Ísland


Ísland - 01.05.1897, Side 3

Ísland - 01.05.1897, Side 3
ISLAND. 71 lesturinn?“ — „Já, það ætia jeg að gera“ — „Aumingja Árni! Drottinn hjálpi þjer!“ — „Jeg held það sje best að við förum heim.“— „Já, við skulum fara heim“. — „Þú horf- ir svo mikið í kring um þig“. „Já, fað- ir þinn hefur legið hjerna í hlöðinni og grátið“. — „Faðir minn?“ sagði Árni og fölnaði. — „Níels auminginn! Það var daginn sem þú varst skírður. —---------M lítur svo mikið í kring um þig Árni?“ ísland erlendis. Bruland, dýralæknirinn norski, sem hjer dvaldi fyrir skömmu til að rannsaka bráðapeBtina, hefur nú feingið skýrslur frá 125 hreppstjórum. Segir hann, eftir þeim, að í 109 hreppum hafi farist fir bráðapest alls 29,841 kind og telur bvo til, að tjðn- ið nemi 250,000 kr. Svo er nfi sagt, að Skúli Thoroddsen, sem dval- ið hefur erlendis um hrið, hafi orðið saupsáttur við Zöllner, fjelaga-umboðsmann, út af ráðsmennsku hans fyrir fjelögin, og hafi nú Skúli feingið annan umboðsmann fyrir kaupfjelag ísfirðinga. t>að var í vetur sagt í dönskum blöðum, að fje því, sem sjora J. Prederiksen safnaði saman í sumar í Frakklandi og Þýskalandi ætti að verja tii að byggja nýja katólska kirkju hjer í Rvík. í íslenska kvalveiðafjelaginu, sem stofnað var í Höfn í vetur, eru þessir menn í stjðrn, auk Ás- geirs kaupmanns Ásgeirssonar, sem er framkvæmdar- stjóri fjelagsius: Wessel, generalkonsúll, Vald. Holm stðrkaupmaður og N. Steine, málafærslumað- Ur. Þetta hvalveiðafjelag ætlar að hafa aðal-stöðv- ar sínar á suðurlandi. Áður hefur þeBS verið getið hjer í blaðinu, að Norðmenn voru í vetur að stofna hvalveiðafjelag, sem ætlaði að hafa bækistöð sína á Austfjörðum. Einglendingar töluðu og um í vet- ur að stofna hvalveiðafjelag og átti það að hafa aðsetur á Norðurlandi. Áxel Davidsen stðrkaupmaður, sem meðal annars fjekkst við að útvega íslenskum kaupmönnum vör- ur, dó i deB. síðastl. á fimmtugs aldri. Bróðir hans og fjelagi heldur varsluninni áfram. Sæmuudur Bjarnhjeðinsson cand. med. hefur í vetur, eftir að hann tók próf, verið læknir við Meðalgrunnsvígið fyrir utan Kaupmannahöfn. Nú er bann á fæðingarstofnuninni og sagt að hann eigi að verða læknir Skagfirðinga. Vísindafjelagið í Stokkliólmi hefur veitt H. J. Ernst, lyfsala á Seyðisfirði heiðurspening þann, sem kenndur er við Berzelius efnafræðing. Hann er til bæði úr gulli og siifri. Sá, sem Ernst fjekk, var úr silfri. í hinu daiiBka blaði „Politikken" stóðu í vetur nokkrar greinir uin fœreyska tungw. Fyrsta grein- in er eftir færeyskan mann og stendur þar meðal annars, að ísienskar bðkmenntir sjeu aðgeingilegri fyrir Færeyinga en dönsk fræði og að hver einasti Færoyingur, sem kanu að losa sitt eigið móðnrmál, oigi lafhægt með að lesa íslenskar bækur. Margir Færeyingar eru á þeirri skoðun, að útrýma ætti sem mest dönsku máli þar af eyjunum. Hinn 7. jan. dó í Dórshöfn á Færeyjum Oliver Pjetur Effersö, sonur Jóns stúdents Ouðmnndsson- ar í Skildinganesi. Jón var einn af sveinum Jór- undar hundadagakonungs og var þá kallaður „greifi“. Degar Jörundur var fallinn úr tigninni settist Jón að á Færeyjum, kvæntist þar færeyskri konu og átti börn og buru. Hann kallaði sig Effersö og svo synir hans, en nafnið er dregið af Örfirisey við Beykjavík, sem nú er venjulega nefnd Effersey. 0. P. Effersö var kennari i gagnfræðisBkóiauum í Þórshöfn og leingi ritstjóri blaðsins „Dimmalætt- ing“. Hann var í nokkur ár þingmaður Færeyinga á ríkisþingi Dana og hafði auk þess á hendi ýms önnur störf í almenningsþarfir. Hann hafði verið vinfastur maður og hjálpsaraur og vel metinn af ölium eyjarskeggjum. (Ó. D.). Nú eru þrír íslendingar á listaskólanum í Höfn, Skúli Skúlason frá Akureyri, Einar Jónsson úr Hreppum eystra og Þórarinn Þorláksson, ættaður úr Vatnsdal í Húnavatnssýslu. Þórarinn fæst við málverk, en hinir við myndasmíði. Aldrei hafa svo margir íslendingar verið á listaskólanum í einu og íáir reyndar frá byrjun. Jeg man ekki eftir öðrum en Guunlaugi sýslumanni Briom, Sig- urði Guðmundssyni málara og Guðmundi Pálssyni, sem kallaður var „bíldur", eftir að hann kom aft- ur til íslands. (Ó. D.). Frakkastjórn hefur veitt dr. J. Jónassen land- lækni riddaranafnbót heiðursfylkingarinnar frönsku. Pjetur Thorberg, sonur Bergs Thorbergs lands- höfðiugja andaðist nýlega í Höfn; hann var nem- andi, rúmlega tvítugur að aldri. Bók um ísland kom út í Belgíu í vetur eftir Nicolas Leysbeth, — þann sem ferðaðist hjer um land sumarið 1896. Bókin heitir: Voyage en lslande et aux Eœröerne. Louain 1896. — 156 + IX bls. 8vo. Fylgirupp- dráttur af íslandi og margar myndir. Höf. getur þess í formálanum, að land okkar og þjóð sje venjulegast málað of dökkum litum í ferða- sögum útlendinga og ætlar nú sjálfur að gefa rjett- ari mynd af hvorutveggja. Eitt af því fyrsta, sem virðist hafa vakið eftir- tekt hans hjer, er íslenski kvennbúningurinn. Kveð- ur hann þann búuing bæði fallegan og eiga vel við loftslagið. Hann sýnir og bæði peisubúninginn og faldbúninginn á myndum. í Rvík þótti honum fallegt, en segir að húsin sjeu þar ekki annað en trjekassar og þykir undar- legt, hve lítið sje byggt úr steini. Hann lýsir helstu byggingunum, alþingishúsinu, og minnist um leið á söfnin, — landshöfðingjahúsinu o.fl. og flytur mynd af Reykjavík og aðra af Austurvelli sjerstaka, og mynd hefur hánn tekið af Aðalstræti úr glugganum þar sem hann bjó, á „Hotel Reykja- vík. Göturnar i Rvik þykir honum ljðtar, þær eru, segir hann: mannlausar, vagnlausar, iðnaðarlausar og skarkalalausar, þótt einstaka maður læðist þar um á Kúskinni. En samt sem áður segir hann, að bærinn sje einkennilegur og eftirtektarverður. „Menn taka eftir fólkinu. Hingað og þangað standa borgarar bæjarins, blíðir á svip en daprir að yfirbragði, til og frá mæta menn sjómanni og við og við ljóshærðri stúlku með skúfinn, sem lið- ast niður um öxlina". Hann segir, að íslendingar sjeu lausir við glæpi og óknitti og gáfað fólk, en orðnir sljóvir í bar- áttunni við illa náttúru og erlenda kúgun. Stærstu uppgötvanir á þessari öld sjeu enn ókunnar í Rvík; gufu- og rafmagn þekkist þar að eins af nafni. Hann segir að íslendingar sjeu jafnaðarmenn og þekkist þar hvorki ríkidæmi nje fátækt. Gestrisni íslendinga lofar hann mjög, en þrifn- aðinura finnst honum allmjög ábótavant. Kossa- ganginum, þegar fólk heilsastog kveðst, hneyxlast hann á eins og allir útlendingar. í kaflanum um bókmenntirnar eru ýmsar villur og sumar vondar. Yfirleitt mun þó bókin vera meðal betri ferða- bóka um ísland. Nákvæmar skýrslur eru þar um út fluttar og inn fluttar vörur og er höf. þess mjög hvetjandi, að Belgir byrji að reka verslun hjer á landi. Höf. er lögfræðingur, en talsvert kunnugur verslunarmálum. Bók þessi hefur selst svo vel, að nú er verið að gefa hana út í annarí útgáfu. Ditlev Thomsen farstjóri hefur samið og gefið út bók á dönsku um útflutning fjár og fiskjar frá íslandi til Frakklands, Belgíu, Hollands og Þýska- lands. Hennar verður nánar getið í næsta blaði. Árni Beinteinn Gíslason (Magnússonar skóla- kennara) cand. philos. andaðist í Kaupm.höfn á páskadaginn. Hann var útskrjfaður úr Reykja- víkur skóla 1886, og sigldi samsumars til háskól- ans; stundaði hann þar fyrst lögfræði, en síðan saungfræði og var mætavel að sjer í þeirri grein. Hefur hann búið til rnörg lög, þó fæst þeirra hafi komið fyrir almennings sjónir. Hann var maður mæta vel gefinn og vel að sjer Um margt og dreing- ur góður. Þann 20. þ.m. ljest í Kaupmannahöfn frú Jó- fríður Gudmundsen ekkja Jóns kaupmanns Guð- mundssonar úr Flatey. Hún þótti rausnarkona og hjálpsöm bágstöddum, þeirra, er hennar leituðu. Dr. Þorv. Thoroddsen hefur hlotið Oathberk Peck heiðurslaunin frá konunglega landfræðÍBfjelaginu í London fyrir jarðfræðisrannsóknir sínar á íslandi. í enska parlamentinu gjörði einn þingmanna fyr- ir skömmu þá fyrirspurn til stjórnarinnar, hvort henni virtist eigi ráð, að gera eitthvað til að vernda nqrðvesturströnd Skotlands gegn óvina árásum. Sagði þingmaðurinn, að ekki væri óhugsandi, að einhver óvinaþjóð gæti lagt undir sig ísland, og gert þaðan árásir á Skotiand. Á íslandi sagði hann að væru hafnir góðar fyrir stórskip, sem aldrei legði allan veturinn. Stjórnin svaraðí þess- ari fyrirspurn á þann veg, að frá íslandi mundi þeim eingin hætta búin. — En er þetta ekki ljós vottur um, að við sjeum heldur að færast í aukana, þegar jafnvel Einglendingar eru farnir að hafa beig af okkur! Frá fjallatindum Til fiskimiða. „Yesta“ kom hingað á mánudag 26. þ.m. Hún hafði fullan farm og farþegar voru með henni 21. Þar kom Ásgeir Sigurðsson kaupm., Ásgeir Eyþórs- son kaupm., W. Christensen konsúll, Guðbr. Finn- bogason konBÚll, D. Thomsen farstjóri, Jón Jóns- son sagnfræðingur, Haraldur Níelsson cand. theol., W. 0. Breiðfjörð kaupm. og fósturdóttir hans, Jón Þórðarson kaupm., Þorgrímur Johnsen læknir og frú hans, fröken Laura Ólafsdóttir, Chr. Jónasson frá Ákureyri, verslunarmaður J. Marx, Einglending- ar tveir, Guðm. Oddgeirsson verslunarm. frá Eyrar- bakka, Stefán Jónsson frá Seyðisfirði o. fl H. Th. Á. Thomsen kaupmaður hefur nú selt Einglending, Sír Payne, Elliðaárnar ásamt jörðun- um Ártúni og BúBtöðum fyiir 3000 pd. eða 54,000 kr. Ekki vita menn hvað Einglendingurinn ætlar sjer með þessa eign að gera. Hinn 22. f.m. rak frakkneska fiskiskútu á land í Húsavík eystra. Skipshöfnin, 9 manns bjargað- ist til lands á bát sínum og þó við illan leik. Einn af skípverjum bjargaðist á sundi. Norður-MúlaBýsla og bæjarfógetaembættið á Seyðis- firði er veitt cand. jur. Jóhannesi Jóhannessyni, sem verið hefur settur sýslumaður í Húnavatnssýslu. Þessi mannalát eru sögð : Þórunn Halldórsdótt- ir í Garðhúsum í Höfnum, dótturdóttir sjera Ög- mundar skálds Sigurðssonar á Tjörn, d. 7. febr. Guðrún Ólafsdóttir frá Vatnsenda, fósturdóttir Þor- láks alþingism. Guðmundssonar í Fífuhvammi. Þessir klerkar eru nýorðnir prðfastar: Sjera Valdemar Briem, sjera Jónas Jónasson á Hrafna- gili og sjera Ólafur Petersen á Svalbarði. Páll Briem amtmaður Norðlendinga hefur nú sent út boðsbref að nýju tímariti, sem heita á „Lög- fræðingur“ og fjalla skal um lögfræði, löggjafarmál og hagfræði. Það á að koma út í 10 örkum einu. sinni á ári og byrja í sumar. Þetta rit ætlar hann að fá póststjórninni til útsendingar á sama hátt og „Í8land“. Afli hefur verið lítill bjer við flóann undanfar- andi og gæftir mjög stopular. Á Ákranesi hefur samt verið ágætur afli undanfarna daga. Fyrsta vorblómið. 29/4 fannst fyrsta plantan blómguð. Þessi planta er steinbrjótstegund ein (Saxifraga appositifalia), er vex í klettum og holt- um. Steinbrjótur þessi er grænn og lifandi allan veturinn, og hefur fullþroska blómknappa á haust- in. Blómknapparnir opnast svo að segja strax við fyrstu geisla hinnar hlýju vorsólar. Þessi planta er hin fyrsta vorplanta, er sjest með blómi, bæði á íslandi, Grænlandi og öðrum köldum löndum á norðurhveli jarðarinnar. 1894 fannst þessi stein- brjótur blómgaður hinn 6. april á Áusturlandi (í Vallanesi). Eins og auðvitað er, fer það mjög eftir hlýind- um vorsins, hve snemma eða seint fyrsta blómið kemur, þegar vorið er hlýtt kemur það snemma, þegar vorið er kalt kemur það seinna. Hið sama má auðvitað einnig segja um vorgróðurinn yfirleitt. Á miðvikudaginn fór „Vesta“ upp til Akraness, en þar var þá afli svo mikill, að ekki feingust þar menn til að afferma skipið og kom það hingað aftur á fimmtudagsnótt til að sækja viunufólk. Einnig er nú síðast sagður besti afli fyrir sunn- an, á Eyrarbakka og í Þorlákshöfn og þarum kring. „Laura" koin á fimmtudagskvöld og var nú á undan áætlun. Með henni komu: Jón Ólafsson, fyrv. alþm. og ritstjóri, Björn Kristjánsson, frá Einglandi; kaupmennirnir N. Chr. Gram Þingeyri, S. A. Snorrason ísafirði, Markús Snæbjörnsson Pat- reksfirði, A. Riis ísaflrði, S. Sæmundsen Búðum, Pjetur M. Bjarnarson ísafirði, Jakob Thorarensen Reykjarfirði; Jón Jónsson læknir, Balt byggingar- meistari með 2 verkamenn til að byggja vita í Gróttu, Garðskaga og Reykjavík, fröken Sigriður Þorláksdóttir (Johnsen) og fröken Inger Frederek- sen (bakara), Sigurður Sigurðsson o. fl. Á miðvikudaginn fórst skip af Akranesi. Kl. 10 f.m. þann dag reri Guðmundur Guðmundsson frá Lambhúsum við þriðja mann og hefur ekkert til þeirra spurst siðan. Með Guðmundi voru Ólafur Páisson á Akranesi og Teitur Björnsson frá Leirár- görðum. Gufubáturinn „Reykjavik“ er nú á leiðinni hing- að; hann kom til Færeyja meðan „Laura“ var þar, ætlaði þaðan upp til Austfjarða, en hingað er hans von eftir tvo eða þrjá daga. Viku á eftir „Laura“ á að komá hingað annað gufuskip, „Georg", sent at Sameinaða gufuskipa- fjelaginu. Því „Laura" gat ekki tekið allar vörur, sem pantaður var flutningur á. Skipalisti. „Biligent“ (89,70 sml.), skipstj. Marion; „Spe- ranza“ (117,95), skipstj. Thebaut (bæðifrönsk fiski- skip); „St. Paul“ (91,02), skipstj. Rabin, hospitals- skipið; „Edna“ (115,83), skipstj. T. Thorkilssen, til Th. Torsteinssen, timburskip; „Elinor“ (163,13), skipstj. I. C. Svane, tii Bryde; „William Boyes“ (75,64), skipstj. Jörgensen, til G. Zoega, keyft í Eingl. til fiskiveiða; „Louis“ (80,90), skipstj. Mevel; „Forbin“ (60,83), skipstj. Lesquel; „Isabelia et Ma- iie“ (75,14), skipstj. Rabin; „St. David“ (48,92), skipstj. L. Joseph. Fjögur síðastlöldu fr. fiskiskip. Reykjavík. Framan af vikunni geingu rigningar og stormar, en síðari dagana hefur verið þurviðri; alit af frem- ur kalt. Á sunnudagskvöldið var leikið í Iðnaðarmanna- húsinu: „Einfeldningurinn“ og „Hjartsl. Emilíu“. Leikirnir vel sóttir. Afgreiðsla póstskipa Sameinaða Gufuskipafjelags- ins í Rvík hefur feíngið frú Finsen, ekkja Finsens póstmeistara, en afgreiðsluna annast fyrir hana Hannes Ó. Magnússon, sem nú er settur póstmeistari. Jón Olafsson er nú sestur að hjer Reykjavik, dvelur hjer að minnsta kosti nokkra mánuði fyrst, en hefur í hyggju að flytja hingað í sumar alfar- inn að vestan. Hann sækir nú um póstmeistara- embættið, en um það sækir einnig cand. polyt. Sig- urður Briem, og hefur hann verið í Khöfn í vetur. Kona Jóns og börn koma bingað í sumar, ef hann sest hjer að. Elsti sonur hans, Ólafur, sem nú er 15 ára gamall, hefur nú góða stöðu við bókasafn í'Chicago, „Newberry library“, þar sem Jón var áður bókavörður. Eins og skýrt er frá annarsstaðar í blaðinu, er nú dómur fallinn í málinu Þorv. lögregluþjóns og Valdemars ritstjóra. Sagt er, að Valdimar muni halda málinu til yfirrjettar. Hreifivjel ísafoldarprentsmiðju hefur nú leingi verið öllu góðu fólki, sem um Austurstræti geing- ur til ama, með því að hún spýr bláum, þefillum olíureyk yfir götuna. Henni var fyrirgefið þetta meðan hún var ný, en nú eru menn farnir að óska eftir að komast óreyktir um götuna. i „HÓTEL REYKJAVÍK“ eru hvít tóuskinn keyft hæstu verði. Einar Zoéga. Fermingar-kort undur falleg-, margbreytt og tiltölulega ódýr fást í Þingh.str. 4. Þorv. Þorvarðarson. Versl. W. FISCHER’S: Mikið af nauðsynjavörura til þil- sliipatLtgj öröar o. s. frv. Vefnaðarvörur. Járnvörur. Nýlenduviirur. Ymsir munir hertugir til brúðargjafa, fæðingardagsgjafa o. s. frv. eru komnir og koma með seglskipum fyrstu dagana í næsta mánuði. Uns Stúllta af góðu fólki getur J feingið vist. — Ritstj. vísar á.

x

Ísland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísland
https://timarit.is/publication/30

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.