Fram


Fram - 23.03.1918, Page 3

Fram - 23.03.1918, Page 3
Nr. 8 FRAM & FRAM kemur út 52 sinnum á ári. )E Verð 4 kr. Gjalddagi 1. júní. p Útgefandi: Hlutafélag. m Ritstjórar: % Friðb. Níe/sson °g § fíannes Jónasson. y| Afgreiðslu- og innheimtumað- W ur Friðb. Níelsson.. Rg Siglufjarðarprentsmiðja 1918. Almanak næstu viku. ^arz- 1918. 24. Pálmasunnudagur. Dymbildagar. Jvtd. 25. Boðunard. Maríu. d. Bogi Bene- j, diksson 1849. Góuþræll. 1 d. 26. d. Beethoven 1827. d. Sten Blicher .. 1848. Einmánuður. Md. 27. Yfirréttur 1563. f. W. Röntgen 1845 p Fult tungl 2.33 e. m. pj Skírdagur. d. Sturla Jónsson 1305. rd. 29. Föstud. langi. d. Jón konf. Eiríks- son 1787, d. Emanuel Sweden- i H °org 1772. • 30. Heit á Hólum til Jóns biskups 1320 23. v. vetrar. Fréttir. —o— Samkvæmt nýútkominni skýrslu agstofunnar, hafa 53 algengustu matvörutegundir þær sem nú eru aanlegar, hækkað að meðaltali um 183 prc, síðan stríðið byrjaði, um 55 prc. síðan í fyrravetur og um 5 prc. síðasta ársfj. »Verzlunartíðindi« heitir tímarit sem verztunarstéttin er farin að gefa út í Rvík. GeorgÓlafsson cand. polit. er ritstjóri þess. Pað á að koma út einusinni í mánuði. Flóaáveitufélag var stofnað á Eyr- arbakka 8. f. m. til þess að koma áveitunni í framkvæmd, samkvæmt lögum frá síðasta alþingi. Jakob Möller rítstjóri »Vísis« hef- ir nú keypt blaðið af fyrverandi eig- endum þess, og gefur það út fyrir eigin reikning. Tveir trollarar ganga nú til fiskjar frá Hafnarfirði og þrír frá Rvík, og fiska sumir þeirra í ís. Danskt eimskip, 3700 smálestir á stærð, sem var á leið frá Filadelfíu til Bretlands með smurningsolíu, misti lífbátana í hafi og hélt svo hingað til lands til þess að fá sér nýja báta áður en það legði yfir ó- friðarsvæðið, — en strandaði innan við Oróttu. Oeir náði því út og kom því inn að Viðey, en skipið er sagt mikið brotið. Viggó Björnsson, sem verið hefir starfsmaður við íslandsbanka í Rvík, hefir tekið við forstjórastöðu við útibú íslandsbanka á ísafirði. Fiskiveiðafélagið »Haukur,« hefir afhent Gunnlaugi Claessen lækni 10 þús. kr. að gjöf til væntanlegra radium-lækninga í Rvík. Bæjarfógetaembættið í Rvík hefir verið veitt Jóh. Jóhannessyni bæjar- fógeta á Seyðisfirði. — Lögreglu- stjóraembættið er veitt Jóni Her- mannssyni skrifstofustjóra. — Sagt að Magnús Guðmundsson sýslu- maður Skagfirðinga muni taka við skrifstjórastöðunni á 3. skrifstofu. í Vestmannaeyjablaðinu »Skeggi,« 2. febr, stendur þessi frásögn um tíðarfarið þar: »Hláka hefir verið alla Karlmannafatatau eru best og ódýrust í verzlun Sig. Sigurðssonar Nýkomið: Hveiti besta teg., Haframjöl, Sago, Kartöflumél, Rjól, Suðuspritt, Nýepliog Póstkort í miklu úrvali í verzlun Jens Eyjólfssonar. vikuna, orðið ristuþýtt um miðja viku. Standa menn nú í moldarflög- um allan síðari part vikunnar.« Mikill hefir munurinn verið á tíðarfari þar og hér þá dagana. Aukaþing hefir verið kvatt saman 10. apríl. Sterling fór frá Rvík 21. þ. m. í hringferð kringum landið. Tókeng- an flutning þar, hafði fullfermi frá útlöndum kringum land. Með henni fór fjöldi farþega. Botnfa fór frá Rvík til Hafnar22. þ. m. Tók marga farþega. Oddfellowfélagið hefir tekið að sér radíummálið, til frekari framkv. Eimskipafélagið hefir fyrir stuttu fengið símskeyti um það frá New- York, að framvegis þurfi að fá inn- flutningsleyfi fyrir vörur, sem send- ast eiga til Bandaríkjanna. Hingað til hefir aðeins þurft leyfi til þess að fá að flytja vörur frá Ameríku, en nú vill stjórnin einnighafa eftir- 60 57 nokkuð er kemur í bága við lögin. En það er samt skylda rnín að gefa þeim gætur.« »Vitið þér hvernig baroninn er í hátt?« spurði hann Dickson. »Eg hefi ekkert spurt mig fyrir um hann,« svaraði Dickson. »F*að var einungis kvenmaðurinn með gulahárið sem eg-----------« »Það er ágætt!« sagði Mr. Pemberton fljótt. »Rað er sjálfsagt réttast, að eg eigi við hann sjálfur.« »Og hvað á eg þá að gera. Fæ eg ekki að starfa meira?« spurði gamli Dickson. Röddin skalf dálítið. Mr. Pemberton hló hjartanlega. »Verið þér hughraustur gamli vinur, eg á von á, að þetta mál verði svo margbreytilegt, að eg áreiðanlega hafi marg- sinnis þörf fyrir yður, áður en því er Iokið.« Gamla Dickson létti fyrir brjósti. Hann var farinn að kvíða þyí, að Mr. Pemberton kærði sig ekki um meiri hjálp af honum. »F*að er orðið framorðið,« mælti Mr. Pemberton, um leið og hann leit á klukkuna. »Nú er best fyrir okkur að fara heim, og fá okkur mat og hvíld. Eg hefi mikið að gera á morgun.« »Og hvað á eg svo að taka mérfyrir höndur?« spurði gamli Dickson um leið og hann stóð á fætur. Mr. Pemberton lagði höndina á öxl honum. »Nú hafið þér gengið aftur á bak og áfram um Camden Town í 24 klukkustundir, svo yður veitir sannarlega ekki af að teygja úr yður heima á legubekk yðar. Fyrst um sinn skuluð þér hvíla yður í nokkra daga.« »Eftir skipun yðar fór eg til Camden Town, þar gekk eg um Regent Park og glápti á myndastytturnar, og alt sem þar var markvert að sjá.« »En fóruð þér als ekki eftir Parkstræti og Albertsvegi ?< greip Mr. Pemberton framí. »Jú sannarlega, þér höfðuð tekið skýrt fram við mig, að eg skyldi sérstaklega gefa gætur að öllu er fyrir bæri i þessum tveim götum, en vel gat verið að gæían hjálpaði manni til þess að rekast á gulhærðu meyjuna I Regent Park og þessvegna fór eg þangað.« , »Áfram! Áfram! sagði Mr. Pemberton óþolinmóður. »Já, nú skal eg rétt strax,« svaraði Dickson, tók upp dósir sínar og fékk sér vel í nefið. »í þrjá daga spígsporaði eg um Camden Town,« hélt hann svo áfram, »þangað til loksins seinnipartinn I dag að eg sá kvenmann sem hin ófullkomna lýsing á kvenmannin- um sem var i »SkoIlabýli« morðnóttina, á heimavið.« »Að fullyrða að kvenmaðurinn sem þér sáuð sé sú sem við erum að leita að er ómögulegt, en við verðum að taka hvert smá atriði til greina, ef við viljum finna þráðinn í þessum dularfulla sorgarleik. Hafði hún gult hár, og var hæð hennar eins og eg sagði yðurað ætti að vera um 67 þum!ungar?« mælti Mr. Pemberton. »Kvenmaðurinn sem eg sá,« svaraði gamli Dickson, »var fríð sýnum og glæsileg, hún hafði Ijósgulbjart hár, augu hennar tindruðu sem demantar, og klæðnaður hennar var skinnbrydd yfirhöfn og silkipils. Hæð hennar var ná- lagt því sem þér segið, 67—68 þumlungar.« »Hvernig stóð á því að þér sáuð hana?« spurði Mr. Pem-

x

Fram

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fram
https://timarit.is/publication/34

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.