Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 24.04.1980, Qupperneq 4

Helgarpósturinn - 24.04.1980, Qupperneq 4
4 Föstudagur 25. apríl 1980 helgarpásturinn Þingmenn kvarta stundum undan þvl, aO almenningur hafi fengiO ranga hugmynd um störf þeirra á Alþingi. MálþrefiO f þingsölum sé ekki nema Htill hluti af starfi þeirra og ekki sá mikilvægasti, þvl aO hinn raunverulega vinna fari fram I þingnefndum og innan þingflokk- anna. Helgarpósturinn fékk Pál Pétursson alþingismann til aO halda dagbók fyrir okkur I siOastliOinni viku. Páll er eins og allir vita þing- maOur NorOurlandskjördæmis vestra. Hann hefur setiö á þingi frá þvl 1974 I neöri deild og er formaOur þingflokks Framsóknarflokksins. Hann er aö auki formaöur allsherjarnefndar sameinaös þings og iönaöarnefndar neöri deildar og einnig varaformaöur sjávarútvegs- nefndar neöri deildar. Þr átt fyrir öll trúnaöarstörfin segist hann þó fyrst og fremst llta á sig sem bónda — þaö er hans ær og kýr. Björn Vignir Sigurpálsson á Helgarpóstinum hringdi i migum helgina eftir páska. Ba6 hann mig aO halda dagbók i viku fyrir Helgarpóstinn. Ég tók dræmt i það, en þegar nánar var aö gáð fannst mér ég mega til að gera þetta fyrir blaðið hans Vil- mundar, annað eins og Vilmundur er búinn að gera fyrir okkur Framsóknarmenn siðast- liðið hálftannað ár, og þó á hann eftir að verða okkur langtum notadrýgrii framtiðinni ef honum endist fjör og áræði til að taka þátt i pólitik og flokksmönnum Alþýðuflokksins endist þolinmæði til þess að lofa honum að gera það. Hitt er svo annað mál að auð- vitað hefði verið heppilegra fyrir Bjöm að fá hátiðlegri þingmann en mig til þess að gera skrá um vikuverk sitt. Ég tek sjálfan mig ekki mjög hátiðlega og man ekki eftir þvi heilu ttmana að ég er þingmaður. Ég er nefnilega fyrst og fremst bóndi og ætlaði mér aldrei að starfa annað, enda er það skemmtilegasta starf sem ég þekki og ég vil helst ekki gera nema það sem mér þykir skemmtilegt. Atvikin hafa hagað þvi svo til að ég er þingmaður um sinn — og það er gaman llka. Ykkur að segja þá gangast sumir félagar minir á Alþingi mjög upp i þvi að vera þingmenn og ég hef það á tilfinningunni að mikilvægi þeirra sjálfra á þjóðar- búinuhverfi aldrei úr huga þeirra hvorki i vöku né svefni. Mánudagur: Ég vaknaði snemma og sem betur fór heima hjá mér, það er að segja fyrir norðan. Þar hef ég heimili mitt og fjölskyldu, syðra er ég gestur. Helgin hafði verið góð. BUskapur I góöu lagi hjá minu fólki. Ég ók skarni á hóla á laugardaginn — þá var ég eins og Njáll. Laugardagskvöldið vorum við hjón gestir skagfirskra hesta- manna á árshátið þeirra i Varmahlið. Enga menn þekki ég sem kunna betur að skemmta sér og öðrum en Skagfirðinga og þá ekki sizt hestamenn. Félags- málavafstur mitt hefur einkum skipst á milli hestamennsku og pólitikur, hvoru tveggja er mér kært. Ég hef ákaflega gaman af hestum og hross min fóru ekki lakar með mig en um siðustu helgi. Ég var-svo stálheppinn að geta frestað þvi sem fyrir lá syðra fram um hádegi á mánu- dag, þannig að mér nægði að fara heimanað i morgunsárið. Hrafna- hretiðvar komiðþegarég lagði af stað, en eins og menn vita verpir hrafninn 9. nóttum fyrir sumar og þá gerir alltaf hret. Þetta hafði það i för með sér að hálka var á vegum og hrfð á Holtavörðuheiði. Um hádegið gekk ég frá þvi að einn af varamönnum flokksins tæki sæti á Alþingi, Böðvar Bragason sýslumaður á Hvols- velli. Hann er gamall bekkjar- bróðirminn og kunningi svo þetta var mér sérstök ánægja. Þennan dag var fundur i Sameinuðu Alþingi og ræddar þingsályktunartillögur. Klukkan 4 hófust svo fundir i þingflokkn- um. Við ræddum nokkur mál fram til klukkan að ganga átta. Klukkan niu hófst svo aftur fund- ur i Sameinuðu þingi og stóð fram undir miönætti. Þriðjudagur: Morguninn fór i simtöl og snatt bæðifyrirmigog aðra og dálitlar bréfaskriftir. Klukkan tvö þegar þingfundur átti að hefjast komu menn með irafári og báðu um frestun þingfundar þar sem þeir vildu efna til þingflokkafunda, út af viðræðunum við Norðmenn. Þarna voru þá komnir Sighvatur Björgvinsson, ólafur Ragnar og Matthías Bjarnason úr viðræðu- Alþingi kemur mjög á óvart mikil- mótuö, þar eru hlutirnir á- segir Páll Péturs- nefndinni út af Jan Mayen. Ég þurfti ekki annað en sjá á þeim fasiö þá varð mér ljóst að nú ætl- uðu þeir að gera upphlaup. Ég boðaði til þingflokksfundar lika til aö nota stundina og frétta af viöræðunum. Það er óhugnanlegur munur á deilu okkar við Norðmenn og á landshelgisdeilu okkar við Breta og Þjóðverja á sinum tima. I þorskveiðistriðinu unnu menn með miklu gæfulegri hætti heldur en nú. Þegar Sjálfstæðismenn voru veilir fyrir Nato og þvi fólki vorum við Framsóknarmenn ekkert að ólátast yfir þvi, við höfðum bara vitfyrir þeim hvort sem þeim likaði betur eða verr, en við vorum ekkert að auglýsa ágreining. Kommar létu þó stundum eins og asnar. I viðræðunum við Norðmenn hafa hins vegar alla tið einstöku kappar veriö að reyna að ota sin- um tota, sinum privattota, aug- lýsa sig og reyna að komast i sviðsljósið. Einn gekk svo langt i vitleysunni i fyrrasumar að.hann vildi bjóða Norsurum sex val- kosti. Hvemig hefði fariö ef við hefðum farið að bjóða Bretum uppá, þó ekki hefði verið nema 5 valkosti, I den tiö? Okkar er að ákveða hvert við treystum okkur til að komast og fara það svo. Þetta brást við Norömenn, menn mátu það meira aö reyna að láta bera á þvi að þeir væru langharð- astiri afstöðusinni,, ,Gísli, Eirik- ur og Helgi”, hefðu heldur átt að keppast um hver þeirra væri vitrastur og reyna að veröa jafn- vitrir ólafi Jóhannessyni. Þá hefði gengið skár við Norðmenn og liklega engir þingflokksfundir verið haldnir þriðjudaginn 15. april. Frumhlaup þeirra bræöra er búið og gert. Vitnanir þeirra i blöðum eru þegar þýddar á norsku og skitt veri með það og sveiþvi. Auðvitað varNorðmönn- um þetta strax ljóst i fyrrasumar enda var þeim kannske aldrei lifenauðsyn að láta að vilja okkar. Þá komu fundir i Sameinuðu þingi að loknum fundum þing- flokka. Um kvöldmatarleytið skrapp ég út i bæ að hitta vin minn og sveitunga sem hefur i vetur verið hér syðra að leita sér lækninga. Um kvöldið vorum við formenn þingflokkanna i Sjónvarpinu I þætti hjá frétta- manni. Nú væri ég i stuði til að segja mina skoðun um fréttaflutning frá Alþingi, hann er oft ekki upp á marga fiska og liklega lakari i vetur en nokkru sinni áður, siðan égkom þar.Égsleppi þvi þó núna að fara ytarlega út i þaö. Stefán Friðbjarnarson þingfréttaritari Mbl. niætti sem fyrr verða öðrum fyrirmynd. Eftir sjónvarpiö tók siminn við. Miðvikudagur: Meiri simi, bréfagerö og mála- tilbúnaður.Má nudagar og miðvikudagar eru mikilvægustu dagar vikunnar á Alþingi þá eru fastir þingflokksfundir. Þeim sem ekki eru heimavánir á Alþingi kemur mjög á óvart mikilvægi þingflokksfunda. Þar er stefnan mótuð, þar eru hlutim- ir ákveðnir og málin gerö upp innan fjögurra veggja og með fullkominni þagnarskyldu um oröaskipti og sá er hvers manns niöingur sem kjaftar frá þvi sem þar gerist, öðru en niöurstöðum. Við búum við fulltrúalýöræði, það fólk sem hefur svipaðar Ufs- skoðanir þokar sér saman og kýs sér fulltrúa, þessir fulltrúahópar samræma afstöðu sina i þing- flokkunum og eru þeir þvi ein- hverjar mikilvægustu starfsein- ,,Þeir sem ekki eru heimavanir á vægi þingflokksfundar. Þar sem stefnan er kveðnir og málin gerö upp innan fjögurra veggja son sem hér stýrir þingflokksfundi hjá framsóknarmönnum. yOÐALEGA HAFAASNA- KJÁLKAR LOGIÐ UPP Á FYRIRGREIÐSLUPÓUTÍK’ PÁLL PÉTURSSON LÝSIR VIKU í LÍFI ÞINGMANNS ingar stjórnkerfisins. Viö Framsóknarmenn tökum tillit hver til annars og það er styrkur okkar að viö erum samhentir. Við eigum ekki viö að striða persónu- legan ofmetnaö einstaklinga né heldur háskalega auglýsinga- mennsku. Þingmenn eru ekki þaulsætnir á þingfundum en það er viðburður ef nokkurn vantar á þingflokks- fund. Klukkan 2. þegar fundir áttu að hefjast i deildum kom Kjartan Jóhannsson meö kröfu um út- varpsumræður um skattstiga, hann langaði til að slá sér uppá þvi. Þá hófust fundir formanna þingflokka og urðu fundir þeirra þrir þann daginn. Kjartan fékk vilja sinn aö vissu leyti, Sighvatur presenteraði ósk Kjartans um út- varpsumræöur. Þingflokksfundur okkar stóö frá 3 til 7 og var rætt um væntanlegar útvarpsum- ræður og stakk ég upp á mönnum i þær. Síðan var rætt um land- helgisviðræður og vegaáætlun. Eftir kvöldmat kom babb i bátinn. Ragnar Arnalds fjármálaráöherra hringdi og haföi þá fengiö nýja útreikninga um skattbyrði einstæðra foreldra og einstaklinga með lágar tekjur. Þarna kom í ljós að þeir bæru meiri skatt en við hugðum samkvæmt sföustu tölvuútskrift og vildi hann endurskoöa málið og fresta umræðum. Ég lét það gott heita fyrir okkar hönd, enda er ég sannurvinur ekkna ogmun- aðarlausra og við Framsóknar- menn ekki siöur en Ragnar. Þá var aö hafa samband við þá sem áttu aðfara í útvarpsumræðurnar ogsiðan þá aðra sem þurfti til að finna botn i Utreikningunum. Það gekk misjafnlega, aö ná sambandi við menn, einn var i bridge annar i badminton, djöfull eru menn duglegir. Allt var þó afgreitt á seinni timanum i eitt. Liklega eru þó báðir þessir útreikningar vitlausir, bæði þeir sem byggt var á og þeir sem stoppuöu málið. Ég hef ekki ennþá séð spá sem stóöst um f jár- mál á Islandi. Hér treysti ég þó skár brjóstviti en tölvuútskrift- um. Fimmtudagur: Þorvaldur Garðar forseti Efri deildar hringdi snemma. Hann vildi vita hvort ég geröi athugasemd við ósk Ragnars Arnalds um frestun útvarpsum- ræðnanna. Ég gerði enga athuga-

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.