Bjarki - 30.10.1897, Qupperneq 4
176
an. Það hcfur og sýnt sig að ljósið drepur dulsveppana
eins eftir að hafa farið gegn um lifandi hold.
Nú heiir Níels Finsen orustu sína við þessa þrálátu og
viðbjóðslegu veiki, berklaátuna. Ríkið danska veitir hon-
um styrk, og dreinglyndir framfaramenn hafa reist honum
sjerstakt hús í sambandi við Almenníngsspítalann í Khöfn.
Eitt af aðalatriðum við læknfnguna er það, að verja
blóðinu að hinum sjúka stað og gerir hann það, með
sjerstökum þrýstihríngum úr gleri með böndum í sem
hnýta má yfir um höfuðið eða liminn.
Geislamagnið eykur Nicls með ákaflega sterkum stækk-
unarglerjum, en svo þau brenni ekki ait ( sundur lætur
hann ljósið fara í gegn um vatn, sem tekur við dumbrauðu
hitageislunum og blálitað vatn, sem tekur við þeim rauðu.
Ahuld og aðfarir Níelsar hafa kostað mikla elju og marg-
ar tilraunir, og til þeirra þurft mikið hugvit, enda drepur
hann nú dulsveppana á hálfri mínútu með geislum sínum.
Lækníngar hans á berklaátunni sýnast ætla að bcra
besta árángur en eru ekki fullreyndar enn. Aður hafa
menn rcynt að brenna fyrir berklaátuna, en sjaldan lánast.
Aðferð Níelsar er seinleg, því sjúklíngarnir sitja aðcins
tv-r tíma á dag fyrir glerjunum, og skiftir því batatíminn
mánuðum, en hún tekur út fyrir allar æsar, brennir ekkert
heilbrigt hold og er sársaukalaus og það sem mest cr
um vert: Það eru góðar vonir til að lækníngin sje
varanleg.
Tilskueren. Júlí, 97.
Undirskrifuð tekur að sjer alskonar prjón, svo sem
sokka. vetlínga og hvað annað bæði til viðgerðar og
að vinna af nýu. Ull er lögð til ef óskað er. Vinnan
mun verða vönduð og afgreiðsla svo fljót sem unt er.
Björg Guðmundsdóttir, ekkja. (Fjarðaröldu).
Ur og klukkur.
Unírskrifaður tckur við úrum og klukkum til aðgerðar,
og mun sjá um að það verði vandað og vcl af hendi
leyst í alla staði, fyrir vanalegt verð, og gefur þó IO°/0
afslátt sje borgað ( peníngum.
Vestdalseyri 14. Október 1897.
Stefán I. Sveinsson.
úrsmiður
Afgreiðsla Bjarka
verður framvegis í húsi Eyjólfs JÓnSSOnar ljÓS-
myndara, og því eru allir menn, sem annaðhvort fá
ofsent eða vansent eða hafa eitthvað að athuga við útscnd-
ínguna, vinsamlegast beðnir að snúa sjer til hans, skrif-
lega cða munnlega; eins annast Eyjólfur Jónssou frá byrj-
un þessa mánaðar aila innheimtu á andvirði blaðsins
og eru menn því beðnir að greiða það til hans eða semja
við hann um það.
Nærsveitamenn ættu að sýna Bjarka þá vinscmd
að vitja hans í húsi Eyjólfs Jónssonar, þegar þcir búa á
sama bæ eða næsta bæ við einhvern af útsöiumönnum
blaðsins. Allir sem á Ölduna koma eða Búðareyri fara
fram hjá húsi Eyjólfs, svo þeim er sá greiði útlátalaus.
Um alt sem að ritstjórninni lýtur, svo sem
um auglýsíngar, eða annað sem menn óska að koma (
blaðið, eru menn nú sem fyrri beðnir að snúa sjer til
ritstjórans. Skrifstofa blaðsins er í prentsmiðju
Bjarka, nýa húsinu hjá apótekinu.
Kaup Og uppsögn á blaðinu annast ritstjórinn nú
sem áður.
Hjcr með lcyfi jeg mjer að tjá hinum heiðruðu við-
skiftamönnum mínum að herra Mattías Þórðarson hefur
tekið við sem forstöðumaður fyrir verslan minni hjer. Bið
jeg alla sem skulda mjer að greiða upphæðina til hans
sem fyrst eða að semja við hann. Talsvert af vörum,
líkt og áður, er til ( versianinni, en samt hef jeg í hyggju
að senda nokkra viðbót af ýmsu til gagns og gamans
handa fólkinu fyrir jólin.
Scyðisfirði 7. Október 1897.
M. Einarsson.
Nýkomið
i bókaverslan L. S. Tómassonar á Seyðisfirði.
Bókasafn alþýðu i. ár, (i. og 2. hefti) . . . 2,00
Þjóóvinafjelagsbækur 1897 ........2,00
Lögfræðingur 1. ár..........................1,50
Brúðkaupslaglð, saga e. B. Björnson . . . , . 0,60
»JÓn« leikrit eftir frú H. Sharp ..........0,75
Skáld-Helgasaga....................., . . . . 0,40
Norges Kongesagaer, Pragtudgavc 30 hæfter á 0,80
™ — Folkeudgave 45 —- á 0,30
Prjedikanir Dr. P. P. 3. útg, heft.........4,00
— — Sjera Páls Sig. ób. 3,00 innb. . . 4,00
Landafræði eftir Þóru Friðriksson innb......0,65
Reikningsbók eftir Þ. Thoroddsen innb. . . . 0,85
Búkolla Og Skák eftir G. Friðjónsson . '• . . . 0,25
Smásögur Dr. P. P. Í kápu 0,50 innbunduar 0,60
Alskonar skóla - og kenslubækur.
Forskriftarbækur handa börnum og únglíngum. — Skrif-
bækur með einf. og tvöföldum strikum. — Vasabækur —
Minnisbækur. — Viðskiftabækur. — Pappír. — Umslög
Pennar. — Blek. —- Pennasteingur. — Lakk. — Reglu-
stikur. — Blýantar. — Blýantshylki. — Strokleður.
Skrifspjöld. — Griflar. — Griffilyddarar.
Orgel - harmonia og ýms önnur hljóðfæri vönduð
og ódýr, eru útveguð er ferðir falla.
Brunaábyrgðarfjelagið
»Nye danske B r a n d f o r s i kr i n g Selskab*
Stormgade 2 Kjöbenhavn.
Stofnað 1864 (Aktiekapital 4,000,000 og Reservefond
800,000).
Tekúr að sjer brunaábyrgð á húsum, bæjum, gripum,
verslunarvörum, innanhúsmunum o. fl. fyrir fastákveðna litla
borgun (premie) án þess að reikna nokkra borgun fyrir
brunaábyrgðarskjöl (police) eða stimpilgjald.
Menn snúi sjer til umboðsmanns fjelagsins á Seyðisfirði
ST. TH. JÓNSSONAR-
í verslan
SIG. JOHANSENS
f á s t:
Pvottaborð (servanter)
á 9-10 krónnr hvert.
Hjá Anton Sigurðssyni fæst:
Agætur stigvjelaáburður, skó- og stígvjela-
rcimar mjög sterkar, sömuleiðis skósverta, skóhorn
og hnepparar handa kvennfólki, ljómandi fínir, með fíla-
beinsskafti.
Eigandí: Prentfjelag Austfirðínga.
Ritstióri og ábyrgðarmaður: Þorsteinn Erlíngsson.
Prentsmiðja Bjarka.