Ísland - 02.10.1897, Page 4
160
IS|LAND.
er efalaust lang-besta baðlyfið.
Á Þýskalandi, þar sem það er
Latínuskðlinn var settur í gær kl. 1 e.h. Pilt-
voru þá ekki nærri allir komnir, en komu margir
með Rvíkinni í gærkvöld.
Töluverðar breytingar hafa nú verið gerðar þar
í skólanum. Helst er sú, að heimavistirnar eru af
teknar og er eingin eftirsjón í þeim, því vistin í
svefnloftum skólans var vond og óholl. í undir-
búningstímum geta piltar lesið í skólanum, ef
þeir vilja, en ekki eiga þeir að lesa í „bekkjunum"
eins og áður, heldur er stærra svefnloftið gert að
lestrarstofu.
Önnur breytingin er sú, að nú fá skólapiltar 10
minútur friar milli kennslustundanna i stað þess
að áður voru það að eins 6 minútur.
Þriðja breytingin er sú, að skólauppboðið er nú
bannað, en á því seldu piltar hver öðrum skóla-
bækur á haustin og feingu frí til að halda upp-
boðið, venjulega 2—3 daga eftir að skólinn var
settur.
Reykjavíkin kom frá Straumfirði og Borgarnesi
í gærkvöld og með benni rúm tvöhundruð manns.
Með henni kom Páll læknir Blöndal, Priðjón Jens-
son læknir, sjera Magnús Andrjesson, eand. theol.
Sigurður P. Sivertsen, sjera Einar á Borg, margir
skólapiltar o.s.frv.
Aðalfnndur fornleifafjclagsins var haldinn hjer i
Bvík 18. f.m. í stjórn voru kosnir: Eiríkur Briem,
formaður, Indriði Einarsson, skrifari, Þórhallur
Bjarnarson, gjaldkeri, en fulltrúar Björn M. Ólsen,
Steingrímur Thorsteinsson, Pálmi Pálsson og Han-
nes Þorsteinsson. Premierlautenant Daníel Bruun
var gerður að heiðursfjelaga.
Á fundinum hjelt herra Bruun fyrirlestur um
rannsóknarferð sina i sumar.
Nefnd hefur myndast hjer i bænum til þess að
sjá um, að sýndir verði á sýningunni i París árið
1900 islenskir forngripir, til skýringar menningar-
sögu landsins. í nefndinni ern: amtmaður (for-
maður), biskup, sjera Eiríkur Briem, Pálmi Páls-
son (skrifari) og Jón Jakobsson.
Á bæjarstjórnarfundi á fimmtndaginn var sam-
þykkt, að bærinn seldi landssjóði barnaskólahúsið
og á það nú að verða pósthús. En nýtt og miklu
stærra barnaskólahús á að byggja snður við Tjörn-
ina á lóð þeirri, sem áður átti Jakob Sveinsson
trjesmiður.
„Leikfjelag Reykjavíkur“ ætlar að hyrja á sjón-
leikjum i Iðnaðarmannahúsinu i þessum mánuði og
er nú byrjað á æfingum.
Hitt og þetta.
— Kennarinn: „Hvað geturðu sagt mjer um
ástandið í Rómaborg 290 árum fyrir Krists fæð-
ingu? Lærisveinninn: „Árið 290 fyrir Kr. fæð.
skeði það í Rómaborg, að 200 árum áður var bar-
daginn á Maraþon á Grikklandi“.
— A: „Sierðu aumingja dreinginn þarna? Pað-
ir hans dó úr brjóstveiki fyrir ári síðan".
B: „Aumingja dreingurinn!“
A: „Og móðir hans dó úr sykursýki fyrir hálfu
ári síðan“.
B: „Ósköp eru að heyra þetta!“
A: „En hörmulegast er það samt, að nú hefur
dreingurinn feingið — brjóstsýkursýki".
— Reyktóbaksnautn ýmsra þjóða er samkvæmt
nýjustu skýrslum þessi (tölurnar i svigum fyrir
aftan nafn landsins er ibúatala þess, en hinar töl-
urnar merkja tóhaksnautnina fyrir hvern einstakl-
ing, og er tóbakið talið í grömmum, en 1 gram er
7.5 16ða):
Rússland (108,143,000).................. 910 gr.
Bandarikin í N.-Amer. (68,275,000) . 2110 —
Norður-Þýzkaland (51,758,000). . . 1485 —
Austurriki og Ungv.land (41,384,000) 1350 —
Kanada (4,833,000)..................... 1050 —
Belgía (6,341,000)..................... 1552 —
Spánn (17,565,000)...................... 550 —
Ítalía (30,913,000)..................... 635 —
Eingland (39,134,000)................... 680 —
Frakkland (38,228,000).................. 933 —
Danmörk (2,172,000).................... 1125 —
Norvegur (2,000,000)................... 1135 —
Sviss (2,917,000)....................... 610 —
Australía (3,522,000).................. 1400 —
Svíþjóð (4,873,000)..................... 940 —
Holland (4,795,000).................... 3400 —
Portúgal (4,712,000).................... 850 —
Efst á blaði er Holland; þar reykir að meðaltali
hver einstaklingur 3400 gr., en alls er þar í landi
neytt 16,303,000,000 gr. tóbaks; minnst reykja
Spánverjar, 550 gr. hver einstaklingur eða þeir
allir samtals 9,960,750,000 gr., en þeir reykja mest
vinla, minna úr pípu. Næst Hollendingum reykja
Bandamenn mest.
— Það er í mæli, að það eigi að setja enn þá
víggirðingar í kring um París. Kostnaðurinn ein-
ungis við grunninn til þeirra er áætlaðnr 134—
193 milj. króna.
r
Askorun.
Allir þeir, sem boðsbréf voru send til
síðastl. vor, um gisti- og fundarhúsbygg-
ingu á Þingvöllum, og sem ekki ennþá
hafa látið heyra frá sér, ættu sem allra-
fyrst að láta undirskrifaðan vita um, hvað
þeim hefur orðið ágengt með að safna
hlutum til þessa fyrirtækis.
Nö hefur alþingi veitt helming (nfl.
2500 kr.) af því fé, sem áætlað var að
þyrfti til þess að koma upp vel viðunan-
legu gisti- og fundarhúsi á Þingvöllum,
og væri það mjög undarlegt, ef ekki fynd-
ust á öllu landinu 100 menn, sem þyrftu
að hugsa sig lengi um, hvort þeir ættu að
hætta einum 25 kr. hver í þetta þjóðlega
fyrirtæki, sem var kallað síðast á alþingi
gróðafyrirtœhi.
Reykjavík 30. sept. 1897.
Sigfús Eymundsson
p. t. gjaldkeri.
Laglogt sltriftoorQ
óskast til leigu í vetur. — Ritstj. visar á.
J6g undirskrifuð tek að mjer
kennslu í HANNYItÞUM og guitarspili.
Halla Waage.
Cadburys COCOA
er
algerlega Hreint.
Þykknar ekki í bollanum. Er þunnur
hressandi drykkur eins og kaffi og te
en miklu meira nærandi. Er ekki
blandað á nokkurn hátt og er
þess vegna
storliast og toost
og
ód^rast
í reyndinni.
Agætt fœði
fæst keyft í Þingholtsstræti 1Q
(húsi Helga Helgasonar kaupmanns).
Hjermeð leyfi jeg mjer að
tilkynna hinum heiðruðu sveita-
mönnum, að jeg tek að mjer
sölu á sauðfje.
Sigurður E. Waage.
LÖgtali á ógreiddum gjöldum til dóm-
kirkjunnar fer fram eftir nokkra daga.
Reyktóbak
°g
Vindlar
fást bestir og ódýrastir í versl.
E. Þorkelssonar.
Austurstr. 6.
undir nafninu:
CREOLim
Bruland, dýralæknirinn norski,
MÍÖdLegÍsmat, enn
fremur allt fæði, selur hússtjórnarskólinn.
Iðnaðarmannahúsið.
Ingangur á uorðurhlíð.
Hólmfríður Gísladóttir
(kennslukona skólans).
1 ö g s k i p a ð baðlyf, er það betur þekkt
PE5ARSOKT.
konar handavinnu.
Þóra Björnsdóttir.
AUST DRSTRÆTI nr. 5.
Gott íslenskt smjör
fæst stöðugt hjá
C. Zlmsen.
sem hjer var í fyrra, mælir sterklega
með Kreolini sem baðlyfi og segir hann meðal annars: „Pearsons Kreolin er hið
bezta, sem til er búið“.
Magnús Einarsson dýralæknir segir: „Það b a ð l y f, sem nú er í
einna mestu áliti og m e s t mun notað á Þýzkalandi, Englandi og víðar er hið
enslta DE5-r©OlXIX (Pearson Creolin, Jeyes Fluid) og ber til
þess einkum þetta þrennt, að það drepur kláðamaura og lýs fullt svo vel sem uokkuð
annað baðlyf, er menn nú þekkja, að í því eru engin eiturefni, er skaði skepnu þá,
sem böðuð er, og að það skemmir ekki nje litar ullina“.
Blaðið „The Scottish Farmer" (Hinn skozki Bóndi) getur um JEYES
FLUIÐ í 237. tölubl. sínu þ.á. og segir meðal annars: „Jeyes Fluid er í miklum
metum meðal fjárbænda þessa lands“.
«T ili "y JE3 JS Jb' T . XT133 hefur verið sýut á öllum hinum
helstu allsherjar-sýningum víðsvegar um heim og hefur áunnið sjer
9S meaalíur auk annara verölauna.
JEYES FLUIi) er alveg óeitrað, svo engin hætta fylgir að fara með það,
eins og t.d. getur átt sjer stað með Karbólsýru.
Úr 1 gallon (47/10 pott) má baða 80 til XOO kindur, og þar eð
1 gallon kostar að eins 4 kr. kostar ekki nema 4—5 aura á kindina.
Notkunarreglur á íslensku fylgja.
Afsláttur ef mikið er keypt.
Einka-umboð fyrir ísland hefur
Ásgeir Sig'urðsson,
kaupmaður.
Reykjavík.
K. o m 1 ö og Is. aupiö
handsápu hjá C. ZIMSEN.
I=*ar fæst:
God Morgen fyrir 5 aura.
10 aura stykki stór og góð.
Ekta Rosenolíusápa og Vioi-sápa á 20 aura.
Carbólsápa, Ti vit, á 22 aura. Bóraxsápa. Tjörusápa.
Aseptín-sápa, sem alstaðar er annáluð.
Sögu-sápa — mjög góð — og fylgir henni skemmtisaga —, fyrir að eins 15 aura.
Ladies soap 25 aura og margar aðrar tegundir.
Gleymið ekki Marseille-sápunni — með Kolumbusarmyndinni —, sem er hin
besta sápa, sem fæst, í allan þvott og kostar að eins 35 aura puudið.
Grænsápa, góð og ódýr.
Vellyktandi vötn eru best og ódýrust á sama stað.
UNDIRSKRIFUÐ veitir stúlkum tilsögn i alls