Helgarpósturinn - 24.04.1980, Page 22
22
Föstudagur 25. apríl 1980 he/garpásturinn_
UNITY
UNITY
IUNITY
UNITY
UNITY
r6psKu sp
n parKer
ámenu
«ald, ®
parna ‘
ingar'mnar
Brotxmann
peter
UNITY
UNITY
uLOBÉ
UNITY
UNITY
UNITY
UNITY
UNITY
UNITY
UNITY
>**i**»j
ir
—
—
—
...
.
—
~“~—~—
SPJLAÐ 06 SPRELLAÐ
—
_
—
Bassaleikarar og unnendur
bassatónlistar á Reykjavlkur-
svæöinu, mega vel viö una um
þessar mundir. A vegum Jass-
vakningar hélt danski bassa-
leikarinn Niels-Henning örsted
Petersen hljómleika siöast liö-
inn laugardag, ásamt brasillsku
söngkonunni og pfanóleikaran-
um Taniu Mariu, viö góöar und-
irtektir áhorfenda.
Hér á landi er nú staddur
bassaleikarinn Peter Kowald 1
stuttri viökomu, á leiö I hljóm-
leikaferö til Bandarlkjanna.
Hann er einn fremsti spunatdn-
listarmaöur Vestur-Þýskalands
I dag og er hér á vegum Galleri
Suöurgötu 7. Peter Kowald er
ættaönr frá Wuppertal, en
þaöan eru fleiri spunakallar
ættaöir þ.á.m. saxófónleikarinn
og nafni hans Peter Brötzmann.
Þeir hófu feril sinn saman I
hljómsveit sem þeir störfuöu viö
um tima I heimabæ slnum. Kom
Peter Brötzmann hingaö til
lands siöast liöiö sumar, eins og
mörgum er sjálfsagt enn I
fersku minni, og spilaöi I
Stúdentakjallaranum og I Nor-
ræna húsinu af miklum eldmóöi.
Peter Kowald hefur leikiö
meö fjölmörgum evrópskum og
ameriskum spunatónlistar-
mönnum þ.á.m. Peter Brötz-
mann, eins og áöur sagöi, Iréne
Schwizer og Evan Parker, sem
öll hafa komiö hing-
aö á vegum Suöurgötu 7. Einnig
hefur hann leikiö inná hljóm-
plötur meö John Cage, (en hann
mun væntanlega koma hingaö á
listahátiö i sumar) Pierre
Farve, Keith Tippett, Peter
Brötzmann, Globe Unity
Orchestra og undir eigin nafni.
Þaö er ekki á hverjum degi sem
okkur Frónbúum gefst kostur á
aö hlusta á lifandi spunatónlist,
og er þaö þvi mikill fengur fyrir
spunaáhugamenn aö fá slikt
tækifæri.
Uppruni Spunatónlist-
ar
Spunatónlist er tiltölulega ný
tónlistarstefna sem kom fram á
sjónarsviöiöá seinni hluta sjö-
unda áratugsins. Hún á uppruna
sinn aö rekja til bandariska free
jassins, sem kemur fram I byrj-
un sjöunda áratugsins úr um-
hverfi svörtu fátækrahverf-
anna. Free-jassleikararnir fóru
útfyrir ramma vestrænnar tón-
listarheföar og einbeittu sér aö
frjálsum spuna útfrá laglinun-
um. Nokkrir af þekktari full-
trúum þeirrar stefnu eru John
Coltrane, Ornette Coleman og
CecilTaylor. Spunatónlist tekur
emnig miö af nútimatónlist, þó
sérstaklega John Cage. Verk
Cage bjóöa upp á nýstárlega
nýtingu hljóöfæranna sem tón-
listamennirnir notfæra sér til
hli'tar.
Að spila af fingrum
fram
Aö spila af fingrum fram eöa
Spunatónlist er þýöing á enska
oröinu „improvisation”. Tón-
listin er spuni i orösins fyllstu
merkingu. Tónlistamennirnir
ákveöa ekki tónlist sina fyrir-
fram, heldur spinna þeir hana
jafnóöum og hún er spiluö. Þeir
erubæöi flytjendur og höfundar
þeirra verka sem þeir flytja, og
hafna þvi hugmyndinni um tón-
skáidiö. Andrúmsloft þeirra
-staöa sem spunatónlist er spiluö
á, svo og skap og tilfinningar
tónlistarmanna hafa þvi mikil
áhrif á útkomu leiks þeirra.
Þeirspila ekki sérstaka laglinu
eöa stef heldur láta þeir allt
flakka. Þeir notfæra sér einnig
möguleika hljóöfærisins út i
ystu æsar. Evan Parker
saxófónleikari notar t.d. mjög
sérstæöa öndunartækni, þar
sem hann viöheldur stööugum
straumi, meö þvi aö þrýsta meö
kinnunum á meöan hann andar
inn um nefiö. Hann notar munn-
holiö sem loftforöabúr og getur
blásiö timunum saman án þess
aö stansa. Þetta viröist mjög
erfitt, en Evan segir sjálfur um
tækni sina: „Þetta er eins og aö
hjóla á reiöhjóli, þaö viröist erf-
itt þegar maöur kann þaö ekki
en þegar þú ert kominn upp á
lag meö þaö er þaö afar auö-
velt.”
Annar spilaði á básúnu
á meðan hinn afklæddi
sig
Þaöer oft mikill hamagangur
og læti þar sem spunatónlistar-
menn eru saman komnir. Þeir
blása i lúöra, taka þá i sundur
ogberja. Fara inn i pianó, kippa
I strengina og hoppa jafnvel á
hljóöfærum sinum. Einu sinni
var meira aö segja haldin „aö-
eyöileggjapianókeppni” I Ess-
ex, þar sem þrjú pianó voru
jöfnuö viö jöröu. Einhverju
sinni var flutt verk fyrir básúnu
og mann. Annar spilaöi á
básúnu á meöan hinn afklæddi
sig. Um leiö og hann fór úr
frakkanum, tók hinn hluta úr
básúnunni, alveg niöur i munn-
stykki og nærbuxur. 1 Hollandi
hafa veriö starfandi músik-
leikhús, þar sem spunatónlist-
armenn hafa flutt fantasiur i
ýmsum gervum, svosem I fugla
gervum. Þaö má Jjvi meö sanni
segja aö ekki sé siöur nauösyn-
legt aö sjá þá en hlusta. Plötur
þeirra eru aöeins svipur hjá
sjón og dauft endurskin frá at-
buröunum sjálfum.
Erfitt að redda sér
spunaplötu
Stórfyrirtæki sjá sér engan
hagnaö I aö gefa út plötur meö
Spunaliöinu. Þaögefur augaleiö
aö þeir myndu ekki græöa
neinar milljónir á þvi. Raunin
er lika sú aö spunatónlistar-
mennirnir hafa þurft aö stofna
sin eigin plötuútgáfufyrirtæki.
Sjálfir standa þeir straum af
kostnaði útgáfu platna sinna,
sem þeirgefa út i ca. 1000—2000
eintökumog selja milliliöalaust.
Þeir auglýsa plötursinar litiö
sem ekkert, þannig aö spunaá-
hugamenn veröa sjálfir aö leita
plöturnar uppi, oft viö mikla
fyrirhöfn.
Og allir saman nú....
Spunatónlistarmenn telja
heföbundinn jass og dægurtdn-
list hafa lent inn i borgaráiegum
skemmtanamóral þar sem tón-
listin hverfur i skuggann fyrir
hávaöa og glasaglaum stórra og
dýrra veitingahúsa. Fólkiö sem
sækir þessa staöi sé ekki komiö
til þess aö njóta tónlistarinnar
ogmeötaka han«, heldur til þess
aö hitta kunningjana, sýna sig
ogsjá aöra. Þessi dægurtónlist,
segja þeir, er ekki lengur skap-
andi, engin tjáning i henni, held-
ur er hún búin til eftir ákveðn-
um formúlum. Þetta sé aö
þróast meira I áttina aö
blákaldri iönaöarframleiöslu.
Þettatelja þeir semvon er, ógn-
vekjandi þróun og reyna aö
halda aftur af henni meö þvi aö
nota tóniistina sem tæki til aö
þroska eigin persónuleika og
samskipti viö annaö fólk. Þeir
vilja helst útbreiöa tónlistar-
stefnu sina á þann hátt, aö fleiri
taka sér hljóöfæri i hönd. Hafi
fólk ekki efni á hljóöfæri má
notast viö margt annaö, s.s.
rödd, stóla, blómaplatta, rit-
vélar cg margt fleira.
Spunatónlistarmennirnir hafa
ekki mikið álit á heföbundnum
tónlistarskólum og tónskáldum,
segja þá flesta litiö botna i
spunatónlist. Þeir viröast dauf-
dumbir gagnvart þeim tón-
listarhræringum sem ekki falla
inni þann akademiska ramma,
sem þeir hafa smiöaö i kringum
sig.
Hvað gerist i Djúpinu?
Þaö veröur spennandi aö fara
á sólótónleika Peters Kowald,
en þeir veröa haldnir I Djúpinu I
kvöld kl. 20.30 og á morgun,
laugardag kl. 16.00. Ætli Peter
eyöileggi bassann sinn?
Sitthvað um spunatónlist og
bassistann Peter Kowald
eftir Jóhönnu Þórhallsdóttur