Plógur - 01.11.1906, Side 7
PLÓGUR.
87
ekki geta sint þess konar störf-
um vegna áðurtaldra kringurn-
stæða, ætti að útvega sér trú-
an, vanan og glöggan fjármann
til vetrarhirðingar. Þar sem svo
er háttað með beit og landslag,
að beitarhúsa þarf við, er á-
ríðandi, að fjármaður sé viss
og einbeittur að rata í hríðum
og dimmu veðri, og að hann
hafi heilsu og þrek til að standa
úti yfir fé, hvernig sem viðrar.
Er tilvinnandi að hlynna að
slíkum mönnum fram yfir hin
hjúin með kindafóðrum eða
einhverri annari ivilnun, stundi
þeir verk sitt með dygð og
dugnaði. Á öllum útbeitarjörð-
um, eins þó þar sé ekki hald-
ið upp á beitarhús, er áriðandi,
að fjármenn sé gæddir þessum
hæfileikum eigi fjárhirðingin að
vera í góðu lagi.
5. Á flestum heimilum er
nauðsynlegt að hafa unglings-
dreng til ýmra smávika, sem
oft koma fyrir, og fullorðnir
leysa hvorki betur né íljótar af
hendi en laglegir unglingar. Til
þessa ætti maður að velja þæg-
an og geðgóðan ungling, sem
sé léttur upp á fótinn og lið-
ugur til smávika. Sé einhvers
þess vant hjá unglingum, ætti
húsbændur að láta sér vera
ant um að venja þá á það
sem fvrst.
6. Á þeim jörðum þar sem
votengi er mikið en heyskapur
langt sóttur og aðrir fleiri er-
viðleikar, sem hér eru ekki
taldir, er áríðandi að hafa dug-
leg og heilsugóð hjú, sem sé
vön stritvinnu og þoli hana
vel, hafa þau þá heldur færri
og gjalda þeim betur. En á
hægum jörðum, þar sem hey-
skapur er þurr og nærtækur,
getur orðið alt eins notagott,
að hjúin sé handhæg og not-
invirk, en þótt þau þá sé gömul
og heilsutæp.
7. Þar sem svo er ástatt, að
húsmóðir ekki getur sjálf ver-
ið snemma á fótum á morgna,
sökum náttúrufars, barna-um-
sjónar eða annara kringum-
stæða, er nauðsynlegt að hafa
duglegan og ráðsettan kvenn-
mann, er hafi á liendi öll þau
morgunverk, er húsmóðirin
vanalega annast um, svo sem
búverk á sumrum og að sjá
hjúunum fyrir fæði og öðru,
er þau með þurfa, þegar þau
þurfa snemma til vinnu hvort
heldur er vetur eða sumar.
Það er skaðleg óregla, þegar
hjú þurfa að bíða á morgna
eftir fæði eða öðru, sem þau
þurfa með, og leiðir einatt til
áhugaleysis á því er gjöra skal
á daginn.
8. Það ætla eg sé góð búregla
verði henni við komið, að hafa
fleira af vinnukonum en vinnu-
mönnum einkum um sláttinn,
og sér í lagi þar sem votengi
er. Þykist eg hafa veitt þvi
eftirtekt, að verkdrýgra muni