Fram


Fram - 01.06.1918, Page 4

Fram - 01.06.1918, Page 4
78 FRAM Nr. 19 Nýkomið í verzlunina AALESUND o Fataefni Lasting Flauel Hvít léreft Ermasérting Stormfatatau Boldang og margt fl. Komið! skoðið! og kaupið! Yirðingarfylst. Jón E. Sigurðsson. Undirritaður ræður alt að 15 síldarstúlkur nú strax fyrir kr. 0,85 á tunnuna, 6 krónur viku peninga, frítt húspláss og eldsneyti. Pær sem vilja ganga að ofanrituðum kjörum verða að gefa sig fram við undirritaðann fyrir 10. júní n. k. H. Hafliðason. mr&m Karlmanna nærfatnað Silkiklúta, Vasaklúta, Heklugarn, | Handklæði, Tvinna, | Svuntur, Kven-skyrtuboli, Kven-regnkápur, Karla- og kvensokka, Karlm.milliskyrtur, Haframjöl, Hveiti, í~oooooooz er best | Kaffi og að kaupa 8 Export, 333033330333030300300033333033- í versl. Friðb. Níelssonar. mm S. GOOS kaupir altaf góð tóm steinolíuföt hæsta verði. 08 Mr. Pemberton tók nú hatt sinn og hélt svo á stað á- samt gamla Dickson. Pegar þeir komu til Albertvegar, staðnæmdust þeir á móti húsi baronsins. Mr. Pemberton leit á húsið og hleypti brúnum. »Hvað er nú á seyði,« sagði hann við Dickson. »Hér eru tjöld dregin fyrir gluggana, skyldi baroninn hafa farið eitthvað burtu. Við skulum leita frétta hjá dyraverðinum.« Peir gengu yfir götuna og tóku í bjöllustrenginn. Rétt strax stakk dyravörðurinn höfðinu útum op á veggnum á húsi sínu. Hann leit út fyrir að vera í vondu skapi. »Er baron von Sahlmann heima?« spurði Mr. Pemberton. »Nei, baroninn er ekki heima, hann er farinn burt úr Lundúnum,« svaraði dyravörðurinn, og ætlaði að Íoka hler- anum fyrir opinu. Hann staðnæmdist þó á miðri leið, því hann hafði rek- ið augun í glófagran silfurpening, sem Mr. Pemberton velti á milli fingra sinna. »Já, einmitt það, hvenær fór hann?« spurði Mr. Pem- berton. »í morgun herra minn,« svaraði dyravörðurinn, sem nú var allur brosandi og hafði ekki augun af silfurpeningnum. »Fór hann langt í burtu?« spurði Mr. Pemberton. og lagði um leið peninginn í lófa dyravarðarins. »Baroninn og baronsfrúin fóru til Parísar, og ætla að búa þar, öll húsgögn sín hafa þau selt húsgagnasala, sem lætur sækja þau á morgun. En ef þér hafið bréf eða ann- að til baronsins, þá getið þér skilið það eftir hjá mér.» »Vitið þér um verustað baronsins í París?« 99 »Já, hann byr á hótel Frakkland, og hefir sagt mér að senda öll bréf þangað.« Mr. Pemberton þakkaði fyrir upplýsingarnar lypti hatt- inum til kveðju og gekk hugsandi burtu. »Hann hefir laumast í burtu,« sagði gamli Dickson. »Laumast í burtu rétt við nefið á okkur.« Mr. Pemberton hló lágt. »Ónei, Dickson minn. Baroninn er bara að leika felu- leik. Hann hefir grunað að ekki væri alt með feldu, læst því flytja til Parísar, en hefir einungis flutt sig eitthvað til í Lundúnum.« »Pér álítið þá að þetta sé alt lýgi,« sagði Dickson hugsandi. »Hvert einasta orð,« svaraði Mr. Pemberton. »Baroninn fer ekki burt úr Lundúnum, fyr en Kate Ferring er drukn- uð í Themsá eða á annan hátt rutt úr vegi. Og eg gæti vel trúað, að nú væri hann í Irtonstræti, til þess að reyna að ná í hana. Hann er slunginn eins og höggormur, og hættir ekki að hálfnuðu verki. Hann hefir selt húsgögn sín til þess, að álitið væri að hann færi burtu; nú líklega hefir hann breytt um útlit, fengið sér dulbúning, og kallar sig Thomson, Jamesson, eða einhverju algengu nafni. Pér megið vera vissir um það Dickson minn, að menn gera mikið til \ þess að ná í þrjár miljónir marka.« »EnnúskuIum við fara á símastöðina,« hélt hann áfram. »Eg ætla að senda símskeyti til frönsku lögreglunnar með fyrirspurn um baron von Sahlmann.« »En þér sögðuð rétt áðan að baroninn myndi vera enn- þá í Lundúnum,« sagði gamli Dickson forviða.

x

Fram

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fram
https://timarit.is/publication/34

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.