Ísland - 20.02.1897, Blaðsíða 4
32
ISLAND.
maður Ásgeir Sigurðsson verslunarstjóri, skrifari
Helgi Zoega bókari, gjaldkeri Matth. Johanneaen
kaupmaður og meðstjórnendur Benedikt Jónsson
verslunarmaður og Einar Árnason bókari. Bóka-
vörður Hjálmar Sigurðsson. Umsjónarnefnd bóka-
kaupa: Halldór Jónsson bankagjaldkeri, Sighvatnr
Bjarnason bankabókari og Hjálmar Sigurðsson.
Endurskoðunarmenn reikninga fjelagsins: Halldór
Jónsson og Sighvatur Bjarnason.
5. Þá vottaði fjelagið fyrverandi formanni fje-
lagsins, Joh. Hansen og meðstjórnendum, er allir
höfðu beiðst undan eudurkosningu, þakklæti sitt
fyrir áhuga á vexti og viðgangi fjelagsins, sjer-
staklega formanninum, er manna best hefur stutt
fjelagið og stuðlað að kurteislegri og bróðurlegri
samvinnu verslunarmanna hjer i bænum i öllum
greinnm.
6. Samþykkt eftir tillögu sama, að semja og láta
prenta bókaskrá fjelagsins á yfirstandandi ári.
Hj. Sig.
Reykjavík.
Sólin smáhækkar á loptinu og dagarnir leingjast,
þó hægt fari, — um „eitt hænufet á sólarhring"
sögðu gömlu mennirnir. Þorrinn er nú að kveðja;
hann hefur verið meinhægur í vetur. Fyrri hluta
þessarar viku bar svo lítið á honum, að menn var
farið að dreyma vordrauma um hlýindi, sól og
sunnanvinda. Yeðrið var eins og vorblíða ; svo fór
hann að rigna og endaði með þvi, að í gærkvöld
skall hann á með blind-öskubyl. Göturnar í bæn-
um hafa verið sóðalogar og illar umferða, vegna
hlákunnar- Yatnið vantar rennur til að komast
burtu eins fljótt og það annars vildi, og fólkið
vantar 'stjettir til að ganga á. En þetta segja
menn níi að muni smásaman lagast með tímanum.
Fljótast mundí það lagast á þann hátt, að ekki
yrðu framvegis kosnir aðrir í bæjarstjórn en þeir
einir, sem ekki hafa ráð á að kaupa sjer hnjehá
stígvjel til að bjargast á um göturnar, en eru
neyddir til að ganga á íslenskum skóm. Þeir
mundu veita sjálfum sjer atvinnu við að bæta göt-
urnar, í stað þess að liggja heima, gera ekki neitt
og lifa á sveitarstyrk.
Leikíð var á sunnudagskvöldið í Templarahflsinu
og aptur í gærkvöld. Það var vel sótt. Leiknr-
urinn var „Einfeldningurinn“ eptir Eirik Bauk,
fjörugur loikur og fór allvel. Aðalpersónuna ljek
frfl Þóra Sigurðardóttir. Á eptir ljek fröken Gunn-
þðrunn Halldórsdóttir „Hjartslátt Emils“, eintal
(stúdents), þýtt úr dönsku. Það þótti mönnum
fallegur stfldent og syngja vel. En kvæðin í þess-
um leikjum voru ekki vel þýdd og hefur sá galli
lafað við alla þá leiki, sem hjer hafa verið leiknir
í vetur, því í öllum þeim hefur verið meir eða
minna af saung. Á leiki og leikendur, sem verið
hafa frammi á skoðunarplássinn hjer í vetur, verð-
ur síðar minnst ýtarlegar í þessu blaði.
Nfl ætlar Thorvaidsensfjelagið að fara að leika í
næstu viku. Það er nfl ieingi bflið að æfa sig og
hefur rektor Björn Ólsen stýrt æfingunum.
Nýtrúlofuð eru Jðnas Kristjánsson stud. med. og
fröken Hansína Benediktsdóttir frá Grenjaðarstað.
Á mánudagskvöldið las magister Benedikt Grön-
dal upp sögu í Verslunarmannafjolaginu. Hún var
í riddarasögustil og hjet: „Fallega Gudda“.
Á miðvíkudagskvöldið sagði Guðm. Björnsson
læknir frá för sinni um Noreg í sumar sem leið í
Reykjavíkurklubbnum.
Á morgun heldur doeent Eiríkur Briem alþýðu-
tyrirlestur „urn sólkerftð".
Þá er að minnast á eitt, sem telja má til fram-
fara í Beykjavík 4 síðustu árum, en það er „Leik-
fimÍBíjelag Reykjavíkur" (R. G. C.). Það var stofn-
að haustið ’95 af James Ferguson Junr. frá Gias-
gow, sem þá stýrði prentvjelum „ísafoldar“. Hann
er sagður leikfimisgarpur hinn mesti og var lífið
og sálin í fjelaginu meðan hans naut, en hann fór
bjeðan heim tii Skotlands í sumar sem leið. Nfl
hafa lærisveinar hans nokkrir haldið áfr.tm ætiug-
unum, sem þeir voru byrjaðir á undir handleiðslu
hans og hjeldu þeir kvöldskemmtun á miðvikudags-
kvöldið í leikhösinu nýja og sýndu þar ýmsar
iíkamsæfingar. Þeir sem tóku þátt í þeim voru 5,
Sigurður Þorláksson póstþjónn, Bergþór Bergþórs-
son prentari, Kristinn Ziemsen verslunarmaður, Jón
Sigurðsson fangavarðar og Adam Barclay Sig-
mundsson prentsmiðjustjóra, allir ungir menn um
Jens Hansen, Vestergade 15.
Kjöbenhavn K.
Stærstu og ódýrustu birgðir í Kaupm.höfti af járnsteypum,
sem eru lientugar á íslandi.
Sérstaklega má mæla með hitunarofuum með „magazín“-gerð með eld-
unarhólfi og hristirist, eða án þess, á 14 kr. og þar yfir, sem fást í 100
stærðum ýmislegum. Eldstór með steikarofni og vatnspotti, með 3—5
eldunarholum, á 18 kr. og þar yfir, fást fríttstandandi til þess að múra
þær og fríttstandandi án þess þær séu múraðar. Skipaeldstór handa fiski-
skipum, hitunarofnar i skip og „kabyssur“, múrlausar, með eldunarholi og
magazín-gerð. Steinolíuofnar úr járni, kopar og messiug, af nýjustu og
beztu gerð. Ofnpípurúr smíðajárni og steypijárni af ýmsum stærðum.
ö-luggagrindur úr járni i þakglugga og til húsa af öllum stærðum.
Galvaníseraðar fötur, balar. Emailleraðar (smeltar) og ósmeltar steikarpönnur og
pottar. Smeltar járnkaffikönnur, tepottar, diskar, bollar o. fl.
Verðlistar með myndum eru til yfir allt þetta, sem þeir geta fengið ókeypis, er
láta mig vita nafn sitt og heimili.
JENS
HANSEN
tvítugt eða þsr fyrir innan. Það sem þeir sýndu
var „barbell“-æfingar, „dumbell“-æfingar o? „hori-
zontalbar“-xfingar, og er hið BÍðasta vandamest og;
kveður mest að því. Fyrst og síðast sýndu þeir
„tableau". En menn verða að fyrirgefa, að hjer
eru höfð útlend orð, því Björn er enn ekki, J.að
jeg veit., bflinn að snara þeim á íslensku eptir sam-
ráði við ýmsa aðra hagyrðinga. En það gerir nfl
minnst. Piltarnir gerðu sínar sakir vel og miklu
betur en vonir stóðu til, þar sem þeir höfðn verið
kennaralausir í vetur og ekki haft annað við að
styðjast, en tilsögnina sem hr. J. Ferguson veitti
þeím veturinn áðnr og sem auðvitað ekki gat ver-
ið noma byrjun. Segja þcir, sem horfðu á sams-
konar æfingar hjá þeim í fyrra, að þeim hafi farið
mikið fram. Um 90 kr. feingu þeir inn um kvöld-
ið. 50 kr. af þvi íórn í kostnað, bæði í hösaleigu
og svo til fatakaupa og annars er við þarf til æf-
inganna, en 40 kr. leggja þeir í sjóð til að bæta
áhöld sín. í sumar vilja þeir koma á gang kapp-
róðrum og fótknattarleikjum og ættu Reykvíkingar
almennt að styrkja þær tilraunir þeirra, t. d. með
því að kanpa 2—4 kappróðrarbáta. Þeir eru ekki
bvo dýrir. Piltarnir hafa vel gert að halda fje-
laginu við Iíði. Og flr þvi þessi visir er nú kom-
iun hjer á til reglulegra lcikfimisæfinga, væri ekki
nema rjett geit af bæjarmönnum að styðja að því,
að lionum gæti farið sem best fram. Bæjarstjórn-
in hefnr ljeð leikfimishús barnaskólans ókeypis í
vetnr til æfinganna. — Formaður fjelagsins er nfl
Kristinn Ziemsen.
Diin er hjer í bænum, 14. þ. m., frú Ragnheið-
ur Christiansen, ekkja Kristjáns Kristjánssonar
amtmanne norðlendinga, f. i Rvík 22. nóv. 1824.
Foreldrar hennar voru Jón Þorsteinsson landlækn-
ir og Elín Stefánsdóttir amtmanns Stephensens á
Hvítárvöllum Ólafssonar stiptamtmanns.
Baðhússfjelagið hjelt aðalfund sinn á „Hotel Is-
Iand“ i gærkveldi. í fyrra eptir fyrsta árið átti
fjelagið í sjóði á þriðja hundrað kr., en í ár hafði
ekki að eins sá sjóður eyðst, heldur var nú fjelag-
ið komið í skuld, sem nemur eitthvað um 150 kr.
Fjelagsmenn eru óánægðir og kenna stjórninni um
ófarirnar. Innan skamms verður aptur haldinn
fundur til að ræða nánar um málefni fjelagsins.
±f ’állitl, yel skotinn, kaupir
Júlíus Jörgensen á „Hótel Island“.
Baömeööl.
Karbólsýra og Kreólín fæst í Reykjavíkur
Apóteki.
Ameríkönsku eplin inndælu
eru aptur komin í versl. Edinborg
Hafnarstr. 8.
4—5 herbergi og eldhús og geymslu-
pláss óskast til leigu næsta ár, helst ná-
lægt latínuskólanum. Menn snúi sjer til
ritstjóra „íslands“.
Skilvindur
(Separatorer)
útvegar undirritaður frá Svíþjóð með verk-
smiðjuverði, Alpha Cólibri eða Butterfly,
eftir því sem óskast.
Verðið er 125 kr., en ekki 150 kr., eins
og sumir aðrir bjóða.
Peningar fylgi pöntuninni.
Páll Jónsson.
Laugaveg 11.
r
Oþrjótandi birgöir
til af hinum alþekkta vatnsleðursáburði
sem einginn annar áburður jafnast við að
gæðum. _ _
Rafn Sigurösson.
Smáar blikkdósir
kaupi jeg móti peningum útí hönd.
Rafn Sigurðsson.
Hafnfirðing'ar eru hjer eptir beðnir að
taka „ísland“ í búð Þorsteins kaupmanns
Egilssonar.
GUFUSKIPIÐ „EGrILL“
kemur að öllu forfallalausu til Reykjavík-
ur í byrjun júnímáfiaðar, eins og að undan-
fórnu, til þess að sækja þangað sunnlenska
sjómenn og vinnufólk og flytja það til Aust-
fjarða. Skipið kemur til Reykjavíkur beint
frá Austfjörðum og flytur því greinílegar
frjetdr um ís, fiskafla o. fl. í skipið verða
settar þilrekkjur til bráðabyrgða og sömu-
leiðis eldavjel á þilfari til þess að hita í
vatn og fl. Viðkomustaðir verða hinir
sömu og að undanförnu á Suðurlandl, og
enn fremur kemur það við í Vestmanna-
eyjum. Loks kemur það á alla firði aust-
anlands. Skipið fer eina, tvær eða þrjár
ferðir, eptir því hve margir óska flutnings.
í miðjum september hefur skipið aptur
ferðir sínar til þess að flytja menn heim
og kemur þá á allar hinar sömu hafnír og
fyr bæði austanlands og sunnan, ef veður
leyfir. Þá fer skipið tvær eða fleiri ferðir
og verður það nánara auglýst síðar.
Tilgangurinn með því að byrja heim-
flutningana svona snemma er sá, að um-
flýja illviðri þau, sem vanalega eiga sjer
stað fyrri hluta októbermánaðar. Skipið
fer allar ferðir sunnan um land, fargjald
verður 10 kr. hvora leið.
p. t. Kaupmanuahöfn, 15. jan. 1897.
0. Wathne.
Utanáskript Seyðisfjörð.
Baömeöul.
Naptalínbad og Glyeerínbað
frá S. Barnehow í Malmö mun hjer eptir
ávallt verða nægar byrgðir af hjá undir-
skrifuðum. Stærri pantanir fyrir vorið
óskast sendar mjer í tækan tíma.
Th. Thorsteinsson,
(Liverpool).
Verslun W. FISCHER’S.
Nýkomið með Laura:
Baðmeðul ágæt.
Steinolíuofnar, Steinolíumaskínur.
Olíukápur, Olíubuxur, Olíusvuntur.
Margarine, mjög gott.
Reyktóbak, sjerstaklega gott, margar teg-
undir, sem ekki hafa fiutst hingað áður.
Whisky ágætt, tvær tegundir.
Sardínur, Anchovis.
Svíuslæri, reykt.
Kirsebersaft, Hindbersaft.
Pickles.
Kristján Þorgrímsson hefur til sölu
nokkra magasinofna af bestu tegund, bæði
smáa og stóra og selur þá með mjög mikl-
um afslætti.
Munið eptir,
að pöntun á 2. ársfj. „íslands“ verður að
vera komin á póststofuna í Reykjavik
1. april.
Smmanfarl er eina
myndablaðið, sem kemur út á íslensku.
Ritstj. JÞorsteinn Gíslason.
Verzlun Björns Kristjánssonar Vestur-
götu 4, selur nú komið með “Laura“:
Morgunskó
Engelskt leður
Tau í drengjaföt
Pluss, rósað og sljett
Netagarn ágætt
Strátóg.
BUCHWÁLDS TAUIN ÁGÆTU
úr ull og silki, miklar nýjar byrgðir o. fl.
Vörurnar eru allar mjög vandaðar og
verðið lágt.
V erslunarhúsið
Coplana & Berrie
68 Constitution St.
Leitn
tekur að sjer sölu á alls konar íslenskum
vörum, gegn ligum umboðslannum.
ÍGrÆT JARÐEPLI
fást í versl. ESdLintoorg.
Hafnarstr. 8.
Fljnpur kaupir Júlíus Jör-
gensen á „Hótel Island“.
Kristján Þorgrímsson hefur til sölu
talsvert af svínshöfðum og fleski fráDan-
mörku.
500 Kroner
tilsikkres enhver Lungelidende, som efter
Benyttelsen af det verdensberömte Maltose-
Praeparat ikke finder sikker Hjelp. Hoste,
Haeshed, Asthma, Lunge- og Luftrör-Ka-
arrh, Spytning o. s. v. ophörer alleredet
efter nogle Dages Forlöb. Hundrede og
atter Hundrede have benyttet Praeparatet
med gunstigt Resultat. Maltose er ikke
et Middel, hvis Bestanddele holdes hemme-
ligt, det erholdes formedelst Indvirkning
af Malt og Mais. Attester fra de höjeste
Autoriteter staa til Tjeneste. Pris 3 Fla-
sker med Kasse 5 Kr., 6 Flasker 9 Kr.,
12 Flasker 15 Kr., 24 Flasker 28 Kr.
Albert Zenkner, Opfinderen af Maltoso-
Praeparatet, Königsberg Preussen, Kup-
litzerstr. 4 a.