Helgarpósturinn - 09.06.1983, Blaðsíða 19
Jpifísturinn. Fimmtudagur 9. júní 1983
19
Sérlega vel
spiluð vörn
í Olympiumótinu í bridge, sem hefði Rubin svínað tíunni, þá
haldið var í Monaco 1976, spilaði hefði hann unnið spilið. Klinger
Ástralíumaðurinn Ron Klinger al- spilaði aftur laufi, sem tekið var á
veg frábæra vörn í eftirfarandi kóng blinds. Meira lauf og það
spili. Hann er heimskunnur trompað. Þá kom hjartaás og gosi
bridgespilari, hefir verið í lands- sem Klinger tók. Hverju átti hann
liði Ástralíu í mörg ár. Hann er nú að sþila? Jú, hann fann einu
ritstjóri tímaritsins Australian leiðina sem hnekkti spilinu. Nú
bridge. Hann var að spila gegn Ver staðan þessi:
Bandaríkjamönnum. Þannig
voru spilin. Báðir utan hættu: s
H -
T Á-D-10-8-6-
L
s 2 s - S Á-G-10
H 9-5 H 8 H -
T Á-D-10-8-6-3-2 T K-5 T 7-4
L K-8-5 L 7-4 L -
S 7-4 S Á-K-G-10-8-6-3 S D
H K-8-4-3 H 7 H 10-6
T K-5 T 7-4 T G-9
L Á-7-4-3-2 L G-9-6 L "
S D-9-5
H Á-D-G-10-6-2
T G-9 Hann lét tígulkonginn!!!
L D-10 Þessi spilamennska gerði
Spil
eftir Friðrik Dungal
Sagnir voru þannig:
S V N
vestur noröur " austur
Klinger Soloway Longh.
pass pass 3 spaða
sambandslaust milli norðurs og
suðurs. Það eina sem suður gat
gert var að taka kónginn með ásn-
um í borðinu, láta lítinn tígul,
a taka með gosanum og hirða
suður tromp vesturs. En spaðadrottn-
4hjörtu'nS'n var eft*r °8 austur sá um
hana.
Vestur lét spaða sem austur tók.
Hann lét tromp til þess að forða
því norður gæti trompað spað-
ann. Rubin spilaði vel þegar hann
trompaði með drottningunni.
Hann vildi sjálfur vera inni ef
vestur gæfi slaginn og það gerði
Klinger. Hefði hann tekið á kóng-
inn var spilið auðunnið með því
að taka öll trompin. Rubin tromp-
aði spaða með fimminu en lét ní-
una eiga sig og spilaði litlu laufi
og lét drottninguna sem Klinger
tók með ás. Takið eftir því, að
__***.___
Hér kemur önnur saga um
Harrison Gray. Hann var auðvit-
að að spila í klúbbnum sínum og
hafði sagt sjö hjörtu án þess að
eiga ásinn. Elskuleg eldri kona var
í forhönd og lét trompásinn út.
Að spilinu loknu spurði einn á-
horfenda konuna hversvegna hún
hefði ekki doblað. „Það datt mér
ekki í hug. Þér, ungi maður þekk-
ið ekki Harrison Gray. Hann
redoblar alltaf“.
Skákþrautir helgarinnar
5. Úr tefldu tafli 6. D. Bannij
Hvítur á leik Mát í öðrum leik
ZJ0 'Z - 'I
teui joy •i jag - 'I
jtmi úpa 'Z ' 'I
l?m IPa 'Z - T
iWxH T
:jd usnu] jjay
•J?ui iph
'Z þ3Xa- t ?u ‘j?ui /.ph 'z þ3xa-
I iijioai] ib8da su;h) SMO ? jb
-pUBIJS UD ‘JBUI £ja JBJOq WxO T
t73xa ?
IBpUBIJS UD ‘JBUI sqa IBJOl] /,pa 'I
b
IBpUBIJS U3 ‘JBUI JDy IBJOq ipa T
:uiiDcj u8d§ sjibas iiuiba buuij
8o iJnáinT^l bSd[J]!i BI)])]0U bqo>[s
QB lACj B BflÁq QB J8D[Q9IJ 13 13H
fiuueg ‘9
+ 93H > Z.3X>Í +/.3XH
'£ ZP8 +Z.PXH 'Z 9PX8 Í+9PH I
HjBj npijaj jn s
jnen/j/pjfs e usnej
Avari Hobib sér til þess aö pizzurnar fari ekki án ólívuoltunnar i ofninn
,,Sælkerinn“
— al modo italiano
Flóra reykvískra matsölustaða verður æ fjöl-
breyttari. Nú hefur enn eitt blómið vaxið úr grasi,
og það býsna fagurt og ilmríkt, m.a.s. í hjarta borg-
arinnar, Innstræti-við Austurstræti (við inngang-
inn að Nýja bíói). Hér er um að ræða veitingahúsið
Sælkerann sem nýverið opnaði í nýjum húsakynn-
um og með nýjan matseðil. Þar er á boðstólnum
fjölbreytilegur ítalskur matur sem sumur hver hef-
ur ekki sést áður á borðum íslenskra veitingahúsa.
Sælkerinn hefur og vínveitingaleyfi og býður upp á
úrval ítalskra og franskra vína. Eigendur staðarins
eru þeir Hafsteinn Gilsson og Jón Hjaltason, þeir
sömu og nú eru að innrétta Rosenberg-kjallarann
gamla undir Nýja bíói, en hann verður opnaður
innan tíðar.
Sælkerinn tekur um 40 manns í sæti og er þvi
fremur lítill. Hann er afskaplega heimilislegur,
hvítmálaður í hólf og gólf; innréttingin er nokkuð
svo matarleg: veggina prýða hillur hraukaðar gúm-
mulaði al modo italiano; eftir salnum miðjum
synda fiskar (í glerbúri...) og á milli básaeru annars
konar glerbúr sem i er raðað pastategundum ólik-
um að lit og lögun og minnir þetta óneitanlega á
sjávargróður.
Eldhús Sælkerans er vel mannað; Túnismaður-
inn Avari Hobib sér um að baka þær 20 pizzuteg-
undir sem á boðstólnum eru. Hann bakar þær í sér-
hönnuðum leirofni, þeim fyrsta sinnar tegundar
hérlendis; Avari bakar listir sínar í opnu eldhúsi
þannig að matargestir geta fylgst með öllum stigum
pizzugerðarinnar.
Þeir sem sjá um matargerðina að öðru leyti eru
þeir Ragnar Lárusson sem lengst af hefur unnið á
Hótel Esju, þar af sl. tvö ár sem yfirmatreiðslu-
maður, og Egill Kristjánsson sem hefur m.a. unnið
á Naustinu og nú siðast á veitingahúsi í Kaup-
mannahöfn sem heitir Natural. Þar er matreitt i
anda „la nouvelle cuisine francaise", nýju bylgj-
unnar í franskri matargerð; en hún beinist að því að
gera matinn léttari og spara hitaeiningarnar, án
þess þó að slaka nokkuð á ströngustu kröfum mat-
argerðarinnar. Helsta leiðin er sú að matreiða mat-
inn sem minnst, sleppa öllu brasi, nota aðeins úr-
vals hráefni og láta þau halda bragði sínu og öðrum
sérkennum. Þetta er jafnframt sú leið sem þeir
Ragnar og Egill fylgja í sinni matargerð í Sælkeran-
um, þeir krydda t.d. svo til eingöngu með ferskum
kryddjurtum eða þurrkuðum, og léttum vínum. Ég
hjó t.a.m. strax eftir því að salt notá þeir mjög spar-
lega eins og vera ber, en óhófleg saltnotkun er enn
nokkuð áberandi í matargerð íslenskra veitinga-
húsa, einkanlega vill brenna við að lífvænlegustu
sósur séu eyðilagðar á þann hátt.
Og þá er komið að sjálfum matseðlinum sem
samanstendur af fjölbreytilegum réttum og ódýr-
um (!) Af forréttum má nefna ristað alikálfabris
með eplum og Vermouthsósu; þar má og hafa
súpudrottningu ítala, Minestrone, saðsama og
holla (55 kr.), og ítalska l'iskisúpu með kræklingum
og koníaki (65 kr). Aö sjálfsögðu býður staðurinn
upp á ýmsar tegundir af pastaréttum, s.s. spaghettí
og makkarónur með ólíkum sósum, svo og iasagna
úr eldhólfinu, og tuttugu pizzutegundir eins og áð-
ur er getið. Kjötréttir eru sumir býsriá frumlegir.
Hvað segiði t.d. um þangfylltan lambahrygg með
glóaldinsósu, salati og hunangsbökuðum kartöfl-
um (215 kr). Þá er og sérstök ástæða til að mæla
með Rosenberg-kaffi eftir matinn: kaffi með þeytt-
um rjóma, styrktu með vodka og ítalska líkjörnum
Amaretto di Saronno.
Matreiðslumenn Sælkerans voru svo elskulegir
að láta mér i té uppskriftir að tveimur réttum á mat-
seðlinum sem ég kem hér með á framfæri. Ég get
af einlægni mælt með þeim báðum. En ef eitthvað
er óljóst í uppskriftunum, þýðir ekkert.að hringja
í mig... þá verðið þið að snúa ykkur til föðurhús-
anna. Og þá er annað hvort að elda lostætið sjálfur
eða skokka niður í Innstræti og borða þar. Sælker-
inn er opinn alla daga frá 11.45 til 23.30 nema
sunnudaga, þá er lokað. Athugið þó að eftir 22.00
er aðeins hægt að panta pizzur og um helgar er e.t.v.
vissara að panta borð fyrirfram á mesta annatím-
anum í síma 11533.
Þangfylltur lambahryggur
meö glóaldinsósu
Óhemju góður réttur. í Sælkeranum er hryggur-
inn borinn fram með hunangsbökuðum kartöflum
og hrásalati, en uppskriftin að kartöfluijum er al-
gjört hernaðarleyndarmál. Þið veljið þá bara það
meðlæti sem ykkur hugnast best. Ef þið notið nýtt
þang, verður það náttúrlega að vera nýtínt og úr
hreinni fjöru, en annars má kaupa það þurrkað t.d.
1 Kornmarkaðnum á Skólavörðustíg.
Uppskriftin er fyrir fjóra.
800 g lambahryggur (úrbeinaður)
40 g þang (söl)
4 msk hunang
salt og pipar '
Vi sitróna
1 appelsína
2 steinseljugreinar
4 dl kjötsoð
meizena-sósujafnari
1 dl rjómi
L Sjóðið þangið í u.þ.b. 10 mín. eða þar til það er
orðið vel mjúkt og hrærið hunanginu út í vatnið
smám saman á meðan þangið sýður. Þá er þang-
ið veitt upp úr og látið vel drjúpa af því.
2. Fyllið úrbeinaðan hrygginn með þanginu, bind-
ið hann upp og steikið í 175 gr. heitum ofni í 25
mín.
3. Á meðan sjóðið þið saman í pötti niðursneidda
sítrónuna og appelsínuna ásamt kjötsoði og sax-
aðri steinselju í 15 mín.
4. Þegar hryggurinn hefur bakast í ofninum í 25
mín. er soðinu hellt yfir og látið krauma í u.þ.b.
10 mín. Þá er soðipu síað frá, sett í pot t og bökuð
upp sósa með því að setja út í 1 di af rjóma og
þykkja með sósujafnaranum.
Spaghettí meö
sjávarréttakonfektí
Uppskriftin er handa 4—6.
3 msk óiífuolia
1 stór laukur (saxaður)
2 hvítlauksrif (söxuð eða marin)
1 tsk borðedik
lVi tsk. basil
1 tsk marjoram
3 dl niðursoðnir tómatar (án safans)
250 g niðursoðnir kræklingar
250 g rækjur
250 g hörpuskelfiskur
500 g spaghetti ,
1. Hitið olíuna í djúpri pönnu við meðalhita, steik-
ið í henni saxaðan laukinn þar til hann er orðinn
gulbrúnn. Hrærið að því búnu hvítlauknum saman
við, þá ediki, basil og marjoram og hrærið i í
u.þ.b. mínútu. Hækkið þá hitann, bætiö tómöt-
unum út í og sjóðið í 5 mín.
2. Lækkið hitann aftur niður í meðallag, setjið
hörpuskelfiskinn út í sósuna og látið krauma í
u.þ.b. 5 mín. með loki. Að síðustu er rækjum og
kræklingum blandað saman við og allt látið
krauma í u.þ.b. 2—3 mín. (með loki).
3. Og þá er sósan borin fram með soðnu spaghettí-
inu, fersku grænmetissáíati og nýju brauði. Á
Sælkeranum eru jafnframt bornar fram með
rétti þessum hvítlauksstyrktar kartöflur.