í skjól og afdrep á nóttinni. Tar gerðí
byl um daginn, og var þá öreiga húsleysíngjum veitt næturskjól
á Iöggæslustöðvunum svo hundruðum skifti. 26. Jan. er teiegraff-
erað til London að í Chicago sje 50 þús. manna húslausar og
dauðvona af húngri.
S máv e’gi s.
Sögvir Gests Pálssonar, Vordraumur, Tilhugalífið, o. fl.
eru nú að koma út í þýðíngu neðan máls í hinu alkunna, norska
itlaði »Verdens Gang« í Kristjaníu.
Bismark er búinn að fá nóg af lífinu. Manni, ?sem spurðí
um hcilsu hans og liðan, svaraði hann þessu:
>Síðan kona mín ljest, og sonur minn varð sjálfstæður, finst
mjer jeg vera einmana. Mjer leiðist jafnvel pólitík, og það því
fremur, sem jeg hef litla gleði faf því, sem jeg verð að vera
sjónarvottur að, og það mun verða því meir, því leingur semjeg
Iifi«, segir Bismark.
Georg Brandes, hinn ágæti danski fagurfræðíngur, hefur
feingið riddaranafnbót heiðursfylkíngarinnar frakknesku; hljóta
það að vera þúngar fregnir fyrir kirkju og kenslumálaráðaneytið
danska, sem hefur ekki einu sinni viljað veita Brandesi prófes-
sorsembætti við háskólann í Höfn, hvað þá heldur heiðra hana
á nokkurn hátt. Og að þessi löðrúngur skyldi koma frá París!
>Guð forði mjer við vinum mínum«.
Peary, norðurfarinn ameriski, sem fann norðurströnd
Grænlands um árið, ætlar nú að stofna til nýrrar pólfarar. Hann
ætlar að stefna til jskautsins frá nyrsta odda Grænlands, hafá
aðeins með sjcr 2 eða 3 menn, fara hægt yfir og byggja forða-
búr mörg á ieiðinni. Hann gerir ráð fyrir að ferðin getí varað
alt að 10 árum.
Nóbei, friðar og mannvinurinn sænski, var frábærlega frjáls-