Fram - 01.10.1921, Síða 2
128
FRAM
N.r, 3?
Barnaskólinn
verður settur föstudaginn 14. október kl. 1 síðd. Öll börn eiga að sækja
skólann í vetur og koma þegar hann er settur, nema aðrar ráðstafanir
hafi verið gerðar um fræðslu þeírra í samráði við skólanefndina.
Siglufirði 26. septeinber ’21.
Guðm. Skarphéðinsson.
Símfregnir.
Rvík. í dag.
Politikken flytur nýlega grein um
símskeyti sem fyrir skömmu var sent
frá Stockhólm til eins af frönsku
blöðunum og hljóðar um að í ráð-
herratíð Einars Arnórssonar hafi
hann ásamt Guðbrandi Jónssyni
doktor verið í samningamakki við
Pjóðverja um 10 miljóna króna rík-
islán, og hafi þeir ætlað Pjóðverjum
ýmiskonar fríðindi á móti t. d. áttu
þeir að fá leyfi til þess, hér að setja
upp flotastöð, og yfirgrípsmikil um-
ráð yfir náttúruauðæfum landsins.
íslendingar áttu að heimta fullkomið
sjálfstæði, og (krefjast) að fá þýzkan
prins fyrir konung. Ef Danir ætluðu
uð malda í móinn, lofuðu Pjóðverjar
að fara með her á hendur þeim.
Hefur talsvert veður orðið út af
fregn þessari, og alment kallað
»Landráðahvellurinn«. Hefur E. A.
skrifað mótmælagrein í Morgunbl.
og telur allt þetta tilhæfulausan upp-
spuna, þau einu viðskifti sem hann
hafi átt við Pjóðverja í stjórnartíð
sinni hafi verið þau að biðja þá
um að hlífa íslenskum skipum í kaf-
bátahernaðinum.
Dönsk blöð hafa tekið fregninni
rólega og leggja ekki trúnað á hana
og blaðamaður sá hinn sænski er
skeyti þétta sendi, finst ekki. Eitt-
hvað hefurjóni Dúasyni verið bland-
að í inál þetta og er hann að afsaka
sig í dönskum blöðum
Danski sálarffæðingurinn Leh-
mann er nýlátinn.
Annars engin markverð tíðindi
síðustu daga. Tíðarfar ágætt syðra.
Erlingur var vátrygður og bíða
eigendurnir vonandi eigi stórtjón.
Pað slys vildi til að stýrimaðurinn
Jón Guðmundsson héðan úr Siglu-
firði dó voveiflega. Rétt áður en
skipið kastaðist á land, gekk Jón
undir þiljur og heyrðu skipverjar í
sama mund skoti hleypt af, og þeg-
ar að var komið var hann örendur
með skot gegnum höfuðið, vita
menn ógjörla hvernig slysið hefir
viljað til, 10 mínútum síðar voru
hinir sipverjar heilu og höldnu á
landi. En ærið hroðaleg hefur sú
stund verið meðan skipið kastað-
ist til og frá í brimgarðinum og
hver maður hélt sér dauðahaldi
þar til skipið festist svo að menn
freistuðu að stökkva á land. Svo
var veðrið og sjórótið mikið að
menn þar eystra muna ekki slíkt
síðan fyrir aldamót. Skipshöfnin
er á Húsavík, og byrjuðu sjópróf í
gærdag, að þeim loknum, verða
mennirnir fluttir hingað við fyrstu
hentugfeika. Lík Jóns heitins Guð-
mundssonar mun verða jarðað á
Húsavík.
Jón heitinn Guðmundsson var ætt-
aður úr Fljótum en dvaldi mörg
undanfarin ár hér í Sigluíirði og
átti hér heimilisfang. Hann hafði
numið gullsmíði í æsku og stundaði
það jafnau milli þess er hann fékst
við sjómensku. Jón var einhleypur
maður og á besta aldri. Hann varð
fyrir því óláni fyrir rúinu ári síðan
að lenda í húsbruna í Reykjavík og
missa þar svo að segja aleigu sínaog
bjargaðist sjálfur með nauminduni
úr eldinum, og sögðu kunnugir að
Jón hefði aldrei verið samur maður
frá þeim degi.Jón heitiim var fálátur
maður hversdagslega, en vinur vina
sinna, og drengur hinn besti.
Vikan.
Tíðin. Hið versta tíðarfar. Kraparign-
ingar og kuidi. Miðvikudagsnóttina inátti
hér heita stórhríð, var um morguninn al-
hvítt niður í sjó og stórbrim, skaða gerði
þó veðrið engan, hér í Siglufirði, enda var
veðurhæðin ekkert afskapleg hér í firð-
inum.
S k i p a k a tt p . Siglfirðingar hafa nú á
skömmum tíma keypt3 vélaskip. Hið fyrsta
keyptu þeir, Steinþór P. Árdal verzkinar-
stjóri, Stefán Jónsson sjómaður og Oarðar
Arngrímsson, var það »Erlingur« sá sem
nú er strandaður á Tjörnesi. Vonandi
bogna þremenningarnir ekki þótt svona
óheppilega vildi til, og fá sér nýtt skip.
Annað skipið er >>Eleanor < norskur kúttari
hefur hann keypt Páil S. Dalmar kaupmaður.
Priðia skipið keypti Helgi Hafliðasson
kaupmaður, einnig norskt skíp »Stathav«
að nafni.
Öll eru skipin um og yfir 30 smálestir að
stærð.
S í 1 d i n. Pað er nú orðið fremur lítið
sem hér ljggur eftir af síld og mun hún
öll fara í þessum mánuði. Utlit með að
verð hækki nokkuð aftur er mjög ískyggi-
legt og ekki annað sjáanlegt en töluvert
tap muni verða á megni þeírrar síldarsem í
iandi hefur verið söltuð í sumar. Fregn sú
um verð á ísl, síld sem birtist hér í blað-
inu fyrir skeinstu og var höfð eftir fregn
frá Reykjavík, hefir víst verið á litlum
rökum bygð, eins og vér einnig bjuggumst
við. Híð raunverulega verð er þessa dag-
ana og hefur verið nú um tíma, 35 og 36
danskir aurar fyrir kílóið í erlendri höfn
og eru það þá31— 32 króur 90 kílóa tunna.
Verður þá ekki mikið eftir þegar tollur
flutningsgjald og annar kostnaður er dreg-
inn frá.
Skipaferðir. S.s. »Island« kom hér
i fyrradag á leið vestur og stiður um land
til útlanda. Með skipinu var fjöldi farþega
og mun hafa bæst hér við um 60. Meðal
þeirra: Kaupmennirnif S. Goos og frú hans
Friðþjófur Thorsteinsson A. Godtfreðsen
og Hclgi Hafliðasson, símastjóri Ottó
Jörgensen, tveir hinir síðasttöldu snögga
ferð ti! Rvíkur. Frú Kristín Njarðvík, Guð-
laugur Sigurðsson skósmiður með fjölskyldu
sína, ætlar að dvelja í Rvik í vetur.
»Sterling< kom hér í dag á leið vesíur um
land, fóreinnig fjöldi farþega með honum
meðal þeirra: Halldór Guðmundsson út-
gerðarmaður.
»Regía« mótorskip, kom hingað i vik-
unni frá Rvík, tekur hér síld,
Björgunarskipið »Geir« kvað
koma til Eyjafjarðar í dag, ætlar »Geir«
að reyna að ná vít mótorskonortunni »Rig-
mor« sem strandaði þar í vikunni.
Meðal aðkomumanna eru hér
kaupmaður Rögnvaldur Snorrason Akur-
eyri og frú hans, Konsúll Karl Nikulásson
og Brynjólfnr Eiríksson símaverkfræðingur.
Kirkjan Messað á morgun kk 1 síðd.
Druknun
Nýlega fórst mótorbátur frá Val-
þjófsdal viö Önundarfjörð. Formaður
bátsins og eigandi var Krlstján Eyj-
ólfsson, bróðir jens Eyjólfssonar
kaupmanns hér. Auk Kristjáns, voru
3 menn á bátnum og druknuðu allir.
Kristján heitnn var viðurkendur
dugnaðar og vaskleikainaður.
A flra unir og ,sp ort‘.
Framli.
í þessa 5 máhuði stóðu þeim
til boða alls konar réttir bæði úr
dýraríkinu og jurtaríkinu og þeir
gátu fengið þá á hvaða tírna sem var.
Þegar tilraununum var lokið korn
það í Ijós að hinir ungu menn neyttu
nú ekki nema 3/4 hluta þeirrar fæðu,
sem þeir áður liötðu talið sig þurfa
og enn fremur, að þeir létu sér nú
nægja sjötta partinn af því kjöti
og fiski, sem þeir áður höfðu vanið
sig á.
Þol þeirra og úthald varreynt
á vissum tímum í leikfimissölunum
með þeim furðulega árangri að það
hafði aukist um helming, hjá
sumum auðvitað meira og sumum
minna, en til jafnaðar varð útkonian
þessi. Að eins einum af þessum
níu hafði ekki aukist þol eða kraftar
og er það mjög þýðingarinikið atriði
þegar þess er gætt, að það sannaðist
á hann, að hann hafði ekki haldið
loforð sitt um að breyía mataræði,
neytti jafnmikillar fæðu sérstakiega
kjötmatar, eins og hann hafði verið
vanur og á sarna hátt.
Eins og gefur að skilja, iðkuðu
hinir ungu tnenn engar auka-æfingar
eða sport. Allar þessháttar æfingar
(training) voru útilokaðar, svo að
ofangreindur árangur var eingöngu
að þakka breytingu á mataræði.
Þeir rosknir menn, sem nú lifa,
hljóta að liafa veitt þremur fyrir-
brigðum eftirtekt, sem míkið hefir
borið á og sett hafa merki sitt á
seinustu mannsaldrana, en þetta
þrent er: 1. fólks-straumurinn úr
sveitunum til borganna, 2. atiknar
kröt’ur allra stétta til þæginda lífsins
— ineiri inatur og fleiri skemtanir
á degi hverjum og 3. hinn ákaflegi
og skyndilegi vöxtur, sem sport-
þörfin og sportæfingarnar hafa
tekið.
Aður bjuggu 4(5 hluti landsbúa
upp til sveita, en nú er það ekki
fuliur helmingur þeirra, sem þar
hefst við. Á Þýzkalandi hefir óhóf
í mat farið sívaxandi, einkum eftir
franskþýzka stríðið svo að t. d.
kjötneyzla jókst þar um helming á
árunum 1873—1913. Um miðja sein-
ustu öld var talíð að 1 kíló afkaffi
kæmi á mann, en 1913 voru þau
orðin 5—6! Fyrir hundrað árnm
voru ætluð á mann 80 kíló mjöls,
en nú — fyrir ófriðinn mikla —
helmingi meira og alt eftir þessu.
Drengjaföt
húðvæn, margskonar áteiknaðir dúk-
ar. o. fl. selt nú með 10—15%
afslætti í versl.
Stefáns B. Kristjánssonar.
Nýkomið:
Olíukápur og buxur, Olíuregnkápur
á drengi og fullorðna, Verðið mun
lægra en áður.
Stefán B. Kristjánsson.
Eldavél
sama sem ný, afbragðs verkfæri er
til sals.
A. v. á.
Þeir sem sulda verziun undirritaðs,
og ekki hafa greitt skuldir sínar eða
samið um þær íyrir 10. október n.
k. eru hérmeð látnir vita að eftir
þann tima, veröa skuldirnar afhentar
til innhemtu með lögsókn.
Sig. Kristjánsson.
Strausykur
ódýrastur í verzl:
Sig. Kristjánssonar.
Kensla.
Fáist nægir þátttakendur, veitir
Jón frá Ystabæ börnum og ungl-
ingum kenslu í 3—4mánuðiákom-
andi vetri. Nánari upplýsingar hér.
aðlútandi gefur Jón.
Ritstjóri: SophusA.BIöndal.
Afgreiðsltun.: Sophus Árnason.
Siglufjarðarprentsmiðja.