Bjarki


Bjarki - 09.07.1898, Síða 2

Bjarki - 09.07.1898, Síða 2
ioð Jeg bið svo alþýðukennarann að fyrirgefa, að jeg álítekkí »skaðlaust« heldur nauðsynlegt að svona skól- ar haldi áfram starfi sínu. En það væri líka nauðsynlegt að námstím- inn væri leingdur, eins og ráðgert cr með Möðruvallaskólann, og skól- arnir gerðir sem bestir til að menta okkar alþýðumenn. Við höfum þess fulla þörf. þekkíng samfara dáð og dreingskap er nauðsynleg til að efla framfarir og fjelagsskap. Jcg vona líka að margír, sem þeg- ar hafa geingið, á okkar ófullkomnu gagnfræðaskóla, sýni það með auk- inni mentun og einlægum vilja og áhuga, að þeir hugsa um að vinna scm mest gagn bæði líkamlega og andlega. Margir af þeim eru úng- ir enn, og er ekki gott að segja, hvað úr þeim kann að verða. En ckki get jeg dulist þess, að mjer finst þeir yfir höfuð ekki eins framgjarn- ir cða framtakssamir eins og vænta mætti. Guðmundur Friðjónsson er Möðruvellíngur og til mikils sóma skólanum og landinu í heild sinni. það er framfaramaður. Og viljeg segja að einmitt hann sje gott sýnishorn af miklum hluta þeirra pilta sem gánga á Möðruvallaskóla. Skoðanir hans cru öilum kunnar, og hugsunarháttur hans, einurð og hreinskilni líkar mjer svo vcl, að jeg get ekki geingið framhjá hon- um alveg þegjandi. Hann hefur áhugann betur vakandi en flestir hinir skólageingnu bræður hans; hugsunarhátturinn er hinn sami, en áhuginn gerir mikið að verkum. Gagnfræðíngar! Minnist Guðmund- ar Friðjónssonar, og gáið að því, að sama er af yður heimtandi og honum. Hann hefur lært á sama skóla og ieingið sömu fræðslu. Aðeins getið þið ekki gefið ykkur sjálfir skáldskapargáfuna, en þið getið hugsað og framkvæmt og lát- ið mikið að ykkur kveða samt. Jeg enda svo með þeirri ósk, að sem flestir úngir menn er gánga á gagnfræðaskóla og hvaða skóla sem tr, sjái svo sóma sinn, að þeir neyti allra krafta til að verða nýt- ir og uppbyggilegir menn, heldur en leggjast í leti og ómensku. f’að er ekki sæmandi úngum mönnum. Jeg á sjcrstaklega við þá sem gánga á alþýðuskólana. Við höf- um nú meiri þörf fyrir fróða og framgjarna alþýðumenn, sem hafa þrck og dörfúng og sjálfstæði til að koma hvervctna fram sem ó- háðir og einarðir menn, heldur en stúdentar, sem hugsa bara um að ná í vel launuð embætti, þó að sumir þeirra verði, sjeu og hafi ■ orðið ágæsismenn. Svo er fyrir þakkandi. En það cr vissulega leiðinlegt að sjá stundum einstaka embættismenn ráða öllu á fjöl- mennum fundum einúngis vcgna þess að þar vantar alþýðumenn, er geti látið til sín taka. J. ——l'liilll íll I--- Sólín birtíst hliðum hárra fjalla. (úr >Einbúaljóðum<) --> «-' Niðri’ í djúpi dimt við hlær, degi tekur að halla; en sólin birtist hlíðum hárra fjalla. Grúfir þoka á gráum heiðum, grátin hánga lauf á meiðum. Eftir kvikum Ægis leiðum einn á báti maður rær. — Niðri’ í djúpi dimt við hlær — Iiin til lands hjá búngu-breiðum, brettum jökul skalla, sólin birtist hlíðum hárra fjella. Ið ytra þokan sortnar og sígur, sollið tár um vánga hnígur, upp til himins andvarp stígur, alda bátsins hliðar slær. — Niðri’ í djúpi dimt við hlær — Inn í dölum fuglinn flýgur, fyrstu raddir gjalla. Sólin birtist hlíðum hárra fjalla. Stígur gufa af svörtum sandi, seilist upp að þoku bandi; sólar vermdur sunnan andi sænum inn við strendur nær. — Niðri’ í djúpi dimt við hlær — Hreyfíng sem á legi og Iandi litar dæld og hjalla; sólin birtist hlíðum hárra fjalla. Lyftist þoka af legi í blænum, ljósgrá móða fylgir sænum. ángan ber af grundum grænum. Gleðin rís við skraut og saung — Hlær við dimt í hamra þraung — Ut til Ieika börn af bænum blær og geisli kalla. Sólin birtist blíðum hárra fjalla. Innangola af landi líður, laugar alda bátsins síður. jafnt og liðugt skeiðin skríður, skjótt úr hafi frónið rís. — Er þá sigur vonar vís?— — Móts við glóey blærinn blíður beri þig dagana alla. Sólin skín í hlíðum hárra fjalla. Sigurjón Friðjónsson. Smátt og stórt. —:o:— Lað mun vera nýnæmi hjer eystra, og reyndar víðar hjer á landi, að sjá hesta gánga fyrir piógi, en svo lángt er )>ó nú komið hjer uppi á Hjer- aði. Jónas I’álsson búfræðíngur frá Ólafsdal hefur verið fcinginn þaðan að vestan fyrir tilstilli Runólfs Bjarnason- ar á Hafrafelli og húnaðarfjelags Fella- manna, og færði hann með sjer plóg og öll áhöid. Með Jónasi hefur unnið að plægíngunni Jón Stefánsson Líng- eyíngur, og hefur mönnum að sögn geðjast vel að starfi þeirra, en nauð- synlegt telja þeir að mennirnir gætu verið 6 saman að vinnunni, svo hest- aflið yrði notað að fullu. Eiðaskóli kvað og nú hafa feingið sjer plóg frá Ólafsdai. I’restafundur hefur nýiega verið haid- inn á Sauðárkróki og höfðu sótt fund- inn prestar úr Húnavatnssýslu og Skagafirði; hafði og staðið til að ey- firsku prestamir yrðu með, en af ein- hverjum orsökum ekki orðið af því. Átti þessi fundur víst að undirbúa ýms mál til almennrar prestastefnu. Ýmsar iausafregnir hafa farið af að- gjörðum þessa fundar, þar á mcðal að undirbúin hafi verið áskorur. tii stifts- yfirvaidanna um að leysa nokkra presta, frá embættum sínum, suma sakir ó- regiu og aðra af því að þeir hefðu svo mörgu öðru að sinna og þjónuði Mamm- oni gamia meira en æskilegt væri. Nöfn ýmsra presta hafa verið nefnd hjer tii, en valt að hafa slíkt eftir, en ekki væri það iila hugsað af einhverjum prestinum sem þennan fund hefur sótt að gcfa einu eða fleirum af blöðununi sannar fregnir af þessu, svo menn sjeu ekki að dylgja með þetta, og úthrópa nafngreinda menn kannske orsakalaust. Fyrst fundarmenn hafa ekki haft hljótt um slíkt, ættu þeir að skýra blöðunum frá þessu, svo ekki verði spunnið út úr því meira en komið er. í í’jóðviljanum únga stend- ur þessi saga. Áverkar, — stakur prakk- a r a s k a p u r. 14. þ. m. var það kært fyrir sýslumanni H. Hafstein, að aðfaranóttina 12. þ. m., er faktor Sophus Holm á Flateyri var staddur einn í verslunarbúð sinni, hafi verslunarmað- ur Haldór Haldórsson frá Fórustöðum í Onundarfirði komið þar inn, ráðið á hann, veitt honum 4verha, jarðvarpað honurn, troðið hann fótum, nefbrotið hann, og leikið hann að öðru Ieyti mjög illa, svo að Holm fjell í ómegin. — En meðan faktorinn lá í yfirliðinu tjáist Haldór hafa bundið hann, og skilið svo við hann bundinn í yfirliði og iag- andi í blóði. — Fór sýslumaður Haf- stein vestur í Önundarfjörð r^. þ. m. með gufubátnum >Ásgeir litla«, og fóru þeir þá einnig vestur vcrsiunar- eigandinn Á. G. Ágeirsson, og versl- unarmaður Sophus J. Nielscn, scm gcgnir verslunarstjórastörfunum þar vestra meðan Soph. Holm liggur. Ekki kvað Haldór hafa feingist til að meðgánga neitt, þykist hvergi hsfa nærri komið, og var hann því fluttur híngað með >Ásgeiri litla« aðfaranótt- ina 16. þ. m., og þegar settur í varð- hald í fángahúsinu hjer, ef ske kynni að minni hans yrði ögn gleggra«. Frjetst hcfur að Haldór hafi síðar meðgeingið og verið sleft úr haldi, hafi hann þá strokið til Suðurlands og sjest síðast í Reykjavík og haldið hatm hafi komist þaðan í trolara. 9. Júlí. Vcður hefur verið nokkuð mislynt þessa viku, og á Lriðjudaginri var noll- köld norðannepja aðeins 9 stiga hiti á R,, en bæðí fyrir og eftir mesta blíða og iogn og hiti í gær, og fagurt veð- ur í dag en lítið eitt andkaldara. Gras þýtur nú upp í gróðrarveðrinu, Byrjað að slá sumstaðar í Hjeraði og gras sagt þar orðið í mcðallagi á túnum. Lessa viku hefur verið hjer töluvert margt af manninum. Jón Bergsson á Egilsstöðum og Brynjólfur í Ási bróðir hans; þeir bræður Sölvi á Arnheiðar- stöðum og Guttormur alþíngismaðuri Gunnar hreppstjóri á Ketilsstöðum, Baldvin á Lorgerðarstöðum, Björn Æ Vaði, Sigfús oddviti á Sandbrekku og þeir bræður hans Jón hreppstjóri og Guðmundur; þeir Jón og Guðmundur Kjerúlf, Jónas á Bessastöðum, Vigfús Lórðarson cand. theol. á Eyjólfsstöðunt og ýmsir fleiri og sumir með húsfrey- ur sínar og dætur. Steindór á Dal- húsum hefur og verið í borginni, og munu nú fáir Hjeraðsmcnn ókomnir. SKIP. 5 kolaveiðarar komu 2. Júií og fóru aftur þ. 4., - en komu svo híngað inn aftur í fyrra dag til að afferma í Cimbríu. 4. Júlí kom >E I e k t r a< seglskip til Johansens með ýmsar vörur. Vaagen fór 4. Júlí tii Rvíkur og með henni bræðurnir Otto og Carl Wathne. C i m b r i a, millifcrðaskip kolaveiða- fjeiagsins >Dan< (skipstj. Jörgenscn) kom 7. Júlí og fór aftur í gær. T h y r a kom að norðan í dag. Með skipinu voru Bjarni Sæmundsson fiski- fræðíngur, Helgi Jónsson, Jakob Líndaf á leið tii Ameriku, Bachc og konur Konráðs og Gísla Hjálmarssona, Elín Tómasdóttir systir Kristjáns læknis, íngibjörg Jakobsdóttir prests Bene- diktssonar. Skólapiitarnir Þórarinn í'órarinsson og Haldór Jónasson o. fi. Frjettir ekki að norðan. Grasvöxtur orðinn víðast í meðallagi og allgóður fiskur víða á fjörðum nyrðra. ikjóðminningadagur Austfírðinga. er ákveðið að vcrði haldinn a ð Egilsstöðum 1. Sunnudag í Agúst (7. Agúst) að færu veðri, ella næsta SunnuJag á eftir. Nánari auglýsíngar síðar. Fund- urinn byrjar á hádcgi. Munið eftir að Arni Jóhansson svslu- * skrifari hcfur nú alla umi'nnun á útsendíngu og fjárheimtu Bjarka. Honum sendast því hjcðan af allar pantanir, uppsagnir og athuga- semdir við útsendíngu blaðsins, andvirði þcss og innskriftarskýr- teini. Arna er að hitta bæði á skrifstofu bæarfógetan^ og í prent- smiðju Bjarka austurendanum. Aðeins alt scm að ritstjórn lýtur greinir og auglýsíngar sendast til ritstjórans. Nærsveitamcnn geri svo vel að vitja blaðsins í prcnt- smiðju Bjarka t>g annast prcntai- arnir þá afhcndíngu. Gjalddagi á andvirði lijarka \ ar 1. J ú 1 í. Munið eftir hotuam núna á kauptíðinni og kom-ið með

x

Bjarki

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarki
https://timarit.is/publication/28

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.