Fram


Fram - 25.08.1920, Qupperneq 2

Fram - 25.08.1920, Qupperneq 2
132 FRAM Nr. 34 Framanrituð grein stóð nylega í út- lendu blaði og er alleinkennileg og eftirtektarverð, enda þótt hún sé rituð í hálfgerðu spaugi. Að vísu verður hún væntanlega ekki heim- færð upp á ástandið hér á landi í þessum efnum enn sem komið er — og þó er farið að verða full- strembið að lesa alt geipið um knattsparkið og hástökkin og reip- dráttinn og kapphlaupin og »metin« í Reykjavíkur dagblöðunum. Tunnubotnar og tunnutappar. Pantanir afgreiddar á síldartunnum, tunnuboínuni, tunnustðfum, tunnutöppum og tunnugjörðum frá verksmiðju okkar. Fyrsia flokks efrti og smíði. Biðjið um tilboð. Símnefni: Espholin Co., Talsími »Enco< Akureyri 15. Alþjóða- kaupstefnan í Frankfurt am Main. —oo— Athygli íslenskra kaupmanna og annara skal hérmeð vakin á alþjóða- kaupstefnunni sem haldin verður í Frankfurt a. Main dagana 3.—11. október n. k. Augnamið kaupstefnu þessarar er að greiða fyrir viðskiftum milli ríkja um allan heim og sérstaklega að efla viðskifti Rýskalands við aðrar þjóðir, Framleiðendum úr hvaða landi sem er, er heimilt að senda til kaupstefnunnar sýnishorn af vörum sínum og væri æskilegt að einhverjir hérlendir menn yrðu til þess að senda þangað sýnishorn af íslensk- um afurðum. Kaupstefnan er háð í 29 aðal- deildum, og nákvæmar upplýsingar um alt er að henni lýtur hafa ver- ið prentaðar á 9 tungumálum og auk þess á alþjóða-hjálparmáiinu Esperanto; kaupstefnan sendir fús- lega upplýsingar þeim er um þær biðja. Utanáskriftin er Messamt Esperanto Werbestelle Frankfurt a. Main. Ress skal getið að kaupsteína þessi er hin þriðja í röðinni, nú eftir stríðið, og að þær tvær, sem eru um garð gengnar, hafa tekist mætavel, og er mikið látið yfir góð- um árangri; sérstaklega hefir gefist vel að nota Esperanto til auglýs- inga út á við sem er mjög eðlilegt þar sem Esperanto útbreiðist nú óðfluga og mesti fjöldi stórra fyrir- tækja víðsvegar um heim notar það nú. Hvammstanga 22. júlí 1920. Björn P. Blöndal. Ný bók um áburð. —00— í síðasta blaði vakti jeg athygli fólks á Prestafjelagsritinu. Nú vil jeg benda mönnuin á annað glæ- nýtt rit um algjörlega ólíkt efni, en báðar eru bækurnar bestu bækur, hvor í sinni röð. Petta er bók Um áburð, samin af forseta Búnaðar- fjelags íslands, Sig. Sigurðssyni og kostar 9 kr. i bandi en 6 kr. heft og er 132 blaðsíður. öllum búnað- Taða. 2000 kg. af ágætri töðu eru til sölu. Upplýsingar gefur Friðrik Hermannsson Siglufirði. 17. ágúst. Frakkar draga saman her í Elsa$s- LotHringen. Bolsjevikkar semja við Pjóðverja um endurnýjun fjármálasambands milli Rússa og Pjóðverja. Bandalag er stofnað í Mið-Evrópu til þess að vinna gegn Bolsjevikka- stefnunni. Franskir jafnaðarmenn hóta alls- herjar verkfalli ef til styrjaldar dreg- ur á ný. Erlendar sendiherrasveitir flýja frá Warschau, allar nema sendisveit ítala og Dana. Ekki fréttist enn að friðarsamn- ingar séu byrjaðir i Minsk milli Pól- verja og Rússa, en frá Warschau er símað að Pólv. hafi gert gagn- áhlaup tneð góðum árangri. Vikan. —oo— Tíðin: Undanfarið hlýttenfrem- ur óstilt tíðarfar, rigningar tíðar og vestan stormar öðru hvoru til hafs- ins. Á suðurlandi eru sífeldar rign- ingar. »Beskytteren«- fór til Akureyr- ar í gærmorgun, með honum fóru bæjarfógetinn og héraðslæknirinn snögga ferð til Akureyrar. »Fálkinn« er einnig hér um slóðir, kom hingað inn um helgina. Sigurður E. Birkis söng hér, í annað sinn, sunnudaginn 15. þ. m. og nú fyrir fullu húsi. Voru menn mjög hrifnir af söng Sigurð- ar og vona margir að fá að heyra hann ennþá einu sinni í sumar. Forsætisráðherrann er á ferð hér Norðanlands, landveg. Ráðherr- ann er nú á Akureyri. Meðal aðkomumanna síðastl. viku: Hjalti Jónsson skipstjóri, Jón arfjelögum landsins gefst kostur á því að fá bókina með 20°/0 afslætti ef 10 eintök eru pöntuð eða fleiri; sje borgun send fyrirfram, greiðist ekkert burðargjald. Petta eraðalefni bókarinnar: fnngangur . . . bls. 3—11 Búpeningsáburður » 13—85 Salernisáburður . » 85—93 Safnhaugaáburður . » 93—98 Pörungaáburður . » 98—100 Jurtaáburður . . » 100—105 Tilbúinn áburður . » 105—125 Ýmsar áburðartilraunir » 125—132 Bókin er mjög nauðsynieg fyrir alla þá, sem vilja auka grasrækt sína, en það er okkur öllum Sigl- firðingum eitt hið mesta nauðsynja- mál. Jeg tek við pöntunum á bók- inni ef vill; annars geta menn sent þær beina leið til bókaverzlunar Ársæls Árnasonar í Reykjavík Pant- ið bókina sem fyrst, því upplagið kvað vera fremur lítið; og ekki þarf mikla viðbót í grasrækt til þess að borga bókina, eptir heyverðinu, sem nú er. B. Porsteinsson. Erl. símfregnir. -oo- Síldin. Ennþá veiddist töluvert síðastliðna viku, en minna en áður vegna óstöðugrar veðráttu, -varð marga daga ekkert átt við hringnóta- veiði. Reknetaskipin veiða ágætlega. í gærdag, mánudag, tóku nokkur skip síld á Grímseyjarsundi, þrátt fyrir slæmt veður, og sögðu þar afarmikið síldarmagn, eins mun enn- þá mikil síld á Skagafirði og hér út af Siglufirði, en ekki hægt und- anfarna daga að ná henni vegna vestanáttarinnar. Prátt fyrir það þótt síld megi heita hér um allan sjó, líður bráðlega að vertíðariokum, menn eru að verða uppiskroppa með tunnur og salt en markaðs- horfur ekki slíkar að menn hætti sér í að flytja inn nýjar tunnur að þessu sinni. Frá ísafirði hafa menn flutt hingað nokkur þúsund tunnur iS.>og veiða í þær héðan, þar er sögð ^mjög lítil síld ennþá. Sagt er að alls muni á landinu saltaðar 120 þúsund tunnur, Fyrir utan landhelgi er í sum- ar töluvert veitt og saltað, gerð út skip til þess bæði frá Noregi og Svíjjjóð, og eru sagðar farnar út nær 20 þúsund tunnur af þeirri veiði. Einn íslendingur Pétur stórkaupm. Thorsteinssen í Reykjavík hefur einnig látið tvo botnvörpunga sína »Ingólf Arnarson« og »Porstein Ing- ólfsson« salta úti á hafi veiði sína, En síldina sendi Thorsteinssen héð- an með Mótorskonnortu sinni, Hauk, Kreyns-vindlar afbragðs teg. i miklu úrvali í versl. . Stefáns Kristjánssonar. Seldir mjög ódýrt í kassatali. Athugið þetta reykingamenn! Pórarinsson fræðslumálastjóri, Björn Sigfússon dannebrogsmaðurá Korns- á og sonur hans Jón læknir, báðir með konur sínar, Pórh. Pétursson frá Löggildingarstofunni. Andatrúin í Reykjavik. Að til- hlutun sálarransóknarfélagsins er nýkominn til Reykjavíkur frægur enskur miðill, Peters að nafni. Peters þessi er einnig skygn, og hefur hann vakið mikla aðdáun meðal andatrúar- fólks. Fundirí tilraunafélaginuerutíð- ir og aðsóknin gríðarmikil, hefur and- artrúarhreyfingin syðra, að sögn al- drei verið magnaðri en nú, Pjófafélag. Nýlega hafa verið teknir höndum 5 unglingspilíar í Reykjavík, allir þó fermdir og eru þeir meira og minna viðriðnir ýms- an þjófnað og innbrot, sem framin hafa verið þar undanfarið. Hefur verið stólið bæði vörum og pening- um á hinuin og þessum stöðum og mun þýfið þegar nema nær 10 þús. króna. Er það ætlun manna að félagar þessir hafi starfað síðan snemma á síðastl. vetri, og grunur er á að enn séu fleiri viðriðnir fé- lagsskap þennan. Kíghósti og Inflúenza geng- ur hér. Kíghóstinn má heita vægur og ekkert barn dáið. Inflúenzan er einnig væg og útbreiðist hægt. »Verðandi« heitir mótorkútter sem hér er kominn er þeir kaup- mennirnir Helgi Hafliðason og Sör- en Goos og skipstjóri Jón Sigurðs- son keyptu í Svíþjóð síðastl. vetur og var ætlun þeirra að halda skip- inu út á fisk við Faxaflóa. Verðandi er myndarlegt skip nær 100 smálestir á stærð, með 100 hesta Bolinder- vél og vel útbúinn. í vor og sum- ar hefur hann verið í flutningaferð- um milli landa, kom nú með timb- urfarm t)(l Blönduóss. Verðandi á heimilisfang í Sigluf.oger fyrsta skip- ið sem skrásett er héðan, hann hef- ur merkið S.F. 71. Útflutt síld. Síðastl. viku hafa þessi skip farið áleiðis með síldar- farma .s. »Jo« með 3500 tnr. Seglskipið »William« með 750 og »Stanley með 1040, M.s. »Haukur« með 3500 tnr. M.k. »Maríe« með 640 M.k. »Blæjan« 502 S.k »Inge- borg« 1608 og S.k. »Johanne 2326. Sterling á að vera hér á föstud. B/aðið. Vegna inflúenzu í prent- urunum varð þessi dráttur á út- komu blaðsins; næsta blað kemur á laugardag, og eru menn beðnir að koma auglýsingum fyrir hádegi á föstudag.

x

Fram

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fram
https://timarit.is/publication/34

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.