Bjarki


Bjarki - 02.10.1897, Blaðsíða 2

Bjarki - 02.10.1897, Blaðsíða 2
158 í Fellum voru tilnefndir f stað Hallgríms heitins Jónsson- ar: Guðmundur Kjerúlf, Brynjólfur Bergsson og Runólf- ur Bjarnason. Lögferjuna frá Klúku var samþ. að flytja til Hrafnabjarga, og kosin þriggja manna nefnd til að semja reglugjörð fyrir allar ferjur í sýslunni. Strandferðir. Sýslunefndin fal forseta sínum að skrifa Landsöfðíngja að hlutast til um: 1. Að millilandaskipið komi við á Seyðísfirði á miðsvetr- arferð sinni bæði út og utan. 2. Að hríngferðaskípið komi við á Austfjörðum á leið- inni til Rvíkur bæði um 20. Seftember og í miðjum Nóv- ember, samkvæmt því scm lagt hafði verið til hjer í blaðinu. 3. Að strandbáturinn komi við á Lagarfljótsósi eða Selfljótsósi og Keri eða Múlahöfn í Maí, Júní og Júli bæði á suður og norðurleið. Lagafljótsbrúin. Sýslun. fal forseta sínum að skora á Lh. að hlutast til um, að byrjað yrði á Lagarfljóts- brúnni þegar á sumri komanda. Vegir. Nefndin fal forseta að sækja um 10,000 kr. af því fje, sem ætlað er til vegabóta á aðalpóstvegum, til þess meðal annars, að ryðja og varða Möðrudais- heiði og Möðrudalsfjöll, og um 500 kr. af fjallvega fje til vegagerðar á Vestdalsheiði, og aðrar 500 kr. til að bæta veg á Smjörvatnsheiði, og að sá maður, sem um vegagerðina sjer geti leiðbeint sýslunefndinni við setníngu bogabrúar á Kaldá. Um ýmislegt fleira var rætt en. ekki stórvægilegt. UTANAÐ, Reserven, gufusk. til Wathnes, kom í gær og færði fregnir til þess 25. André. l’að er nú aftur sagt að fregnirnar frá Sí- beriu um Ioftfar hans sje óáreiðanlegar, kannske aðeins flugufregnir bygðar á tílgátum. Aðrar fregnir um þá fje- laga hafa ekki komið neinstaðar að. Cupa. Uppreistarmenn sýnast nú vera að sækja í sig veðrið. Þeir tóku nýlega eina af vígstöðvum spánska hersins aðeins rúma hálfa mílu frá stjórnarsetrinu Havana. Sildarveiði og fiskiveiði afar mikil í Noregi, svo að slíkt hefur ekki sjest þar hin síðustu 50 ár. Til dæmis é(r þar sagt að fólksþurð sje tíl að koma því öllu í Ióg. A einum firðínum, Eiðsfirðí, voru komnar 250 þúsund tunnur af síld. Verkalaun víða komín í 50 au. um kl. tímann. Vestuferðirnar. Híngað til Seyðisfjarðar er skrif- að, að Hjálmar, gufuskip þórarins Tuliniusar í Khöfn eigi að koma híngað hina si'ðustu Vestuferð í staðinn fyrir Jyden. En jafnframt er sagt, að Hjálmar hafi krfng um 21. Seft. leitað inn til Gibraltar, við Miðjarðarhaf, með leka katla. Sje hvort tveggja þetta rjett hermt, þá sýnist dálítið hæp- ið að hann geti lagt af stað frá Khöfn á rjettum tíma 9. Október. lslenskar vörur í mjög lágu verði erlendis. Ket- tunnan á 34 kr. UIl á 55 tíl 60 aura, og mikið af salt- fiskí liggur óselt í Höfn. Fjársalan. Skrifað er híngað að Zöllner hafi selt 8000 fjár til Belgíu. Um verð á því og framtíðarhorfur með sölu þángað var þar á móti ekkert greint. Kornvöru verð er sagt að fari síhækkandí erlcndis. Gufuskipið »Irene< frá Stavángri, sem þeir Jóhan- sen og Þorst. Bryne komu á híngað í vor, kvað vera strandað á Jaðri í Noregi. Reserven kvað eiga að taka hjer fisk, fara síðan suður á fjörðu, koma svo híngað aftur og fara þá utan hjeðan. Stjórnarskrárbreytingin og blöðín. Þjóðviljinn og Isafold mæla cindregið með þvf, eins og Bjarki, að þjóðín reyni tilboð stjórnarínnar, og freistí, hvort hínn sjerstakí fsíenski ráðgjafi, með ábyrgð fyrír þíngínu, gcti ekki jafnað vestu misfellurnar og kom- ið kröfum okkar áleiðís, svo þjóðin getí snúíð sjer að at- vinnuvegunum og öðrum framförum, í stað þess að eyða fjc og tíma í vandræða þras, sem einginn sannorður maður þorir að spá neinum enda á. Dagskrá gefur út sína óleysanlegu víxla upp á ei- Iífðina eins og áður og Þjóðólfur »ábekjar« þá — eins og áður. Fleiri hafa ekki leiðst tll að hætta nöfnum sínum á þá pappíra enn sem komið cr. Fjallkonan víll að btöðin bíði með álit sitt á mál- inu þángað til þjóðin er búin að útkljá það. Hvers vegna þau eiga þá að koma með það, getur blaðið ekki um. Island kemur breiðleítt og gleíðgeingt og segíst vera með — -— hvorugum. Ekki vill það heldur láta þjóðína skera úr eins og Fjallk. Nei, það vill að Danir sje einir um, að gera breytíngarnar á stjórnarskránni »fyrst þeim sje það áhugamáD. Að blaðinu hcfur verið bent á, að stjórnin hafi sjálf, einmitt með aðferð sinni, gefið í skyn að hún treysti sjer ekki til að koma máli sínu fram á danska þínginu án þess að hafa vílja Alþíngís að baki sjer, það hefur ekki getað sansað blaðið. Annars er þessi stefna blaðsins komin í staðinn fyrir algerðan aðskilnað frá Ðanmörku, en að reikna út framtíðarstefnu þess eftir þvt' ferðalagi er dálítið ervitt. Það sýnist að vera eitt- hvað að höfðinu. Antífebrr'n gætí kannake bætt. Stefnír hefur ekkí sjest hjer síðan ávarp stjórnarbót- arflokksins kom út, svo »stefna« hans er ókunn. Austrí »leggur þetta mikilsvarðandi mál undir dóm almenníngs« og ætlar »síðar að segja álit sitt um það«, Ritstjórinn fór svo til Reykjavíkur. Áhrif Ijóssins. Áhrifin á líf jurta og dýra. Ljóslækníngar. Mennirnir hafa reynt það fyrir laungu að sólarljósið er eítt aðalskilyrði als lífs á jörðunní. Hítt er annað, að mennirnir hafa ckki getað gert sjer greín fyrir hvernig öll þessi áhrif væri. Þó eru vísindin altaf að fikra sig áfram leingra og leingra þar eins og annars staðar, og einkum síðustu árin hefur þeim miðað þar stórum áleiðis. Náttúran hafði sjálf sýnt mönnunum, bæði í regnbogan- um og víðar að híð hvíta sólarljós er í raunínni samein- íng eða sambland margskonar geisla, óh'kra að lít og eðli. Þessa geisla má hæglega greina hvern frá öðrum, eins og menn vita, með því að láta sólina skína gegn um glerfleig gagnsæan. Þá koma þeir út úr glerinu í röð hver með sínum lit eins og í regnboganum: íjóludökkblár, fjóluljós- blár, blár, grænn, gulur, rauðgulur og rauður (Jjós- og dökkrauður). Nú vítum við að allir þessir geislar í sam- eíníngu færa okkur hita, en eftir er að vita hvort þeir gera það allir jafnt. Setji menn nú næman hitamæli í hvern geisla fyrir sig, þá sjest að þeir rauðu eru láng- heitastir og að röðin fer kólnandi, svo að sá fjóludökk- bláí er kaldastur. Víð vitum líka að sólín breytir litun- um fyrír okkur, litar upp klæði o. fl. og með því að setja mjög Ijósnæmt »blaða si'lfur* fyrir geislana (hafa aðferð ljósmyndara) þá sjáum við, að fjólubláu geislarnir gera það fljótasfc svart en hinir rauðu seinast. Með þessu móti höfum við fundið að rauðu geislarnit erumest- megnis hitageislar,. fjólnbláu geíslarn- ir mestmegnis litunargeislar eða nxmir geislar, efnafræðislega skilið. Um gulu og grænu geislana, scm eru milli hinna í

x

Bjarki

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarki
https://timarit.is/publication/28

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.