Fram - 09.06.1917, Blaðsíða 1
Útgefandi:
Hlutafélag á Siglufirði.
Ritstjórar:
Friðb. Níelsson og
Hannes Jónasson.
1. ár.
Siglufirði 9. júní. 1917.
29. blað.
Sjónhverfingar.
II.
Hve margbreytt er förin um svalkaldan sjá
og sýnin er auganu mætir;
þó gaman er margoft að minnast það á
sem muna vorn hryggir og kætir.
Oss kætir þó einatt sú karlmensku för
þeir kraftar sem stormar ei beygja —
þá skrautlegur brýst fram úr boðunum knör,
er bárurnar armana teygja.
En fjölmörg oft sigla þau saman í hóp
og sogast í bylgjunnar arma.
Pá heyrum við skerandi angistar óp,
oss óar við leiðinni harma.
- y ' , .. ? ' .. V ð' . ...i - .. 1 V-- ' % '
Ef blærinn í voðunum Ieikur sér létt.
og löðrið á brjóstunum sýður, —
þá finst okkur Iífið á Ieikandi sprett
og lögurinn töfrandi fríður.
En þá er oft lifað og léikið svo dátt,
að Iífið og tíminn oss gleymist;
því æskan oft þekkir af þrautunum fátt
og því er í sortanum geymist.
* * * * ♦
* * * *
Þú tekur, ef lengur ei gæfan þér gefst
hjá gleðinni burtfararprófið;
þá byrinn er úti og hrakningur hefst
þó hraustlega bátnum sé róið.
í bölmyrki myndir þær blasa við þér,
sem burt ei þér víkja úr minni
og gustur þér mætir, sem ískaldur er
frá óheilla norninni þinni.
En straumurinn ber þig um stormvakinn sjá,
en stefnan í sorginni týnist;
en náunginn siglir þér hlæjandi hjá
og hamingju geislunum krýnist.
Þó aftur upp birti og blasi við strönd
og bárurnar lækki sinn faldinn.
er óvíst þú finni þau unaðar lönd,
sem örlaga bar þig frá kaldinn.
Benedikt Guðmundsson
(frá Húsavík.)
Þó kvæði þétta sé mikið Iengra, mun eg láta hér staðar numið
að sinni. Skal þetta s'em út er komið af því skoðast sem tvö kvæði,
þó fyrirsögnin sé eins.
Höfundur.
Þingmálafundur.
Það þótti víst mörgum hér vænt
um er þingmenn okkar komu hing-
að á mánudaginn var með »Skarp-
héðinn«, til þess að halda hér þing-
málafund. En enn vænna hefði okk-
ur þótt um það, ef við hefðum
vitað um það fyrirfram, svo hægt
hefði verið að búa sig eitthvað
undir fundinn. En þar sem fund-
urinn var boðaður með aðeins 3
tíma fyrirvara ogfjöldi manna hætti
ekki vinnu fyr en um og eftir fund-
arbyrjun (hálf sjö), var eðlilegt að
hann yrði fremur fámennur.
Állmörg málefni voru tekin til
umræðu bæði almenn landsmál og
sérstök áhugamál okkar, en um þau
látum vér nægja að vísa til eftirfar-
andi fundargerðar.
Báðir virtust þingmennirnir taka
einkarvel í kröfur okkar, og lofuðu
þeim fylgi sínu, en ekki duldist oss
þó að mun meiri áhuga sýndi Stef-
án í Fagraskógi fyrir okkar sérstöku
málefnum, en hann er Iíka mikið
kunnugri Siglfirðingum en Einar.
Fundargerðin hljóðar svo:
Ár 1917, mánudaginn 4. júní yar
þingmálafundur fyrir Hvanneyrahr.
haldinn í barnaskólahúsi hreppsins,
voru báðir þingmenn kjördæmisins
mættir á fundinum. Höfðu þeir kom-
ið hingað í dag og boðað þá til
fundarins — Á fundinum mætti
nokkur hiuti kjósenda úr þorpinu.
Fundinn setti fyrsti þingmaður kjör-
dæmisins, Stefán hreppstj. Stefáns-
son í Fagraskógi, og tilnefndi sem
fundarstjóra séra Bjarna Þorsteins-
son, er svo tilnefndi sem skrifara
verzlunarstjóra Jón Guðmundsson.
Var þvínæst fyrirtekið:
1. Samgöngumál.
Skýrði þingm. St. St. frá því er
gjörst hefir í samgöngumálum
landsins síðan á síðasta þingi, en
talaði þó sérstaklega um samgöng-
ur á sjó er þetta hérað varðar
sérstaklega.
Kom fram í málinu svohlj. tillaga:
»Fundurinn skorar áalþingis-
menn sýslunnar, að gjöra sitt
ítrasta til, að á næstu fjárlögum
verði veittur ríflegur, árlegur
styrkur til mótorbátsferða, helst
alt árið, um Eyjafjörð og þann
hluta Þingeyjarsýslu er liggur
að Eyjafirði, og að póststjórn-
in sjái svo um að ábyrgð fáist
á peninga og ábyrgðarsending-
um með fjarðarbát þessum.«
Tillagan samþ. með öllum greidd-
um atkvæðum.
2. Sjávarútvegsmál.
Kom fram í því máli svohljóð-
andi tillaga:
»Fundurinn telur ógjörlegt
eins og nú standa sakir, að
hækka útflutningsgjald af síld,
jafnt útlendra sem innlendra
manna, eða af öðrum sjáfaraf-
urðum frá því sem nú er.«
Tillagan samþ. með öllum gr. atk.
3. Launamálið.
Svohljóðandi tillaga samþykt.
»Fundurinn telur réttara, að
veita starfsmönnum landsins
einhverja réttláta dýrtíðarupp-
bót á meðan stríðið stendur
eða afleiðingar þess á vöruverð
í landinu, heldur en ákveða
launin samkv. verðlagsskrá.
4. Einkasala.
Kom fram í málinu svohljóð-
andi tillaga frá þingmanni Einari
Árnasyni á Eyrarlandi.
»Fundurinn er hlyntur einka-
sölu landsjóðs á steinolíu.«
Tilagan samþ. með 16 gegn 7.
5. Búnaðarmál.
Kom fram svohtjóðandi tillaga.
»Fundurinn skorar á alþingi
að afnema styrk til búnaðarfé-
laga, en veita rífleg verðlaun
fyrirframúrskarandi framkvæmd-
ir í lands- og sjávaratvinnumál-
um.«
Tillagan feld með 16 gegn 3.
Pá kom fram þessi tillaga:
»Fundurinn telur nauðsynlegt
að styrkur til búnaðarfélaga sé
aukin að mun.«
Tilagan samþykt með 11 gegn 3.
6. Sjúkraskýli.
Þá var tekið til umræðu skil-
yrðin í fjrálögunum fyrir styrk af
landssjóði til sjúkraskýta og kom
fram í málinu þessi tilaga:
»Aftan við C.-liðinn í skil-
yrðum fyrir styrk af landssjóði
til þess að koma upp sjúkra-
skýlum á föstum læknissetrum,
komi þessi viðbót á næstu fjár-
lögum: Þetta síðasta skilyrði,
um eign og rekstur sýslufélags-
ins, má falla niður að því er