Bjarki


Bjarki - 16.06.1900, Side 1

Bjarki - 16.06.1900, Side 1
Erít btað á vifeu minst. Arg. 3 fcr. fcorgist fyrir i. Júlí, (erlendis 4 kr. borg.ist fyrirfram). ARKI Augtýsfngar 8 aura Ifnan; mikill af- siáttur ef oft «r auglýst. Uppsögn skrifleg fyrir x. Október. Seyöisfirði, Laugardaginn 16. Júni V. ár. 24 Póstar. *7. — Hólar á norðurtóið. 19. — 'Norðanpóstur kemur. S. d. VopnafJ.póstur fer. 20. — Eg’li að norðan, suður um fjörðu og utan. 21. — Sunnanpóstur kemur. 22. — Ceres frá útlöndum um Norð- fjörð, norður um til Rvíkur. 30. — Hólar á suðurleið. ínga frá útlöndum (óákveð- inn dagur). Uppboðsauglýsing. Eftir beiðni herra verslunarstjóra Gríms Laxdals verður haldið opin- bert uppboð á Vopnafirði Laugar- -daginn 7. Júlímánaðar næstkomandi og þar seldar ýmsar vörur tilheyr- andi Vopnafjarðardeild pöntunar- fjelags Fljótsdælfnga o. fl. t. a. m álnavara og önnur kramvara, kað- all, fjárbað, járnvara og kryddvara, tómir kassar, tunnur o. fl. Söluskilmálar verða birtir á und- an uppboðinu sem hefst kl. iof. h. Skrifstofu Norður-Múlasýslu 15. Júní 1900 Jóh. Jóhannesson. Útlendar frjettir. Með skipi Garðars, Snæfelli, komu ensk blöð til 9. þ. m. og færðu þessar frjettir helstar: Brctar tóku Prætóríu (borið fram Pretóríu) 5. þ. m. mótstöðulaust frá Búa hendi, eins og sagt var fyrir f síðustu frjettum í Bjarka. Það er nú fullyrt að Búar hafi aldrei ætlað sjer að verja borgina, þvf þó þar væri gott til varnar þá var Búum það auðvitað lítil ánægja að sitja þar umkríngdir og láta svclta sig þar inni en geta eingan geig gert Bretum á móti. Síðan Búar sáu vanefni sín að stöðva Breta við Vaalfljótið hafa þeir látið sjer nægja að tefja þá og ónáða á leiðinni til Jóhannes- borgar og Prætóríu sem þeir hafa sjeð sjer fært. Fyrir sunnan og vestan Jóhannesborg urðu æði skæð- ar smáorustur áður Bretar tæki borgina og í einní þeirra segjast Bretar hafa mist 75 menn. En þegar þeir nálguðust Prætóríu fór Búaherinn óðum að hafa sig á burt og flutti með sjer mikið af faung- unum bresku. En svo nálægt voru Búar þar klóm Roberts að þegar breska liðið kom í borgina voru 3 vagnalestir á járnbrautarstöðinni og tóku Bretar 2 þeirra hlaðoar kol- um og ýmsum vörum, ein slapp burt. Bretar segjast líka hafa náð þar um 100 herfor/ngjum sem fángnir voru, en þær 5 eða 6 þús. manna sem Búar höfðu tekið fángnar höfðu þeir á burt með sjer. Forsetar ríkjanna, Kriiger og Steijn, voru farnir þaðan daginn áður svo Bretar náðu þeim ekki, en kona Krugers og kona Botha yfirforíngja Búa voru eftir í húsum sínum og láta Bretar auðvitað bæði þær og hús þeirra í friði. Forsetarnir og Búaherinn hjeldu austur eftir járnbrautinni sem liggur frá Prætóríu til Middelborg- ar þar sem Kriiger kallar nú að- seturstað sinn, og þaðan til Lyd- enborgar heiða að land.amærum Portúgala og er getið til að þeir muni ætla að setjast að á þeim heiðum og hafi haft með sjer fáng- ana til þess að neyða Breta til að halda á eftir sjer og eyða fje og mönnum, þvf ella hefðu Bretar vel getað látið sjer nægja með að taka alt Iandið og halda aðeins .vörð sunnan við fjöllin þángað til Búar yrðu Ieiðir á útilegunni og fegnir að hverfa heim til búa sinna og kvenna. Auk fánganna tók Búa- herinn með sjer nær 30 milljónum króna í gulli. Óvíst er ennþá hvort Kruger gamli sest með Búahernum á Lyd- inborgarheiðar eða hcldur áfram um lönd Portúgala til Delagóafló- ans og fer þaðan á einhverju af her- skipum Norðurálfuríkja til Hollands, og það síðast talda þykir jafnvel líklegast. Stórtíðindi hafa fá orðið þar syðra síðan seinustu fregnir komu í Bjarka. Þó tóku Búar í Óraníurikinu ridd- arasveit af Bretum 30. Maí; sú sveit var 4—500 manna. Bretar leyna því ekki að þeim er bölfanlcga við það ef Búar setj- ast á Lydenborgarfjöllin. Dreyfus. Ennþá einu sinni ætlar Dreyfusmálið að hleypa Frakk- landi í uppnám. Fjendur stjórn- arinnar hafa borið það fram aö maður nokkur á einni af stjórnar- skrifstofunum hafi skýrt frá því, að skjölin sem austurríkski flækíngur- inn lagði fram síðast í máli Dreyf- usar sje þýðfngarmeiri en sagt var og stjórninni nú borið á brýn að hún leyni þeim vegna hersins. Svona er alt orðið öfugt nú, að fjendur Dreyfusar og stjórnarinnar beita þessum vopnum aðeins til að fella þessa stjórn, vafalaust í þvf skyni að steypa lýðveldinu og fá konúng eða keisara. Þeim bardaga lauk þó svo fyrst um sinn að Galliffet hermálaráð- herra sagði af sjer en annar kom í staðinn sem André heitir. Síðan hcfur þar verið kyrrara. Kina. Þar hefur leynifjelag eittj sem kallað er Boxarar, gert óspekt- ir. Tilgángur fjelags þess er að ryðja burt öUum trúboðum og víst yfir höfuð öllum útlendíngum úr Kína, og hefar það nú risið upp víðsvegar um ríkið, drepið menn og gert uppreist móti her stjórn- arinnar svo hún hefur ekki ráðið við neitt, og hafa því stórveldin sett þar 700 manna á land og Rússar 2000 að sagt er til að bæla Boxarana. Bramakóngurinn Mansfeld- Bullner, tyrkneskur general konsúll og margt fl. er nýdáinn og varð ekki nema 58 ára. Sem von cr til mun mönnum þykja það ijeleg meðmæli með B ama og öðrum leyndarlyfjum og bitterum þegar sjálfir meistararnir deyja svona frá öllu saman á besta skeiði. Þá er ekki von að sullið leingi lífið í hinum. Timarit — blöð. — — í 19. tbl. ísafoldar hefur hcrra Einar Hjörleifsson tekið til máls útaf greininni, sem »Bjarki» flutti í vetur, um tímarit, blöð o. fl. En sú grein var skriluð móti mjög á- kveðinni skoðun, sem hann hafði áður látið í Ijós í Isaf. um galla þá sem væru á hjerlendum tíma- ritum nú sem stendur, að undan- teknum kirkju- og trúmála-ritunum, og þó einkum gegn ummælum hans um stofnun nýs tímarits samkvæmt tillögu Bókmeotafjelagsstjórnarinnar { vor sem leið, eða tímarits, sem færi í líka átt og um hefur verið rætt nú á síðustu þíngum. Af ummælum hans, f þeim grein- um í ísafold sem Bjarki hafði fyr- ir sjer í vetur, varð ekki annað slcilið, en að hann væri mjög ein- dregið á móti stolnun þcsskonar 1900 tfmarits, sem hjer er um að ræða og að hann teldi öll tímarit einsk- is nvt sem ekki væru beinlínis gef- in út til þess að þræla undir merkj- um einhverrar fastákveðinnar skoð- unar, eða »stefnu«. En nú lýsir E. H. yfir því (ísaf. að hann sje Bjarka að öllu leyti samdóma í þessum efnum og er Bjarka það auðvitað ánægja, eink- um þar sem E. H. sannar að svo sje með uramælum úr grein, scm hann hefur ritað f Isaf. fyrir tvcim árum. Þar er hann að rita um Eimreiðina og segir meðal annars: »Oss virðist sem einmitt það ætti að vera aða'Ihlutverk Eimreiðarinnar að taka sem flest af þessum mörgu málefnum til rækilegrar íhugunar, og þá helst fylgja dæmi hinna á- gætustu útlendra tfmarita í því, að fá málin rædd frá sem fiestum og ólíkustum sjónarmiðum.« Eins og allir geta sjeð, kemur hjer fram beinlínis sama skoðunin sem haldið var fram í Bjarka, bæði á þvf, hvcrnig stjórna eigi tímarit- um og Hka á því, hvernig bestu tímaritum erlendis sje stjórnað. Þar er ekki minsti munur á. Enda segir E. H. að þángað geti hann orðið Bjarka samferða, en leingra ekki. En sannleikurinn er sá, að hann hefur orðið samferða alla leið, kom- ist nákvæmlega að sömu niðurstöðu í þessu máli. Því um leið og hann játar að tímarit, sem gcfa sig við að ræða alfslensk mál, ættu að vera óháð allri flokkaskiftfngu, ættu að »ræða málin frá sem ólíkustum sjónarmið- utn«, — þá gctur það ckki verið skoðun hans, að tímarit, sem stofn- að væri til þess að gefa okkur hug- rnynd um áhugamál og þrætumál umhcimsins, ætti að vera einskorð- að stefnurit. f>að næði eingri átt. En það var einmitt þetta sem hann hafði haft á móti tímarits- stofnun Bmfjel. Annars er lángt frá þvf að Bjarki kæri sig um að vera að heingja hatt sinn á það atriði. Aðalatriðið er það, að E. II. e r Bjarka fyllilega samdóma um það hvernig tímaritum ætti að vera stjórnað. Og þá getum við líka vafalaust orðið ásáttir um það, að hugmynd

x

Bjarki

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarki
https://timarit.is/publication/28

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.