Bjarki - 29.08.1902, Qupperneq 1
BJARKI
Vll, 33.
Eitt blað á viku. Verð árg. 3 kr.
borgist fyrir 1. júlí, (erlenriis 4 kr
borgist fyrirframi.
Seyðisfirði, 29. ág.
Uppsögn skrifleg, ógild nema komin
sje ti! útg. fyrir i. okt. og kaupandi
sje þá skuldlaus við blaðið.
1902.
FJÁRMARKAÐIR.
JCjermeð gefst til vitundar, að jeg hef ájormað að halda fjár-
markaði uppí í fljótsdalshjeraði i haust komandi, og oerða mark-
aðsstaðirnir og tíminn eins og hjer að neðan segir:
29 seffember á fCjarfarsföðum 1 ökfóber á Skeggjasföðum á S)a!
30 á JCja/fasfað 2 í Merki
— — á /Bóndasföðum 3 á Jfíelum
/ ökfóber á Salfasföðum - á Víðioöllum
2 á fángá á JCaliormsstað
3 á fsi - , á Vaði
4 — á Syoindará 5 á Xetilsstöðum á Völlum.
Sjátfur kaupi jeg í £iða-, ffjaltastaða-, Cúngu- og Jellahreppi
en Stis Jónsson oerslunarþjónn minn, kaupir á hinum stöðunum.
frisar uerða birtir á markaðsstöðunum.
Seyðisfirði 26. ágúsf 1092.
Sig. Johansen.
Friður
~w
Þessi eilífi djúpi friður, sem er heilög ein-
veldiseign háfjallanna. Þar ríkir og ræður
hin mikla þögn og spilar á titrandi þögula
streingi hinn hugbindandi friðarsaung sinn, —
svo »ensomhedens store sang bruser for dit
öre,« — og þó er hún þögul og djúp eins og
táralaus sorg. —
Súlur! Fagrar standið þið í fjallaþyrping-
unni og berið háu hvelfinguna bláu, sem er
þakið yfir kirkju Guðs — hinni brosfögru
Eyjafjarðarsveit. —
Eins og stórt táravott auga blikar »Pollurinn«,
vafinn grasmjúkum örmum, og áin silfurtær
í ormbugðum armar hólma og nes. — Hún
er eins og blóðrík slagæð frá heitu hjarta.
En þið eruð háaltari í fegurstu ki^kju íslands!
Þar er hátt undir þakið og vítt millum veggj-
anna.
Og sjálfur Guð er prestur.
Og fártrylltur fjallastormurinn er hið sjálf-
hreyfa orgel, sem spilar þúsund röddum hinn
völduga lofsaung sinn hátt yfir ölfum heimi.
Eins og fínasta dolce píanissimó byrjar það
með leikandi tónum í öllum orgelpípunum smáu,
holum og glufum og örfáum blómum, en vex
til forte og fortissimó, staccató, hvæsandi, ólg-
andi og beljandi í hinum stóru orgelpípum,
gjótum og gjám, vex, vex í kraft og hraða
og verður að alheimsmúsík, sem fyllir himin-
geiminn með titrandi skjálfandi tónaveldi.
Svo deyr það út, eins og andvarp, dóló- i
rósó pianó, píanissímó. Deyr.
En sál þín skelfur eins og smáfuglsbarmur
í kattarklórn, skelfur fyrir töframætti alheims-
kyrðarinnar, , og fyrir augliti guðs. Því að í
einveru háfjallana finnur maður sjálfan sig —
og guð.
*
* *
Lángt niðri, djúpt, djúft, bærast örlitlir svartir
púnktar. Aftur og fram, Fram og aftur.
Friðlausir, án hvíldar. Það er manneskjan, eins
og hún er.
— Lítil og — svört.
En á háfjallinu finnurðu kannske fyrst til
þess, að þú elskar þessa svörtu púnktana.
Því hafdjúp hugsun, alvara og ást er ræðu-
efni súlnaprestsins.
*
* *
Þú sem ert úngur, farðu til fjallanna, hátt,
hátt, hafirðu tíina til þess. Ertu sjúkur og
sár, er sál þín þreytt, þá farðu til háfjallanna.
Teigaðu himinsins hreinbláu lind þjer til heilsu-
bótar, laugaðu sál þína hvíta og hreina í upp-
sprettu eilífrar ástar og fegurðar; og þú munt
finna hve hjarta þitt verður fullt af ást, barns-
glaðri hughreinni ást til landsins, sem guð
gaf þjer að vísu nakið og bert eins og
nýfætt barn, — en þó svo endalaust ríkt í
allri sinni nöktu fátækt, — svo fagurt og
ríkt af því það er þitt. Þitt og mitt. _
Og af því ,þú elskar landið, þá elskarðu
líka aumingja svörtu púnktana. Og þú sjerð
lCppboðsskutdir.
Þeir sem eiga óloknar uppboðsskuldir frá
uppboðinu á munum Garðarsfjelagsins 26.—28.
seftember f. á. áminnast hjermeð um að greiða
þær innan loka seftembermánaðar næstkom-
andi, að öðrum kosti verða þær teknar lög-
takí á kostnað skuldunauta.
Bæjarfógetinn á Seyðisfirði 19. ágúst 1902
Jóh. Jóhannesson.
þau Öll, þessi augu. Leitandi, starandi. Og
fyrir aftan hver augu brennur og skelfur ein
sál í sjúkri leit eftir farsæld og friði,
Ó, herra minn Guð, hve heitt jeg óska, að
allir sjúkir og sorgmæddir á sál og líkama
feingju að koma til háfjallageimsins örlitla
stund. Hvíla við alheimsins stóra barm, —
vafðir örmum himingeimsins, — og finna hans
stóra ástarþrúngna hjarta slá fast við vorn
eigin litla barm.
*
* *
Og ertu úngur og frískur og sterkur, þá
lát víðsýnið lokka þinn heita hug og fjallið
og steininn stæla fót þinn, og fjallvindinn
hita og kæla þitt únga ólgandi blóð,
Og hlustaðu svo vel eftir ræðunni. ~
Því hafdjúp hugsun, alvara og ást er ræðu-
efnið í kirkju háfjallanna.
Súlnm 20 7— 02,
w.
Hvað er sannleikur?
Eftir Matth. Joc'numsson.
11.
Skýring á kristindómi Fnítara
Eftir R. A. Armstrong. M. A.
Niðurlag.
3, Hvað er nýjatestamentið ?
Þegar gamlatestamentið endar, kemur þagnar-
skeið, þegar ekkert heyrðist til hinna máttugu
guðsmanna, alt þangað til rödd Skíra rans gall
við, nærri ánni Jórdan, og sjón Jesú frá Nazaret
blasir við oss í allri sinni fegurðarprýði. Hve
dásamlegur er þessi meistari! Hve einföld og un-
aðsleg er kenning hans! Hve ástuðlegt og heilagt
framferði hans. Og samt sem áður höfum vjer
lítið kynt oss nýjatestamentið, ef vjer finnum
ekki óðara milli þess spjalda sundurleitar hug-
myndir og skoðanir um hann. Tökum fyrst hið
unaðarríka upphaf fjallræðunnar, um sæluna, í
5. kap, hjá Mattheusi, eða dæmisögurnar í
miðkafla Lúkasarguðspjallsins. Einginn maður
hafði talað svo áður. Því var síst að undra, að
lýðurinn hlýddi gjarnan á hann. Menn fundu