Fram


Fram - 17.01.1920, Side 1

Fram - 17.01.1920, Side 1
^vít±±±±±±±±±±±*oZ Nýkomið: Gardinutau, léreft, flónel og silki. Páll S. Dalmar. Qfí&fapppfafippfipfí *±te±±±±±±±sk±±±& FRAM\ kemurút 52sinnum áári. Verð 4 kr. Gjalddagi l.júlí. Uppsögn sé skrif- leg, og korni fyrir áraniót, því aðeins gild að hlutaðeigandi sé skuldtaus |& ú'i við blaðið. ff' ú t3f?flf?fZf?f3f3f1f3f3f7f3fK IV. ár. Siglufirði 17. jan. 1920. 3. blað. Bæjarstjórnarkosningin Nokkur orð til athugunar. Með lögum frá 30. nóvember 1918 var Siglufjarðarverslunarstaður tek- inn í tölu kaupstaða landsins. Sam- kvæmt þessum lögum voru svo hinir fyrstu bæjarfulltrúar kosnir 6. júni s. 1. ár eins og lögin ákváðu, 6 að tölu. í upphafi er því gert ráð fyrirað bæjarfélaginu nægi 6 fulltrúar auk lögreglustjóra, en reynslan, sem er ólýgnust, hefir orðið sú, að þó 6. júní væru kosnir þeir menn, sem reyndir voru að skýrleik og dugn- aði, eru þeir samt of fáir, og því er nú svo komið að sótt hefurver- ið um samþykki stjórnarráðsins til að bæta tveimur fulltrúum við og fer kosning þeirra fram í dag. Um tvo lista verður kosið A-lista og B-lista og fylgja öðrum þeirra að eins sérstakir menn. A-listinn er ekki flokkslisti því hann er borinn fram og studdur af öllum stéttum bæjarins, ekki með einhliða flokkshagsmuni fyrir aug- um, heldur hina sameiginlegu hug- sjón alira bæjarbúa æðri sem lægri og allra hvar sem er, þá að gera sveitina sína sem lífvænlegasta og ánægjulegasta fyrir alla. Pað er gæfa þessa bæjarfélags sem hvers ann- ars að halda sem lengst svo mikilli þjóðfélagseiningu og sanngirni gagn- vart hver öðrum, að hið opinbera fulltrúaval megi ætíð gerast með það eitt fyrir augum, hver líklegast- ur sé til að vinna með stöðu sinni mest atment gagn og hverjum best megi trúa til að taka allar ástæður hver sem í hlut á, til greina, með fulíu drenglyndi og sanngirni. Á B-listanum, sem er annar list- inn við þessar kosningar eru þessi fulltrúaefni: Hannes Jónasson kaup- maður og frú Guðrún Björnsdóttir. Á listi þessi að vera flokkslisti þ.e. listi verkamanna eða þess hluta þeirra, sem telja bæði siálfum sér og öðrum trú um, að við slík tæki- færi sem þetta sé það lífsspursmál fyrir þá og þeirra niðja að bæjar- búar séu andstæðir hver öðruin og ósammála. Að B-listinn er fram- kominn væri skiljanlegt frá flokks- sjónarmiði verkamanna ef á honum stæðu þeirra stéttar og starfsbræð- ur, en fjærri fer að svo sé. Hannes er kaupmaður bæði í orði og verki, enda í Kaupniannafélaginu og á fundum hinn eindrægnasti um stefnu þess og málefni og áberandi félags- maður, auk þess er hann fastráð- ið árshjú hjá Goos stórkaupmanni og verður því sem hver annarvand- aður og trúr þjónn í fjarveru hús- bónda síns að koma fram gagnvart verkamönnum sem stórkaupmaður- inn sjálfur í öllu því sem að hon- um snýr sem kaupmanni eða vinnu- veitanda. Frú Guðrún er, á bænda vísu, dóttir eins af »höfðingjunum« nú kona Þormóðs Eyólfssonar kaup- manns og honum að allra sögn mjög' samrýnd og sammála, en Þor- móður hefir aldrei verið annað en kaupmaður í húð og hár. Andinn má því hafa komið yfir frúna mjög nýlega sé hún nú orðin heilluð af verkamannahugsjónum. Nei! Skoði verkamenn kaupmenn og aðra vinnuveitendur bæjar- ins, þar á meðal Goos — Hannes sem pólítískan flokk andstæðan sér, — sem til ailrar hamingu er enn þá bara ímyndun — þá ættu þeir að sjá að öll fulltrúaefnin eru úr þeim flokki, öll af sania sauða- húsinu. þeir sem kjósa A-listann í dag eiga því láni að fagna að styðja með því tvo af okkar allra nýtustu borgurum til opinberra starfa. Jón Guðmundsson er til margra ára jafnt af verkamönnum sem öðrum að góðu einu reyndur í stjórn þessa sveitarfélags; er margs að minnast frá þeim tíma svo sem hans sérstöku gætni í fjármálum sveitar- innar, einnigframsýni hans ogáhuga ‘í Ijósamáiinu, sem allur bærinn geldur nú fyrir að fylgja ekki betur á sínum tíma o. fi. Ole Tynes er tiitölulega ungur borgari hér en þó þekkja allir hans framúrskarandi starfsáhuga, dugnað og ósérplægni hvort setn hann vinn- ur fyrir sig eða aðra; opinber starfs- maður bæjarins he|ir Tynes einnig verið nú um nokkurn tíma og kom- ið þar mjög vel fram fyrir bæjar- ins hönd. Að þekkingu stendur hann því nær ýmsum stærri málum bæjarins en þeir sem aldrei hafa komið því nálægt. Tynes var til skamms tíma fátækur verkamaður og því myndi enginn betur þekkja eða skilja almenn verkamannakjör og kröfur en hann. Hannes Jónasson þjónar nú ekki tveimur herrum sem þó er talið flestum nóg, heldur fjórutn, þ.e. stór- kaupmanninum húsbónda sínum, Kaupmannafélaginu, Verkamannafé- laginu ogkaupmanninum sjálfum sér. Sýnist hann þvf hafa nóg þó ekki sé á hann bætt, hversu duglegur og trúr sem hann kann að vera, en um það segir nú sitt hver. Frú Guðrún er óreynd, hefur aidrei að sveitar eða bæjarmáium komið á æfi sinni, en hætt er við að reynsl- an yrði hér sem annarstaðar þar sem konur hafa komist í sveitar eða bæjarstjórn, að hún hefði harla lítil áhrif og íengi fljótt nóg af dýrðinni. Pið konur, sem hafið kosningar- rétt, látið ekki blekkja Jykkur því sannleikurinn er og hanrt sann- anlegur hvenær sein þið viljið, að Guðrúnu er ekki ætlað að hljóta hnossið þó hún sé á lista með Hannesi til þess að tryggja kosn- ingu hans. Notið ykkar ungu pólí- tísku réttindi með gætni en lánið þau ekki út sem ómerkiiega hluti. Enginn karlmaður óskar nú eftir konu inn í bæjarstjórnina, þvert á móti, og munu þeir því flestir eða allir stryka yfrir nafn Guðrúnar svo húVi geti als ekki komið til greina. Annars hvað sem menn segja um hæfilegleika Hannesar til bæjar- stjórnar er hálf óviðfeldið að hugsa sér hann sem fulltrúa bæjarins, mann sem vitanl. er öðrum háður sem hjú og ekki sjálfráður að sínum tíma né verkum. Hver ætti fyrsta veðrétt í honum, bærinn eða Goos, ef báðir þyrftu hans á samatíma? Það er vitanl. að Blomkvist gamli hefir snúið Hannesi sem hverju öðru hjúi enda haft rétt ti! þess. Heiðruðu kjósendur sem allir viljið bænum það besta, athugið nú rólega og hlutdrægnislaust hver þessara fjögra fulltrúaefna hvort frú Guðrún með vinnumanni, stór- kaupm. eða Jón Guðmundsson og Tynes eru iíklegri til áræðis og framkvæmda í t. d. hinum stærri inálum bæjarins, svo sem hafnar- máli, bryggjumáli, ljósamáli, spít- alamáli, húsbyggingamáli, vega- og holræsagjörð o. fl. o. fl. Gætið þess að eins og það er skylda fulltrúanna, hver sein þá kýs, að vinna fyrir alt bæjarfélagið hlut- drægnislaust, eins er það skylda kjósendanna að veija fulltrúana eingöngu nieð tilliti til starfshæfi- legleika og starfsaðstöðu. Kjósið því allir A-listann. Siglfirskur kjósandi. Liðna árið. —oo— Niðurl. Þess verður að geta, að fyrir forgöngu Flugfjelags íslatids var fengin hingað í sumar flugvje! og danskur flugmaður, Capt. Faber, til að sýna flug. Gekk í miklu stíma- braki að fá vjelina flutta hing- að með skipum, en tókst þó að lokum. Hóf þessi fyrsta flugvjei, er hjer hefir sjest, sig í fyrsta sinni til flngs 3. sept. síðari hluta dags. Var svo Faber og vjelin á flugi næstu daga yíir Reykjavík og grend- inni, skrapp austur í Árnessýslu og til Vestmannaeyja. Verður þess von- andi skamt að bíða að við njótum þessara hraðfleygu samgöngutækja. Mér er ókunnugt um samgöngu- bætur á landi, en eitthvað hefir ver- ið unnið að vegnm og flutninga- brautum, þó minna hafi verið en áður. Hækkun verkalauna eða verð- fall peninganna rýrir notagiidi fjár- veitinganna til þeirra geypilega móts við það, er áður var. Eins og áður er getið hefir all- mikið losnað um verslunarböndin. Innflutningsnefndin hætti störfum snemma á árinu og Útflutnings- nefndin hefir engiti afskifti haft af öðru en útflutningi hrossa. Síðari hluta ársins mun Lands- stjórnin aðeins hafa haft einokun á kolum og salti, en þó veitt undan- þágur fyrir hvorttveggja. Eigi að síður hefir verslunin átt við ýmsa örðugleika að stríða á marga lund. Stórfeld verkföll erlendis hafa gert henni hinn mesta óleik og vand- sjeð er að stórum hafi betra verið, hvað útlendan varning áhrærir, en á styrjaldar árunum þegar á alt er litið þótt meira hafa verið olnboga- rými. Sumar vörutegundir hafa veiið af skornum skamti á stundum, t. d. tóbak og sykur, og verðiag á út- lendri vöru hefir verið óbreytí eða hærra, nema á salti og kolum. íslenskar afuiðir hefa verið í ali- háu vejði og þó líkiega einkuin í innanl.viðskiftum. Uil og mör voru í svipuðu verði og árið áður, en gærur, kjöt og fiskur í miklu hærra

x

Fram

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fram
https://timarit.is/publication/34

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.