Ísland


Ísland - 04.12.1897, Síða 2

Ísland - 04.12.1897, Síða 2
194 ISLAND. p-^r=*=l=i ~^^:r=i=nt=T=Jr=f=T=l=i=T^ ^i=r=JEn=Jfc=T=*=T=J.=T=J 1 ÍSLAND. Ritatjðri: t»orsteinn Gíslason. Skrifstofa: Laugayeg 2. Reikningshaldari og afgreiðslumaður: Hannes Ó. Magnússon, Austurstr. G. Prentað í: Fjelagsprentsmiðjunni. „ÍSLAND“ kemur út hvern laugardag á Jessum ársfjórðungi (október—jan.), 13 blöð alls. Áskrift bindandi þrjá, mánuði. Hver ársfjórðungurborgist fyrirfram um leið og blaðið er pantað og kostar í Eeybjavík 70 au., útum land 79 au., erlendislkr. Póstafgreiðslumenn og brjefhirðingamenn taka móti áskriftum og borgun fyrir blaðið og kvitta fyrir. gjí=1^.:=r=Í^gEi^Er=(=ii=I=iSl^,=i=ii=l=ii=l=ij=l=T=Lrj=ETÍi konar þar, sem skipið lá, hefði það þurft að fara og tigia á eptir skipunum, sem markinu var beínt að, hafi þau ekki verið af sama efni og „den flyvende Hollænder“. Hægt var fyrir Heimdall að missa ekki siónar á þeim, því ljósið hans er gott. En hafi hann þurft að fara að ljetta akkerum, þegar þetta skeði, þá er eíngin furða, þótt hann hafi misst af öilu. Jeg vík þessu næst að bátnum, sem hafði átt að bregða upp ljósinu. Hafi bátur brugðið upp ljósi ót á sjó, þar sem hann átti von á ljóslausum skipum á sigl- ingu, þá hefur hann verið í sínum fyllsta rjetti. Bátar eru ekki skyldir að hafa ljós, eu þeir hafa ekki annað ráð ef skip eru í nánd, og dimmt er, en að bregða upp ljósi, til þess að gjöra vart við sig, ef þeir á annað borð hafa með sjer ljós, sem að öðru leyti ætti að brýna fyrir mönnum, einkum þar sem skipum fjölgar svo mjög og þau fiska grunnt. Hafi einhver bátur brugðið upp Ijósi, sem grunsamt- gat þótt, og hefðu Heím- dallsmenn viljað rannsaka það, þá var þeim hægðarleikur, að ná í þann bát; bæði hafa þeir hraðskreíða báta, nóga menn til að róa þeim, og þurftu aldrei að missa sjónar á bátnum. Því rafmagns- ljósið er ekki til þess að skemmta fólki eingaungu. Úr því Heimdellingar gátu einga grein gert fyrir þessari flugu, þá var ekki rjett að útbreiða hana, og það eingu fremur, þótt fundið hafi verið að framgaungu þeirra áður. 24/n—’97. Sveinbjörn Egilsson. Btínaðarbálkur. Áburður ár torfi. Torfjörðin er 2—3 auðugri að köfnun- arefni, en vei hirtur áburður undan hús- dýrum. En köfnunarefnið í torfjörðinni er þar í þess konar samböndum við önn- ur efni, að jurtirnar geta ekki haft gagn af því. Svíar og Norðmenn og jafnvel fleiri þjóðir, haguýt?. sjer köfnunarefnið úr torfjörðinni á þann hátt, sem nú skal greina: Torfið er þurkað og brennt síðan í ofn- um, sem þar til eru gerðir. Þeir eru lokaðir að ofan og vel loftheldir að öðru leyti en þvi, að ofurlítið gat er á þeim að neðan, sem loft kcmst inn um til að halda við brennslunni. Ofnarnir eru fyllt- ir tvisvar á dag. Brennslan fer svo liægt fram, að fremur má heita að jörðin sviðni en brenni. Við brennsluna breytist köfn- unarefnið í ammoniak og það leiðist með reyknum frá ofninum um pípu, sem ligg- ur yfir i trjekassa. Pipan liggur að neð- an inn í kassann og fyrir ofan hana eru þjettir rimlar yflr kassann hjer um bil mitt á milli botns og barma, og á þeim er söxuð torfjörð, sem stöðngt er Iátin vora vot. Reykurinn, sem kemur úr pípunni inn í kassann undir rimlunum leitar upp í gegnum torfið. Á leiðinni í gegnum jörðina skilus raykurinn víð sig am- moniakið, en vatnið dregur það í sig og bindur það. í jörðinni eru líka ýmsar sýrur, sem það geingur í samband við. Geymist þannig þetta efni í jörðinni bund- ið. Þegar jörðin í kassanum er orðin fullkomlega mettuð af ammoniaki, þá er hún tekin úr kassanum og látin saman við safnhauga eður annan áburð og leysist þar torfið upp. Stundum leysa menn það upp með brennisteinssýru og brúka það strax til áburðar. Askan er biúkuð á vanalegan hátt og þykir betri til áhurðar en móaska. Með því að svíða jörðina í gryfjum þöktum með votri jörð, líkt og kolagraf- irnar voru gjörðar forðum, hafa menn og getað safnað köfnunarefninu úr torfjörð- inni; farið svo með ammoniaksmettuðu jörðina, sem fyr. — Mundi heppilegast að gera slíkar kolagrafir hjá oss ef ein- hverjum skildi nokkurn tíma koma til hugar að hagnýta sjer á þennan hátt torf til áburðar. Er liægt að breyta loftsiaginu? Það er eingum vafa bundið, að menn- irnir geta haft töluverð áhrif á veðráttu- far landanna. Þau lönd, sem vel eru ræktuð eru miklu hlýrri en þau, sem eru illa ræktuð, þótt bæði Iiggi undir sama breiddarstigi. Væru allar mýrarnar og forirnar á íslandi skornar fram og gerð- ar að túnum, sáðlendi eða flæðieingi, mundi veðráttufar landsins verða miklum mun hlýrra, en það nú er. ísland yrði samt æfinlega klakaland. En klakinn mundi ekki hafa jafn-skaðvænleg áhrif á jurtagróðurinn, þegar jörðin væri þur og ræktuð, eins og nú á sjer stað, meðan landið er næstum því allt óræktað, og stór svæði af því mýrlendi og foræðisflóar. Vetrarkuldinn yrði sumstaðar eingu minni eftir en áður, en sumarhitinn yrði mikl- um mun meiri og kæmi heppilegar niður ítilliti til jurtagróðursins. Þarsemsagga- lofslag er, sem leiðir mest af mikilli upp- gufun frá mýrunum, er hitinn á sumrum mjög jafn, aldreí mikill, og aldrei heldur mjög lítill. Áftur á móti verður meiri mismunur á hitanum yfir þeirri jörð, sem er þur, vel ræktuð og frjósöm og á það betur við jörðina, en jafn og lágur hiti- Ýms þau iönd Norðurálfunuar, sem nú eru frjófsöm og heit, hafa í fornöid verið margfalt kaldari en þau eru nú. Á dög- um Karls mikla, var mjög óveruleg vín- yrkja á Frakklandi sökum kulda; landið var þá mest allt óræktað, mýrar og fen. Nú er Frakkland eitthvert besta vínland í heimi. Á Þýskalandi lánaðist kornyrkja mjög illa fyrir rúmum 1200 árum síðan og þá þroskuðust hvergi^ vínber í landínu. En nú er Þýskaland dágott vínland norður undir Berlín. Á dögum Haraldar harð- ráða þótti hveítiræktin sunnarlega í Nor- vegi illa lánast, og var álitið næstum því ómögulegt að rækta það í Noregi. En nú eru takmörk hveitiræktunarinnar um Bjarneyjar við Þrándheim. Þannig má sjá af þessu, að loftslag landanna batnar mikið, þegar þau eru ræktuð. 0g er alls eingin ástæða til að ætla, að sama muni eigi eiga sjer stað um ísland, að Ioftslag þess verði því mild- ara, sem það er meir og betur ræktað. Mýrarnar kæla loftið og gera það einnig óholt á sumrum; því þarf að skera þær fram og breyta þeini í tún, sáðlönd og frjófsöm eingi. Hitt og þetta. Nýtt illgresi breiðist nú óðum út nm Ameriku, og þykir þar hættulegur gestur á ökrunum. Gras þetta heitir á útlendu máli: Sisynbrium Altisiusus. Á 5 síðustu árum hefur það breiðst nálega um alla Canada, og er nú á leiðinni um Bandaríkin. Stjórnin gerir allt sitt til að hjálpa bændum að út- rýma þessari óvætt. J. P. Hansen, fóðurfræðingur í Danmörku, hef- ur nýlega reiknað þann skaða, sem Danir hafa af illri mjöltun á kútn sínum, 80,000 kr. hvern ein- asta dag, og reiknar hann þó mjólkurpottinn ekki nema á 8 aura. Jótlandsheiðarnar voru fyrir 500 árum siðan fag- urt skóglendi. Bn um síðastliðin aldamót voru þær einungis vaxnar lyngi og mosa. Á seinni hluta þessarar aldar hafa Danir ræktað um 100 ferh.- mílur af heiðunum, breytt ling- og mósamóunum í akra, eingi og skóga. — Það hefur margan lúð og marga peninga kostað. Hefndartollarnir. (Úr brjefi af Yestfjo'rðum). Mörgum hjer vestra þykir nokkuð í- skyggileg tiílaga sú, að hefna sín á Norð- mönnum fyrir kjöttollinn með því að leggja toll á útfluttar afurðir hvala þeirra, er norðmenn veiða hjer við land, og einnig aðfiutt timbur frá Noregi. Þeir segja, að í sjálfu sjer væri ekkert á móti því, að leggja nokkarn toll á hinar útfluttu af- urðir hvalanna, ef sú stefna þykir heppi- leg, að leggja toll á útfluttar vörur; en þeir segja, að hefnd fyrir kjöttollinn geti það aldrei orðið; því að það væri að láta hefndina koma niður á einstökum mönn- um, en alls eigi á Noregi eða hinui norsku þjóð; því að henni má standa á sama, hvort Norðmönnum þeim, er veiða hvali hjer, geingur betur eða ver að selja af- urðirnar á Einglandí eða annarsstaðar. Hln norska þjóð hefur hvort sem er eing- an hag af hvalaveiðum Norðmanna hjer; en íslendingar hafa mikinn hag af þeim. Væri þá nokkurt rjettlæti i því, að hefna sín á þennan hátt? Eða væri hefndiu nokkur? Ean segjaþeir: er nokkur veru- leg hefnd i því, að tolla aðflutta timbrið frá Noregi? Mundi eigi aðalárangurinn verða sá, &ð gera íslendingum timbrið dýrara ? Eigi er hægt að líta svo á, að timbur sje oss eigi nauðsynjavara, og vjer verðum að reyna að fá þ&ð svo ódýrt, sem hægt er. Og hins vegar er líklegt, að Norðmenn stæðu jafnrjettir, þótt timb- ursala þeirra á íslandi gangi undan, en ólíklegt er, að eigi mætti fara þá króka- vegina, að norskt timbur yrði eigi talið aðflutt frá Noregi, og hvað yrði þá úr tollinum ? Og segið mjer: mundi hagur bænda, er fje selja, verða nokkru betri, þótt þessi tollur yrði lagður á? Væri það nokkuð til að bæta úr fjársölunni? Nei, en vera má, að fáeinar krónur næðust í landssjóðinn, en þær yrðu ekki ýkja-marg- ar, er Norðmenn hættu timbursölunni, eins og „ísafold“ gerir ráð fyrir. Verið getur, að þessir menn, or svo líta á mál þetta, hafi eigi rjett fyrir sjer, og er því ósk- andi, að blöðiu skýri þetta mál, sem flest. Kringsjá. Hvergi fæðast jafn fá börn að tiltölu við fólksfjölda og í Frakklandi. Vegna þess er það, að franskir læknar ganga vel fram í því, að vernda heilbrigðl þeirra barna, sem fæðast. Það var og franskur Iæknir, sem fyrst hugkvæmdist, að taka að sjer þau börn, sem fæðast fyrir rjettan tíma, eða áður en þau eru fullaldra, og reyna að varðveita líf þoirra. Og hann fann upp til þess aðferð, sem reynst hef- ur vel. Nú eru stofnanir til þessa komnar á fót í flestum hinum stærri borgum. Ein af þeim er í Hamhorg; og til að útbreiða þpkkiegu á stofnuninni ern börnin sýnd á vissum tímurn hverjum sem vill. En 50 peninga (pfennig) kostar að fá að sjá þau. Þesaari stofnun í Hamborg er lýst í „Politikken“ 10. okt. þ. á. og er hjer útdráttur úr þeirri lýsingu: „Útbúnaðurinner mjög einfaldur. Börn- in eru geymd í glerkössum og er veitt inn i þá lofti, sem áður er vermt og hreinsað. Miunsta barnið, sem þar var, hafði verið 1200 grömm þegar það fædd- ist, eða rúmlega 2 pd. og J/4. Það,var fætt þrem mánuðum fyrir rjettau tíma. Það lá í eínum glerkassanum í hvítum reifum. Læknirir.n sagði að sjer hefði nú tekist að halda lífinu í því í heilan mánuð og væri eingin ástæða til að efa, að úr því gæti með tímunum orðið stór og hraustur maður. En nú var það ekki stærra en lítil brúða. Það vaknaði með- an við vorum að skoða það og gaf fiá sjer hljóð, sem heyrðist óglöggt gegnum kassann. Hve lítill vindblær, sem hefði komist inn til þess utanað, hefði vafa- laust slökbt líf þess“. 11. okt, var haldin í Berlin fundur til að ræða um holdsveikina. Nær allar stjórnir hinna menntuðu þjóða sendu þang- að fulltrúa; 150 læknar mættu þar og fl. Meðal annars hjeldu þeir þar fyrir- lestra dr. Ehlers og dr. Armauer, holds- veikislæknir Norðmanna. Norsk og dönsk blöð segja þessa sögu af skáldinu Björnstjerne Björnsson: í húsi því, sem Björnson hefur búið í undanfarandi sumur meðan hann hefur dvalið í smábænum Schwatz í Tyrol, eru langar svalir og þaðan fsgurt útsýni yfir bæinn og landið umhverfis. Þess vegna var oft fjölmennt á svölunum. Áð gamni sínu höfðu menn þakið þilin með alls- konar myndum, sem klipptar voru út úr myndablöðunum. Um tíma tóku menn eftir því, að Björnsson forðaðist að koma á svalirnar, og skyldu ekki hvað valdið gæti. Svo fór hann að koma þar aftur og var glaður og ánægður eins og aðrir. Laungu síðar sagði hann sjálfur frá, hvernig á þessu hefði staðið. Á eitt þilið hafði verið fest stór mynd af ref, sem gein yfir hænuhreiðri með ungum í og var albúinn til að ráðast á þá. Á bessari mynd bar mikið. Björn- son hafði strax, eins og margir aðrir, feingið óbeit á myndinni og kennt í brjósti um ungana, sem ekki gátu forðað sjer. Og óbeit hans þvarr ekki, heldur óx hún því oftar sem hann leit á myndina, og loksins gat hann ekki um annað hugsað. Hann gat ekki haft augun af refnum, sem stóð með gapandi gin og tindrandi augu yfir vesalings unguaum. Og að

x

Ísland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísland
https://timarit.is/publication/30

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.