Bjarki - 28.11.1902, Blaðsíða 4
4
BJ ARKI.
Bánkaselið á Akureyri
var alveg orðið peníngalaiist um síðustu mánaða-
mót, eftir því sem »Norðurland« segir.
Qarðyrkiuskóla
ætla þeir að stofna á Akureyri Páll Briem amt-
maður og Sigurður skólastjóri á Hólum. Kostnað-
urinn áætlaður 400—500 kr. og gert ráð fyrir að
búnaðarfjelag landsins leggi hann til. Bæjarstjórn
Akureyrar hefur veitt ókeypis land til afnota við
kennsluna rjett innanvið kaupstaðinn.
Báti hvolfdi
með fjórum mönnum framundan Höfði í Eyjafirði
rjett fyrir síðustu mánaðamót. Veður var nokkuð
hvasst. Annar bátur var skamt á undan og bjarg-
aði hann þremur mönnunum, en einn druknaði, Jón
Pálsson frá Hóli í Fnjóskadal. Hann var ósyndur,
en hinir gátu fleytt sjer.
Leiðriettinsr
Misprentast hefur í greininni »Til útgefanda ís-
lendingasagnai í 38. tbl. Bjarka þ. á.: Halta-þóri
fyrir Hólta-þóri og Slysa-Hrafni fyrir Slysa-Hrappi.
Oiallarhorn.
hið nýa blað Akureyringa, er nú komið híngað.tvö
fyrstu blöðin. Það er í litlu minna broti en Bjarki;
á að koma út tvisvar á mánuði og kostar árg. 1 kr.
80 au. Blaðið virðist einkum ætla sjer að ræða
bæjarmál Akureyrar.
Finnur Jónsson
prófessor geingur nú berserksgáng eftir heilum
tveimur síðum á seinasta „Austra" og heimtar vægð-
arlaust, að sjer fremur öllum öðrum sje þökk-
uð hin væntanlega „stjórnarbót" okkar. Hann lýs-
ir yfir, að samviska sín sje „hrein sem nýfallin mjöll"
og efar Bjarki ekki að svo muni vera. En kenningar
hans um þessi efni munu ekki síður reynast mjöllinni
Iíkar, það er: hjaðna og hverfa í gleymskunnar djúp
fyrir sögunnar sólargeislum. Jökull pólitískrar úlfúð-
ar hefur lagst yfir hjarta þessa lærða manns og því
er skolavatnslitur á orðaelfum þeim sem frá honum
falla og lítt eru þær til þess fallnar að græða hugtún
manna,en geta spillt þeim sáttaveituskurðum sem lands-
ins pólitíski páll er nú að grafa í harðvelli hjartn-
anna.
Bindlndl.
Út af grein í „Frækornum" í gær er rjett að geta
þess, að þau hafa „Norðurland" fyrir rángri sök þar
sem þau eigna því ofstækisstefnu í bindindismálum.
Það hefur aldrei um bindindi ritað og Kornin geta
ekkert vitað um, hvort það sje mótt'allið vínsölutillög-
um Bjarka, eða ekki.
/\ð öðru leyti nennir Bjarki ekki að „stúdera"
bindindisfræði Frækornanna. Hún mun álíka mennt-
andi og biblíufræði þeirra, sbr. greinina um „Dan-
áelsbókina" í síðasta tbl.
‘Brunaábyrgðarfjelagið
,,Jíye danske 2 randforSikringS
Se/skab“
Stormgade 2, X'óbenhaon
Stofnað 1864 (Aktiekapital 4,000,000 og
Reservefond 800,000)
tekur að sjer brunaábyrgð á húsum, bæjum,
gripum, verslunarvörum, innanhúsmunum o. fl.
fyrir fastákveðna litla borgun (Præmie) án þess
að reikna nokkra borgun fyrir brunaábyrgðar-
skjöl (Police) eða stimpilgjald.
Menn snúi sjer til umboðsmanns fjelagsins
á Seyðisfirði
St. Ch. Jðnssonar.
í verslun St Th. Jónssonar komu
með Vestu og Agli ýmsar vörur, svo sem:
rúgmjöl, kartöflur, kaffi, sykur og flest önnur
nauðsynjavara.
Allt selt svo ódýrt sem frekast er unt og
io°/0 afsláttur þegar borgað er strax í pen-
ingum.
St, Th Jónsson
J. 6. 2. C. Stúkan »Aldarhvöt no. 72«
helduf fund í nýa húsinu
sínu d Búðareyri ú sunnudaginn kemur
klukkan 4 síðdegis. — Meðlimir mœti. Nýir
meðlimir velkomnir.
d hentugasta stað í bœnum,
er til sölu.
Borgunarskilmálar ágætir.
Lysthafendur semji sem fyrst við
jírna Jðhansson
Seyðisfirði.
Brúkuð íslenzk frímerki kaupir
Andr Rasmussen,
Seyðisfírðl.
sem enn eiga óútleystan skó-
fatnað (aðgjörðir) hjá Seydis-
fjords Skotöimagasin, verða að
gjörða eínhverjar ráðstafanir
því viðvíkjandi nú fyrir 15 des. þ. á.; að öðr-
um kosti verður allt selt á opinberu uppboði.
Seyðisfirði 18 nov. 1902.
L J Imsland
Skiffafundur
í þrotabúi Jóns Vestmanns frá Melstað verður
haldinn hjer á skrifstofunni laugardaginn 13.
desember næstkomandi kl. 12 áhádegi; verð-
ur þá tekinn ákvörðun um sölu á húseign
búsins.
Skrifst. Norður-Múlasýslu 20 nov. '02
Jóh Jóhannesson
ðvörunl
Hjermeð er skorað á alla þá, sem enn þá
eiga ógreiddar uppboðsskuldir til mín frá
uppboðinu í Liverpool 7 júlí í sumar, að borga
mjer þær innan næstkomandi nýars, þar jeg
annar neyðist til að láta taka þær lögtaki.
Seyðisfirði 19/n '02
Sig. Jóhansen.
sem ekki hafa borgað mjer
skuldir sínar í haust, eru
j vinsamlega beðnir að borga
þær sem allra fyrst, því jeg
er fastlega ráðinn í því, að ná þeim skuldum
með lögsókn fyrir nýar, sem jeg fæ ekki góð-
fúslega borgaðar.
Seyðisfirði 6, nóv. 1902
St. Th. Jónsson.
Rjúpur
keyptar háu verði í allt haust.
St. Ch. Jðnsson.
RITSTJÓRI: ÞORSTEINN GÍSLASON.
Prentsm. Seyðisfj.
72
flýja. það, já og amen til alls, sem þið skipið þeim.
Þetta er nú öll þeirra trú."
„Og þjer talið þetta af reynslu?" spurði prestur.
„Já, það geri jeg", svaraði maðurinn. „Hverjir
eru það, sem þið hafið á ykkar bandi hjer úti?
Þeir allra ómenntuðustu og þrællyndustu. Hver
maður, sem nokkuð stendur upp úr fjöldanum, yfir-
gefur ykkur."
„E11 hvað kom yður þá til að flytja híngað?" spurði
prestur.
„Það skal jeg segja yður", svaraði maðurinn. „Jeg
leit til allra þessara manna, sem, eins og jeg, sátu
árum saman við guðfræðislærdóminn, ljetu troða
sig fulla af ósannindum til þess siðar að troða þeim
aftur í aðra, og jeg fjekk samvízku af því. Jeg fór
að skyggnast nánar ofan i pokahornin hjá þessum
mönnum, sem kalla sig kristna, sækja kirkjur og fara
til altaris — og jeg fann ekki annað en hræsni, smá-
sálarskap, prettvísi og drambsemi innanundir guð-
ræknisblæjunni. Jeg sá, að ef jeg vildi vera ær-
legur maður, þá yrði jeg að segja skilið við kristnina,
jeg sá, að kristindómur ykkar er hin versta svikamylla
sem fundin hefur verið upp á jörðunni."
73
„Og svo lögðuð þjer á stað."
„Svo kvaddi jeg kristnina og alla hennar siðmenn-
ing og hjelt híngað út í skóginn til Indiánanna.
Hjer hjelt jeg að jeg væri laus við allar presta ræður
og alla kristni."
Maðurinn reis á fætur, stakk gaffli niður í pönnuna
og sneri kjötinu.
„Hversvegna takið þjer yður ekki eitthvert nytsamt
verk fyrir hendur, verðið bóndi, eða handverksmaður?
hversvegna eiga bændurnir að vera að fæða yður, að-
eins til þess að skamma sig og láta síðan stínga sjer
niður í eilíft helvíti; getið þjersagt mjer það?"
„Jeg lít öðruvísi en þjer á starf og köllun prestsins,"
sagði prestur rólega.
Maðurinn stóð stundarkorn þegjandi og horfði á
prest. Síðan sagði hann: „Vitið þjer hvað mjer dettur
nú í hug, prestur! Eins og þjer sitjið þarna eruð þjer
ímynd trúarbragða yðar. Þau koma hátíðlega fram,
ekki er því að neita — silkibattur, pípukragi og klæð-
ishempa — en líti menn nánara eftir, þá er hattur-
inn begldur, kraginn óhreinn og hempan bæði rifin
og skitin. Það er kristnin nú á dögum. Komið
þjer svo og fáið þjer yður að borða".
74
Meðan þessu fór fram, hafði Indíánastúlkan lagt á
borð og prestur settist niður við það gagnvart hús-
bóndanum.
„Og þjer kunnið betur við yður hjer innan um
Indíánana en í fjelagsskap menníngarþjóðanna."
„Já sannarlega," svaraði maðurinn; „þeir látast ekki
vera annað en þeir eru, garmarnir."
„Og þetta er máske kona yðar?" spurði prestur og
benti á Indíánastúlkuna.
Maðurinn brosti. „Það er nú eftir því, hvernig á
það er litið," svaraði hann. „Pocahontas," bætti hann
við á indísku, „svartpokinn hjerna spyr, hvort þú sjert
konan mín."
Indíánastúlkan hló og laut ofan að pönnunni.
Presti fanst þau bæði gera gabb að sjer.
„Þjer eruð þá gagnkunnugur i Kristjaníu?" spurði
prestur til að byrja á nýu umtalsefni.
„Já það er jeg, alltof vel kunnugur. Oetið þjer sagt
mjer hvernig Alfred Mathisen líður?"
„Já, hann er orðinn gjaldþrota."
„Þessu átt jeg von á, — kristilega gjaldþrota. Og
hve miklu hafði hann þá stolið frá ekkjum og fátæk-
lingum?"