Fram - 22.02.1919, Page 4
32
FRAM
Nr. 8
Kartöflur.
Nokkrar tunnur af kartöflum koma með s.s. Ster-
ling, þurfa að pantast nú þegar.
Verslun Sig. Kristjánssonar.
Nýkomið:
Manchettskyrtur hv. og misl. Náttkjólar, Vasaklútar (með ísaum,) Rips-
tau, Hvít Iéreft, Handklæði Húfur, Málbönd, Matskeiðar, Drengjaflibbar, Reyk-
jarpípur, Skóreimar svartar og brúnar, Títuprjónar sv., Sólaleður o. fl.
Sumarl. Guðmundsson.
Lítil húseign
á góðum stað í bænum óskast til .kaups.
Semjið við
Sophús Árnason.
Vinnuvélar.
F*ó enn sé langt eftir vetrarins
eru menn þegar farnir að búa sig
undir vorið og sumarið, þykir þeim
sem rétt er, ekki ráð nema í tíma
sé tekið.
Svo er að sjá, á öllu útliti, að
mikið verði um atvinnu hér á Siglu-
firði í vor og sumar. Fregnir hafa
komið um, að minsta kosti sumir
af þeim Norðmönnum sem hér ráku
síldveiði fyrir stríðið^ komi hingað
í sumar til þess að reka þá atvinnu.
Þó er ekki fulivíst enn þá í hve
miklum stíl síldveiði verður stund-
uð, ræður þar um verð á síldinni
og ýmsar ráðstafanir í sambandi við
hina væntanlegu friðargjörð.
Strax er farið að brydda á því,
að kaupgjald verði nokkuð hátt næsta
sumar. Bændur bjóða kaupafólki
góð boð, og það gera sjávarútvegs-
menn einnig. Er það að vísu gott
fyrir vinnulýðinn að hann fái hátt
kaup, en á hinn bóginn er það af-
ar óheppilegt, er tveir aðalframleið-
endur, bændur og útvegsmenn,
standa á öndverðum meið. F*ar af
leiðir, að framleiðsla hvorutveggja
verður dýrari til afnota í landinu og
heggst með því nokkurt skarð í hið
háa kaup verkalýðsins er þarf að
kaupa bæði land og sjávarafurðir.
Eftir því sem tímar líða og bæði
landbúnaður og sjávarútvegur eykst,
er fyrirsjáanlegt, að verkafólkið verð-
ur of fátt. Eru þá ekki nema tvö
ráð fyrir hendi ef skortur verður á
vinnukrafti. Annað er það, að fá út-
lent fólk til vinnu, og er það ráðið
mjög varhugavert á marga lund, og
hitt er, að nota svo mjög, sem hægt
er, alskonar vinnuvélar þar sem þeim
verður komið við, og finna upp ný-
ar til ýmsra verka sem nú eru ein-
göngu unnin af manna höndum.
Hvað landbúnaðinn áhrærir þá eru
ýmiskonar vélar er að honum lúta
óðum að ryðja sér til rúms, og
skilningur manna á nytsemi þeirra
að þroskast, má búast við að því
fleygi fram á næstu árum. En hvað
sjávarútveginn snertir er minna um
handhægar vélar, og má þó eflaust
koma þar að vélakrafti sem við aðra
vinnu.
Að þessu sinni vil eg að eins
benda á, að ef til væri handhæg
vél til þess að kverka síld myndi
það spara mjög mikinn vinnukraft.
Setjum svo, að hver vél ynni á
við tvo menn og ef til er tekið að
þurfi Ó00* manns til þess að kverka
og salta síld á Siglufirði, og kverk-
unin sé helmingur af verkinu, þá
sparast 150 manns, sem gætu færst
yfir á annað starfsvið. Gæti vélin
afkastað meiru þá yrði sparnaðurinn
enn meiri. Hér er starf fyrir hug-
vitsmenn að gefa sig við, og Al-
þingi ætti að heita þeim mönnum
verðlaunum, sem finna upp nýar
vélar til fólksparnaðar, jafnvel veita
efnilegum mönnum fé til utanfarar
til þess að mentast í þessa átt.
Ennfremur þyrfti að finna upp vél
er slægi botn í síldartunnur. Beyk-
irar eru fremur fáir, fæstir lærðir, en
allir afardýrir. F’ó verksparnaðurinn
yrði ekki í stórum stíl í fyrstu þá
mætti búast við endurbótum á vél-
unum, svo hefir það gengið með
allar vélar, og yfir höfuð að tala öll
áhöld, að þau hafa tekið framförum;
en það er allajafna erfiðast að fá
fyrstu hugmyndina, þroskinn kemur
af sjálfu sér við reynsluna.
Aðalatvinnuvegir landsins þurfa
að aukast og blómgast, um það eru
ekki deildar skoðanir. En til þess
þarf meiri vinnukraft en nú er til í
landinu, og það eru vélarnar sem
eiga að fylla upp það er til vantar.
F’ó eg ekki hafi tekið fram hér
nema kverkunarvél og tilsláttarvél,
þá er auðvitað að fleiri véla tegunda
þarfnast, og má þar til nefna fiski-
flatningsvél og fiskþyottsvél, og
sjálfsagt margar fleiri.
H. J.
Listamannastyrkur.
Styrknum úr landssjóði til skálda
og listamanna hefir nú verið úthlut-
að á þann hátt sem hér segir:
Einar H. Kvaran 2400 kr.
Einar Jónsson 1500
Guðm. Guðmundsson 1500 —
Jóh. Sigurjónsson 1000 —
Guðm. Friðjónsson 1000 —
Brynj. Pórðarson 1000 —
Valdimar Briem 800 —
Rikharður Jónsson 800 —
Jakob Thorarensen 600 —
Nína myndhöggvari 600 —
Arngr. Ólafsson málari 600 —
Ásgr. Jónsson 500 —
Kjarval málari 500 —
Sig. Heiðdal 500 —
Hjálmar myndskeri 400 —
Ben. P. Bröndal 300 —
Samtíningur.
F*að er mælt að Wilson forseti muni
hafa farið frá París 15. febr. og halda
rakleitt heim til Bandaríkjanna. Taft,
fyrv. forseti mun skipa sæti hans á
friðarfundinum. — Búist er við að
bráðabirgða-friðarsamningar verði
undirskrifaðir í öndverðum júnímán-
uði.
F*að er sagt, að Wilhjálmur fyr-
verandi keisari vinni frá morgni til
kvelds að því að saga brenni í eld-
inn í Amerongenhöll. Er hann hljóð-
ur og talar ekki orð við neinn mann.
Keisarafrúin hefir óskað eftir því að
vera flutt heim til Potsdam og fá að
deyja þar.
Hergagnaforðabúr Pjóðverja hjá
Zuatrecht, sem er milli Ghent og
Brússel, sprakk í ioft upp 22. jan.
Misti þar fjöldi manns lífið og flýði
fólk undan í allar áttir. Járnbrautin
milli Ghent og Brússel ónýttist á
stóru svæði.
Kosning til þjóðfundarins er ný-
afstaðin í Pýskalandi. Kosnir voru
421 fulltrúi. Par af hlutu meirihluta
— jafnaðarmenn 164 sæti, demo-
kratar 64, óháðir jafnaðarmenn 24,
aljDýðuflokkurinn 23, afturhaldsflokk-
urinn 34 og miðflokkurinn 88. Pað
er búist við að tveir fyrstu flokk-
arnir muni slá sér saman og verða
í meirihluta.
Næstu viku
verður kaffi og export selt
á 1,10. Púðursykur 0,63 pr.
Ví kg. Sætsaft 0,65 pelinn.
versl. Bergen.
Nýkomið:
Stúfasirz
og
Laukur.
S. A. Blöndal.
Silkisokkar
bómullarsokkar hvítir og
hárnet margir litir ódýrast í
versl. Bergen.
Súputeningar
á aðeins 5 aura
í verslun
Sig. Kristjánssonar.
Kartöflur
væntanlegar með »Sterling.« Pantið
þær í tíma.
Sig. Jakobsson.
Kaupið Rauðmaga
með því sparast viðbit.
Hann fæst í
versl. Bergen.
Manchettskyrtur
hvítar og mislitar
Flibbar og slaufur
fást í versluninqi
Aalesund.
Góð vasaúr
með 2ja ára ábyrgð fást hjá
Stefáni Kristjánssyni.
Haframél
er ódýrast í versluninni
Aalesund.
Sætsaft og Limonaði
nýkomið
Stefán Kristjánsson.
Útlán bóka
í Lestrarfélagi Siglufjarðar getur ekki
farið fram á morgun, vegna hátíðar
halds í barnaskólanum.
tiannes Jónasson.
Vanur mótoristi getur
fengið pláss á mótorbát í
sumar. Hátt kaup! Upp-
lýsingar gefur
Sig. Finnbogason.
Ofnsverta og Blámi
fæst best í verslun
Sig. Kristjánssonar.