Bjarki - 12.05.1902, Síða 3
3
Ólafs Davíðssonar þeim þokumekki sem yfir
það lagðist eftir Rángárfundinn. Eins og allir
vita er það nú Rángársamþykktin, með þeim
viðauka, að ráðgjafi okkar skuli búsettur í
Reykjavík, sem okkur stendur til boða f kon-
úngsboðskapnum. En um Rángársamþyktina
sagði Olafur Davíðsson rjctt á eftir að hún var
gerð, að svo vond sem Valtýskan vseri, þá
væri hún þó »smáræði hjá þeim voðagrip.<
En býðst nú Ólafur ekki sem þingmannsefni
einmitt til að greiða atkvæði með þessum
»voðagrip« á næsta þingi? Frá sjálfum hoa-
um hefur ekkert heyrst um þetta efni, en Austri
hefur gefið t skyn, að hann muni vilja þiggja
stjórnartilboðið. Er þá Ólafur kominn út úr
þokunni og hættur að sjá »voðagripi* og fer-
líki á þessum leiðum ?
Austri lætur sem hanu sje hræddur um, að
framfaraflokkurinn gángi á bak orða sinna,
þegar á þing kemur, og vilji þá ekki þiggja
stjórnarfrumvarpið væntanlega. En er nú ekki
meiri ástæða til að óttast slíkt um menn eins
og Olaf Davíðsson, sem áður hefur algcrlega
fordæmt flest af þeim breytingaratriðum á stjórn-
arskránni, sem nú eru í boði? Það er Ólafur
sem þarf út úr þokunni til þess að geta boð-
ið stjórnarfrumvarpinu væntanlega fylgi sitt,
en ekki Jón frá S!eðbrjót.«
a
Yfirlýsíng.
Blaðið »t*jóðólfur« hefur fleirsinnis í vetur
borið á stjórnarmálaflokk vorn, sem harin kallar
Hafnarstjórnarflokkinn, að hann hafi talsvert fje
í sjóði (um 6000 kr.) sem hann hafi feingið
frá bánkamanninum Warburg, og að fjc þetta
sje ætiað til þess að breiða út skoðanir
flokksins á stjórnarskrármálinu og bánkamálinu
(sjá einkanlega Rjóð. I. jan. þ. á., viðaukabl.,
og 21. mars þ. á og víðar). Sami áburðurinn
hefur verið tekinn upp í Austra og fleiri blöð,
og er svo að sjá sem ritstjórar allra þessara
blaða telji hann sannan; en hann er sýniiega
settur saman til þess að svívirði og sverta
flokk vorn.
Fyrir því þykir oss vera tilefni til þess að
lýsa því yfir fyrir vora eigin hönd og flokks-
manna vorra, að ofangreindur áburður er
tilhæfulaus lygi
og að hver sá, er með hann hefur farið eða
hjer eftir fer með hann, er
opinber ósannindamaður.
Reykjavík, Bessastöðum og Görðum
11. apríl 1902.
Kristján Jónssoa. Björn Jónsson,
Björn Kristjánsson. Jens Pálsson.
Skúli Thoroddsen.
Nýtt blaB er enn komið upp hjá íslendingura í
i Vesturheimi. Pað heitir »Vínland« og kemur út í
Minneota einu sinni á mánuði, á að flytja frjettir
og fróðleik, en ekki að ræða stjórnmál. Aðeins 1.
| tbl. er komið hingað og lítur það vel út og er fjöl
i breitt að efni. Útgetandi er G, B. Björnsson, en
ritstjórar Th. Thordarson og Björn B. Jónsson.
I
Skip. Hólar komu að norðan á laugardagog höfðu
hjer litla viðdvöl. Töluverðan ís hittu þeir á leið-
inni og komust ekki inn á hafnir nema Húsavík,
I Vopnafjörð og Borgrafjörð. Með Hólum kom hing-
að frú Ragna kona í’orst Jónssonarkaupm. í Borg-
arfirði
Mjölnir var kominn á Eyjafjörð þegar Hólar fóru
þaðan.
í dag kom fiskigufuskip Wathnesfjelagsins, Etin,
• frá Noregi.
»Stord«, kolaskipið sem hingað kom i fyrradag, fer
hjeðan norður um land til Akureyrar og Xsafjarðar
að líkindum í dag.
Skip sðkk út af Skjálfandaflóa seint í f. m.
Menn allir komust til lands. Skipið var að sögn
fermt salti og átti að fara til Sauáárkróks.
Sklpsflak fannst nýlega útifyrir Eyjafirði í haf-
ísnum, sat það þar fast og varð því ekki ‘rann-
sakað.
manni sem jafn-mikió hefói fyrir þa5 gort.
Hann ætti sjálfsagt að endurkjósa.
Frá Rángvðllingum.
»Rángárvallasýslu. 26. mars 1902.
Einginn vafi er á að kosningarbardaginn
verður hjer afarharður. Af hendi framfaraflokks-
ins vonumst vjer fastlega eftir að þingmanns-
efnin verði hinir fyrri þingmenn, Magnús sýslu-
maður Torfason og Þórður hreppstjóri t' Hala,
en áreiðanlegt, að gcgn þeim muni berjast af
hinna liði síra Eggert Pállsson, frændi lands-
höfðingja, Sighvatur gamli Árnason og Tóm-
as Sigurðsson hreppstjóri á Barkarstöðum. Af
þessum þremur mun síra Eggert hafa haft
mestan byr, en ástæáulaus rógrein um sýslu-
mann, sem migur hans birti 1' f’jóðólfi, hefur
gert honum margan mann fráhverfan, sem áð-
ur bar gott traust til hans. Er mjer pví óhætt
að fullyrða, að þeir sýsiumaður og Þórður muni
Verða hlutskarpari, að lfkindum með talsverð-
um meirihluta«.
»Út úr þokunhi«.
Af Uthjeraði er skrifað: . . . »1 Austra
stóðu þau ummæli nýlega, þar sem minnst
var á lón frá Sleðbrjót scm þingmannsefni, að
hann væri nú »kominn út úr þokunni*, en það
mun eiga að þýða, að skoðanir hans hafi eitt-
hvað breytst í stjórna-skrármálinu, og jafnframt
er svo sagt, að þeir Olafur Davíðsson og Jón
læknir »leiði hann á milli sín« til kosninganna.
Mjer er nú ekki kunnugt um, að nokkur þoka
hafi verið yfir skoðunum Jóns frá Sleðbrjót f
stjórnarskrármálinu. Hann var einn af mönn-
unum í Rángársamþyktinni, hefur síðan fyllt
þann flokk og fyllir hann enn. Og mjer er
óhætt að fullyrða, að hann nýtur einkis stuðn-
f
ings eða kjörfylgis frá Olafi Davíðssyni eða
Jóni Iækni.
En rjettara hefði verið af Austra að reyna
að skýra fyrir okkur, ’.:vort Ijett væri af hötði
9'
Jeg hjelt fram fctð núnni hryggur í huga
ðg hugsaði mjer að forðast samfjelag viá mennina
eftirleiðis. Jeg lagíi leiðir mínar una skóginn þar
sem hann var þjettastur og oft, þegar jeg var
neyddur til að fara um opið svæði í sólskini, varð
jeg að bíða lánga tíma til þess að vera viss um,
að ekkert mannlegt auga gæti sjeð til mín. Á
kvöldin leitaði jeg húsaskjóls í sveitaþorpumum.
Ætlun mín var að komast í náma.sem jeg vissi að
þar voru í fjöllunnm, og fá þar atvinnu neðanjarðar.
Bæði var jeg neyddur til að vinna fyrir daglegu
brauði og svo fann jeg að straung likamleg vinna
mundi vera hið einasta sem gæti dreift hugsunum
mínum.
Nokkrir regndagar urðn til að flýta ferð minni, en
stígvjeli* mín þoldu þá ekki. f»au voru gerð handa
Pjetri greifa, en ekki handa manni, sem þurfti að
ferðast um fótgángandi í illri færð. Jeg gekk botn-
ana úr þeim og varð að kaupa ný stigvjel. Morgun
einn fór jeg að litast um eftir þeim í búð einni, þar
sem bæði var til sölu gamall og nýr skótatnaður.
Jeg var leingi að velja og semja um verðið. Nýu
skórnir þóttu mjer of dýrir og loks valdi jög gamla
92
skó, sem mjer virtust haldgóðir. Búðardreingurinn
tók við borguninni, kvaddi mig brosandi og óskaíi
mjer góðrar ferðar. Jeg fór strax í nýu skóna og
stefndi til norðurhliðs borgarinnar.
Jeg gekk í þúngum hugsunum án þess að taka
nokkuð eftir veginum. Jeg ætlaði að ná þetta kvöld
til námanna og fór að íhuga, hvernig jeg skyldi bera
mig að þegar þángað kæmi. En áður jeg hafði gengið
tvöhundruð skref fann jeg, að jeg mundi ekki vera
á rjettri leið. Jeg leit í krmgum mig og var þá
staddur í eldgömlum greniskógi. Jeg gekk nokkur
skref áfram og var þá kominn inn á milli berra
fjalla, sem aðeins voru vaxin gamburmosa oggeita-
skóm, en uppi voru snjóflesjar og jöklar. Það var
kalt i lofti; jeg leit við og sá að greniskógurinn var
horfinn að baki mjer. Jeg gekk enn nokkur skref.
Allt í kríngum mig v»r dauðaþögn; jeg stóð á óyfir-
sjáanlegri ísbreiðu og yfir henni hvíldi grá þoka.
Sólin var blóðrauð í sjóndeildarhríngnum. Kuldinn
var óþolandi. í kuldanum herti jeg gaunguna, jeg
heyrði hafdrunur í Ijárlægð og óðar en varði stóð
jeg á strönd íshafsins. Selir láu þar á ströndinni
i stórhópum og stcyftu sjer í hafið þegar þeir urðu
9J
rarir við komu mína. Jeg gekk meðfram ströndinni
yfir bera kletta, gegnum birkiskóga og greniskóga.
Svo fór jeg að hlaupa og hjelt áfram nokkrar mín-
útur. Þá var hitinn orðinn óþolandi. Jeg litaðist
um og stóð undir mórberjatrje, en allt í kríng voru
hrísgrjónaakrar. Jeg settist niður í trjáskuggann og
leit á úrmitt. Tað var ekki liðinn fjórðungur stundar
frá því jeg lagði á stað frá skósmiðabúðinni. Jeg
hugsaði að þetta hlyti að vera draumur og beit mig
í túnguna til að vekja mig. En þess þurfti ekki. Jeg
var glaðvakandi. Jeg lagði augun aftur og reyndi
að átta mig. Jeg heyrJi mannamál skammt frá, en
skildi ekki hvað sagt var. Jeg leit vpp. Tveir
Kínverjar, sem jeg atrax þekkti af andlitsfallinu,
ávörpuðu mig á sina túngu. Jeg stóð upp og hop-
aði tvö skfef aftur á bak. Teir voru þá horfnir
mjer og allt landslagið umhvcrfis breytt. Akrarnir
voru horfnir og jeg stóð mitt í þjettum skógi. Jeg
virti trjen fyrir mjer og þau af þeim sem jeg þekkti
virtist mjer að mundu eiga heima í Suð-austur-Asíu.
Jeg ætlaði að nálgast eitt trjeð og stje nokkur spor
áfram, en þá var aftur allt brey't umhverfis. Jeg
fór þá að reyna fyrir mjer og fetaði hægt áfram.
i