Helgarpósturinn - 24.04.1980, Side 24

Helgarpósturinn - 24.04.1980, Side 24
-Jie/garpÓstUrinrLFösiuáagur 25. aprll 1980 # Mannaforráb virbast ekki sérstaklega freistandi verkefni á ritstjórn Þjóðviljans. Fyrir skömmu vildi Arni Bergmann hætta sem ritstjóri til að losna við mannaforráð. Hann vildi frekar fá að sinna áhugamálum i blaða- mennsku en vasast i flokkspólitik og almennri verkstjórn. Nú hefur Vilborg Harðardóttir, fréttastjóri blaðsins gefið til kynna að hún vilji láta af þvi starfi. Ástæðan er ekki alveg sú sama og hjá Árna, þvi Vilborg mun vera orðin þreytt á ihlutun flokksafla i fréttastjórn- ina, og svo mun vera um fleiri starfsmenn á ritstjórn. Hefur frést aö hún hyggist segja upp fréttastjórastarfinu verði ekki breytt um stefnu i þessu efni, en hafi hins vegar ekki áhuga á að hætta hjá Þjóðviljanum og vilji I staðinn vera óbreyttur blaða- maður. # Danski bassasnillingurinn Niels-Henning örsted-Pedersen sló rétt einu sinni i gegn hérlendis um siðustu helgi, ásamt söngkon- unni og pianóleikaranum Tania- Maria. Jazzvakning, sem stóð fyrir tónleikunum, mun standa allvel að vigi nú i lok þessa starfs- árs vegna tónleikanna þvi hagn- aður af þeim kvað nema á aðra milljón króna.... # Meira um Niels-Henning: Það er ekki oft sem islenska sjón- varpið fær hrós á heimsmæli- kvarða, og þvi siður hrós fyrir hljóðupptökur á tónlist. Slikar upptökur i stúdiói sjónvarpsins hafa einatt ekki verið beysnar. Þvi er það gleðiefni og frásagnar- vert að haft er eftir þessum bassameistara, sem er hagvan- ur i sjónvarpsstúdióum viöa um veröldina, að hvergi hafi hann fengið jafn góða hljóðupptöku á bassann sinn og þegar tekinn var upp þáttur með þeim Tania- Maria i sjónvarpinu s.l. laugar- dag. Fór Niels-Henning einkar lofsamlegum orðum um hinn náttúrulega hljóm upptökunnar, en heiðurinn af henni á Böðvar Guðmundsson. Umræddur þáttur, sem Tage Ammendrup stjórnaði upptöku á, er siðan á dagskrá sjónvarpsins á laugar- dag i næstu viku og þá fáum við að dæma sjálf.... # Ýmis ummæli Benedikts Gröndalfyrrum utanrikis- og for- sætisráðherra á iokaðri ráðstefnu Sambands ungra sjálfstæðis- manna um siðustu helgi hafa vakið umtal og þykir þing- maðurinn hafa talað býsna frjáls- lega. Meðal annars gerði hann það að umtalsefni þegar sovéskar flutningavélar sóttu um leyfi til að fá að millilenda á fslandi á ieiðinni til Kúbu. Var þeim veitt heimild til að lenda á Reykjavikurflugvelli eins og um var beðið. Siðan hafi Rússar skyndilega skipt um skoðun og beiðni hafi komið um að vélarnar gætu lent á Keflavikurflugvelli. Þeirri beiðni var synjað. Svo gerist það um miöja nótt þegar vélarnar eru að leggja af staö frá Skotlandi áleiðis til íslands að þær tilkynna flugstjórninni i Keflavik að þær séu á leiðinni þangað og hyggist lenda á Kefla- vikurflugvelli. Varð talsvert ira- - VÍN - AUSTURRIKI - UNGVERJALAND 3 ferðir um gamla Habsborgarkeisaradæmið þar sem list og menning reis hvað hæst í Evrópu Fyrsta ferðin veröur 23. júni. Fiogið til Kaupmannahafnar með Flugleiðum en þaðan með ungverska fiugfélaginu Malev til Budapest. Vikuferð um Ungverjaland. Siöan siglt með fljótabáti frá Budapest til Vlnar, dvaiist þar I nokkra daga og borgin skoðuö. Siðan fariö á fijótabáti frá Vin til Bratislva í Tékkóslóvakiu og eftir það vikuferö um Tékkóslóvakiu. Flogið veröur til Kaupmannahafnar 14. júlf. meö tékkneska flugfélaginu CSA. Hægt að stoppa i Kaupmannahöfn. Sams konar ferð 18. júli til 4. ágúst. Enn önnur ferð 14. júli, en þá veröur fariö öfugt við hinar, þ.e. fyrst til Tékkóslóvakiu. Feröast verður I hverju landi meö ioftkæidum langferöabifreiöum. Gist á 1. flokks hótelum með WC og baöi/sturtu. Fæði innifalið og Islenskur leiðsögumaður. • Prag Tékkóslóvakia 1 Vln > .Bvat's'aVa- " '' Austurriki > .Budapest; ---,, Ungverjaland / Ferdaskrifstota KJARTANS HELGASONAR Groóarvogi 44— 104 Reykjavik ■ Simar 86255 & 29211 Tekið á móti bókunum á skrifstofu okkar. Takmarkað rými I hverri ferö. Golfferðir — Marianske Lazne (Marienbad) í Tékkóslóvakíu 19. maí — 2. |úní og 1. íúní— 16. júní. Fullkominn golfvöliur. Hannaður upphaf lega fyrir Játvarð 7. Bretakonung, í gullfallegu umhverfi. Gist á Hotel Cristal. Hálft fæði. Tak- markað framboð. Bókiðstrax. öllum landsmönnum sumars fár út af þessu eins og gefur að skilja og ýmsir áhrifamenn vitt og breitt um bæinn á náttfötunum við simann, og þurfti hreinlega að skipa sovésku vélunum að fara eftir fyrri heimild og lenda á Reykjavikurflugvelli. A Benedikt Gröndal að hafa sagt á fyrr- greindri ráðstefnu að ljóst væri að Sovétmenn væru skipulega að kynna sér og æfa aðflug til Kefla- vikur.... # Jón Magnússon, formaður Sambands ungra sjálfstæðis- manna á ekki sjö dagana sæla, — eða kannski öllu heldur næturnar — um þessar mundir. Fyrir utan ráðstefnur eins og þá sem að ofan er getið er sitthvað I gangi hjá sambandinu og m.a. hefur verið skipulögð eins konar fundaröð um landið um stöðu Sjálfstæðis- flokksins og stjórnmálanna sem auglýst hefur verið i Morgun- blaðinu undir nafninu „Hvað nú?” Einhverjir gárungar hafa, að þvi er frést hefur, tekið þessa fyrirsögn bókstaflega og viljað fá skjót svör við spurningunni. Jón er vart sagður hafa svefnfrið á næturnar út af simahringingum þar sem rödd spyr ævinlega for- máialaust: „Hvað nú?”... # Islendingar eru nú orðið farnir að kannast við sænsku skoplistarmennina Hasse og Tage, sem fullu nafni heita Hans Alfredson og Tage Danielsson. Þeir eru óumdeildir foringjar sænskrar skoplistar og ádeilu sem þeir hafa sett fram i sjónvarpi, kvikmyndum og leikhúsi, og m.a. reka þeir eigið leikhús, Svea Hund, i Stokkhólmi. Siðast fengu Islendingar að sjá Hasse og Tage i afmælisdagskrá sænska sjón- varpsins og i kvikmynd þeirra Ævintýri Picassos sem fyrir skömmu var sýnd við góða aðsókn i Laugarásbiói. Nú hefur spurst að þeir félagar hafi áhuga á að gera islenska skáldsögu að næsta viðfangsefni sinu á leik- sviði. Þeir hafa farið þess á leit að fá að semja söngleik upp úr skáldsögu Halldórs Laxness Atómstöðinni, sem þeir telja eiga brýnna erindi nú en þegar hún var skrifuð, ekki siður i Sviþjóð en á íslandi, auk þess sem hún sé dramatisk I uppbyggingu og persónusköpun. Spennandi verður að sjá hvað kemur út úr þessu hjá þeim félögum.... # Jóhann Briem, forstjóri hjá Frjálsu framtaki þykir mikill sérfræðingur i prómósjón og þvi sem kallað er almenningstengsl og áróðursherferðir. Hann veitti forstöðu söfnunarherferðinni sem staðið hefur yfir undanfarið og kennd er við Rauðu fjöðrina með tugmilljóna árangri. Þetta hafa þeir menn komið auga á sem nú eru að hefja þær herferðir sem trúlega munu setja hvað mestan svip á þjóðlifið næstu vikurnar, þ.e. hernaðarráðgjafar forseta- frambjóðenda. Þannig mun Jóhann hafa fengið tilboð frá skrifstofum tveggja forsetaefna nú i vikunni um að stjórna kosn- ingabaráttu þeirra strax og frétt- ist um velgengni Rauðu fjöður- innar. Kannski bætir Jóhann póli- tiskri skrautfjöður i hattinn sinn á þessum vettvangi.... ® Talandi um forsetakosning- arnar: Ekki virðist ætla að nást einhugur meðal foringja Alþýðu- bandalagsins um að vinna ekki að kjöri annarra forsetaefna en Vigdisar Finnbogadóttur. Þannig heyrir Helgarpósturinn að i hinni svokölluðu bakvarðasveit Guðlaugs Þorvaldssonar sem kemur saman á herráðsfundi á skrifstofu stuðningsmanna hans við Suðurlandsbraut séu meðal annarra Sigurður Blöndal, skóg- ræktarstjóri og fyrrum varaþing- maður, og Geir Gunnarsson, alþingismaður. i þessari sveit eru einnig sagðir menn eins og Ey- steinn Jónsson, Sigurlaug Bjarnadóttir frá Vigur, og Páll Gislason, læknir og skáta- höfðingi... # Útvarpsráð hefur fyrir sitt leyti fallist á að ráðist verði i gerð nýs framhaldsmyndaflokks fyrir sjónvarpið, sem Hrafn Gunn- laugsson, Egill Eövarðsson og Björn Björnsson munu sjá um framleiðslu á. Þessir sömu aðilar voru aðalsprauturnar á bak við fyrsta islenska framhaldsmynda- flokkinn Undir sama þaki, sem varð mjög vinsæll. Þá sömdu þeir félagar þættina sjálfir en að þessu sinni hyggjast þeir leita til ým- issa skribenta eftir efni i einsaka þætti, en sjálfir leggja þeir til hugmynd að leikrými, sem verður félagsmiðstöð, eftir þvi sem við höfum heyrt. Varla verður þó ráðist i gerð þessa myndarflokks fyrr en eftir næstu áramót.... ® Það varð uppi fótur og fit hjá gárungunum á sinum tima þegar fréttist að kominn væri melur i fjármálaráðuneytið. Þá áttu þeir auðvitað við Magnús Jónsson frá Mel.Nú þykir þessum sömu gár- ungum enn meira til um það að kominn skuli ormur i forsætis- ráðuneytið og eiga þar að sjálf- sögðu við Jón Orm Halidórsson aðstoðarmann forsætisráðherra. Enn mestu tiðindin eru kannski þau að melurinn og ormurinn eru náskyldir — Jón Ormur bróður- sonur Magnúsar frá Mel.... # Senn liður að þvi að laxveiði- menn fari að hugsa sér til hreyf- ings og ef að likum lætur mun vertiðin eiga eftir að koma tölu- vert við buddu þeirra áður en yfir lýkur. Veiðileyfin hækka stöðugt, ásókn útlendinga eykst og e.t.v. kemur fljótlega að þvi að það verður illmögulegt fyrirv þá að komast að i islensku ánum. Eftir þvi sem við heyrum verður dýr- asta áin i sumar Laxá I Asum en þar mun dagurinn koma til með að kosta 100-250 þúsund. Laxá i Ásum er eins konar fjölskyldu- fyrirtæki, þar sem Páll S. Pálsson lögmaður mun vera einn af höfuðpaurunum.... # Fróðir menn fullyrða að kýia- pestin sem kom upp i laxeldis- stöðinni i Grindavik, hljóti að vera upprunninn i Kollafjarðar- stöðinni, þvl að þaðan og hvergi annarsstaðar séu seiðin i Grinda- vikurstöðinni ættuð. Leiði frekari rannsókn I ljós að sú sé raunin velta menn þvi fyrir sér hvort jafn hart verði gengið fram i þvi að uppræta pestina þar og gert hefur verið i þvi að uppræta pestina i regnbogasilungsstofn- inum á Laxalóni.... # Afgreiðslustúlkurnar hjá Eymundsson sögðust aldrei hafa lent i öðru eins og aðselja miða að tveim siðustu tónleikum Ivan Rebroffs, sem verða i Háskóla- blói 2. og 3. mai. Svo mikill var at- gangurinn. Flestir urðu þó frá aö hverfa miðalausir og á stórum vinnustaö I borginni fréttist ekki af neinum, sem hafði fengiö miöa án milligöngu kunningja meö að- stöðu. Var af þessu hinn mesti kurr hjá þvi fólki, sem árangurs- laust haföi staðið i biðröð.... # Oddur Björnsson, leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar og formað- ur leikfélagsins, Guðmundur Magnússon, voru báðir i Reykja- vik i vikunni. Tilgangur ferðar þeirra suður var meðal annars að þrýsta á fjárveitingarvaldið að bæta hag leikféagsins, en það bersti bökkum. Þeir norðanmenn benda á, að markaöur þeirra sé um það bil tiu sinnumminnien markaður höfuðstaðarleikhús- anna. Þeir benda jafnframt á, að til þess að uppfæsla á leikriti beri sig megi sýningar helst ekki vera undir 20, en það samsvari 200 sýningum i leikhúsunum i Reykjavik. Ekki eru norðanmenn alveg vonlausir um, að takast megi að glæða skilning rikis- Valdsins á leiklistarlifinu i höfuð- stað Norðurlands, og visa þá til orða Ingvars Glslasonar mennta- málaráðherra, sem hann hefur látið falla um jákvæða afstöðu sina til menningar. Auk þess er Ingvar þeirra eigin þingmaður, og ekki sist flokksbróðir for- manns leikfélagsins.... # Stúdentaráð hefur nú komið á laggirnar ferðaskrifstofu. Verk- efni hennar verður að skipuleggja og sjá um hópferðir stúdenta til útlanda, sem Samvinnuferðir hafa séð um hingað til. Auk þess munu stúdentar hér eftir sjálfir skipuleggja ferðir námsmanna erlendis heim og að heiman i sumar- og jóiafrium. Stúdentaráð hefur til að byrja með ráðið eina manneskju til að annast skrif- stofuhald.... # Það er sitt af hvérju sem hrellir þá sjónvarpsmenn um þessar mundir. Fyrst skal telja leik- stjóradeiluna sem nú er búin að valda þvi, aö upptökur tveggja is- lenskra leikrita frestast, og mun útséð um að annað þeirra verður ekki tekið upp á þessu ári yfirhöf- uð. Þar verða Islenskir leikarar trúlega af nokkrum tekjum, i bili a.m.k., en útvarpsstjóri er hins vegar sagður kampakátur þvi þetta þýðir aö það fé sem annars hefði fariö I þessa leikritagerð sjónvarps verður nú aflögu til endurnýjunar á tækjabúnaöi stofnunarinnar. Siðan er nú kom- in upp önnur deila, svokölluð „pródúsentadeila”, sem gengur út á það að dagskrárgerðarmenn sjónvarpsins sem til þessa hafa litiö á sig sem vaktavinnumenn hafa verið teknir út af þessum vöktum. Við þetta styttist vinnu- dagur þeirra og hafa dagskrár- gerðarmenn mótmælt þessu breytta fyrirkomulagi meö þvi aö vinna sem minnsta eftirvinnu, en þeir telja þessa breytingu þýöa vaxandi nauðsyn á eftirvinnu. Málið er I sjálfheldu þvi BSRB mun styðja afstöðu stofnunarinn- ar og telja dagskrárgerðarmenn ekki hafa unnið vaktavinnu held- ur hafi þeir haft „afbrigöiiegan vinnutima”. Margir telja að þessi breyting sé upphafið á almennum skipulagsbreytingum á vinnu- tlma sjónvarpsstarfsmanna i sparnaðarskyni, en jafnframt má telja liklegt að hún hafi i för meö sér minni afköst við gerð innlends sjónvarpsefnis og aukinn flýti við hana. Bæði magn og gæði fari sumsé niðuráviö, og varla má nú sjónvarpiö við þv!..

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.