Fram - 17.03.1917, Side 2
62
FRAM
Nr. 19
SKEMTUN
til ágóða fyrir Sjúkrasamlagið verður haldin í Bío í kvöld.
Chr. Möller, syngur með aðstoð Þorm. Eyjólfs-
sonar, nokkur lög.
Flóvent Jóhannsson, heldur fyrirlestur um
Yfirmenn og undirg-efna.
Húsið opnað kl. 8,30. Byrjað kl. 9.
Aðgöngumiðar verða seldir í verzlun Friðb. Níelssonar
eftir kl. 3 og kosta 1 kr.
Erlendar símfréttir.
Khöfn 9. marz.
Zeppelín greifi er dáinn úr lungnabólgu.
Bandafíkjaþjóðin krefst þess að kaupför sín verði
vopnuð án þingssamþyktar.
Khöfn 10. marz.
Bretar eiga ófarna 23 kílometra til Bagdad.
Khöfn 11. marz.
Wilson hefir ákveðið að vopna skuli kaupför
Bandaríkjanna.
Tyrkir víggirða Bagdad.
Uppreisn er hafin í Petrograd og upphlaup í rúss-
neska þinginu. Formaður uppreisnarmanna heitir
Radziankó. Gamla ráðaneitið hefir verið hneft í fangelsi
og setulið borgarinnar, 30 þúsund, hefir gengið f lið
uppreisnarmanna.
Kínverjar hafa Iagt hald á þýsk skip er liggja á
kínverskum höfntlm.
Khöfn 12. marz.
Bretar hafa tekið Bagdad.
Storstad, skip hjálparnefndar Belgíu, hefir verið
skotið í kaf.
Bernstorf sendiherra Pjóðverja í Bandaríkjunum
er kominn til Khafnar. Sagt að hann viti um Mexico
ráðabruggið.
Khöfn. 13. marz
30 jafnaðarmenn, 17 íhaldsmenn og 6 gjörbóta-
menn náðu kosningu í bæjarstjórn Kaupmannahafnar.
Rússneska þingið hefir verið leyst upp.
(Eftir skeytum til Rvík.l
skipinu, og má það undarlegt heita,
að slíkt tækifæri skuli ekki vera not-
að í þessu samgönguleysi, þar eð
kunnugt hlýtur að hafa verið þar
syðra um þessa Siglfirðinga sem
með skipinu komu, og að þeir myndu
verða sóttirútí skipið. — Ennfremur
hafði Helgi Hafliðason nokkuð af
vörum með skipinu er sóttar voru
inná Hjalteyri á vélbát.
Frímann Benediktsson
hreppstjóri í Sandvík í Grímsey,
kom hingað á vélbát 14. þ. m.
Segir hann ómuna góðan vetur í
eyjunni, varla fest þar snjó. Fisk á-
lýtur hann hafa verið við eyjuna í
allan vetur, því þá sjaldan að hægt
hafi verið að fara á sjó sökum
storma, hafi verið góður afli. Frí-
mann þessi hefir búið í Grímsey í
12 ár, og lætur vel yfir. Komst
hann svo að orði, að hann áliti
Grímsey einhverja þá mestu gull-
þúfu sem hægt væri að finna. En
dugnað þarf til að sækja veiðar í
björg og á sjó, og ekki heiglum
hent. Frímann er atorkumaður, og
hefir kent eyjaskeggjum margt, er að
framförum lýtur
Fyrirlestur
þann um Lífsábyrgð ogSparisjóði,
sem verið hefir hér í blaðinu und-
anfarið, og sem endar í þessu
blaði, viljum vér biðja menn að lesa,
og athuga vel niðurstöðu þá sem
fyrirlesarinn kemst að. Rað eru á-
reiðanlega altof fáir sem líftryggja
sig, þó ungarlegt sé.
Nýlátin
er hér í bænum öldruð kona
Ástríður Jónsdóttir að nafni.
Kjörskrá
bæði til Alþingis og innansveitar-
mál^, svo og skrá yfir Ellistyrktar-
sjóðsgjaldendur, liggur nú frammi
almenningi til sýnis í sölubúð sam.
ísl. verzlana til 1. apríl.
Ur Reykjavík.
Enskur botnvörpungur strandaði
9. þ. m. við Meðalland. Skipshöfn-
in bjargaðist.
Danskt vöruskip, sem var á leið
til Vesturheimseyjanna, strandaði hér
á sunnudagsnóttina. Vörurnar skemd
ust en var skipað hér á land og
seldar hér á uppboði. — Geir náði
skipinu út í gær og mun verða
gert við það hér.
Matsveinninn á togaranum »f*ór«
hefir verið sektaður hér um 900 kr.
fyrir að selja áfangi á Akureyri um
daginn, og Jóel skipstjóri um 200
kr. vegna þess að hann lagði hend-
ur á lögregluþjón hér. — Vínbyrgð-
ir hafa fundist í Vi§ey, og er álitið
að »Rór« hafi skipað þeim þar upp.
Búist er við að »Islands Falk«
muni bráðlega koma hingað frá
Khöfn með íslendinga þá sem þar
eru staddir.
Eiga ekki börn.
Morgunbh 21 febr. þ. á. flytur
grein með fyrirsögninni »Einkenni-
legt verkfall.« eftir einhvern »Elend-
inum.« Rar segir svo.
»Brownsville heitir borg nokkur
í Bandaríkjunum. Rar búa aðallega
Gyðingar og ítalir, fátækt er þar meiri
en í flestum öðrum borgum þar í
landi. Nú hafa flestarkonur borgar-
innar myndað rneð sér sjálfsvarnar-
félag og samþykt að eiga ekki börn
meðan dýrtíðin stendur yfir, nema
því aðeins að ríkið vilji hlaupa und-
ir bagga og sjá þeim fyrir lífsnauð-
synjum með svo skaplegu verði að
þær geti alið börn sín upp sóma-
samlega.«
Ennfremur stendur þar, að líklegt
sé talið að hreifing þessi breiðist
fljótlega út í Ameríku, því ungu
stúlkurnar þar séu mjög »spentar«
fyrir henni; og mönnutn þar vestra
þyki ískyggilega horfa.
Rað yrði Ijóta gamanið að lifa, ef
stúlkurnar hérna tækju upp á þess-
um skramba.
Lagarfoss
liggur nú í »Dokk« í Kaupmanna-
höfn og er verið að gjöra á hann
farþegapláss. Búist við að hann
verði tilbúinn í þessum mánuði. —
Skipstjóri á hann er ráðinn Ingvar
Rorsteinsson, sá er var með »ísa-
fold« er hún var í strandferðum hér
við land um árið.
Kjötekla í Noregi.
Kjötekla er nú afskaplega mikil í
Noregi. Hefir stjórnin gert ýmsar
ráðstafanir til þess að bæta úr þessu.
Meðal annars hefir stjórnin keypt
frá Argentinu kjöt fyrir 6—7 miljónir
króna. Er sagt að það sé stærstu
kjötkaup, sem nokkru sinni hafi
verið gerð í einu. Fyrsta sendingin
er nú á leiðinni, en samtals nemur
kjötið 35 þús. smáiestum. (Mbl.)
Á hergagnaverksmiðjunum í Eng-
landi, vinna sem stendur 500,000.
konur og til jafnaðar á mánuði
bætast við rúm 30,000 verkakonur.
E.s. Gíyg
leiguskip hinna sam. ísl. versl. er
nýkomið til Akureyrar með kol.