Fram - 21.06.1919, Side 2
106
FRAM
Nr. 26
Leiðbeining fyrir kjósendur
í Sigiufirði við kosning á 5 inönnum til niðurjöfnunarnefndar og 2 til
endurskoðunar bæjarreikninganna 23. júní 1919.
Um þetta et'ni gilda lög, undirskrifuð af konungi 30 október 1913,
og eru hér prentuð helstu atriði þeirra laga.
Kosningar til bæjarstjórnar í kaupstöðum skulu vera leynilegar og
hlutt'allskosningar, og skulu þær fara fram á þann hátt, er segir í eftir-
farandi greinuni.
Kosningin fer fratn eftir listum, sem á eru skráð nöfn þeirra manna,
er stungið er upp á til fulltrúa. Listar þessir skulu afhentir oddvita kjörstjórn-
arinnar íyrir hádegi tveim sólarhringum á undan kosningu, og skulu und-
ir hvern lista hafa ritað eigi færri en 5 og ekki fleiri en 15 kjósendur
sem meðmælendur; skulu þeir greina nöfn sín, stöðu sína og bústað.
Giidur er iisti, þótt áhonum standi færri nöfn en kjósa á fulltrúa;
en staudi á honum fleiri nöfn, er hann ógildur.
Kjörstjórnin lætur gjöra kjörseðla. Á kjörseðli skulu allir gíldir listar
skráðir þannig, að öðrumegin á hæfilega stóru pappírsblaði séu prentuð
út af fyrir sig, hvert niður af öðru f óbreyttri röð, nöfn fulltrúaefnanna á
hverjum lista, hver nafnaröð undir sínum bókstaf, og skulu vera feit og
skýr langstrik til aðgreiningar inilli listanna, Listarnir skulu skráðir á blað-
ið, hver við annars hlið, eftir stafrófsröð bókstafa sinna, og nöfn full-
trúaefnanna á hverjum lista aðgreind með þverstrikum; hæfilegt bil fyrir
skrifaðan tölustaf skal vera fyrir framan hvert nafn innan þessa striks,
sem takmarkar listann.
Kosningin fer þannig fram, að þá er kjósandi hefir fengið kjörseðil
afhentan af kjörstjórn, fer kjósandi með hann inn í kjörklefann að borði því,
er þar stendur, og gjörir þar kross við bóksíaf þess lista á, kjörseðlinum,
er hann vill atkvæði gefa. Vilji hann breyta nafnaröðinni á lista þeim er
hann velur, skal hann setja tölustafinn 1 fyrir framan það natn, sem
hann vill hafa efst, tcluna 2 fyrir framan það nafn, er hann vill láta vera
annað í röðinni, töluna 3 við það nafn sem hann vill láta vera hið þriðja,
o, s. frv. Sé eitthvert nafn, er þann getur eigi felt sig við, á lista þeim;
er hann kýs, má hann strika það út, og telst það þá eigi með við sam-
talning atkvæðanna. Krossinn, tölustafina eða útstrikunina skal kjósandi
gjöra með blýanti, sem kjörstjórnin hefir í klefanum. Síðan brýtur kjós-
andi seðilinn saman í sömu brot sem hann var í, er hann tók við hon-
um; gengur hann síðan irin að kjörþorðinu, og stingur sjálfur seðlinuin
þannig samanbrotnum í atkvæðakassann, gegnum rifu á lokinu.
Enginn getur neytt kosningarréttar nema hann sé sjálfur á kjörfundi
og greiði athvæði.
Ef kjörseðill rangmerkist eða skemmist getur kjósandi fengið hjá
kjörstjórninni nýjan seðil í stað hins skemda seðils,
Kosningargjörðin má ekki standa skemur en 3 tíma.
Enginn úr kjörstjórninni né nokkur sá, sem staddur er í kosningar-
stofunni, niá meðan á atkvæðagreiðslunni stendur, gefa nokkrum kjósanda
ráð, tilvísun eða áminningu um það, hvaða lista hann skuli atkvæði gefa.
Brot varðar fangelsi eða sekturn, þó eigi undir 20 krónum.
Talning atkvæða fer fram í heyranda hljóði strax og kosningarat-
höt’ninni er lokið.
Kjörstjórnin.
Fundurinn skorar á ráðuneytið
að leggja fram á þessu þingi frv.
til laga, er heimili bæjarstjórnum
og sveitarstj. að setja ákvæði um
bann gegn sölu suðuvínanda, hár-
vatns og höfuðvatns nema gegn
seðlum, er bæjarstjórnir og sveitar-
stjórnir gefi út í samráði við ráðu-
neytið, Með samþykki ráðuneytis-
ins megi bæjarstjórnir og sveitar-
stjórnir banna sölu fleiri vökva á
sama hátt.
Tillagan samþykt í einu hljóði.
Fleira ekki tekið fyrir.
G Hatinesson.
Sig. Kristjánsson.
,Erl. símfregnir
Khöfn 15.-6. Sigurður póstm.
Briem verður fulltrúi íslands á póst-
málaþingi Norðurlanda. — Hafnar-
vinnuverkföll öðru hvoru.
London 16.-6. Flogið á Vickers-
flugvél á rúmum 16 tímum fráNew-
foundland til Clifton á írlandi.
18.-6. Regar fulltrúar Þjóðv. voru
að fara frá París var ráðist á lög-
gæsluliðið, sem átti að verja þá.
Berlín 19.-6. Stjórnin athugar svar
Bandamanna og friðarfulltrúarnir
ræða það á Iöngum fundi. Stjórnin
álítur friðarskilmálana óþolandi, en
þó virðast flokkarnir klofnir.
17. júní.
Dagsins var minst hér á þann
hátt, að veifur voru dregnar á stöng
og samkoma haldin í barnaskólan-
um. Byrjaði hún á því, að fjórradd-
aður söngflokkur söng nokkur lög,
en síðan mintist Guðm. læknir Hall-
grímsson Jóns Sigurðssonar og að
því búnu voru fáein lög sungin aft-
ur. Um kvöldið var dansleikur á
sama stað og stóð hann eitthvað
fram á rióttina. Samkoman fór hið
besta fram, en það óhapp vildi til
um morguninn er skjóta skyldi fall-
byssuskotum, að fallbyssan sprakk
í þúsund mola við annað skotið en
ekkert slys hlaust þó af þessu. Ræða
Guðm. læknis var á þessa leið:
Háttvirta samkoma!
Pað virðist vera einhver dómur á
mér að hafi eg ætlað mér að segja
eitthvað opinberlega, þá er eg æf-
'inlega kvefaður og hás eins og hrafn.
Eg biðst því velvirðingarxáheyrenda
minna, enda þótt þetta sé mér ekki
sjálfrátt.
Stjórn ungmennafélagsins hefir
beðio mig að minnast Jóns Sig-
urðssonar forseta hér á afmælisdegi
hans í dag.
Eg vildi ekki skorast undan að
gjöra 'þetta þó að eg vissi það full-
komlega, að það er orðið vanda-
verk að halda minningarræðu fyrir
þessu stórmenni okkar — svo mik-
ið er búið að tala um hann á ýms-
um stöðum á ýmsum tímum. Pað
verður því hætt við að allt verði
ekki sem fullkomlegast, sem á borð
er borið um hann og honum til
heiðurs.
Pað má þó telja sérstaka ástæðu
til að minnast Jóns Sigurðssonar
einmitt í dag. Petta er fyrsti fæð-
ingardagur hans, seni runnið hefir
síðan ísland fékk fullveldi sitt og
varð siálfsfætt ríki. Með öðrum orð-
um, síoan Iokið var því mikla verki,
sem hann lagði svo traustan og
fagran grundvöll undir. Pað veit
enginn hvar vér stæðum í baráttu
vorri um sjálfstæði vort og þjóð-
erni vort, ef þessi inaður hefði ekki
risið upp meðal vor. En eg býst
við að margir muni þykjast vissú
um, að vér værum ekki komnir það
áleiðis, sem þó er orðið, ef hans
hefði ekki notið við. Vér minnumst
Jóns Sigurðssonar í dag og þökk-
um honum fyrir að hann svo að
kalla lyfti þessu landi upp á herð-
ar sínar og hreif samtíðarmenn sína
til dáða og sjálfsálits.
Petta gat hann og þetta gjörði
hann, af því að hann átti íiöfð-
ingslund
Pað mundi ef til vill vera orð í
tíma talað, að setja mörk um það
hugtak sem vér kQllum höfðingja,
og það sem því fylgir. íslenskur
almenningur hefir um langan tíma
haft orðið »höfðingi« frekast að ill-
yrði. Pað er oft notað með úlfúð
og undirhyggju. Petta er mjög illa
farið. Vér verðum að gjöra oss Ijóst
og hugsa um það alvarlega ogær-
lega hve ómetanlegt gagn okkur er
að því að eiga sanna höfðingja á
meðal vor. Á þessum afskaplega
alvarlegu tímum, sem ganga nú yf-
ir jörðina og á þeim þýðingarmiklu
tímamótum sem nú eru hjá oss ís-
lendingum, þar sem hvergi sér milli
landa, og vér vitum eiginlega ekk-
ert hvert stefnir, ættum vér að íhuga
það hvað einn sannur höfðingi er
sinni þjóð. Pá er vonlegt að hætt
verði að hafa þetta orð í flymting-
um!
Færi maður að grenslast eftirþví
í hverju sönn höfðingslund eða höfð-
ingsháttsemi væri falin þá mundi
það krefjast langrar rannsóknar. En
einmitt þegar talað erum þann mann,
sem vér minnumst í dag, þá koma
allai; skoðanir hugtaksins höfðingi
af sjálfu sér — því að þessi mað-
ur — Jón Sigurðsson forseti — átti
höfðingslund og höfðingsháttsemi í
fari sínu. Hann var borinn með
þessum eiginleikum, og hann óx
upp og varð fulltíðamaður, stór og
fagur. Hann var höfðingi í þess
orðsfegursta skilningi og allir skyldu
líia með lotningu til þess höfðings-
titils, sem öll íslenska þjóðin hefir
gefið honum.
Einn sá mesti listamaður, sem fs-
land ennþá hefir alið hefirgjört sér
hugmynd um Jón Sigurðsson. Pað
er Einar Jónsson myndahöggvari.
Hans hugmynd sfendur greypt í
bronze fyrir framan Stjórnarráðshús-
ið í Reykjavík. Einar Jónsson hefir
auðsjáanlega litið sömu augum á
Forsetann, þegar hann mótaði líkn-
eski hans. eins og eg hef leitast við
að láta koma fram i ræðu minni
núna.
Hann sá höfðingjann og mótaði
líkneski hans.
Jón Sigurðsson var höfðingi af
því að hann vildi gjöra vel og af
því að hann var svo vitur að hann
kunni að gjöra vel. Qg ennfremur
af því að hann átti þetta — hann
þekkti sitt eigið manngildi!
Pegar vér nú minnumst Jóns Sig-
urðssonar í dag og þökkum hon-
um lífstarf hans þá mættum vér
einnig láta í Ijósi þá hjartans ósk
að fsland mætti bera gæfu til, að
hans höfðingsandi rísi upp á ný og
hefði handleiðslu á högum vorum.
Jón Sigurðsson, hærðist snemma
og var hálft í hvoru að uppnefni
kallaður Jón Hvíti. Petta minnir á
Baldur — þann hvíta ás. —
Pegar vér æskjum þess að andi
Jóns forseta mætti rísa upp á ný
hjá oss, þá óskum vér fósturjörð
vorri að aðkoman mætti verða lík
því sem sagt var í fornöld um jörð-
ina víð afturkomu Baldurs — hiris
hvíta áss »frá Heljar« — eins og
þar stendur — þá er jörðin »græn
og fögur; vaxa þá akrar ósánir.«
Og þá »setjast allir samt og talast
við, og minnast á rúnar sínar.«
Furidur
í Kaupmanna og Verslunarmatina-
félagi Siglufjarðar á mánudaginn
(23. þ.m.) kl. 8 e. h. stundvíslega
í norska spítalanum. — Félagsmenn
eru ámintir um að mæta.
Stjórnin.
Með þessari ósk viljum vér minn-
ast Jóns Sigurðssonar og honum til
heiðurs vil eg biðja ykkur háttvirtu
áheyrendur að standa upp.
Fyrsti bæjarstjórnarfundur
Sigl ufj arðar kau pstaðar.
Eins oggetið var í síðasta blaði var fyrsti
fundur bæjarstjórnarinnar settur og hald-
inn síðastliðinn laugardag.
Bauð oddviti bæjarfulltrúana velkomna
og lýsti yfir þeirri ósk sinni, að þeir mættu
í sátt og sameiningu vinna að því, að efla
framfarir þessa bæjarfélags og allir leggj-
ast á eiít um framgang þeirra mála, sem
bæjarstjórniri fengi nú til meðferðar. Kvaðst
hann vona, að þeim mundi heppnast að
stíga rétt hin fyrstu sporin á sjálfstjórnar-
braut bæjarins, því að þessi spor, sem nú
stigi þeir, mundu að mikluleyti marka
framsóknarbaráttu Siglufjarðar um iangan
aldur,
Quðm. T. Hallgrímsson héruðslæknir,
þakkaði fyrir hönd bæjarfultrúanna, lilýleg
orð og góðar óskir oddvita, og bað hann
heilann setjastí oddvitasess bæjarstjórnar
Siglufjarðar. Oskaði hann, að oddviti mætti
í þeim sessi vinna að mörgum málutn sér
ti^ heiðurs og bygðarlaginu til blessunar,
og lýsti yfir því fyrir hönd bæjarfulltrú-
anna, að þeir mundu allir vilja setjast að
einu verki um það, að styðja hinn nýkomna
bæjarstjóra'að góðu starfi og í sameiningu
hver við annan leysa svo gott verk af hendi,
sem þeim væri frekast unt, til’ heilla og
frantfara þessu bæjarfélagi. Bað ræðumað-
ur fulltrúana að standa upp og þakka með
því ávarp oddvita, og var svo gert.
Þá voru fundarmál þau, er fyrir lágu, tekin
fyrir og birtist hér útdráttur úr fundargerð-
inni:
I. Þessar nefndir voru kosnar:
/. Fjárhagsnefnd:
Sig. Kristjánsson, Friðb. Níelsson, B.
Forsteinsson.
2. Fasteignanefnd:
Ouðm. T. Hallgrímsson, Oddviti, Friðb.
Níelsson.
3 .Vatnsveitu ografmagnsnefn:
Friðb. Níelsson Sig. Kristjánsson, Odd-
viti, Bjarni Þorsteinsson, Maron Sölva-
son.
4. Veganefnd:
Oddviti, Flóvent Jóhannsson, Björn
Jónasson.
5. Brunamá/anefnd:
Flóvent Jóhannsson, Oddviti, Friðb.
Níelsson.
6. Eliistyrktaksjóðsnefnd:
Bjarni Þorsteinsson, Friðb. Níelsson,
Helgi Hafliðason.
7. Fátækranefnd:
Helgi Hafliðason, Friðb. Níelsson,
Sig. Kristjánsson.
8. Byggingarnefnd:
Oddviti, sjálfkjörinn, Flóvent Jóhannsson
Helgi^ Hafliðason, Albert Jónsson
Jón Olafsson. Báðir hinir síðast nefndu
utan bæjarstjóruar.