Fram - 05.10.1918, Síða 2
154
FRAM
Nr. 3 9
F RAM
kemur út 52 sinnum á ári.
Verð 4 kr. Gjalddagi 1. júní.
Utgefandi: Hlutafélag.
Ritstjórar:
Friðb. Nie/sson
og
fíannes Jónasson.
Afgreiðslu- og innheimtumað-
ur Friðb. Níelsson.
Sigiufjarðarprentsmiðja 1918.
Almanak næstu viku.
Okt. 1918.
Sd. 6. f. Ben. Gröndal 1826 Eldadagur
Md. 7. d. Marteinn bp. Einarsson 1576
Þd. 8. d. Jón próf. Konráðsson 1850
Md. 9. d. Jón læknir Pétursson 1801
Fd. 10. d. Bogi gamli Benediktsson 1803
25. v. sumars.
Fd. 11. f. Hannes Árnason 1809
Ld. 12. Kolumbus finnur Ameriku 1492.
Fyrst má telja íjölskyldumenn sem
stunda búskap og veita sér ogfjöl-
skyldunni atvinnu með að halda við
og hirða búfjárstofn sinn og hag-
nýta sér og koma í verð afurðum
hans. Margir slíkir bændur þurfa
að aía upp börn sín og menta, sjá
fyrir gamalmennum eða heilsubil-
uðu fólki o. fl. og venjulega er það
afrakstur búfjárstofnsins sem gerir
þá færa um þetta. Fyrir slíka menn
er það áhyggjuefni að þurfa að rýra
stofninn jafnmikið og óhjákvæmilegt
verður í haust, vilji þeir hafa þann
hluta hans sem settur verður á sæmi-
lega tryggðan.
Bót er það í máli, að sauðfé er
nú í haust, í háu verði, svo vanda-
laust er nú að breyta nokkrum hluta
af bústofni sínum í annað verðmæti
(peninga) en þannig breytt stofnfé
veitir að jafnaði hvorki eins mikinn
arð né atvinnu eins og meðan það
stóð í búfénu og því verður nokk-
ur skaði við breytinguna óhjákvæmi-
legur.
Eg vil taka dæmi: Bóndi sem á
150 ær og 4 kýr verður í haust að
rýra stofninn um 50 ær og 1 kú,
sem eg reikna 1600 kr. virði. Þessi
stofnhluti bónda breyttur í peninga
gefur eigi meiri ársvexti er um 70
kr. Hefði hann staðið í búfé mundi
hann undir góðri stjórn hafa gefið
af sér um 240 kr. að frádregnum
öllum kostnaði. Árferðið í sumar
má því segja að baki þessum bónda
á næsta ári 170 kr. tap og eftilvill
árið þar á eftir sama tap því tvö ár
munu þurfa til þess að breyta pen-
ingunum aftur í búfjárstofn. Eigi er
ólíklegt að þessi bóndi eigi nú í
haust, 8 dilkum fleiri fyrir góðviðr-
in í vor en í meðal ári, sem séu
um 70 kr. virði svo hinar sönnu
skaðaafleiðingar sumarsins verði
eigi nema 100 kr. næsta ár en slík-
ur ársskaði ætti eigi að vera neitt
rothögg á duglegum og hugrökk-
um bónda, sem altaf má búast við
misfellum og smáóhöppum á bú-
skaparbrautinnu Auk hér reiknaðs
skaða mætti reikna að margir bænd-
ur verða nú fyrir 6 til 8 hndr. kr.
skaða af því uppskera varð minni
en að meðaltali.
í öðru lagi mætti telja embættis-
menn í landinu sem hafa jarðarábúð
og búfjárstofn sér til þæginda skemt-
unar og arðsvona. Þeim ætti að vera
vorkunarlaust að taka nú í haust
alt að því hálfan búfjárstofn sinn
og breyta honum í peninga til
þess að geta verið fremur veitandi
en þurfandi með skepnufóður í vet-
ur, þótt þeir kynnu fyrir það að fá
nokkuð minni ágóða af eign sinni
næstu tvö árin.
f þriðja lagi mætti nefna suma
ríkisbændur, sem fyrir fáum eða eng-
um hafa að sjá, Iausamenn og vinnu-
menn sem aðeins hafa fyrir sjálfum
sér að sjá og eiga gangandi pen-
ing því nær eingöngu til þess að
láta hann ávaxta fé sitt betur en
peningar mundu gera og svo sér
til gamans, og til að fullnægja þeirri
hvöt sem margir hafa að fást við
arðvænleg fyrirtæki þótt nokkuð geti
verið tvísýnn gróðinn og stofninn
kunni að geta verið í einhverri hættu
annað veifið. Mönnum sem einungis
eiga búfé til að græða á því en
þurfa þess eigi til þess að veita sér
atvinnu eða sínu fólki ætti að vera
vorkunarlaust þótt þeir þyrftu að
minka búfjárstofn sinn til muna á
þessu hausti.
Á það verður að Hta að við fækk-
un ibúfjárins í landinu minkar at-
vinna sú er fjárgeymsla og fjárhirð-
ing veitir á vetrum. Við að athuga
þetta atriði kem eg einmitt að því
máli sem kom mér til að setjast
niður og skrifa þessa grein, en það
er að vekja athygli bænda á því,
sem eg veit að vísu að þeim er
mörgum fullljóst áður, að sjaldan
mun hafa verið meiri þörf á að vanda
alla fjárhirðingu en verður í vetur.
Heyið er lítið og dýrt og það verður
að fara sem sparast með það án
þess að þó að beita of miklu harð-
ræði við búpeninginn. Nákvæm og
góð fjárhirðing þarf meiri vinnu, en
ónákvæm og hirðulítil og þótt pen-
ingur bænda verði færri í vetur þarf
ef til vill eins mikla vinnu við hann,
verði hirðing hans vönduð meira
en verið hefir ogætti atvinnuatriðin
þar með að vera leyst.
Það er engin vafi á því og verð-
ur naumast fyrirbygt að margir setji
djarft á í haust, og því nauðsyn-
legra er að allrar nákvæmni sé gætt
við fjárhirðinguna, fénaðinum látið
líða sem best þótt fóður sé sparað
eins og unt er, síld og síldarmjöl
gefið með nákvæmni og síldin soð-
in álítist það hollara fóður og þess
gætt að skepnur fái eigi of mikið
salt við síldargjöf. Fóður búfjárins
sé drýgt eins og föng eru til með
sjávarafurðum, þara (sbr. grein H.
Jónssonar í síðasta blaði,) og lýsi
eða lifraráburði í létt hey eða illa
verkað, mokað sé ofan af við og
lyngi og beitt á eða viður skorinn
upp með beittum spaða og gefinn
kúm og sauðfé f húsi.
í einu orði er nauðsynlegt að
bændur ogallir er við fjárhirðing fást
í vetur leggi sig fram til að reyna að
framfleyta búfjárstofni þeim er settur
verður á í haust þannig að hann
missi sem minst hold og veiklist
eigi af fóðurskorti eða óholiu fóðri og
vosbúð eða kulda en þá sé heyið
sparað eins og hægt er. Að sam-
rýma þetta er sá galdur sem fjármenn
vorir verða að giíma við í vetur.
B. J.
Fréttir,
Húsavíkurlæknishérað er veitt Birni
Jósefssyni, áður lækni í Axarfjarð-
arhéraði.
Steingr. Jónsson, íslenskur verk-
fræðingur, er nýlega kominn til Rvík-
ur frá Khöfn. Hann er yngsti ís-
lenski verkfræðingurinn, hlaut fyrstu
ágætiseinkun frá verkfræðingaskól-
anum í Khöfn, og er það mjög fá-
gætt og enginn íslendingur hefir
fengið svo háa einkun.
Halldór Kristinsson lækniráReykj-
arfirði og kona hans fóru til Khafn-
ar með Botníu síðast.
Fyrstu Þjóðaratkvæðin um sam-
bandslögin voru greidd um borð í
Botníu 23. f. m. af farþegum sem
ætluðu til útlanda.
Leiðarvísir um geymslu garðá-
vaxta hefir Einar Helgason garð-
yrkjumaður í Rvík nýlega gefið út.
Skýrsla um störf landsímans árið
1917 er nýkomin út. Tekjursímans
voru það ár 496362.65 en gjöld
213889,77; tekjuafgangur er þá
282472,77.
Hlutabréf fslandsbanka gengu
kaupum og sölum í kauphöllinni í
Khöfn fyrir 180 kr. hundraðið um
miðjan september.
Stefán Stefánsson (Steinbach)cand.
jur. í Khöfn hefir keypt jörð á Jót-
landsskaga með það fyrir augum
að koma þar upp íslensku fjárbúi,
er ófriðnum linnir. Álítur hann það
gróðavænlegt mjög, því að íslenskt
sauðfé sé miklu verðmætara en
danskt, ullin betri og kjötið Ijúf-
fengara, enájótlandi gæti féð geng-
ið sjálfala sumar og vetur.
í Lögbirtingablaðinu er auglýst
eftirlögerfingjumJónsnokkursValde-
marssonar íslensks sjómanns sem
andaðist í Santon í Brasilíu 11.
mars þ. á.
Embættispróf í læknisfræði við
Háskólann í Rvík hafa þessir menn
tekið nú í haust: Hinrik Thoraren-
sen, Jón Bjarnason og Kristján Ar-
inbjarnarson.
Mjóafj.presíakall í Suður-Múla-
sýslu er auglýst laust. Umsóknar-
frestur til 25. okt. Veitist frá næstu
fardögum.
Kaaber konsull er orðinn banka-
stjóri Landsbankans í Rvík í stað
Björns Kristjánssonar.
Nýtt sjálfstæðismannablað byrjaði að
koma út í Rvík í fyrradag. Það heitir
»Einar Þveræingur.«
Erl. símfréttir.
Khöfn 2. okt.
Wienarfrétt: Her mið-
veldanna hefir Sofiu, höf-
uðborg Búlgaríu, á valdi
sínu og myndarþar bráða-
birgðastjórn.
Rautersfrétt: Her banda-
manna er að leggja Búl-
garíu undir sig. Búlgarar
eru ekki ófúsir að ráðast
á Tyrki. Chambrai brenn-
ur. Quentin tekin. í Frakk-
landi hafa bandamenn tek-
ið 250 þúsund Þjóðverja.
Wolffsfrétt: Kolera geys-
ar í Ðerlín. Hertling kansl-
ari er farinn frá.
Járnbrautarslys varð milti
Malmeyjar og Gautaborg-
ar, 300 manns meiddust.
Washingtonfrétt: Tyrkir
hafa ákveðið að hefja sam-
ninga við bandamenn, en
íbúar Konstantínopel neita
því.
Khöfn 3. okt.
Bretar hafa tekið Dama-
skus.
Pjóðverjar hörfa báðu
megin La-bessuskurðsins.
Herlínan rofin milli Fons-
konnen og Beaurwain.
Max Baden prins mun
verðakanslari íÞýskalandi.
Khöfn 4. okt.
Bandamenn sækja á al-
staðar að vestan verðu.
Pjóðverjar veita öflugt við-
nám norður að Quentin.
Eftir skeytum til Rvík.
í þessari viku andaðist að heim-
ili sínu á Akureyri Björn Jóhanns-
son trésmiður, áður bóndi á Ljósa-
vatni. Hann var dugnaðarmaður og
vel látinn.
Nýlega er dáin á Akureyri ekkjan
Kristjana Halldórsdóttir. Dugleg og
vönduð kona.
Haraldur Níelsson prófessor og
fröken Aðalbj. Sigurðardóttir kenslu-
kona frá Akureyri giftu sig í Rvík
2. þ. m.
Frá Hollandi hefir nýlega komið
sú fregn, að Þjóðverjar séu sem
óðast að flytja hermannasjúkraskál-
ana, sem þeir höfðu í Frakklandi,
alla leið að landamærum Þýskalands.
Virðist þetta benda til þess að Þjóð-
verjar búist jafnvel við að verða að
hörfa enn meir fyrir Bandamönnum.