Fram


Fram - 01.06.1918, Síða 1

Fram - 01.06.1918, Síða 1
Sveitamenn! Skilvinduolía fæst í verzlun SlG. SlGURÐSSONAK. II. ár. Siglufirðí 1. júní. 1918. 19. blað. '"""'■i ,l—™11 "T ' "»MI ..."ll"Ti n —— i i ! ~iiniiiia?a~Tr~7i Sambandsmál Sslands og Danmerkur. f útlendum símfréttum til blaðsins frá Rvík er þess nýlega getið, að sambandsmál íslands og Danmerk- ur sé nú rætt mikið í dönskum blöð- um. Upphaf þess mun vera viðtal við Olaf Friðriksson ritstj. »Dags- brúnar« sem »Dagens Ekko« birti í byrjun maímánaðar. Hafa síðan orðið víðtækar umræður um málið í flestum dönskum blöðum, er varð til þess að Zahle forsætisráðherra Dana gaf út skýrslu um fyrirætlan- ir dönsku stjórnarinnar í sambands- málinu. Af nýkomnum sunnanblöðum sést að þau hafa fengið daglega mikið fyllri fregnir af þessum umræðum, svo og skýrslu íorsætisráðherrans, er símuð var til stjórnarráðsins í Rvík, og teljum vér rétt að prenta hér upp þær símfréttir er þau hafa fengið um málið frá Khöfn. 5. maí. Blað óháðra jafnaðarmanna »Dagens Ekko,« 'birtir viðtal við Ólaf Friðriksson ritstjóra, og hefir það eftir honum, að vér viljum að ísland fái fult athafnafrelsi sem sam- bandsríki í »bandaríkjum Norður- landa.« Hann segir að meiri hluti þjóðarinnar vilji skilja við Dani, ef kröfunum um fánann fáist ekki fram- gengt, en vonar að samkomulag náist um það mál í sumar. Vernd segir hann að Danir geti enga veitt íslandi. Blaðið bætir því við, að Ó- lafur ætli að reyna að hafa áhrif á þingflokk jafnaðarmanna um þessi mál. 8. maí. Ferslews-blöðin flytja sím- fregnir frá Reuterfréttastofu um samninga íslendingaog bandamanna og í sambandi við þær fregnir halda blöðin því fram, að sambandsdeilan milli íslendinga og Dana sé komin í mjög alvarlegt horf, vegna þess, að alþingi hafi gert nýjar víðtækar sjálfstæðiskröfur, þar á meðal um personusamband. Þess vegna segja blöð þessi að ríkisþingið hafi verið kvatt saman til aukafundar. »Berlingske Tidende« og »Poli- tiken« þverneita því, að nokkuð sé hæft f þessum staðhæfingum um í- skyggilegar horfur í sambaridsmál- inu; þingið danska verði ekki kvatt saman, heldurætli flokksforingjarnir að gefa þingflokkunum ýmsar skýrsl- ur næstkomandi þriðjudag, og þar á meðal líklega um íslandsmál. Rau blöðin, sem mest gera að því að flytja æsingafregnir, hafa að engu hin ákveðnu mótmæli blað- anna »Berl. Tidende« og »Politiken« gegn fuliyrðingum þeirra um ís- landsmál. »Köbenhavn« dregur þá ályktun af ummælum þeim, sem »Social Demokraten« og »Dagens Ekko« hafa eftir Ólafi Friðrikssyni, að ís- lendingar hafi sett Dönum þá úr- slitakosti, að fánakröfunni verði þeg- ar í stað fullnægt. »Hovedstaden« og »Vort Land« spyrja hástöfum hvað sé að.gerast. »Nationaltidende« halda því fram, að Ferslews-blöðin hafi farið með' rétt mál viðvíkjandi afstöðu íslend- inga. 10. maí. »Köbenhavn« flytur þá fregn að íslendingar krefjist þess af Dönum, að þeir sendi nefnd manna til Reykjavíkur, til þess að semja við íslensku stjórnina. Hádegis-útgáfa »Berl. Tidende« og »Ekstrabladet« efast um að þetta geti verið rétt. 11. mat. Zahle hefir gefið út skýrslu um íslandsmálin, en hún er talin ófullnægjandi. Ferslews-blöðin segja að málin verði rædd (á flokks- fundum?) á þriðjudaginn. Skýrsla sú er Zahle gaf út er á þessa leið. »Sökum margskonar orðróms í nokkrum hluta blaðanna um sam- band vort við ísland, þá lít eg svo á, að það sé rétt, að skýra frá því sem í raun og veru er að fara fram. Regar Jón Magnússon, íslenskur ráðherra vor, var hér síðastl. haust kom hann fram með kröfu um versl- unarfána. í ríkisráðinu 22. nóv. var tillaga hans ekki samþykt af hans hátign konunginum, en ræða konungs, sem þá var birt var á þessa leið: Eg get ekki fallist á tillögu þá, sem ráðherra íslands hefir borið fram; en eg vil bæta því við, að þegar íslenskar og danskar skoð- anir ekki samrýmast, munu al- mennar samningaumleitanir í ein- hverju formi, heldur en að taka eitt einstakt mál út úr, leiða til þess góóa samkomulags, sem ætíð verður að vera grundvöllur sambandsins milli beggjalandanna. Pessi hugmynd um almennar samningaumleitanir hefir verið tek- in til íhugunar á fslandi, og það var skýrt frá því, að allir flokkar þar féllust á það. F*ar eð búist er við því að núverandi alþingi verði bráðlega lokið og þingmennirnir þá dreifist um alt ísland, er það æski- legt, að alþingi berist skjótlega vit- neskja um afstöðu vora í þessu máli. í þessu sambandi hefi eg beðið for- ingja allra stjórnmála flokkanna að kveðja santan flokkana og leggja fyrir þá þá spurningu, hvort þeir telji það viðeigandi, sem stungið var upp á í ríkisráðinu 22. nóv., sem uppástungu til fslendinga, að hefja nú samningaumleitanir um alt samband íslands og Danmerkur. Ef ákvörðun um þetta skyldi verða gerð, verður alþingi skýrt frá þessu og er þá búist við því, að það sé undir það búið að koma saman vegna samningaumleitana. Þegar rík- isþingið hefst 28. maí, þá skal á- kvörðun tekin um það, hvernig Dan- mörk muni æskja að skipa fulltrúa til slíkra samningaumleitana. Núverandi stjórn hefir aldrei stfg- ið nokkurt skref í sambandsmálum Danmerkur og íslands, án þess að ráðgast við alla flokka ríkisþingsins og hingað til hefir hún altaffengið samþykki þeirra.« 13. maí. »Ekstrabladet« ver fram- komu Zahle í fslandsmálum. Knud Berlin »hervæðist.« Politiken bætir eftirfarandi um- mælum við yfirlýsingu þá, sem Zahle forsætisráðherra hefir Iátið birta um hvar komið sé sambandsmálum ís- lands og Danmerkur: »Af yfirlýsingu Zahle forsætisráð- herra er það augljóst, að Danir hafa átt frumkvæði að þyi, sem nú er i ráði að gert verði, og það hefir ver- ið ákveðið á stjórnarfundi 22. nóv. Er nú vonandi að komið verði í veg fyrir nýjar deilur og að danska þjóðin beri gæfu til þess að standa sem einn maður og ræða málið með jafnaðargeði.« 14. maí. íhaldsflokkurinn danski hefir tjáð sig reiðubúinn til að styðja opinbera samninga um sainbands- mál íslands og Danmerkur milli rík- isþingsins sameinaðs og alþingis íslendinga. Svar hinna flokkanna er enn óákveðið. 15. maí. Flokkur afturhaldsmanna í Danmörku hefir stungið upp á því, að kosin verði nefnd til þess að íhuga sambandsmál fslands og Danmerkur. Radikali flokkurinn er því fylgjandi að samningar séu upp- teknir. Vinstrimenn vilja að ríkis- þingið ákveði í hvaða formi samn- ingarnir séu gerðir og hvar þeir fari fram. »Politiken« fullyrðir að ríkisþing- ið verði látið skera úr því hvar, hve- nær og hvernig ;samningar skuli fram fara, en bætir því við, að ís- lendingar hafi stungið upp á því að þeir færu fram í Reykjavík. Stjórn- in vilji nú komast að því hver sé afstaða nýju þingflokkanna til þess- arar uppástungu. Kaupmannahafnarblöðin ræða ís- landsmál af mestu ákefð. Jafnaðarmannaflokkurinn og frjáls- lyndir vinstrimenn fylgjast að málu m »Dagens Ekko« segir að á mál íslands ve'rði að líta meira frá sjón- armiði Norðurlanda en Danmerkur sérstaklega. »Vort Land« og »Nationaltidende« eru mjög kampakát yfir því að sljákk- að hafi í »Politiken« og »Social- Demokraten.« »Köbenhavn« lýsir sérstakri ánæg- ju sinniyfir ákvörðun íhaldsmanna, varar við því að gera sér of góðar vonir um árangur af nýjum samn- ingum og gerir mikið úr því, hve nauða misvitrir stjórnmálamenn Dan- ir hafi reynst. 16. maí. Það er búist við því að fyrsta verk ríkisþingsins danska, þá er það kemur saman 28. maí verði það að taka sambandsmál íslands og Danmerkur til meðferðar. »Berl. Tidende« eru ánægð með undirtektir þingflokkanna og styðja það að það verði fyrsta skilyrði frá Dana hálfu að þjóðin fái ómengað- an, Ijósan og ítarlegan skilning á kröfum íslendinga. Fullyrðir blaðið að enginn Dani vilji á neinn hátt hnekkja sanngirniskröfum fslend- inga, ef þeir vilji mæta Dönum á miðri leið, á þeim samningsgrund- velli, sem þegar er fenginn, og þá verði engin vandræði með það að ráða fram úr auka-atriðunum. Póstafgreiðslan á Seyðisfirði er veitt Sigurði Baldvinssyni fyrv. ritstj. »Austra,« og hefir sú veiting mælst mjög illa fyrir, þar sem um það starf hafði sótt jafn æfður og áreið- anlegur maður og Finnur Jónsson póstþjónn á Akureyri.

x

Fram

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fram
https://timarit.is/publication/34

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.