Fram - 09.06.1917, Side 2
102
FRAM
Nr. 29
Hérmeð votta eg mitt innileg-
asta þakklæti öllum þeim er sýndu
mér hjálp og virðingu yið fráfall
móður minnar, en sérstaklega sendi
eg hjónum þeim er hún dvaldi sið-
ast hjá rnína bestu þökk fyrir alt
og alt henni auösýnt.
Siglufirði 8. júní 1917.
Jón Guðjónsson.
snertir væntanlegt sjúkraskýli á
Siglufirði, ef sýslunefnd Eyja-
fjarðarsýslu er því samþykk.«
Tillagan samþykt í einu hljóði.
7. Hafnarlög Siglufjarðar:
Pessi tillaga samþykt.
»Fundurinn felur þingmönn-
um kjördæmisins að fá á næsta
þingi breytingu á hafnarlögum
fyrir Siglufjarðarkauptún frá 3.
nóv. 1915. samkvæmt tillögum
er lagðar voru fram og afhentar
þingmönnum.«
8. Kaupstaðarréttindi fyrir Siglufjarð-
arkauptún. — Kom fram um það
mál svohljóðandi tillaga:
»Fundurinn óskar þess að
þingmenn kjördæmisins beitist
fyrir því á næsta þingi, að Siglu-
fjarðarkauptún fái kaupstaðar-
réttinni á sama hátt og Hafn-
arfjörður hefir þegar fengið,—-
Sérstaklega leggur fundurinn á-
herslu á, að hér verði skipað-
ur lögreglustj. með dómsvaldi.«
Tillagan samþykt í einu hljóði.
9. Varnargarðurinn.
Pá var samin og samþ. svofeld
tillaga:
»Fundurinn óskar þess að
landsstjórnin láti hæfan mann
skoða varnargarðinn á Siglu-
fjarðareyri enn að nýju, og gjöra
tillögur um viðhald hans, end-
urbót og framhald.«
f*ar sem ekki komu fleiri mál til
umræðu, var fundinum slitið.
B. Porsteinsson.
Jón Guðmundsson.
Ólöf Anna Gísladóttir.
andaðist hér í bænum 21. f. m.
Hún var fædd árið 1841 að Lamba-
nesi í Fljótum og ólst þar upp hjá
foreldrum sínum þar til hún var 16
ára. F*egar hún var 21 árs flutti hún
til Siglufjarðar og dvaldi þar nær-
felt alla æfi síðan. Ólöf sál. var
vönduð og guðhrædd og naut vin-
sældar og virðingar af öllum, fyrir
framkomu sína. Fátæk var hún alla
æfi og kringumstæður hennar erf-
iðar á margan hátt. Hún var þó
jafnan glöð og róleg og treysti
guði. Ólöf sál. giftist aldrei, en eign-
aðist einn son, Jón Guðjónsson
verzlunarmann hér í bænum.
Jarðarför hennar fór fram 4. þ. m.
Fréttir.
Erlendar símfréttir.
Fiskiafli segir Austri frá 19. maí
" . —-fi
að nýbyrjaður sé fyrir Austurlandi,
og að einn bátur frá Norðfirði hafi
fengið 14 skippund í einum róðri.
Nýja símalínu mun afráðið að
leggja frá Akureyri, um Svalbarðs-
eyri til Grenivíkur.
Ceres er nú í annari kolaferð til
Englands fyrir landstjórnina. í þess-
ari ferð á hún að taka 350 smál.
af gaskolum fyrir Reykjavíkurbæ.
Sýslumannsembættið í Ánessýslu
hefir nú verið veitt Guðm. Eggerz
sýslum. frá 1. júlí n. k.
150 kr. kostar smál. af kolunum
sem Ceres kom með til Rvíkur á
dögunum.
Á annan i Hvítasunnu var Sigur-
jón Jónsson vígður til sóknarprests
að Barði í Fljótum.
Sig. Jónsson búnaðarmálaráðherra
fór 25. f. m. í ferðalag norður í
Þingeyjarsýslu. Mun ferðalag hans
meðfram vera í sambandi við kota-
námuna á Tjörnesi, sem lands-
stjórnin hefir nú trygt sér með
samningum og ætlar að láta vinna
í sumar. Verkstjóri þar er ráðinn,
Jónas Þorsteinsson, og sömuleiðis
nokkuð af verkamönnum.
5 þilskip frá Duus-verzlun í
Rvík, eru nú í Noregi og er verið
að setja í þau motora. Eiga þau
svo að ganga til síldveiða í sumar.
Bæjarstjórn Rvíkur hefir samþykt
að láta taka upp mó í stórum stíl
og breyta honum í eltimó, sem er
mikið hitameiri en vanalegur mór.
Gert er ráð fyrir að tvö og hálft
tonn af mó svari til einu tonni af
kolum, og að mótonnið kosti 25 kr.
Jóni Þorlákssyni verkfræðing hefir
verið falin framkvæmt verksins.
23. f. m. var Sig. Sívertsen veitt
prófessorsembættið í guðfræói við
háskóla íslands.
»Willemoes« heitir skip sem land-
stjórnin hefir nýlega keyft. Er það
1200 smál. brúttó, og er sagt að það
hafi kostað 1 miljón og 100 þús.
kr. Það mun væntanlegt um þessar
mundir til Reykjavíkur.
Skemtun
verður haidin annað kvöld í leik-
fimishúsinu, til ágóða fyrir sjúkling á
Vífilstöðum, héðan úr bænum. Hún
verður nánar augiýst á götunum á
morgun.
Khöfn 24. maí.
Tisza, forsætisráðherra Ungverja hefir sagt af sér.
Bureau tekur við af Tisza.
Mikill undirróður í lýðveldum Suður-Ameríku um
að segja Pjóðverjum stríð á hendur.
Khöfn 25. maí.
ítalir hafa unnið stórsigur á Carsos-sléttunni og
tekið 9000 fanga af Austurríkismönnum, og er það mesti
sigur ítala enn.
Ákafar orustur á vesturvígstöðvunum.
Khöfn 26. maí.
Amerískar fregnir fullyrða að Marconí hafi fund-
ið örugg ráð gegn kafbátunum.
Austurríkismenn segjast hafa tekið 4600 fanga af
ítölum í gagnáhlaupi. -
Khöfn 27. maí.
6 Færeysk fiskiskip skotin í kaf.
ítalir hafa enn tekið 1245 fanga og talsvert af herg.
Khöfn. 28. maí.
Italir vinna hjá Isonzo, hafa tekið 22 þús. fanga
alls í þessari sókn, eftir grimmarog mannskæðar orustur.
35 þús. kvennmenn hafa gjört verkfall í París.
Khöfn. 29. maí.
Spænska póstskipið Eizagiurre skotið í kaf, 133
menn vantar. Af þessu er mikið uppþot í Madrit og
krafist að Pjóðverjum sé sagt stríð á hendur.
6 sænsk gufuskip kafskotin, og 3 hertekin í
Botniskaflóa.
Khöín. 30. maí.
Ping Brasilíu hefir felt tillögu til hlutleysisyfirlýs-
ingar, með 136 atkv. gegn 3.
ítalir eru aðeins hálfa aðra mílu frá Duino.
Pjóðverjar hafa gefið út yfirlýsingu um að hlut-
laus skip fái að sigla frá enskum höfnum 1. júlí.
Khöfn. 31. maí.
ÖIl stórveldin, nema Bandaríkin, taka þátt í frið-
arfundi jafnaðarmanna í Stockholmi. i ,
Khöfn. 1. júní
NoArArrir þjóðfloArArar í AusturríAri hafa Arrafist sjálf-
stjórnar. Pjóðverjar og AusturríA'ismenn mótmæla því.
Khöfn. 2. júní
í Arríningarræðu AusturríArisAreisara, kom fram að
hann væri í raun og veru fús til friðar án landvinn-
inga og sAraðabóta. íhaldsmenn Pjóðvrerja eru hamslaus-
ir útaf ræðunni.
Bibot hefir bannað að gefa jafnaðarmönnum vega-
bréf til StoArArhólms.
Uppþot hefir orðið í Kronstað.
Khöfn. 3. júní
Devenport lávarður hefir látið af embætti.
Hermenn og verÁamenn í Kronstað hafa neitað að
viðurÁenna nýju stjórnina.
Khöfn. 4. júní
Uppvíst samsæri gegn KerensÁi, hermálaráðh. Rússa
Áköfum áhlaupum Pjóðv. á vesturvígstöð. hrundið.
Rússar hafa söÁt 147 seglsAripum í Svartaha/inu.