Helgarpósturinn - 09.06.1983, Síða 17
“j-^l^^^y^íFimmtudagur 9. júní 1983
Kjamorkuvæðing 18
neytisins, sem tjáir honum, að stöð-
in verði svipuð þeirri sem íslending-
ar starfrækja á Reynisfjalli og eigi
hún að vera miðunarstöð fyrir sigl-
ingar á sjó og í lofti. Ekki er gott að
sjá hvort þarna hefur verið um vis-
vitandi blekkingar að ræða af hálfu
varnarmáladeildar eða hvort varn-
armáladeild hefur sjálf verið
blekkt. Þarna er megintilgangi
stöðvarinnar, kafbátaþjónustunni,
haldið leyndum og ekki minnst á þá
meinbugi á stöðinni að móttöku-
tæki fyrir sendingar frá henni voru
hvergi fáanleg en því svo haldið
fram, að hún sé hliðstæð Loran-
stöðinni á Reynisfjalli.
Annars var Loranstöðina lítt í
sviðsljósinu, fjölmiðlar höfðu öðru
að sinna á því herraps ári 1959 því
þá geysuðu bæði þorskastríð og
þingkosningar. Þá var lika fyrsta
Keflavíkurgangan gengin en i henni
var hvergi minnst á LoranC. Hern-
aðarhlið þessa máls hafði gersam-
lega farið fram hjá þefvísum nösum
hernámsandstæðinga.
Þegar leið á sumarið rann það þó
upp fyrir mönnum, að á Gufuskál-
um var að rísa hæsta bygging á ís-
landi, gríðarmikið loftnetsmastur.
Vinnuaðstæður þar vóru svo erfið-
ar og sundlandi hættulegar, að ekki
þóttu bjóðandi hvítum mönnum.
Því var sérstakur þjóðflokkur
fjallaindíána frá Ameríku, sem í
kynslóðir hafi vanist príli i þver-
hníptum hömrum látinn vinna efst
í mastrinu.
Rússneskar
njósnir
Loranstöðin á Snæfellsnesi
komst þó ekki verulega i fréttir fyrr
en í júníbyrjun 1960. Þá var mikið^
um að vera í alþjóðapólitíkinni.
Rússar voru nýbúnir að skjóta nið-
ur bandarísku U2 njósnaflugvélina
og fundur æðstu manna stórveld-
anna hafði fyrir vikið farið út um
þúfur. Hér á íslandi höfðu menn
veitt athygli grunsamlegu háttarlagi
rússnesks togara úti fyrir Straum-
nesi í grennd við radarstöðina upp
af Aðalvik. Skyndilega var togari
þessi H. Capt. Poexobo P-9013 frá
Kaliningrad lagstur við festar upp í
landsteinum fyrir utan Gufuskála á
Snæfellsnesi og beindi torkennileg-
um búnaði í átt að loranstöðinni.
Fréttin kom með stríðsletri á forsíð-
um Morgunblaðsins og Alþýðu-
blaðs. „NJÓSNIR UM LORAN-
STÖГ sagði Alþýðublaðið og
bæði skrifuðu blöðin um njósnir á
íslandi í leiðurum sínum og töldu
að hér væri slíkt stórmál á ferðinni
að skyggja myndi á U2 málið í
heimsfréttunum. Þannig æsir ís-
lenska stjórnarpressan sig upp á
háa c-ið út af ómerkilegum rúss-
neskum gervitogara en þegir þunn-
ur hljóði um hlutverk loranstöðvar-
innar I kjarnorkuvígvæðingunni
sem fyrir dyrum stendur í Norður-
höfum. E.t.v. kom það til af því að
íslenska stjórnin var verr upplýst
um þetta hlutverk en rússneski tog-
araskipstjórinn. Ef læðst hefur
grunur að landsmönnum um að
ekki væri allt með felldu við starf-
semina á Gufuskálum, fyrst Rússar
hefðu þennan áhuga á henni, þá ró-
aði yfirmaður stöðvarinnar Mr.
Bosch þá. í viðtali við Mbl. 4. júní
1960 sagði hann: „Hér eru yfirleitt
engin leyndarmál, stöðin er rekin
með samvinnu Bandaríkjamanna
og íslendinga. Loranstöðin hér er
einungis til leiðsögu skipum og
flugvélum. En hún hefur ekki verið
reynd til fullnustu því stöðvar þess-
ar þurfa langt reynsluskeið".
Atomstöð í Keflavík
Fimm mánuðum síðar hljóp
fyrsti Polaris kjarnorkukafbátur-
inn af stokkunum búinn Polaris A-1
eldflaugum sem drógu 2200 km og
höfðu kjarnaodda. Ári síðar voru
þeir orðnir fimm og um það leyti
tók bandaríski sjóherinn við yfir-
stjórn herstöðvarinnar á Keflavík-
urvelli úr höndum flughersins. Árið
1963 hleyptu Rússar sínum fyrstu
karnorkukafbátum úr vör. Sama ár
voru staðsettar á Keflavíkurflug-
velli hinar nýju Orion kafbátaleit-
arflugvélar sem borið gátu kjarn-
orkudjúpsprengjur og sér til styrkt-
ar höfðu þær orrustu- og sprengju-
vélar af gerðinni Delta Dagger sem
einnig gátu borið kjarnorkuvopn.
Síðan þá hefur þróun vígbúnað-
arins á Islandi og í Norðurhöfum
öll miðast við kjarnorkuvopn og
kjarnorkustríð.
Árum saman hafa staðið um það
deilur hér á landi, hvort Keflavíkur-
herstöðin sé atomstöð eða ekki. Ut-
anríkisráðherrar landsins og emb-
ættismenn þeirra hafa æ ofan í æ
svarað staðhæfingum um að stöðin
sé atomstöð með yfirlýsingum um
það, að þar séu engin kjarnorku-
vopn og fyrir liggi skuldbindingar
þess efnis, að á friðartímum verði
engum slíkum vopnum komið þar
fyrir. Þessar yfirlýsingar fela í sér
mjög þrönga skilgreiningu á kjarn-
orkuvopnum. Þar er sem sé einung
is átt við sprengivirkar kjarna-
hleðslur. Að auki fela þær í sér mik-
ið traust á Bandaríkjaher. Því er
treyst, að hann fylgi skilyrðislaust
reglunum um meðferð þessara
kjarnorkuvopna. Þó er vitað frá
öðrum löndum, að þessar reglur
hafa oft verið brotnar.
Hvað sem því líður þá er vafalítið
rétt, að hér á landi eru að staðaldri
ekki geymdar kjarnorkusprengjur.
Hins vegar hefur aldrei verið nein
trygging fyrir því, að flugvélar með
slík vopn innanborðs hafi ekki haft
viðkomu hér og það er staðreynd,
að á hálfu dægri er hægt að vopna
flugsveitirnar á Keflavíkurvelli
kjarnorkusprengjum og skeytum.
Að öllu samanlögðu má ljóst
vera, að það er rangt að skilgreina
Keflavíkurstöðina öðru vísi en sem
atomstöð. Þar er allur búnaður sem
til þarf í atomstríði; ratsjárstöðvar
og ratsjárflugvélar, kafbátahlust-
unarkerfi, gervihnattafjarskipti,
kjarnasprengjubær flugfloti og
þjálfaður mannskapur. I rauninni
má einnig halda því fram, að kjarn-
orkuflaugarnar standi reiðubúnar í
skothólkum sínum. Þær eru að vísu
ekki innan stöðvarinnar heldur í
kafbátum skammt úti fyrir strönd-
inni. Af pólitískum og hernaðarleg-
um ástæðum eru þær betur komnar
þar en í landi.
Það er eftirtektarvert hvernig víg-
væðingin hefur skref fyrir skref fest
sig í sessi á landinu og umhverfis
það. Ef líta má á inngönguna í
NATO sem fyrsta skrefið þá varð
hún með brauki og bramli. Málin
voru rædd opinberlega og ollu mik-
illi ólgu í landinu. Næsta skref,
koma hersins 1951, var rædd og
samþykkt á leynifundi þriggja
þingflokka af fjórum og Álþingi
Iátið samþykkja gerðan hlut mörg-
um mánuðum síðar. Þriðja skrefið,
kjarnorkuvígvæðingin, var stigið
án þess að nokkur veitti því athygli
og án samþykkis stjórnvalda, þings
og þjóðar.
Góðir hlustendur
Svona er í stórum dráttum sagan
af því, hvernig ísland og herstöðv-
arnar hér urðu án vitundar og vilja
almennings í landinu að hlekk í ó-
rofa keðju kjarnorkuvígbúnaðar
sem njörfuð er um alla jörð og ógn-
ar öllu lífi og framtíð mannkyns.
Góða nótt
Leiðrétting
í klausu um útflutning á vegum
síldarverksmiðju ríkisins í síðasta
Helgarpósti varð okkur ansi hressi-
lega á í messunni: Benedikt Sveins-
son er ekki framkvæmdastjóri
verksmiðjunnar, eins og sagt var;
Nesskip hefur lítið sem ekkert flutt
fyrir Síldarverksmiðjurnar á und-
anförnum árum, allra síst síldar-
mjöl sem nánast ekkert hefur verið
framleitt af. Beðist er velvirðingar á
þessum rangfærslum.
Ferðamenn, gangið vel um
hvert sem þið farið.
• Þrrfið eftir ykkur á áningarstöðum og hendið ekki rus/i út
um bílg/ugga.
• Munið eftir þeim sem á eftir ykkur koma.
• Landið er sameign okkar allra.
Ferðamá/aráð ís/ands
. jylítU01
- jð
gfl0'
^r sta
er „i» sól^must 0
írtiœ
\o\<*
<anta PT>a Vd>ige
ner *irin La ^ „ gr ^
°g ?oíi A*ail*
canta \
beS erfiöld\nu nrín\b0rp’
eð Pví
„„ »ó,e
, ib*ða og
aloW>s>. ‘
fo‘ieS‘fae *nd
rétt
sW1*1
v0
cu^,;^ss*5:Vr>,.,
$****■ ,egt oð >si> "<ð
boPnS<> .faS s^>°fXdinnÍ' ccion-
°host“ B .-„ið Uf o8„ciU*>gflrn írA str°„,,r Borce'_
‘T«. «*•> i»“
<::A".35
RDA
17-
0 '&•