Bjarki - 29.08.1902, Blaðsíða 3
bjarki .
3
reknir höfðu verið til Síberíu í 5 ára útlegð. Samt
sem áður er búist við stúdenta-óeirðum aftur nú í
haust.
Ný eldzos.
Frá borginni Yokohama í Japan er símritað 19. þ.
m., að eldgos hafi lagt Orishima í eyði og orðið 150
mönnum að bana.
Norðmenn fá sierstaka konsúla.
Norðmenn eru í þann veginn að fá ósk sína upp-
fyllta jim það, að fá konsúla út af fyrir sig. Er
hinum nýja ráðherra Sigurð Ibsen mest þakkað fyrir
að það mál er svo vel á veg komið. Hann hefur nú
samið áætlun um hina nýju konsúlaskipun og er gert
ráð fyrir að hún verði Noregi um 100,000 kr. ódýrari
en verið hefur.
Voða-viðburður.
Stórkostlegt slys varð á Saxelfi nóttina milli 20.-21.
f. m. Dráttargufuskipið „Hansa" sigldi á annað
gufuskip, „Primus", sem var þar á. ferðinni með
fjölda farþega. „Hansa" þreingdi sér svo lángt inn
í farþegaskipið, að gufuketillinn sprakk og kviknaði
í skipinu. Truflunin á fólkinu varð óviðráðanleg.
Sumir stukku í fljótið, aðrir þyrptust yfir á „Hansa"
og tróðu allt undir fótum sjer, dautt og lifandi.
„Hansa" reyndi að koma Primus að landi, en kenndi
fyr botns, og losnaði þá Prímus frá því og sökk með
50 manns. Alls fórust þar 109-112 menn. Megin-
þorri farþeganna á „Primus" voru meðlimir saung-
fjelags eins, og voru þeir þarna á skemmtiför eftir
fljótinu, með hinni mestu glaðværð og kátínu. Flest
var þetta fátækt fólk.
Blaðið „Dannebrog" skýrir svo frá nánari atvikum
þessa voða-viðburðar, eftir opinberri skýrslu útgerðar1
mauna skipsins „Hansa": Dráttarskipið „Hansa" kom
niður eftir Saxelfi í heiðríku veðri og tunglskini. í
nánd við lendingarbryggjuna við Nienstedten, um
kl. 12, sá „Hansa" rautt ljós bakborða, er seinna
reyndist að vera á gufuskipinu „Primus". Stefnur
skipanna virtust ekki koma í neinn bága hvor við
aðra, þar sem „Hansa" var við norðurströnd fljóts-
ins, en „Primus" stefndi upp eftir því miðju, Þegar
ekki var orðið nema um 75-100 faðmar á milli skip-
anna, stýrði Primus snöggt upp að norðurströndinni,
svo að skipið rann þvers fyrir, rjett frani undan
stefninu a „Hansa". Við þetta varð áreksturinn
óumflýjanlegur. f>að eina, sem „Hansa" gat að gert,
var að stöðva ferð sína, en allt þetta gerðist á svo
skömmum tíma, að ekkert svigrúm var til neins. . . .
Flestir af farþegunum voru uppi á þilfari í túngl-
skininu, súngu og ljeku sjer, og uggðu sjer einskis,
fyrr en allt í einu, er þeir voru lentir í sjóinn og
börð.ust þar við dauðann. Þeir sem niðri í skipinu
voru, fórust flestallir. Við hina ógurlega truflun, sem
á alla kom, tók einginn tillit til annars en að reyna
að bjarga sínu eigin lífi.
Um sjerstök átakanleg atvik, er þetta sagt ineðal
annars: Kona, sem fallið hafði niður í fljótið með
barn í fánginu, hrópaði stöðugt á mann sinn. Hann
var þar örskainmt frá, en gat einga hjálp veitt henni
og varð að horfa á hana drukkna, ásamt barninu, en
sjálfum varð honum bjargað. - Veitingamaðurinn,
sem saungfjelagsmeðlimirnir voru síðast hjá, hafði
slegist með í förina, og fórst þar með fjölskyldu sinni,
konu og 2 börnum. Múrari nokkur, setn næstu daga
ætlaði að halda silfurbrúðkaup sitt, missti þarna konu
sína og tveggja ára barn. Sjálfur var hann heitna
sökum lasleika. — Skóari einn var í förinni með konu
sinni og tvítugri dóttur. Konan flaut leingi á flaki
eftir fljótinu, ásamt fleirum, þángað til henni var
bjargað. Þegar hún loks kom upp í bátinn sem
bjargaði henni, varð hún himinglöð af að hitta þar
mann sínn heilan á hófi. Þar á móti hafði dóttir
þeirra orðið bylgjunum að bráð.—í förinni voru hjón
nokkur, er áttu 11 börn; tvær dætur þeirra, 14ogl5
ára, voru með þeim eg fórust báðar. Faðirinn synti
í land, en konan hángdi á skipsflakinu, þángað til
það sökk, en þá varð henni bjargað.
Loftritun til fslands.
Samgaungumálaráðherrann danski hefur feingið
málaleitun frá Marconifjelaginu í London og frá
þýsku loftritunarfjelagi, um að setja Island í loftiit-
unarsamband við önnur lönd, en ákveðið tilboð kvað
ekki vera komið. Einar Benediktsson, málafærslu-
maður í Reykjavík; sem var staddur í London í fyrra
mánuði, kvað hafa átt tal um þetta við forstöðumann
Marconifjelagsins og hafi hann talið fjelagið fúst til
að koma á loftritunarsambandi milli Hjaltlands og
íslands, ef alþingi vildi semja um þetta, Hr. E. B.
fjekk svo í þingbyrjun yfirlýsing frá öllum eða flest-
um þingmönnum og blaðamönnum í Reykjavík um
það, að þeir vildu styðja að slíkum samningum og
hefur hann von um, að samningar takist eða að
minnsta kosti að ákveðið tilboð komi frá fjelaginu.
Yfirlýsing þingmanna og blaðamanna var send til
Eingland um síðustu inánaðamót.
■^<r"
Bánkaselið á Akureyri
Bráðum verður bánkasel
byggt úr völu, legg og skel.
Hláturmildur og Hæðnisfús
hafa smjer — í sina krús,
Staði Kúfur og Stertur han§
stikla í nýan áífadans.
þarna er gæfa lýðs og lands
lögð í hendur valins manns.
. — n.
Fórnin.
Þjóðhátíðardag Reykvíkinga, 2. þ. m., laumuðust
nokkrir þingmenn, þeir, sem telja sig til hins svo-
nefnda „Heimastjórnarflokks", suður í Reykjavíkur-
kirkjugarð og lögðu þar blómsveig á leiði Jóns
Sigurðssonar. Kemur mönnum ekki saman um, í
hvaða tilgángi þeir hafi farið svo leynt með þetta
fyrirtæki sitt, að hinn þingflokkurinn gæti ekki tekið
þátt í því. Sumir álíta, að þeir hafi með þessu
viljað tileinka sjer einum minningu Jóns heitins, en
aðrir líta svo á, sem þeir hafi með því verið að bæta
fyrir drýgðar syndir og misbrúkun á nafni hins
framliðna. En hvernig sein á er litið, þá hlýtur þetta
atferli þingmannanna að tilferast í dálki þeim, sem
þefur „óeining" að yfirskrift.
Hluttaka fslendinsa í hlutafjelasrsbánkanum.
Lögin um hlutafjelagsbánkann, sem voru staðfest
af konúngi 7. júní þ. á. og birt í Stjórnartíð. 8. júli,
öðlast gildi 12 vikuin síðar, eða 30. sept. næstkomandi.
Rjettur íslendinga til þess að skrifa sig fyrir hlutum
i bánkanum verður því úti í marslok næsta ár, 1903.
Húsbruni.
Á Varmá i Mosfellssveit brann íbúðarhús Björns
hreppstjóra Þorlákssonar 2. þ. m. Húsið var vátryggt
fyrir 2500 kr. en talið mikils meira virði. Innanhús-
munum varð bjargað.
Vatnavoöinn
Ekki hefur tekist að hefta Vatnavoðann í Land-
eyjum, þótt tilraun væri gerð til þess af K. Zimsen
mannvirkjafræðingi. Vatnið reyndist óviðráðanlegt.
Dánir prestar.
Sjera Þorkell Bjarnason frá Reynivöllum andaðist í
Rvík 25. f. m. og sjera Pjetur Guðmundsson fyrv.
Grímseyjarprestur, andaðist á Oddeyri 8. þ. m.
H) <©
Seyðisfirði 29. ágúst 1902.
Tíðin hefur verið stiltari og mildari þessa síðustu
viku, en rigningasamt og þokur tíðar. Upp úr þessum
degi - höfuðdeginum — eiga menn von á breytingu til
batnaðar.
Afli ernú góðurhjer í verstöðunum, bæði sþdar- og
fiskiafli.
Reknetaveiðaskipin eru nú að koma inn og hafa
aflað vel. t. d. Loch Fyne um 170 tn.
Skip.
„Tanger" kom hingað 22. þ. m, með kolafarm til
Ó. Wathnes erfingja.
„Hólar„ komu að norðan þann 24. Með þeim voru
þeir Björn rektor Ólsen og Sigurður barnakenn ar
Jónsson úr Reykjavík, báðir á heimleið. Hingað
komu þeir bræður Kristján Hallgrímsson hótelvert og
E. Th. Hallgrímsson verslunarstjóri, af Gránufjelags-
fundi á Oddeyri.
„Alf" kom hingað þ. 25. frá Noregi og færði út-
lendar frjettir til 20. þ. m. Fór samdægurs til Akur-
eyrar.
„Jadar" kom frá Eyjafirði þ. 27. á leið til útlanda,
með um 700 tn. síldar, þar af 256 tn. frá nótalagi
Imslands á Eyjafirði og 440 tn. frá reknetaveiðaskip-
inu Alstein. jadar sagði góðar horfur með sildar- og
fiskafla nyrðra.
Helgi Valtýsson tók sjer far með Jadar til Noregs.
Ætlar að koma, hingað aftur í oktober.
„Mars", vöruflutningaskip Gránnfjelagsins, kom að
norðan í gær, tók hjer eitthvað af vörum og fór sam-
dægurs af stað til Khafnar.
Tómas sá frá Vestmannaeyjum, er var á bátnum,
sem hvolfdi hjer á firðinum 17. þ. m. og getið var
um í síðasta tbl. lagðist veikur eftir slysförina og dó
23. þ. m. Hjartasjúkdómur kvað hafa orðið honum
að bana.
Þessi slysför, sem þannig hefur kostað líf tveggja
manna, og sem eftir nákunnugra manna dómi, or-
sakaðist af því, að mennirnir voru ölvaðir, gefur til-
efni til að biðja alia góða dreingi að gefa því gætur,
hvaðan menn hafa allt það áfeingi, sem haft er um
hönd hjer, bæði á sunnudögum og aðra daga, — nú,
eftir að allar verslanir hjer eru þó hættar áfengis-
sölu. S. J.
GJALDDAOI BJARKA var /. /. m. Kanp-
endur vinsamlega minntir á að borga blaðið,
einkum allir þeir, sern enn eiga ógreitt andvirði
blaðsins Jrá síðastliðnu ári.