Fram - 21.06.1919, Page 3
Nr. 26
FRAM
107
\
9. Hafnarnefnd:
Sig. Kristjánsson, Ouðm. T. Hallgríms-
son, Oddviti, Jón Ouðmundsson,
O. Tynes. Tveir þeir síðustu utan kæj-
arstjórnar.
10. Skólanefnd:
B. Þorsteinsson, Sig. Kristjánsson, S.
A. Blöndal (utan bæjarsfjórnar), Friðb.
Níelsson, Helgi Hafliðason.
11. Kjörstjórn:
Oddviti. sjálfkj. B. Þ., Sig. Kristj.
12. Skattanefnd:
Oddviti sjálfkj., Sig. Kristj., F. N.
13. Heilbrigðlsnefnd:
Oddviti og héraðslæknir sjálfkj., Flóvent
jóhannsson, Stefán Sveinsson.
14. Sóttvarnarnefnd:
F. N., Oddviti og héraðslæknir.
II. Slökkviliðstjóri
var kosinn Jón Ouðmundssou.
III. Naitðsyn reglna um sölu
á brensluvínanda o. fl.
Kosnir ásamt Oddvita til að semja reglur
um sölu á slíkum teg. B. Þ. og G,^T. H.
IV. Lögregluþjónn,Aðst.lögþ.,
Næturvörður.
Samþykt var að sameina lögregluþjóns
og hafnarvarðarstöðuna og launa með 1600
kr. úr bæjarsjóði og 400 úr hafnarsjóði,
Samjsykt að fela oddvita að ráða aðstoð-
arlögregluþjón og næturvörð og auglýsa
lögregluþjónsstöðuna.
V.
Oddvita var falið að fá mann til að vaka
á nóttunni og gæta aðkomu skipa, uns
næturvörður yrði kosinn.
Utan dagskrár var oddvita falið að sjá
um útvegun einkennismerkja, ef til kæmi
að hér yrði stofnaður sérstakur borgar-
eða alþýðuvörður, sömuleiðis að sjá um
útvegun einkenningsbúninga fyrir lögreglu-
þjóp aðst.lög.þj. og næturvörð.
Yms fleiri mái voru á dagskrá, sem enga
þýðingu hefir að birta nokkuð um að svo
stöddu.
Vikan.
Tíðin: Kuldaveðrátta alla þessaviku
þokur tíðar og norðanátt ríkjandi, hefir
þó ekki fest hér snjó. Hefur verið kalt
um alt land, einkum á Suður- og Vestur-
landi. Fent niður í mið fjöll syðra,
og á Ströndum varð alhvítt niður að sjö
fyrripart vikunnan
19. júní. Kvenréttindadaginn, fór
kvenfélagið »Voh« í »lautartúr,« var drukk-
ið kaffi og skemt sér við söng og leiki
suður og upp í Hafnarfjallinu. Buðu kon-
nrnar nokkrum gestum með sér, og varð
þetta talsverður leiðangur.
Stefán alþ.m. Stefánsson frá
Fagraskógi kom hingað 18. þ. m. Hélt
hann þingmálafund þá um kvöldið, og er
þess fundar nánar getið á öðrum stað í
blaðinu. Stefáu fór héðan strax að lokn-
um fundi, og er kominn á leið suður á
þing.
|
4 fiskigufuskip, 2 netjakúttarar
og flutningsgufuskip með 15000 tuunur
og salt er væntanlegt til O. Tynes kring-
um 1. júlí.
B T. S. »Kóra« leggur upp frá
Bergen til Islands 25. þ. m. og fer síðan
fastákveðnar ferðir frá Bergen fimtu hverja
viku.
E.S. Siglufjord* varð fast í ís
á heimleið frá Kings Bay á Spitzbergen
og laskaðist svo, að það varð að fá við-
gerð í Tromsö. Skipið er væntanlegt hing-
að innan skamms með 2000 staura og ánn-
að byggingarefni til »Siglufjord Sildesalt-
eri & Anlægs Co.«
Meiri hluti norska fiskiflotans verður
gerður út til veiða hér við land en á að
salta síld úti á hafi og engra hafna að
leita hér.
Stldveiðin á Helgolandi í Noregi hefir
mishepnast aðallega vegna þess, að örð-.
ugt hefir verið að koma stldinni út, enda
var luin mjög mögur.
Suðusprittið. Lögreglustjórinn hef-
ur beitt sér fyrir því, að allir þeir setn
leyfi hafa til verslunar hérí Siglttfirði, hafa
með undirskriftum skttldbundið sig til þess
og sektir viðlagðar, að selja ekki suðu-
spíritus, hárvötn ogfleiri vökva nema gegn
seðlum, sem bæjarstjórn úthluti. Hefur
nokkrum orðið bilt við ráðstöfun þessa,
því næstu daga, og meðan þetta ekki komst
í gildi, var suðuspritt auglýst á götum bæj-
arins með krónu afslætti á potti, frá þvi
sem alment verið hafði. Vonandi tekst
lögreglustjóra með þessu að stemma stigu
fyrir því að kogesinn verði drukkinn eins
og mann grttnar að hafi verið gjört, og
á hann þakkir skildar fyrir uppástunguna,
því samkvæmt lögurn vorum er það ekki
skaðvænt að staupa sig á kogesnum, og
ekki hægt að koma í veg fyrir að svo sé
gjört þó á hinn bóginn löggjafar vorir
hafi af einskærri föðurlandsást og náung-
ans kærleika lagt þvert bann fyrir, lagt
við tugthús, og missir æru og eigna, ef
einhver vildi gleðja sál stna og skerpa vit-
ið, með glasi af fínu þrúguvíni.
Þetta er nú rotið!
Talsíminn. Nýlega hefir símastjóri
sent umburðarbréf til símastöðvanna þar
sem hann tilkynnir að nú hafi allarstærri
stöðvarnar vissan ákveðinn tíma að deg-
inurn til samtala við Reykjavík.
Tíminn sem Siglufjörður hefur við Rvík
á hverjum degi er síðasti fjórðungur hverr-
ar klukkustundar allan daginn, 10,45—11,
11,45—12 o. s. frv. og mun a öðrum tím-
um ekki til neins að biðja um samband
þangað.
Skipaferðir M.k. Helgi kom frá
Rvík laugardaginn var með salt til Þorst.
Jónssonar. Skonortan Mevenklint
fór héðan á miðvikudag með 522 föt af
lýsi til Englands. — Sk. Patriot kom
þann 18. frá Noregi með tunnur og salt
til Knút Húse. — Esther kom frá Rvik
á fimtudag á leið til Akureyrar, fer suður
aftur í dag. — 5 mótorkúttarar frá ísafirði
og M.k. Annafrá Haugesund Noregi hafa
komið hér í vikunni og ætla skip þessi
að stunda héðan fiski með línu.
Sterling er væntanleg hingað í fyrra
málið.
Innlendar fréttir.
Rvík 20.-6. Stjórnin kemur með
írumv. um stofnun hæstaiéttar hér.
Sigurjón Pétursson missir Qrett-
isnaut í Íslandsglímu við Tryggva
Qunnarsson þann 17. þ. m.
Ásgeir Pétursson leigir Frances-
hyde með síldarfarm til Svíþjóðar.
Útför Ólafs ritstj. Björnssonar
fór fram með mikilli viðhöfn.
Wilson Green bankastj. frá Fleet-
wood er hér staddur.
Bifreiðaverkfall hefir verið hér
undanfarna daga sökum textahá-
marks stjórnarinnar, en nú er akst-
ur byrjaður aftur.
Kvenna- og landsspitalasjóðsdag-
urinn haldinn hátíðlegur hér í gær,
Áííir
þeir er hafa beðið uin reiti í kirkju-
garðinum eru ámintir um að afinarka
þá. Lykillinn að sálarhliði kirkju-
garðsins er í húsi Skarphéðins.
Sóknarnefndin.
Leiðrétting.
í síðasta tbl. af «Fram« misprent-
aðist nafnið, undir þakkarávarpi tiF
Guðm. T. Hallgrímssonar læknis,
Helgi Bjöi nsson, átti að vera Helgi
Pétursson.
Fjármark
mitt er ómarkað hægra og sylt, biti
fr. vinstra, Brennimark: G. T. H.
Guðm. T. Hallgrímsson.
Þær stúlkur,
sem vilja ráða sig til síldarsöltun-
ar á þessu sumri hjá
J. Iversen,
við stöðvar T. Bakkevig hér á
Siglufirði fá:
1.30 fyrir að salta hverja tunnu.
10,00 vikupeninga, frítt húsnæði
og brenni.
300 kr. ábyrgst sem lágmark hverri
stúlku.
Komið og talið við
J. Iversen.
Nokkra duglega
háseta
vantar mig til síldveiða í sumar.
Óvanalega hátt kaup í boði.
Anton Jónsson.
Nýkomið:
Hvítt léreft vænt og ódýrt. Flónel 3 teg. hver annari
betri. Drengj’afataefni. Heklugarn o. fl. í
verslun Sig. Kristjánssonar.
Sótarastarfið
í Siglufjarðarkaupstað. Umsóknir ásamt
launakröfum sendist lögreglustjóra Siglufjarðar
fyrir 1. ágúst n. k.
Lögreglustjórinn 16. júní 1919.
G. Hannesson.