Ísland


Ísland - 04.12.1897, Side 1

Ísland - 04.12.1897, Side 1
r I. ár, 4. ársfj. Reykjavík, 4. desember 1897. 49. tölublað. Óframkvæmanleg lög — ólög. „Af.....lagaleyei mun land vort eyðast“. Erukkspá. Þófct alþiagi hafi oft verið brugðið um, að það afrekaði lítið, og þótt mörg- um af lögum þeim, er það hefur samþykkt, hafl af stjórninni verið synjað staðfesting- ar, verður eigi á móti því borið, að það hefur einatt verið ærið frjófsamt og látið oftast allmörg lög frá sjer fara, svo að allar líkur eru til, eftir því að dæma, að það þurfi ekki að „koma fram sem Krukk- ur spáði“, að „af langviðrum og lagaleysi mundi land vort eyðast". En ef vjer hins vegar gætum að, hvernig sum af lög- um þessum eru úr garði gerð og svo því næst, hvernig þeim er fram fylgt, þá kann að verða tvísýnna um, hvort ekki megi segja um sum af þeim, að þau sje ólög, lagaleysi eða verri en eingin lög; og hafi lögbók vor margt af slíkum lögum inni að halda, gæti það orðið vafasamt, hvort ekki mætti heimfæra Krukks orð upp á rjettarástandið, eins og náttúruna, sem eyð- ir landinu með langviðrum. Ekki er það ætlun mín hjer, að telja upp öll þau lög og lagaákvæði, er hið löggefanda alþingi hefur samþykkt og öðl- ast hafa staðfestingu, er hafa verið lítt framkvæmanleg eða alveg verið vanrækt að framkvæma. En sem dæmi má þó nokkur nefna, þau er varða allan almenn- ing. Alkunnugt er, að „lög um birting laga og tilskipana“ 24. ág. 1877 hafa alls eigi komið til framkvæmda, eða náð til- gangi sínum, að því leyti, sem þar er (2. gr.) fyrirskipað, að „hreppstjórar skulu lesa upp á kirkjufundum eða hreppaskila- þingum lög þau og tilskipanir“ sem út koma í stjórnartíðindunum (deildinni A,). Það er beinlínis skylduræknisskorti hrepp- stjóranna og eftirlitsleysi sýslumanna að kenna, að þessu er ekki hlýtt; en ef lögin væru framkvæmd í þessu ákvæði, gæti það haft talsverða þýðingu fyrir lagaþekking alþýðu. En nú þekkja marg- ir bændur ekki að lögin sjeu til fyr en þeir á einhvern hátt „reka sig á“ þau. í þessu efni er því ástandið talsvert verra nú en meðan sýslumenn lásu lögin upp á manntalsþingunum. Horfellislögin 12. jan. 1884 hafa bæði verið óframkvæmanleg, enda eigi fram- kvæmd, og skal jeg síðar minnast á þau í sambandi víð hin nýju lög um sama efni, er þingið samþykkti síðastliðið sumar. Þá mætti nefna skottulæknalögin (29. febr. 1884). Hvenær verður það sannað, að maður, sem er „ólöggiltur til læknis- starfa“, „hafi gjört skaða með lækninga- tilraunum sínum“? Það er að minnsta kosti svo erfitt, að það gerir Iögin hjer um bil óframkvæmanleg og þýðingarkus — eins og reynslan sýnir. Þannig mætti telja í tugum lög og á- kvæði í lögum, sem eru aðþví Ieyti.verri en eingin, að þau eru til en þeim eigi hlýtt, annaðhvort af því, að þau eru svo óhag- kvæm, eða af hirðuleysi þeirra, er fram- kvæmdarskyldan hvílir á. Af hinum mörgu lögum, sem hið „magra“ þing í sumar samþykkti, ætla jeg að eins að minnast á lögin „um horfellí á skepn- um“; þau eru mjer í fersku minni, því jeg las þau nýlega í 38. tbl. „íslands“. Það stóð til að gjöra mikla rjettarbót í þessu efni á þinginu síðast. Éldri lögin höfðu reynst ónýt, og faraldurinn í vor um allt land, sem var afleiðing af tíðarfarinu í fyrra sumar,":síðastliðinn vet- ur og vor, stóð löggjöfunum svo lifandi fyrir hugskotssjónum, að það var svo sem sjálfsagt, að þeir hlutu að gera eitthvað í því efni. Og árangurinn af öllunfheila- brotum, tillögum, frumvörpum og nmræð- um þingmanna sjáum vjer í hinum nefndu lögum, sem eiga að afleysa lögin 12. jan. ’84, eftir 13 ára þýðingarlausa tilveru. Það er þá fyrst að athuga, að fyrsta greiniu í hinum nýju lögum er orðrjett 1. greinin í eldri lögunum, sem því má álít- ast að hafa unnið þar hefð, sem „dauður bókstafur“; en löggjafar vorir hafa máske verið svo trúaðir að ætla, að hún yrði á- hrifameiri, er hún kæmi þannig „afturgeing- in, sem höfuð á nýrri (handa)skömm. 2. gr. skipar svo fyrir, að 2—3 menn skuli „skoða tvisvar á vetri búpening og fóðurbyrgðir hreppsbúa, og grennslast eft- ir meðferð fjárins“. — Þeir eigajað skoða búpening og birgðir, en grennslast eftir meðferð fjárins! — Á fyrri skoðunin að fara fram fyrir lok nóvembermán., en hin síðari milli 15. mars og sumarmála. — Undantekningar eingar. Viðvíkjandi þessu ákvæði má benda á, að;jvíða um Suður- land, einkum í Gnllbringusýslu, er það mjög algeingt, ef tíð er bærileg, að fje og hross sje á víð og dreif um fjöll og haga fram yfir nóverabermánaðarlok, og mundi því skoðunin verða þar ærið seinleg og kostnaðarsöm — eða henni yrði alls eigi sinnt. Þarerog oft fje sleppt í miðgóu, ef tíð er góð, og færi þá líkt um síðari skoðunina- 3. gr. er auðsjáanlega alveg þýðingar- laus. Þar er ákveðið, að ef skoðunar- menn „telja“ skepnur fóðurlausar eða illa hirtar“, þá „áminna þeir eigendur um, að útvega þeim fóður eða lóga þeim“. Vald skoðunarmanna nær eigi leingra en til að „áminna“, ef þeir „telja“, — og skyldu hafa þeir einga til að gera annað. Nú er það alkunnugt, að allvíða er útigangur skil- yrðið fyrir sauðfjár- og hrossaeign bænda, að nokkru eða öllu leyti. Svo er víða um Suðurland. í suðurhluta Gullbringu- sýslu er einginn heyskapur nema litlir túnblettir, græddir upp úr hrauni, og er taðan af þeim höfð handa kúm. Eu sauð- fje og hross, sem þarj er allmargt af, geingur alveg úti víðast, og heppnast það optast, og hefur verið búendum á því mikill styrkur, einkum þegar aðal-atvinn- an, flskaflinn, hefur brugðist. Ættu nú búendur á þessu svæði að fara að láta sjer segjast við áminningar skoðunar- manna, er ekkert fóður finndu handa fjen- aðinum annað en hraunlyngið og fjöru- þangið, og færu að lóga öllu sauðfje og hrossum sínum, þá er mjög líklegt að þynntist byggðin þar syðra — ólögin mundu eyða landið. Aukaskoðun, hin 3., á fram að fara, ef hreppstjóri hefur „ástæðu til að halda" að horfelli kunni að vera búinn fjenaði hjá einhverjum „vegna fóðurskorts, hirðu- leysis eða harðýðgi“ (4. gr.); og „verði fjenaður horaður eða fallí úr hor“ af sömu ástæðum, „að áliti skoðunarmanna11, þá skal hlutaðeigandi sæta málsókn til sekta eða fangelsis (5. gr.). Nú er það alkunna, að hættast er við megurð og falli af sýking af óhollu og kraftlitlu; fóðri eða illu tíðarfari (óveðr- áttu, sem oft hefur þau áhrif á útigangs- fjenað, sem verður að sækja'^sjer fóður í hagann, að hann horast, þó jörð sje nóg, og þanDÍg einginn ,,fóðurskortur“) eins og átti sjer stað síðastliðinn vetur og vor; en þess konar „tilfelli“ heyra eigi undir lög þessi; þau .fara þar fyrir „ofan garð og neðan“. Enda væri ósanngjarnt að hegna mönnum fyrir það, sem eigi verður við gert, nema máske með kostnaði, sem búpeningúrinn eigi hrykki til að borga (t. d. töðugjöf, korngjöf o.s.frv.) eftir því verslunarástandi og sauðfjárverði, sem uú á sjer stað. Allan þennan skoðunarkostnað ciga sveitarsjóðirnir að borga: 2 kr. til hvers skoðunarmanns á dag, meðan þeir eru að smala um alla sveitina, og er eigi annað sýnna, en að það verði aðal-árangurinn af lögunum, að þyngja tilfinnanlega út- gjöld hínna ofþyngdu sveitarsjóða og veita hreppstjórunum og einhverjum efnamöun- um sveitanna — því efnamennirnir eru sjálfkjörnir til allra gjörða í*flestum sveit- um, hvort sem þeir hafajvit til þess eða eigi — auka-atvinnu um þann tíma árs- ins, sem minnst er um hana annars; þvi það er varla að búast við, að menn þori að brjóta skoðunarboðið, enda lítil hvöt til þess, þar eð næg laun eru í aðra hönd. Hvenær skyldi löggjöfum vorum lærast það, sem þó eru næg jdæmi til að sann- færa menn um, að umbunarlög eru afleið- ingabetri en hegningarlög til að glæða framfarir og bæta siðferðistilfinningar manna? Þó aðjbændum hefði verið hótað sektum og fangelsi, ef þeir vanræktu tún sin, mundi það eigi hafa sljettað eins marga ferh.faðma í túnunnm, eins og „bún- aðarstyrkurinn“ hefur sljettað margar dag- sláttur. Og ef búnaðarfjelögunum væri feingin í hendar örlítil upphæð til að verðlauna með góða fjenaðarmeðferð, mundi það eftir fá ár sýna þúsundfalt betri á- rangurgen hin vanhugsuðu og vansköpuðu horfellislög, þótt þau væru „köruð“ upp á hverju þingi. Það er annars útlit fyrir, að sauðfjár- ræktin, sem hefur verið bjargarstofn stærsta hluta landsmanna að undanförnu, ætli að fara að verða svo kostnaðarsöm atvinnugrein, að sú björg sje nú bönnuð að mestu, úr því hún er undirorpin tíund- um, sköttum, dýralæknum, bráðapest og öðrum vaxandi vanhöldum, útflutnings- banni, verðleysi í verslun, kláðaskoðunar- oglækningakostnaði, hundaskatti og hunda- lækningakostnaði, enn fremur horskoðana- kostnaði og ef til vill málsókna-sekta- og fangelsanarkostnaði m. m. G. s. „Kellavfkurlinei.vliö4 Jeg vil Ieyfa mjer að fara fáeinum orðum um hið svo nefnda Keflavíkur- hneixli, sem jeg hefi bæði heyrt talað um og lesið um í blöðunum. Sjálfur er jeg ekki Keflvíkingur, en jeg hefi þó verið þar, og veit að miklu leyti, hvernig hagar þar til. í haust var jeg 'staddur í Reykjavík þegar sá kvittur kom upp, að merki hefði verið gefið á áðurgreindum stað, til þess að vara botnverpinga við Heimdalli, sem eftir sögn átti að liggja þar ljóslaus, til þess að taka á móti botnverpingum, sem legðu það í vana sinn, að sigla inn fyrir línu þá, er merkt er á kortinu enska og fiska í landhelgi á nóttunni, án þess að hafa uppi hin fyrirskipuðu ljós. Eitt merkið hafði verið, að ljósker hafði verið dregið upp á staung, og annað að bátur hefði átt að bregða upp Ijósi, og hefði sá bát- ur átt að liggja milli Heimdalls og botn- verpinga þeirra, sem voru á leiðinni upp í Keflavík. Hjer hlýtur að vera einhver misskiln- ingur, því Heimdalli var innan handar að sanna þetta þegar í stað, hefði hann gætt skyldu sinnar, en hafi hann ekki gjört það, þá átti hanu að þegja um þetta, því hans er skömmin, ef hann hefur vanrækt verk sitt. Þetta er úthrópað sem þjóðarskömm í blöðunum áu þess að athugaðir sjeu mála- vextir. Hafi Heimdallur legið ljóslaus í Kefla- vík þegar þetta átti að ske, þá getur það varla verið hugsanlegt, að hann hafi haft akkerin í botni. Hann er útbúinn eftir nýjustu tísku, og hlýtur því að hafa tvöfalda skrúfu (double propeller). Skrúf- urnar eru sitt hvoru megin við afturstefni skipsins, og má með þeim snúa skipinu við á mjög litlu svæði, (líkt og þegar stungið er á öðrumegin á bát en haft fram á hinumegin). Þessum útbúningi fylgir það, að eingin ástæða er fyrir hann að liggja fastur, þegar hann er kominn 8vo langt, að hann er búinn að byrgja fyrir öll ljós, til þess að taka botnverp- inga glóðvolga, þegar þeir koma. Hafi nú komið upp Ijós, sem grunsamt gat verið, þá var innan handar að bregða upp rafmagnsljósinu og sjá og sanna hver þetta var Log hvort nokkrir menn væru þar í kring. Sjónaukar eru góðir um borð og um styrkleik rafmagnsljóssins þarf eigi að fara mörgum orðum, því vjer höfum flest- ir sjeð þau, bæði hjer í Reykjavík og víðar. Sömuleiðis mátti miða þennan stað frá borði, leggja tunnu eða eitthvað þess

x

Ísland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísland
https://timarit.is/publication/30

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.