Fram - 01.06.1918, Blaðsíða 2
76
FRAM
Nr. 19
F RAM
kemur út 52 sinnum á ári.
Verð 4 kr. Gjalddagi 1. júní.
Útgefandi: Hlutafélag.
Ritstjórar:
Friðb. Níe/sson
og
fíannes Jónasson.
Afgreiðslu- og innheimtumað-
ur Friðb. Níelsson.
Siglufjarðarprentsmiðja 1918.
wmœBSœ&mm
Almanak næstu viku.
Júní. 1918.
2. Sd. síðasta kv. kl. 3,20 fm.
3. Md. f. Friðrik VIII. 1843.
4. Þd. d. Vísi Gísl. 1696.
5. Md. d. Weber tónskáld 1826.
6. Fd. Fardagar. 7. v. sumars.
7. Fd. f. Fómas Sæmundsson.
8. Ld. d. Jón landl. Hjaltalín.
Satnningarnir
við Breta.
Mjög eftirvæntingarfullir hafa menn
beðið eftir að frétta eitthvað af versl-
unarsamningum stjórnarráðsins við
Breta, en fátt eitt hefir frést, er á-
byggilegt hefir jaótt. Pó er nú sagt
að þeir séu loks fullgerðir, en um
hin ýmsu atriði þeirra er oss ókunn-
ugt að öðru en eftirfarandi símskeyti
er fréttaritari vor í Rvík sendi oss
í fyrradag, og kallar hann það »höf-
uðatriði bresku samninganna;«
»Stjórnir bandamanna lofa að
greiða fyrir innflutningi neuðsynja-
vöru til íslands; skuldbinda sig
til að selja íslensku stjórninni
steinolíu og bensín fyrir óákveðið
verð, ensk kol og loforð um salt-
sölu íítalíu. íslenskastjórninskuld-
bindur sig til að láta bjóða full-
trúum stjórna bandamanna á ís-
landi þær íslenskar afurðir allar,
sem ekki verða notaðar í landinu
sjálfu, svo sem: fisk, síld, lýsi,
þoskahrogn, fiskimjöl, sauðakjöt,
ull og gærur, alt eftir nánari regl-
um. Stjórnir bandamanna búast þó
ekki við að nota forkaupsrétt sinn
á síld. Með nánari skilmálum
samþykkja þeir útflutning á alt
að 50 þús. tunnum til Svíþjóðar;
einnig á 1000 hestum til Dan-
merkur.
Eins og skeytið ber með sér er
ekkert verð nefnt hvorki á keyftri
né seldri vöru, og er helst að sjá
að þvi eigi að halda leyndu fyrst í
stað. Hugsast getur líka að verð
íslensku vörunnar sé óákveðið, en
eigi að fara eftir eftirspurn, og banda-
menn hafi aðeins forkaupsrétt fyrir
hæðsta boð sem fáist.
Annars er vonandi að nánari fregn-
irafsamningunumkomiinnan skams.
* *
*
Eftir að framanritað var sett í
blaðið áttum vér tal við Stefán í
Fagraskógi um samningana. Hann
sagði að þeir væru alveg fullgerðir
og undirskrifaðir.
Verð á ísl. afurðum, þeim erbanda-
menn notuðu forkaupsrétt sinn á,
væri fastákveðið á öllu nema síld.
Kjöt 140 kr. fyrir 10 þús. tn. og
170 ef meira yrði keyft.
Ull hvít nr. 1 kr. 4,00 kg.
» » » 2 » 3,69 »
» svört » 1 » 4,00 »
» mislit » 2,93 »
» óhrein hvít » 2,51 »
Haustull hvít » 2,88 »
—»— mislit » 2,51 »
Oærur 8 kg. bunt 12,00 kr.
Verkaður saltfiskur fyrir 12þús. smál.
No. 1 kr. 170 skp. þaryfirskp. 250
„ 2 „ 154 —-------------- 225
„ 3 „ 140 —-------------- 206
Fiskur upp úr salti minnst 28
daga gamall, pakkaður í 50 kg. pk.
fyrir 12 þús. smál.
No. 1 kr. 0,61 kg. þar yfir kg. 0,91
Lýsi 1A. kr. 190 fatið
„ 1B. „ 140 -
Lýsið sé metið í Englandi en aðr-
ar vörur allar hér á landi.
Pá hafa bandamenn skuldbundið
sig að selja ísl. stjórninni 11,500
smál. af kornvcru fyrir ákveðið verð
og er það sem hér segir:
Hveiti nr. 1 482 kr. smál.
„ 2 355 ,,
Rúgmjöl 471 „ —
Bankabygg 500 „ —
Heilbaunir 857 „ —
Hálfbaunir 750 „ —
Haframjöl 464 „ —
Petta verð er miðað við að varan
sé tekin í Ameríku.
Einnig skuldbinda þeir sig að
selja 45 þús. steinolíuföt, 30 þús.
smál. af kolum og 50 þús. smál.
af salti, en um verð á því er óá-
kveðið enn, búist við almennu mark-
aðsverði.
Verð á þeim 50 þús. síldartunn-
um, sem leyft er að selja til Sví-
þjóðar, er alveg óákveðið enn, og
engin von til að bandamenn vilji
kaupa neina síld, né leyfa útflutn-
ing á meiri síld.
Bæjarfréttír.
—o—
Afmæli:
6. júní Kjartan Jónsson trésmiður.
6. »« Geirlaug Guðmundsdóttir ekkja.
»Sterlitig<i
kom hér I strandferð á mánudaginn var,
með skipinu kom Hjalti Jónsson skipstj. o.fl.
»Hvít/ng*
kom frá Rvík í fyrrakvöld með ýmsar
vörur hingað, þar á meðal kol til brauð-
gerðarhússins. Mun það þvítaka til starfa
strax úr helginni.
»Stel/a«
kom frá Akureyri í morgun með »Thord-
enskjöld,« stóran bark sem S. Goos hefir
heypt þar. Ætlar Goos að nota hannsem
bryggjuhöfuð hér.
Jarðarför
Jens heitins Jónssonar, er nýlega lést á
Vífilstöðum, fór fram hér í bænum í dag,
að viðstöddu miklu fjölmenni.
„Dröfn"
vélskip frá Höfða kom hér inn í vik-
unni með ágætan þorskafla, um 70 skp.
eftir rúmrar viku útivist.
Næsta blað
kemur út á þriðjudaginn. Auglýsingar
verða að vera kornnar á prentsmiðjuna á
mánudagskvöld.
Erlendar símfréttir.
Khöfn 25. maí.
Þjóðverjar krefjast óbærilegraskaðabóta af Rúmen-
um. Afskaplegar stórskotaorustur á vesturvígstöðvunum.
Óeirðir í Bayern kæfðar með hervaldi. Póllensk frétt
segir að Pýskaland og Austurríki vilji skifta milli sín
Póllandi. Miklar loftorustur á vesturvígstöðvunum.
Bandaríkin hafa gert upptækar þýskar eignir fyrir tvo
miljarða dollara. Norðmenn og Englendingar hafa
gert með sér Samninga um siglingar. Costa-Ríka hefir
sagt Austurríki stríð á hendur.
Khöfn 26. maí.
Stjórnmálasambandi slitið milli Cuba og Mexico,
ástæður ókunnar.
Khöfn. 27. maí
Vaxandi óánægja með Pjóðverjum og Ukraine.
Bandamenn hafa upphafið „svartalista“ Norðmanna.
Khöfn 28. maí.
Lundúnafrétt: Pjóðverjar hafa gert ákaft áhlaup
með harðri stórskotahríð frá Reims, Soisons og fleiri
stöðum. Stórskotahríðin vex í Flandern. Pjóðverjar eru
komnir að Aisne og halda bandamenn undan reglulega
vinstra fylkingararmi, hörfa að annari varnarlínu. Pjóð-
verjar hafa tekið mörg vígi og smærri bæi og 15 þús.
fanga. Danska aukaþingið sett í dag (þriðjudag.)
Khöfn 29. maí.
Pjóðverjar sækja enn fram. Barist milli Somme
og Reims. Parísarfrétt síðdegis: Framsókn Pjóðverja
stöðvuð. Bandaríkjaher sækir fram og bandamenn
halda stöðvum sínum. ítalir hafa gert sigursælt áhlaup.
Pjóðverjar hafa enn tekið margar hæðir og bæi og 25
þús. fanga. Seinna símað að bandamenn stöðvi sókn-
ir heranna. Pjóðverjar hafa 3 hermenn gegn 1 banda-
manna. *
Khöfn 30. maí.
Herlínan er nú um Aisne. Pjóðverjar sækja enn
fram milli Soisons og Reims og hafa tekið Soisons,
bardaginn harnar suður á bóginn. Pjóðverjar hafa tek-
ið enn vígi og bæi, og hörfa bandamenn við Reims.
Eftir skeytum til Rvík.
Fréttir.
Smjörlíkisverksmiðju er í ráði að
koma á fót í Rvík og er félag stofn-
að í þvi skyni. Formaður þess er
Jón Kristjánsson prófessor, en Oísli
Ouðmundsson ráðanautur þess.
Benidikt Sveinsson alþm. hefir
nýlega verið kosinn forseti Rjóð-
vinafélagsins í stað Tryggva Gunn-
arssonar.
Tangs-verslun á ísafirði er nú
seld Rórði Kristjánssyni kaupm. á
ísafirði, með húsum og útbúum og
öðrum eignum, fyrir 210 þús kr.
Á Stað í Hrútafirði hvarf í vetur
póstpoki sem átti að fara til Sauð-
árkróks. í honum voru 6 peninga-
bréf með samtals 5324 kr. og 16
ábyrgðarbréf. Nokkru síðar fanst
eitthvað af peningunum í grend við
Stað, en grunur féll ámanninnjón
Elíasson, sem þá peninga þóttist
finna, að hann mundi valdur að
þjófnaðinum, og hefir hann nú ját-
að þetta á sig. Fundist hafa eftir
tilvísun hans 3170 kr. en 20 hund-
rað kr. seðla hafði hann brent og
öll ábyrgðar bréfin. Rúmlega 150
kr. er talið að hann hafi eytt.
Síra Jónmundur Halldórsson hef-
ir tekið við Staðarprestakalli íGrunna-
vík við ísafjarðardjúp. Er hann ný
fluttur þangað með fjölskyldu sína
og ætlar að reisa bú á Stað.
Lausn frá prestskap hefir síra
Magnús Andrésson á Oilsbakka
fengið, vegna vanheilsu.
Kex,
margar teg. er nýkomið
í verzlunina
AALESUND.
*