Fram - 17.03.1917, Side 4
64
FRAM
Nr. 10
♦
SIMI 21 ' SIMI 21
SJÓMENNt
OLÍUFTATNAÐURINN
er bestur og ódýrastur í
verzlun
«
SIG. SIGURÐSSONAR
SÍMI 21 SÍMI 21
l
Sigarettur.
Rítvél.
Lítið brúkuð. Smith
Premie nr. 9
fæst nú með tækifærisver,ði
hjá
Helga HafJiðasyni.
FÍN
CONGO THE
á aðeins
2,40 pundið
hjá
Sig. Sigurðssyni.
ingarmálinu yfirleitt a!t of lítill gaum-
ur gefinn. í blöðum vorum og tíma-
ritum ríkir ísköld dauðaþögn um
þau efni. Aldrei er t. d. gerður sam-
anburður á iíftrygging sem fjársöfn-
unaraðferð og öðrum söfnunarað-
ferðum, sem þó er afarþýðingar-
mikið og íhugunarvert mál. Um-
boðsmanni »Carentía« hér kom til
hugar, að fá leyfi formanns félags-
ins, herra Carls Lund, til þess að
snúið væri á íslensku fyrirlestri
þeim, er herra C. Lund hélt í fyrra
á fundi í félagi lífsábyrgðarumsjón-
armanna í Danmörku, um lífsábyrgð
og sparisjóði. Herra C. Lund veitti
góðfúslega þetta leyfi, og birtist því
fyrirlestur þessi hér í íslenskri þýð-
ingu. Ress skal getið að þeim kafla
fyrirlestursins, sem höfundurinn nefn-
ir: »Hvaða tryggingu veitir hvor af
þessum fjársöfnunartegundum, sem
þakka megi löggjöf þeirri, er þær
gildir,« er að mestu slept, þar sem
þessi kafli eðlilega eingöngu er um
danska löggjöf, sem ekkert gildi
hefir fyrir okkur. Eru því aðeins tek-
in fáein atriði úr þessum kafla fyr-
irlestursins, en aftur skotið inn nokk-
rum athugunum um ástandið hér
hjá okkur í þeim efnum. Að öðru
leyti er fyrirlestri herra C. Lund í
engu breytt, heldur þýddur svo
nákvæmlega sem kostur var á.
Á sama tíma sem fótgöngu mað-
ur gengur 300 fet, fer hestur á
stökki 1000 fet, járnbrautarlest 6000
fet og kraftmikil bifrið 8000 fet.
Bréfdúfan ílýgur á sama tíma 6000
fet, og Svalan 7000 fet.
Handklæði
Léreft
Nærföt
Sokka
Svuntur
Regnkápur
Skófatnað
Slifsi
Flónel
og margt fleira kaupa
menn ódýrast í
verzlun
Hallgr. Jónssonar.
Hringhendur
(í okt. 1916.) v
Öll burt leita unun fer,
andans þreytu vekur,
yfir sveitum ytra hér
útlit breytasí tekur.
Skýin ýta saman sér,
sólbros lít eg valla,
hamra-strýtan hefir hver
héluhvítan skalla.
Leikur barna í bæinn snýr,
bliknar kjarninn rósa
vetrar harnar vinda gnýr,
vötn og tjarnir frjósa.
Byrgist snjóum brekka og laut,
# burt er spóinn farinn;
útum móa eins á braut,
allur lóu skarinn.
Sofnar lengi sönglist há,
syrgir mengi hana.
Hljómar engir heyrast frá
hörpustrengjum svana.
Sínu landi flúnir frá,
forðast grandið vilja.
Fyrir handan höfin blá,
hlýrri andar kylja. .
Vini þá, með vori að sjá,
vakir þráin heita
þegar fráir frónið á,
flugið knáa þreyta.
Klaka brestur brynjan grá,
blæ af vestan hlýjum,
Skrýðist flest í fegurð þá,
fagnar gestum nýjum.
Lífið iðar endurfætt,
angurs kviður flýja.
Þeir, um friðinn sumar sætt,
söngva kliðinn drýgja.
Starfað geta gumar þá,
gleymist Ietivíman.
Mörg sem hreta þruman þrá,
þyngdi um vetrartímann.
O. St.
Siglufjarðarprentsmiðja.
Eg las fyrir stuttu grein í ísfirska
blaðinu »Njörður« um tóbaks og
sigarettunautn. Eins og flestir eða
allir vita er tóbaksnautn að meira
eða minna leiti skaðleg þeim er
mikið tóbak brúka, þó munu sig-
arettur ekki bestar í því að spilla
heilsu manna, sem eðlilegt er, þar
sem börn innan fermingaraldurs
eru farin að neyta þessa skaðræðis
og ekki minkar sigarettu brúkunin
þegar yfir fermingaraldurinn er kom-
ið. Pá bætast í drengja hópinn ungj
ar stúlkur með sigarettu í munnin-
um, því fáar munu þær, sem gjöra
mikið af því innan fermingar.
En hver ráð eru til að stöðva
þennan ófögnuð? Skólarnir ættu að
stofna tóbaksbindindi meðal nem-
endanna og reyna á allar lundir að
innræta börnunum óbeit á tóbaki,
það gæti haft talsverð áhrif á æsku-
lýðinn.
Mér flaug í hug þegar eg las
greinina í »Njörður« að víðar væri
pottur brotinn en í Siglufirði. »Njörð-
ur« kemst að þeirri niðurstöðu, til
þess að varðveita börnin og ung-
lingana frá þessum voða, að allir
kaupmenn á ísafirði ættu að taka
höndum saman og gera sölubind-
indi á sigarettum á sumardaginn
fyrsta 1917. Væri það spor stígið
hér á Siglufirði og helst um alt
land, myndi það hafa afarmikla þýð-
ingu til hins betra og ekki sjáan-
legt að það gæti orðið stór tekju-
missir fyrir kaupmennina.
Hér höfum við því láni að fagna
að stofnað er í kvöldskólanum tó-
baksbindindisfélag; eru í því félagi
þó nokkrir unglingar yfir fermingar-
aldur og margir úr barnaskólanum.
Skólastjórinn Guðmundur Skarp-
héðinsson á þakkir skilið fyrir að
hafa komið þessu til leiðar, og væri
óskandi að hann gæti upplýst ungu
kynslóðina svo, að hún gengi fús-
lega í bindindið og efldi það með
dug og dáð, því ofmarga af ungu
mönnunum vantar enn þá í það.
G. B.
Emaileraðar
vörur.
margar teg. nýkomnar í
verzlun
Helga Hafliðasonar
Sængurdúkur
fæst í
v e r z 1 u n
Sig. Sigurðssonar.
þakkarávarp.
Eg þakka hérmeð þeim heiðurs-
hjónum Jósef Blöndal og frú hans,
fyrir alla þá óverðskulduðu hjálp
og umönnun er þau sýndu mér,
með því að taka mig í haust svo
að segja upp af götunni, og ann-
ast mig síðan sem son sinn.
Guð blessi þau fyrir mig.
Jóhann Skúlason.
Gott að auglýga í
Fram.
Úrsmíða-stofa
Siglufjarðar
aðgjörð á ÚR UM, KL UKKUM
BAROMETRUM o. fl.
G. Samúelsson.
Fram kemur út einusinni í viku ef
hægt er. Verð blaðsins er 1 kr. hver
15 númer — 10 aura í lausasölu.
Afgreiðsla fyrst um sinn hjá Friðb.
Níelssyni.