Fram - 09.06.1917, Side 3
Nr. 29
PRAM
103
Khöfn. 5. júní.
Þjóðverjar gjöra áhlaup hjá Caronne.
Hernaðar/loArArur Kína he/ir sett bráðabyrðastjórn
á laggirnar og vill þegar segja Rjóðverjum stríð á
hendur. Vaxandi \\kur til full/romins styornleysis.
Khöfn. ó. júní.
Brusilof/ orðinn yfirhershöfðing'i Rússa.
Bandarí/rin og Brasilía ætla að senda her til Norð-
urálfunnar innan 6 mánaða.
Khöfn. 7. júní.
Fra/r/rar og Bretar he#'a sókn á vesturvígstöðv.
Effir skeytum til Rvík.
Verzlun Jens Eyjólfssonar
er vel birgð af ýmsum vörum, sérstak/ega má nefna als-
konar niðursoðnar vörur: Fiskibollur, KjötboIIur, Forloren
Skildpade, Labscous. Sylte, Lax, Bæyersker pylsur, metiste
pylsur, Buff, Sultutau og ávextir, ennfremur; Síld, sardinur
Ansjósur og ýmislegt fleira frá Chr. Bélland & Co sem hvergi
fæst annarstaðar ennfremur Saft / flöskum og á flöskur
Libtons The, brent Ka.ffi, Rauðgrauts- Aprecosgrauts-Crem-
duft o. m. m. fl. sem hvergi er eins ódýrt og /
verzlun Jens Eyjólfssonar.
Lífsábyrgðarfélagið
„CARENTIA“
er áreiðanlega tryggasta og besta félagið.
SérstöAr deild fyrir ísland, með íslenka hagsmwni fyr-
ir awgí/m. Enginn eyrir út úr landinw. E/r/rert annað
félag býðwr slít/r.
Aðalumboðsmaðí/r á íslandi
O. G. Eyjólfsson, Reykjavík.
Umboðsmaður á Siglufirði Sigm. Jóhannsson.
NB. Fyrstum sinn, meðan samgöngurnar við Danmörku eru
teptar, verða gefin út bráðabyrgða skýrteini íReykjavík, pann
ig að líftryggingin gengur /gildi strax eftir að umsóknin er
korhin þangað.
Ur bænum.
Afmæli
12. júni. Björg Bessadóttir húsfrú.
12. »« Lilja Vormsdóttir, húsfrú.
Hákarlaskipin
Síðan síðasta blað kom út, hafa
þessi skip komið inn: Sjöstjarnan
með 58 tn., Kristjana með 54 tn.,
Siglnesingur með 76 tn., Víkingur
73 tn. og Æskan með 48 tn.
17. júní
Nokkrir ungir menn eru að beita
sér fyrir því að hafa ýmsar skemt-
anir hér 17. júni, svo sem: hlaup,
stökk, sund, róður og hjólreiðar.
Um þátttöku í íþróttum þessum er
oss ókunnugt, en þökk sé þeim
sem á undan ganga.
Kosninga
og safnaðarfundur var haldinn 2.
þ. m. eins og tilstóð. Svo sem tíð-
ast má venjast var fundurinn frem-
ur illa sóttur. F*ó mætti töluvert margt
af kvennfólki, er það lofsverður á-
hugi sem það er farið að sýna nú
í seinni tíð, með að sækja fundi.
Kosinn var í hreppsnefnd Helgi
Hafliðason kaupmaður í stað föð-
ur sins sál. Hafliða Ouðmundsson-
ar. Hafði hann mjög fylgi kvenn-
fólksins. Helgi er dugnaðarmaður,
og vilji hann beita sér á hinu nýja
starfsviði má vænta margs góðs af
honum, og biðjum vér honum allra
heilla. — Úr sóknarnefndinni gengu
Hannes Jónasson og Jón Guðjóns-
son. Jón var endurkosinn en Hannes
fékk hvíld, og í stað hans varkos-
inn Guðm. Bíldahl. Safhaðarfulltrúi
var kosinn Helgi Guðmundsson
læknir.
Vörubirgðir
hreppsins eru samkvæmt upp-
talningu þeirri er fram fór 30. rnaí,
sem hér segir: 200 kg. rúgur,
29,770 kg. rúgmj'öl, 14,017 kg. hveiti
232 kg. maísmjöl 1,004 kg. hrísgr.
955 kg. bankabygg 255 kg. hafra-
mjöl 6,946 kg. völsuð hafragrjón,
366 kg. baunir. Petta er samtals
53,745 kg. eða tæp 54 tons af
kornvöru og er það bæði í verzl-
unum og heimahúsum. Gengið
út frá mælikvarða landstjórnarinnar
þá munu kornvörubirgðir þessar
endast í 16 vikur, ef aðeins heim-
ilisfast fólk neytti þeirra. En þarsem
að nú þegar eru um 300 manns
komið hingað til atvinnu, og útlit
fyrir að það fólk verði eins margt
og það heimilisfasta, er auðsætt að
þessar vörur endast ekki lengi. —
Auk þessara vörutegunda voru hér
108 kg. smjör, 1052 kg. smjörlíki,
196 kg. tólg, 38 föt steinolía, 300
tonn kol og 9778 tn. salt.
Siglufjarðardeild
Fiskiveiðafél. hélt fund sunnu-
daginn 3. þ. m. Fjöldi manna gekk
í deildina og er tala meðlima nú
51. Kosnir voru í stjórn Helgi Haf-
liðasón kaupmaður, formaður, Jón
Guðmundsson verslunarstjóri, gjald-
keri, Matthías Hallgrímsson fisk-
kaupastjóri, ritari, Flóvent Jóhanns-
son verkstjóri, og Sófus A. Blön-
dal verslunarstjóri Sem fulltrúar til
að mæta á fjórðungsþingi, erhaldið
verður á Akureyri næsta vetur, voru
kosnir þeir Helgi Hafliðason, og
Sófus A. Blöndal.
Sykur
er væntanlegur hingað um þessa
helgi, og verður þá úthlutað þrem
pundum á mann til 4. vikna.
Sophie.
dönsk skonorta kom hingað á
miðvikudaginn, með vörur til sam.
ísl. verzlana bæði hér og á Akur-
eyri. Skipið tekur hér síld til Eng-
lands.
Hreppsnefndin
hélt fund 6. þ. m. og var þetta
gjört:
Feld tillaga veganefndar um brú-
arstæði á Skútuá, en samþykt ann-
að brúarstæði, samky. tillögu odd-
vita, með 4 gegn 2 atkv.
Kosinn í hafnarnefnd kaupm. Sig.
Kristjánsson.
Samþykt að láta fara fram mann-
tal í öllu kauptúninu, og að skrá-
setja alla aðkomna menn, þáerkomn-
ir eru og þá er kunna að koma,
aðallega til þess að hægt sé að
gjöra sanngjarna kröfu til sykurs, á
við aðrar sveitir sýslunnar.
Samþykt að auglýsa til umsókn-
ar hafnarvarðarstöðuna frá l.júlíað
telja. Árslaun 500 kr. Umsóknir
sendist hafnarnefnd fyrir Jónsmessu.
Feld tillaga veganefndar um að
taka upp nýlagða veginn fyrir ofan
Álalækinn, og leggja hann beint
upp en ekki í boga. Áskorun barst
hreppsnefndinni þó frá fjölda bæjar-
búa um breytingu þessa, en hún
ásamt tillögum veganefndar virtust
helst til bragðdaufar. Eftir mikið
þref var loks samþykt tillaga frá Jóni
Guðmundssyni um að breykka efri
enda götunnar norður, þannig að
hún geti komið í samband við hin-
ar göturnar sem liggja þarna að.
Veganefndin virðist ekki eiga upp
á háborðið hjá hinni heiðruðu hrepps-
nefnd.
10 miljónum bóka hefir þýska
stjórnin látið útbýta meðal hermann-
anna á vígvellinum; þeim til dægra-
stittingar á milli bardaganna.
þAKKARÁVARP.
, Innilega þökkum við hjónunum
Ólöfu Barðadóttir og Wilh. Jóns-
syni þá velgjörð er þau sýndu litla
veika drengnum okkar með því að
gefa honum þá peninga sem ann-
ars hefðu farið í kransa á líkkistu
litla drengsins þeirra. Ressa velgjörð
biðjum við guð að launa þeim.
Svanborg Benediktsdóttir
Einar Halldórsson.
Smælki.
H ú n: Kystu niig.
Hann: Já, en bara einn koss.
H ú n : Því þá bara einn ?
Hann: Jú, sérðu góða, maður verður
að spara þá núna í dýrtíðinni, eins og
t. d. sykurinn.
Hún: (vond) Á eg nú kannske að fá
þá líka hjá — hjá hreppsnefndinni ?
A: Og þú ert bara trúlofaður ?
B: Ja-á, ójá.
A: Nú er eg alveg hissa. Og þessari
þá líka stúlku, sem sagt er að búin séað
eiga víst eina 18 kærasta. — Þessu hefði
eg ekki trúað um þig.
B: (íbygginn) Farðu hægt vinur, þú
veist ekki hvað það er að vera bæði at-
vinnulaus og peningalaus. — En — frítt
fæði og húsnæði og — og ja og unnusta
heilan vetur. það er sko ekki lítið núna
í dýrtíðinni.
Sparið peninga
og kaupið Sumar-skó /
verzl. Bergen.
Flugnapappír
(Fluefangere) hjá
Sig. Sigurðssyni.
Siglufjarðarprentsmiðja.