Bjarki


Bjarki - 13.12.1901, Page 3

Bjarki - 13.12.1901, Page 3
hefur íjelagið yfir að ráða. Veturinn er ætl- | ^aður til undirbúníngs, en flutníngar frá nám- unum eiga að byrja strax með vorinu. íslenskur maður, sem átti tal við greifann á Færeyjum í haust, spurði hann meðal annars eftir hvort hann þekkti til kolanna hjcr á Austfjörðum. Greifinn kváð já við því og ihafði kynnt sjer tilraun þá, sem Tuliníus stór- kaupmaður hafði gert méð þau. Ilann sagði, að Austfirsku kolin mundu ekki tilúlfiutnfngs, en sjálfir gætu Íslendíngar vel notað þau í stað þcss að kaupa kol að; hjer vantaði aðeins duglegan mann til að gángast fyrir að koma því í framkvæmd. Tietgen, einhver hinn frægasti og mesti maður sem Danir hafa átt, andaðist ig. f. m. Hftnn var fa;ddur 19. rnars 1829 i Odense, varð verslunarmaður og lagði einkum stund á álnavöruverslun. 20 íra gamall fór hann til Manchester til að fullkomna sig í þessari versl- unargrein. Hann dvaldi þar nokkur ár og nam mikið af Einglendíngum. Par sjer hann fyist, hve tíðar samgaungur eru þvðíngar- miklar og hve lángt Danmörk þá er á eftir tímanum í þeim sökum. Hann kom aftur til Danmerkur sem vörubjóður fyrir enskar stór- verslanir, ferðaðist nokkur ár víða urn landið í þeim erindum og kynntist viðskiftalífinu í Danmörk. 1855 .settist hann að sem stór- kaupmaður í Kaupmannahöfn, en var þó aðeins fulltrúi fyrir enska kaupmenn. Tveim árum síðar var rrívatbánkinn stofnaður og Tietgen varð forstjói i hans, þá ekki þrítugur, og sýnir það, hvc mikið álit hanr. hafði þegar feingið. Fyrirtækið þreifst vel og T. gerði margar nm- bætur á dönskum bánkamálum. T. hefur síð- an átt meiri eða minni þátt í nær ölium hin- um stærri framfarafyrirtækjum í Danmörk og í hinum stærstu hefur hann verið aðalmaðurinn, ráðið stofnun þeirra og fyrirkomulagi og síð- an stjórnað þeim. 18Ö6 stofnar hann »sam- einaða gufuskipafjelagið* á þann hátt, að hann fær alla þáverandi skipaútgerðarmenn í Khöfn, til að taka höndum saman og gánga í eitt fjelag. I’að er kunnugt, hve stórmikinn áráng- ur sú fjelagsstofnun hefur haft fyrir samgaung- ur og viðskiftalit í Danmörk og nálægum lönd- um. Sama ár átti hann mikinn 'jiátt í stofn- uti sporvegafjelags Khafnar. En árin 1868 — 70 kcmur hann fótum undir það fyrirtæki sem er aðalverk hans og mcst þykir til koma, en það er stofnun »stóra norræna frjettaþráða- sambandsitis.c 1871 — 74 stofnaði T. fyrirtækið »Bur- meistar & Wain,« sem nú vcitir þúsundum manna atvinnu. Hann er stofnandi Tuborgs ölgerðarhúsa, Thíngvallafjelagsins, Pappirsverk- smiðjanna dönsku og margra fíeiri fjelaga og fyrirtækja. Frá 1880— 90 vai vcgur l'. mest- ur, en síðustu árin var hann heilsulítill og gat því ekki starfað eins og áður. 'í'. er vafalaust með rjettu talinn einhver hinn mesti fjármála- fræðíngur sem uppi hefur verið á síðastl. öld. Sjálfur átti hann eingar eignir, en hafði há laun eða lífeyri frá hinum stóru fjelögum sem hann liafði komið á stofn. BÚHer hershöfðingi, sem í fyrstu st/rði her Breta í Búastriðinu, fær misjafna dóma fyrir frammistöðu sína þar. Yfirforingjatignin 183 var tekin af homim haustið 1899, eftir að hann haíði farið' hvcrja óförina á fi'aiíwr annari, og fengin í liendur Roberts lávarði, eu næstur honum að völdum gekk Kitchener, sem er orðinn yfirforingi. Eins og kunnugt cr tók Buller Ladysmith. En itokkrum mánuðum seinna var hann kaliaður heim frá stríðinu og var honum þá tekið mcð mestu virtum af stjórninni þegar heim kom. Þar á móti rjeðust vms Lundúnablöðin með »Times« í broddi fylkingar á Buller og fundu honum ýmislegt til saka, en það fremur öllu öðru, að hann hafði ráðið White hershöfðingja, sem leingst varðist í Ladysaiith, að gefast upp, þótt whitc ekki gcgndi því. Buller tók þessar árás- ir mjög óstinnt upp, cn þessu síðastnefnda gat hann ekki neitað. Deiian hefur nú endað svo, að hann er settur frá stöðu þeirri sem hann hefur haft í hernum og á að líkindum ekki framar uppreisnar von. Búar. I Suðurafríku eru stöðugt smá bar- , dagar og róstur. F.ins og áður hefur verið um getið í Bjarka varósamiyndi milli Kitcheners yfirhershöfðíngja Breta og stjórnarinnar. Hún virðist nú hafa látið að miklu að kröfum hans og gefið honum miklu frjálsari hendur en áð- ur tii að reyna að leiða ófriðinn til lykta á hvcrn þann hátt sem hægt sje. Dauðadómar eru nú stöðugt upp kveðnir yfir Búum þeim sem Bretar ná á vald sitt. Li-Hung-Chang, hinn heimsfrægi undir- konungur í Kína, sem mest afskifti hcfur haft þar 3f málum Norðurálfumanna, andaðist kvöld ið 6. f. m. Iíann var fæddur 1821 og því áttræður eftir okkar reikningi, en eftir aldurs- reikningi Kínverja 81 árs, því þeir tclja mann- inn eins árs þegar fiann fæðíst. Lí var síðari hluta æfi sinner voldugastur allra manna í Kína. 1 [ann var aí lágum stigum og ruddi sjer sjálfur braut til æðstu valda. Hann gekk í æsku menntaveginn og varð doctor 1845 en 1853 komst hann í þjónustu ríkisins og hækk- aði síðan stöðugt í. tign og áliti. Hann sat leingstum í Tíentsín og hafði þar hirð um sig. Ilann var vinveittari menningu vesturlanda en margir aðrir embættismenn Kínverja og fyrir nokkrum árum ferðaðist hann um Norðurálfu og heimsótti alla hina helstu stjórnendur þar. Hann þótti oft viðsjáll í viðskiftcfm, en vit- maður hinn mesti. Snjókoma var mjög rr.ikil í mánuðinum sem leið bæði í Danmörk og Norcgi. Járn- brautarlestir tepptust og frjettaþræðir eyðilögð- ust. Jarðarför Sigurðar sál. Einarssonar fór fram föstudaginn 6. þ. m. að viðstöddum flestum sveitunga hans, auk nokkurra annara, þrátt fyrir það þó veður væri eigi gott. Samkvæmt ósk og vilja hins látna fóru ekki fram athafnir þjóðkiikjunnar við það tækifæri, að því leyti að hinn látni var ekki moldu ausjnn á háttu þjóðkirkjunnar (með því að hann heyrði eigi þjóðkirkjunni til), og fann sóknar- presturinn af þeim ástæðum ekki vald hjá ser til að leyfa að hann væri jarðsettur í grafreit- um kirkjuonar. Hann var því jarðsettur nálægt Ire’mili sínu á Hánefstaðaeyri og hélt hcrrat* Davíð Östlund h'kræðuna eftir beiðni ekkjunn- ar. Gat herra Östlund þess í byrjun ræðu simi- ar að þó hann eigi stæði á sama trúargrund- velli eða hefði sömu lífsskoðun og hinn fram- liðni hefði haft, þá vildi hann þó leitast við að tala um hinn® látna, að svo miklu leyti sem þekking sín á honum næði til, sem væri eink- um su, að hann hefði þekkt hinn látna sem fijálslyndan, sannleiksleitandi og mikið starf andi mann, sörstaklega hvað snerti það, að mcnn feingju algjört trufrelsi hér á landi og að ánauðaroki áfengisins yrði sem fyrst ijett af þjóðinni. Þetta tvennt kvað hann mikilsvert og að það mundi balda minningu Sigurðar lcngi á lofti, og þakkaði honum í nafni sfn og annara fyrir þessa starfsemi hans. þeim mönnum til skýringar er eigi voru við má taka það fram, að jarðartörin fór að öllu siðlega fram, sálmar voru súngnir og sorgarinnar eðliga þögn og rósemi gagn tók hvcrs manns hug, að því er sjeð varð, Viðstaddur. Seyðisfirði 13. des. 1901. Veður hefur nú snúist mjög til hins verra, síðan á Iaugardag nær sífelldar hríðar og dimmviðri, Snjór cr töluverður kominn. Saltfiskur kvað hafa fallið mjög mikið í verði í útlöndum. Barnaveiki hefur stúngið sjer niður á Akureyri vetur. A Akureyri vofu við manntal í haust rúm 1400 manns. í»ar af er taiið að um 200 sjeu aðkomandi en 1200 heimilisfastir, af þeirn eru 550 á Oddeyr- inni. Egill kom hjer á miðvikudagskvöld, hafði feingið stöðug mótviðri á leið frá fíoregi, og var_ því orð- inn nokkuð á eftir áætlun. Vegna íllviðra gat hann aðeins komið inn á þrjár hafnir á Suðurfjörðum, Stöðvafjörð, Fáskrúðsfjörð og Eskifjörð. Með Egli kom I. M. Hansen konsúli,- frá uppboði Garðarfjelagsins á Hollandi; Kr» VVathne, Jón í Mula, Christensen kpm. á Akureyri og A. Waage frá Khöfn; frá Stavanger Berg, sonur A. C. Berg sútara hjer^ og sest hjer að við sútunarstofuna hjá föður súium; frá Færeyjum Þórarinn skipstjóri Guðmuadsson með sjómenn frá Rvík til að sækja fiskiskútuna »Mom- ing star«, sem Ágúst Flygenring útgerðarmaður í Hafnarfirði hefur keyft af Þórarni kaupmannj Guð- mundssyni. Frá Reyðarfirði kom Jóhann Ihorarensen fri Kaupángi. Jarðarför Sigurðar hreppstjóra EinarssOnar, seiu um er getiðá öðrum stað hjer í btaðinu, er fyrsta jarðar- förin sem fram fer hjer á landi án allra kirkjulegra athafna, en dæmi eru mörg til þessa annarstaðar. Ein jarðarför fór þannig fram í Kaupmatmahöfn í fyrravetur, Sofusar Schandorfs skálds, og sögðu dönslcu blöðin þá, að hann væri fyrsti maðurinn scm. jarðsettur væri þar í landi án allra kirkjusiða. Næsta blað kemur út um míðja næstu viku og þar í útlendar frjettir sem ekki er rúm fyrir í þessu biaði. Eáheyrt slys vildi til í Hýrafirðinum í haust. Dreingur, 12 ára gamall, á Brekku í Sandn-sókn var sendur út ti! að tjóðra styggt hross skammt frá bæn- um. Ilrossið fældist og sást á hlaupum frá rwesta bæ, sem er mjög skammt frá, og dró það þá eitt- hvað í tjóðrinu. Þegar nánar var að gætt, sást að

x

Bjarki

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarki
https://timarit.is/publication/28

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.