Plógur - 01.02.1907, Page 2

Plógur - 01.02.1907, Page 2
Passíusá/mar Hall^ríms Péturssoriar eru gimsteinn í bókmentum þjóðar vorrar. Nú er verið að prenta þá í vandaðri útgáfu í 4to. með fjór- * um röddum fyrir harmóníum og með hinum réttu lögum og lagboðum, sem skáldið heflr valið við þá. Það er ætlun margra, að séra Hallgrímur hafi ekki verið söngmaður og þess er getið í æfiatriðum hans, að hann hafi ekki verið mikill raddmaður. En hver, sem nákvæmlega vill kynna sér lögin við sálmana, mun fljótt komast að raun um, að þau eru svo meist- aralega valin við efnið, að jafn-rangt væri að víkja frá þeim, eins og breyta orðum eða efni sjálfra sálmanna. Bókin verður send út um land á næsta sumri; hún verður 18—20 arkir að stærð og seld svo ódýrt, sem hægt er. Verðið er ekki fastákveðið enn, þó mun hún ekki verða dýrari en kr. 2,50 fyrir þá, sem panta hana á þessu ári. Sálmarnir eru prentaðir eftir frum- handriti skáldsins, en ritháttur nýrri. Sama er og með lögin, að elzta rithætti á þeim er ekki fylgt, einkum þó að því er hljómfallið (rhytmus) snertir, sem þó er einkennilega fagurt í mörgum eldri kirkjusöngslög- um. Flest eru lögin í samræmi við Guðbrandssálma- bók, Hólum 1589. Rvík, Pingholtsstræti 8, 20. jan. 1907. Jónas Jónsson.

x

Plógur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Plógur
https://timarit.is/publication/38

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.