Fram - 08.03.1918, Blaðsíða 2
24
FRAM
Nr. 7
FRAM
kemur út 52 sinnum á ári.
Verð 4 kr. Gjalddagi 1. júní.
Utgefandi: Hlutafélag.
Ritstjórar:
Fridb. Níelsson
°g
Hannes Jónasson.
Afgreiðslu- og innheimtumað-
ur Friðb. Níelsson.
Siglufjarðarprentsmiðja 1918.
Almanak næstu 2 vikur.
Marz. _ Miðfasta 1918.
Sd. 10. d. Arni lögm. Oddsson 1665.
Md. 11. f. Friðrik krónprins 1899.
Þd. 12. d. Stefán amtni. Þórarinsson 1823.
Nýtt tungl 6,52 e. m. (Páskatungl)
Md. 13. f. Guðbr. Vigfússon 1827.
Fd. 14. d. Klopstock skáld 1803.
Fd. 15. d. Júlíus Cæsar 44 f. Kr.
Ld. 16. Gvöndardagur. Guðm. hinn góði.
Hólabiskup. 21. v. vetrar.
Marz. 5. sunnud. í föstu. 191%
Sd. 17. Geirþrúðardagur.
Md. 18. Landlæknir á íslandi 1760.
Þd. 19. Fyrsta kv: 12.30 e. m.
Md. 20. Heitdagur 1261 og síðan.
Fd. 21. Benediktsmessa. f. Jón bp Vídalin
1666. Jafndægur. Vor byrjar.
Fd. 22. d. Goethe 1832.
Ld. 23. d. Halld. yfirk. Friðriksson 1902.
2 2. v. vetrar.
eru vinnuþiggjendur eru fátækling-
ar sem nú þarf að verja hundruð-
um þúsunda til þess að láta þá
hafa atvinnu, svo þeir geti lifað og
dugandi menn kaupstaðanna þurfa
að leggja sig í framkróka til þess
að finna einhver ráð til bjargar.
Mundi ekki hefða orðið betra við
þetta að eiga ef síldarveiðin hefði
ekki verið búin að blindaaugu margra
manna. Rað sjá allir, sem vilja sjá,
að atvinnuvegur sem ekki veitir at-
vinnu, pema svo sem 3. til 4. vikna
tíma, er skaðræði fyrir þjóðfélagið,
því hvað á allur þessi fólksfjöldi að
starfa hina tíma ársins þegar þetta
er kjarninn úr árinu sem veiðin stend-
ur yfir. Og leitt er að heyra mæta
menn lofsynga yfir slíkum atvinnu-
vegi sem hollum og heilbrigðum
fyrir þjóðina.
Að endingu vildi eg benda þeirri
spurningu til hinna hugsandi manna
í kaupstöðunum, hvort þeir vilja
nú ekki benda hug unga og ein-
hleypa fólksins til sveitanna? Held-
ur en kasta mörgum tugum þús-
unda til gagnslausrar eða gagnlitirar
vinnu, því þá yrði hægra með að
veita fjölskyldumöhnum vinnu, enda
fyrirgefanlegt þó þeir séu styrktir af
opinberu fé. Eg skal taka það fram
að hér á eg við þær sveitir sem
lengst eru komnar í framförum og
bestu framkvæmda skiiyrði hafa, því þá
væri líklegt að eitthvað af því fólki,
sem til sveita færi staðnæmdist þar
sjálfu sér til blessunar og þjóðfé-
laginu til hagsældar.
Rað er sennilegt að sumt af því
fólki sem í kaupstöðum dvelur, vildi
flytja sig til sveita og með því kanna
ókunna vegi, ef hinir ieiðandi menn
í kaupstöðunum bentu því á slíkar
leiðir, og bændur í hinum bestu
sveitum landsins væru líklegir til
þess að taka við því, og veita því
atvinnu, þó þeir hefðu þess ekki
fyllilege not, því á þessum tímum
verður hver höndin að hjálpa annari,
svo þjóðin komist sem farsællegast
yfir þessa stórvandræða tíma.
í þessu verður mér litið á grein
O. B. og sé hann endar hana með
illhrissingslegri getsök í garð bænda
sem hann fer um meðal annars
þessum orðum. »Ætli það eimi ekki
eftir ennþá á sumum stöðum, gamla
óreglan á vinnutíma, lélegur viður-
gjörningur og knífni i kaupgjaldi.«
Honum ætti að vera kunnugt, að
þó slíkt mætti finna á nokkrum
stöðum fyrir löngu síðan, þá eru
tímar svo breyttir, og kröfur til lífs-
þæginda meiri en áður voru að slíkt
þekkist ekki nú til sveita, frekar
mætti heyra hljóm af sumu slíku,
berast með sjáfarhljóðinu til þeirra
frá kaupstöðunum.
Miðhóli 7. febr. 1918.
Tómas Jónasson.
S/g'lufjörður
nú, og í framtíðinni.
—o—
Framh.
Eins og fyrir löngu hefir sýnt sig,
er rafmagn það er Siglufjörður
hefir til umráða alt of lítið. Fyrsta
og stærsta ástæðan fyrir því er sú
að áin, sem hreppsnefndin tók til
þess að vinna rafmagnið úr er alt
of litil, og útreikningar þeir sem
gerðir voru um framleiðslumagn
hennar hafa gjörsamlega brugðist.
Er það ekki að undra, þar sem
nær því ekkert vatn er í ánni suma
tíma ársins, og það einmitt á þeim
tíma sem ljóssins er mest þörf. Þar
af leiðir að fólk hér verður að sætta
sig að nokkruleyti við lampaljós, og
er það þóýmsumerviðleikumbundið.
Hvernig á þessum misreikningi á
vatnsmagni áarinnar stendur veit eg
ekki með vissu, en álíta má að ann-
að hvort hafi verkfræðingurinn ekki
mælt ána rétt, og þá ekki verið starfi
sínu vaxinn, eða þá að hann hefir
fengið ófullnægjandi og rangar upp-
lýsingar um vatnsmagn í ánni á hin-
um ýmsu tímum ársins. Hið síð-
ara er ótrúlegt þar sem nákunnugir
menn áttu hlut að máli, en hvernig
sem öllu þessu er varið, þá hefir
þessi misreikningur orðið Siglufirði
dýr, og altof dýr.
Sú villa réttlætist ekki við það, að
nú er sýnt og sannað, að þó vatn
áarinnar hefði reynst sem reiknað
var, þá er það eigi að síður alt of
lítið, vegna þess, að Siglufjörður hef-
ir stækkað svo mjög á síðustu árum.
Af framangreindum ástæðum hef-
ir hreppsnefndin ásett sér að vinna
rafmagn úr öðrum ám, sem betur
geta fullnægt þörfum bæjarins nú
og lengra fram í tímann, er að vona,
og má jafnvel krefjast, að við það
fyrirtæki verði unnið með meiri for-
sjá og gætni en að hinu fyrra.
Ár þær, er hreppsnefndin hefir hald-
ið sig að, eru víst tvær, Leyningsá og
Selá. Vatnskraftur þeirra mun hafa ver-
ið mældur, en mér erókunnugtum
árangur þeirra mælinga, en væntan-
lega birtast í »Fram« upplýsingarum
það mál, þegar þær eru skýrar og
Ijósar fyrir hendi..
Veikasta hlið Siglufjarðar, að því
er framtíð hans snertir, er að hér er
of lítið vatnsmagn,en einmitt vegna
þess hve lítið það er, finst mér
hreppsnefndinætti tafarlaust að vinda
bráðan bug að því að tryggja sér
allar þær ár í firðinum, sem komið
geta til greina, og þá allra helst
Skútuána, sem mun hafa mest vatn
og tryggast af öllum þeim ám, sem
Erlendar símfréttir.
Khöfn 16. febr.
Finnar hafa fengið vopn frá Pýskalandi og vilja
ekki málamiðlun Svía. Rússaher í Álandseyjum er flutt-
ur þaðan á sænskum skipum. Blóðugar orustur í Belgíu
út af því að Rjóðverjar hafa hnept Belgíska dómara í
varðhald.
Khöfn 18. febr.
Maximalistar hafa sent Rauðuhersveit í Finnlandi
mikið hjálparlið. Rjóðverjar og Austurríkismenn eru á-
sáttir um áframhald ófriðar á austurvíðstöðvunum.
Khöfn 19. febr.
Þjóðverjar hafa hafið aftur ófrið við Rússa og er
her þeirra kominn yfir Dvine og stefnir til Dwinzk.
Þjóðverjar senda her til hjálpar Ukraine. Atlaz, Lenin,
og Trotsky eru flúnir. Verkföll mikil í Galiziu. Rúm-
enar berjast við Ukraine og Búlgara.
Khöfn. 20. febr.
Þjóðverjar hafa tekið Dwinzk og Luzk. Rússar tjá
sig fúsa að undirskrifa friðarskilmála miðvelda sem
birtir voru í Brest-Litovsk. Sífeldar orustur á vestur-
vígstöðvunum og í Finnlandi.
Khöfn. 23. febr.
Rúmenar hafa samið vopnahlé við^miðveldin. Hvítu-
hersveit í Finnlandi gengur miklu betur en rauðu.
Hörð framsókn Pjóðverja í Eystlandi og Líflandi. Bretar
hafa tekið Jeriko.
Khöfn. 24. febr.
Her Rjóðverja og Ukraine hafa tekið Dubon og
Valhynin og 9200 fanga. Svíar hafa sent 3 skip með
her til Álandseyja
Khöfn. 25. febr.
Pýski herinn er á hraðri ferð til Reval og Petro-
grað. Pjóðverjar krefjast að hafa lögregiu efíirlit í Eyst-
Iandi. Rússar semja frið við Ukraine. Rússneskar her-
sveitir fara burt úr Finnlandi og Ukraine.
Khöfn 26. febr.
Hertling gefur vonir um að friðarsamningar geti
tekist samkvæmt tillögu Wilsons. Rjóðverjar halda
viðstöðulaust áfram til Petrograð og taka fjölda fanga.
Vaxandi sundurþykka milli Spánar Pjóðverja.
Eftir skeytum til Rvík.
hér eru. í þessari áereinnig hægð-
arleikur að byggja stóra vatns-
geymsluþró, sem gæti verið sem
forðabúr. Rró þessa má byggja á
þann hátt, að setja' stíflu í ána þvert
yfir, spöl fyrir ofan Efri-Skútu, svæði
það er vatnið kæmi til að standa á
gæti orðið 600—1000 fet á lengd,
breidd um 60 fet og dýpt vatnsins
yrði um 10—35 fet,
Fallhæðin yrði að vísu ekki mjög
mikil, en aftur á móti yrði hægt að
hafa víð rör frá þrónni niður að
aflstöðinni, leiðslan lægi á skakk yf-
ir ásinn og aflstöðin sjálf yrði að
standa spölkorn fyrir utan fjárhús
Lárusar í Saurbæ sem stendur yst
og neðst í túni hans. Hve margir
hestkraftar fást á þennan hátt get
eg ekki sagt um, en áætla má ca.
75. Stíflan sem þarf að byggja er
að tiltölu ekki mikið stærri en sú í
Hvanneyrarskálinni, náttúran hjálpar
mikið til þarna.
Að því er snertir framtíð rafmagns-
ins í Siglufirði, þá má ganga að því
vísu, ao á Langeyri verður bygð
aðalaflstöð, (Akkumulatorstöð) sem
tekur á móti rafmagninu frá hinum
ýmsu aflstöðvum sem bærinn setur
á stofn. Frá þessari höfuðstöð
liggur svo aðalleiðslan niður í bæinn.
Margir munu álíta að dýrt muni
verða að starfrækja svomargarstöðv-
ar, en þess er að gæta að minni
stöðvarnar passa sig að mestu sjálf-
ar, (automatiskt,) þarf einungis að
líta til þeirra einusinni eða tvisvar í
viku. Einn maður sem byggi að
sjálfsögðu á aðalstöðinni gæti því
haft umsjón með öllum stöðvunum.
Væri bygðar aflstöðvar við allar
ár hér fyrir framan, og kraftur þeirra
sameinaður sem að framan er sagt