Helgarpósturinn - 18.08.1983, Blaðsíða 9
.. /■.. v .» i3f*p£
irinn Firrimtudagur 18. ágúst 1983
.i.nv/i -i
Einingar reiðhjólsins
Hallsteinn Sigurðsson sýnir á
Kjarvalsstöðum Fönsun og Vís-
un. Samkvæmt því rímar hann
saman járn. Hann hefur líka gert
mynd af Adam og Evu úr áli.
Hann fæst því við sköpun nýs
málmkyns. Þarna er líka myndin
Ris og er úr plötujárni.
Allar myndir Hallsteins Sig-
urðssonar fjalla um það vanda-
mál að standa, rísa eða falla. En
kannski ættu þær heldur að
hanga? Myndirnar bera" vanda-
málin með sér: hvers eðlis er ég,
annars en þess að vera aðeins
bygging? Ókyrrðin skín út úr
þeim og frumvandamál högg-
myndarinnar: hvar er þyngdar-
punkturinn?
Einhverra hluta vegna held ég
að þær ættu allar að vera lág-
myndir og liggja utan á vegg. En
myndirnar eru mér ósammála, og
til að mynda stendur myndin Ris
á öðrum fæti. Af öðrum fæti æti-
ar hún að rísa eða hefja sig til
flugs eða kannski hanga í lausu
lofti.
Við íslendingar höfum ekki
eignast marga listamenn sem hafa
unnið í anda byggingarstílsins
(konstruktivismans). Kringum
árið 1965 kom hann aftur fram á
sjónarsviðið í evrópskri list. Mig
minnir að Nútímalistasafnið í
Stokkhólmi hafi látið endur-
byggja byggingarmynd Tatlins í
anda Þriðja Internationalsins og
sýningarsalur Fischers í London
fylltist af verkum rússneskra
byggingarlistamanna og var hægt
að kaupa þau verk fyrir tiltölulega
lágt verð þá, þótt nú hafi verðið
rokið upp úr öllu valdi. Auðvelt
var að koma verkunum frá Sovét-
ríkjunum, enda litið á þau þar
sem hvert annað drasl. Sýningar-
salir vesturlanda fylltust síðan af
þessu skrani sem hækkaði stöðugt
i verði uns offramboð varð og
listaverkin hurfu úr sýningarsöl-
unum.
Oft hefur mig furðað að ekkert
skuli vera til af erlendri list hér-
lendis. Eftir stríð var hægt að fá
erlend listaverk fyrir fremur Iítið
fé og margir íslendingar með mik-
ið fé handa á milli, sem hefði mátt
nota til listaverkakaupa, og þá
ekki aðeins peningamenn sem
kaupa aðeins í magann, heldur
líka menningarmenn og lista-
menn sem kaupa andlegt fóður.
Engum hefur samt dottið í hug að
kaupa erlenda list og segir það
ýmislegt um hið andlega ástand
okkar. Það er jafn talandi dæmi
og minningarbækur listamann-
anna. Eftir þeim að dæma hafa
þeir ekki verið í tengslum við and-
legar hræringar á meginlandinu
þótt þeir ættu heima í borgum þar
sem allt iðaði af listalífi. Til að
mynda virðist myndlistarlíf fútúr-
istanna ítölsku í Mílanó hafa farið
algerlega fram hjá Eggert Stefáns-
syni. Finnur Jónsson virðist vera
eini íslenski listamaðurinn sem
var erlendis í tengslum við menn-
ingaröfl og stefnur meginlands-
ins.
Líklega hefur Hallsteinn orðið
fyrir ríkum áhrifum frá þeirri
byggingar- og formstefnu sem fór
að gæta á ný eftir 1965, bæði á
sviði myndlistar og bókmennta.
Slíkar stefnur hyggja fremur að
formi eða gerð verksins, byggingu
þess en til að mynda innihaldinu.
Sú var skoðun Jacobsons að inni-
haldið fyndist aðeins með því að
gerðin hefði verið athuguð áður.
Formstefnumennirnir sovésku
lentu því í andstöðu við hið póli-
tíska vald sem áleit að efnið eða
boðskapurinn eða áróðursgildi
verksins skipti höfuðmáli en
formrannsóknir væru innantóm-
ar. Stefna menningarinnar hefur
farið í þveröfuga átt við listvilja
og pólitískan vilja andstæðinga
formstefnunnar. í málvísindum,
listum, tónlist hefur verið stund-
uð þrotlaus formleit og format-
hugun. Við búum i formathugun-
arþjóðfélögum. Og byggingar-
stefnan hefur leitt af sér hug-
myndir um hið „opna þjóðfélag“
Poppers, hið opna bókmennta-
verk Umberto Ecos, að ógleymdu
„hinu opna !jóði“ og hinni opnu
„Ókyrrðin skín út úr þeim og
frumvandamál höggmyndar-
innar! hvar er þyngdarpunktur-
inn”? segir Guðbergur Bergsson
m.a. um höggmyndir Hallsteins
Sigurðssonar.
markaðsstefnu vesturlandaþjóð-
félaganna.
En Hallsteinn hefur líka orðið
fyrir ríkum áhrifum frá íslenskri
myndlist. Ef litið er inn á sýningu
verka í eigu Reykjavíkurborgar
sem er líka að Kjarvalsstöðum
sést samhengið, tengsl högg-
mynda hans við hina íslensku ab-
straktlist og góð dæmi um það
samhengi eru málverk Hafsteins
Austmanns og Karls Kvarans
þarna á sýningunni og getur hver
sem er borið málverkin saman við
höggmyndirnar fyrir utan.
Myndin við innganginn á Kjar-
valsstöðum er frábært dæmi um
vinnubrögð formstefnumanns,
hún líkist reiðhjóli sem einhver
hefur fleygt frá sér og form þess
hafa leyst upp í hjólhlutana.
Höggmyndin er eins konar minn-
ismerki um reiðhjólið, í síðkúb-
iskum stíl.
Formstefnan er tíðum þjóðfé-
lagslegri en þjóðfélagshugsun til
að mynda stjórnmálamannsins
sem beitir hugsun sinni í ákveðn-
um tilgangi. Höggmyndir Hall-
steins bera vott um félagshugsun
og í eðli sínu eru þær þjóðfélags-
legar.
Við Islendingar erum opið
samfélag forma í þjóðfélagsmynd
sem veit ekki hvort hún á að
fljúga, standa á öðrum fæti,
halda jafnvægi, vera hölt eða
klessa sér á jörðina.
Vegna tengsla höggmynda
Hallsteins við hið íslenska óhlut-
bundna málverk, sem er hvað ytri
gerð áhrærir lituð form á litfleti,
finnst mér að þau ættu að taka á-
kvörðun: verða að lágmyndum og
hafa á bak við sig litaðan vegg. En
auðvitað er það þjóðfélagið sem
tekur ákvörðun um stöðu sína og
listanna. Berið síðan saman stöðu
myndarinnar Ris og það hvernig
veran stendur á öðrum fæti i
höggmynd Helga Gíslasonar, inni
á sýningunni á Kjarvalsstöðum,
og hugsið síðan um stöðu hins ís-
lenska þjóðfélags og hina ein-
fættu framgöngu okkar við það
að rísa og hefja okkur til flugs út
í óvissu tímans.
Jónssyni. Við höfum talað við
manninn. Var hann ekki lögga?
11.05 Ég man þá tíð. Hermann Ragnar
Stefánsson og gömlu góðu lögin.
Ekki er hann orðinn gamall, eins og
ég?
11.35 Sumarkveðja frá Stokkhólmi.
Hafa Sviarnir svo sumar ofan á allt
saman? Oj bara. Jakob S. Jónsson
segir frá.
14.30 Á frívaktínnl. Margrét Guðmunds-
dóttir sér um sjómannalögin. Ég sé
um vökulögin.
17.05 Af stað. Út i buskabláinn. Tryggvi
Jakobsson er orðinn hundleiður á
þessum ferðalögum.
19.50 Við stokkinn. Magnea Matt segir
börnunum léttfríkaöar sögur fyrir
svefninn.
23.00 Náttfari. Og hananú. Gestur E.
Jónasson man kannski ekki eftir
þeim eina og sanna.
Laugardagur
20. ágúst
8.20 Morguntónleikar. Furðulegasta
tónlist á furðulegasta tíma. Undur
tækninnar.
10.25 Óskalög sjúkllnga. Lóa Guöjóns-
dóttir ber höfuð og herðar yfir aðra
hér í þessu útvarpi fyrir röggsemis
sakir og snerpu.
11.20 Sumarsnældan. Vernharður Linn-
et sér um sumarþátt og helgarviöbit
fyrir krakkana. Vanur maður að fást
viö alls kyns skylmingameistara og
byssubófa.
13.35 Llstapopp. Gunnar Sahvarsson
veiur. Ég þekki mann sem hlustar
alltaf. Sá er í listum.
16.20 Staldrað við i Skagafirði. Skond-
inn fýr hann Jónas, hann getur tal-
að endalaust viö allt og alla, lika
sjálfan sig.
19.35 Óskastund. Allt er ömurlegt í út-
varpinu. Þó ekki þetta. Heimi
Steinssyni þykir vænt um Reykja-
vík. Samt er hanri sveitavargur.
20.30 Sumarvaka. Undarleg er islensk
þjóö (ekki min orð) og fleira um lífið
i Reykjavík og Flatey.
Sunnudagur
21. ágúst
10.25 Út og suður. Dr. Gunnlaugur
Þórðarson segir frá ferð sinni til
New York og Washington i vor.
11.00 Messa á Hólahátið. Sr. Sigurður
Guðmundsson.
13.30 Sporbrautin. Ólafur H. Torfason og
Örn Ingi eru fyndnir fram I fingur-
góma (a.m.k.).
15.15 Konstantín Wecker. Guöni Braga-
son og Hilmar Oddsson kynna
þýska Ijóðskáldið og söngvarann. O
þeir eru svo sætir...
16.25 Sagan af Karlssyni. Endurtekið
viðtal sem Stefán Jónsson átti við
Jóhannes Jósepsson á borg
áttræðan áriö 1963. O sei sei.
19.50 Rafmögnuð augu þín eru rang-
eygð. Nei, þetta er ekki eftir eitt af
nýju pönkskáldunum heldur eftir
Jónas E. Svafár.
21.00 Elttogannaöum drauginn. Já þau
halda áfram Þórdís og Símon.
23.00 Djass. Chicago og New York. 2.
þáttur Jón Múli er einn sá allra dug-
legasti í sveiflunni.
9
llíóill
Nýja bíó:
„Sjónvarpsdraugurinn" (Polter-
geist). Bandarísk, árgerð 1982. Að-
alhlutverk: Craig Nelson og Jobeth
Williams. Leikstjóri: Steven Spiel-
berg.
Þetta er kraftmikil reimleikamynd,
sem gerist á heimili einu. Þessa
mynd gerði Spielberg á sama tima og
hann gerði E.T. Og hún er bæði í
stereo og dolby.
Laugarásbíó:
Timaskekkja á Grand Hotel. (Some-
where in Time). Bandarísk, árgerð
1981. Aðalhlutverk: Chrlstopher
Reeve, Jane Seymour og Christ-
opher Plummer. Leikstjóri: Jaan
Not Szwarc.
Ungur rithöfundur fer aftur i tímann
og hittir þá leikkonu frá fyrri tið.
Bíóhöllin: ***
Utangarðsdrengir. (The Outslders).
Bandarisk. Árgerö 1983. Handrit:
Kathleen Knutsen Rowell eftir bók
S.E. Hinton. Kvikmyndataka:
Stephen H. Burum. Tónlist: Carm-
en Coppola (faöir leikstjórans).
Leikendur: C. Thomas Howell,
Ralph Macchio, Matt Dillon o.fl.
Leikstjóri: Francis Ford Coppola.
Þetta er spennandi strákasaga meö
slagsmálum, sorg, hetjudáöum og
dauða. Og svo auðvitaö stelpum,
þeim miklu örlagavöldum.
— LÝÓ.
Allt á floti. (Take this Job and Shove
it). Bandarísk kvikmynd. Árgerð
1982. Aðalhlutverk: Robert Heys,
Barbara Hershey, David Keith, Art
Carney, Eddie Albert. Leikstjóri:
Gus Trikonis.
Þessi grinmynd fjallar um bjórbrugg-
ara og lögmál frjálsrar samkeppni hið
vestra.
Svartskeggur (Blackbeard's Ghost)
Bandarísk kvikmynd. Aðalhlutverk:
Peter Ustinov, Dean Jones ofl.
Grinmynd um sjóræningjann Svart-
skegg sem skýtur upp kollinum eftir
200 ára dvala.
Einvíglð (The Challenge) Banda-
risk. Árgerð 1982. Aðalhlutverk:
Scott Glenn, Toshlro Mifune. Leik-
stjóri: John Frankenheimer.
Myndin fjallar um einfara sem lendir
óvart í striði milli tveggja bræðra.
Sú göldrótta. (Bedknotes and
Broomsticks) Walt Disney mynd.
Aöalhlutverk: Angela Lansbury og
Roddy McDowell. Leikstjóri: Robert
Stevenson.
i þessari er einn sá mesti kappleikur
sem sést hefur lengi. Myndin er bæði
leikin og teiknuð.
Merry Christmas Mr. Lawrence.
Japönsk-bandarisk, árgerð 1983.
Handrlt Naglsa Oshima og Paul
Meyersberg eftir skáldsögu Sir
Laurens van der Post.Aðalhlutverk:
David Bowie, Tom Conti, Ryuichi
Sakomoto, Takeshi, Jack Thomp-
son. Leikstjóri: Nagisa Oshlma.
„Þaö er Japaninn Oshima sem gerir
myndinaog finnst mér hann halla full-
mikið á sína eigin landsmenn og
finnst mér það varla nægja sem skýr-
ing, að myndin byggist á vestrænni
bók... Óskandi væri að Oshima og
félagar hans fengju að gera ekta jap-
anskar myndir i Japan en þangað til
er gott að þeir féi að æfa sig á mynd-
um klæðskerasaumuðum fyrir vest-
rænan markað" * * *
— LÝÓ.
Atlantic City. Bandarfsk kvikmynd,
árgerð 1981. Leikendur: Burt
Lancaster, Susan Sarandon. Leik-
stjórl: Louls Malle. ***
Regnboginn:
Tataralestin (Caravan Vaccares)
Bandarísk. Byggð á sögu Allstair
MacLean. Aðalhlutverk: Charlotte
Rampllng, David Birney, Michael
Lonsdale.
f brlmgarðlnum. (Blg Wednesday)
Bandarísk. Aöalhlutverk: Jan-Mich-
ael Vlncent, William Katt, Patty
d'Arbanville. Lelkstjóri: John Mii-
ius.
Leynivopnið. Bandarísk. Aðalhlut-
verk: Brendan Boone, Stephen
Boynd, Ray Milland.
Grimmur leikur. Bandarisk. Aðat-
hlutverk: Gregg Henry, George
Kennedy, Kay Lenz.
Þetta eru allt hörkuspennandi eöa
jafnvel æsispennandi myndir.
lönó:
Sýnt verður úr kvikmyndinni
„Reykjavík vorra daga" eftir Óskar
Gislason á fimmtudag kl. 20.30. Kynn-
ir Pétur Pétursson, þulur.
Háskólabíó:
Blóðug hátfð. (My Bloody Valent-
ine). Bandarísk kvikmynd. Aðal-
hlutverk: Paul Kelman og Lori Hall-
ier. Leikstjóri: George Mihalka.
Þetta er hrollvekja byggð á sam-
nefndri sögu.
Einfarinn McQuade (Lone Wolf
McQuade) Amerísk árgerð 1983.
Leikstjóri: Steve Carver. Aðalhlut-
verk: Chuck Norris.
Splunkuný hasarmynd og örugglega
vel gerð.
★ ★ ★ framúrskarandi
★ ★★ ág«t
★ ★ góö
★ þolanleg
Q léleg
Austurbæjarbíó:
Grimmlyndagreifafrúin. (The Wick-
ed Lady). Ensk kvikmynd. Árgerö
1983. Aðalhlutverk: Fay Dunnaway
og Alan Bates. Lelkstjóri: Michael
Winner.
Myndin byggir á sannsögulegum at-
buröum. Greifafrúin læðist út um
nætur og myröir ferðamenn sem
verða á vegi hennar.
íslenska óperan:
Kvikmyndirnar Three Faces of lce-
land (Þrjár ásjónur fslands), From
the ice-cold Deep (Fagur fiskur úr
sjó) og Days of Destruction (Eldeyj-
an) sýndar sunnudag, mánudag og
fimmtudag kl. 21. Föstudag og laug-
ardag kl. 18.
Stjörnubíó: ***
Gandhi. Bresk-indversk kvikmynd.
Árgerð 1983. Handrit: John Briley.
Leikendur: Ben Kingsley, Candice
Bergen, Edward Fox, John Gielgud,
Trevor Howard, John Mllls, Martin
Sheen. Leikstjóri: Richard Atten-
borough.
„Prýðiskvikmynd sem er löng, en
ekki leiðinleg. Merkilegur hluti sam-
timasögunnar, sem er fegrun, ekki
lygi. Óvægin sjálfsgagnrýni Breta,
sem gerir þeim mögulegt að liða bet-
ur á eftir, eins og katólikka, sem er ný-
búinn aö skrifta."
— LYÓ.
Hanky Panky. Bandarisk. Aðalhlut-
verk: Gene Wilder, Gilda Radner,
Rlchard Widmark. Leikstjóri: Sid-
ney Poiter.
Saklaus maður flækist inn i glæpa-
mál og tekur nú ýmislegt að gerast.
Tootsle. Bandarfsk kvlkmynd, ár-
gerð 1983. Leikendur: Dustin Hoff-
man, Jessica Lange, Terry Garr,
Charles Durning. Leikstjóri: Sldney
Pollack. Dustin Hoffman fer á kostum
i aðalhlutverkinu og sýnir afburða-
takta sem gamanleikari. Tootsie er ó-
svikin skemmtimynd. Maður hlær oft
og hefur litið gleðitár I auga þegar
upp er staöið. * *. *
- LYÓ
tólllisf
íslenska óperan:
íslensk þjóölög, flutt af kór íslensku
óperunnar og einsöngvurum. Eldeyj-
an, kvikmynd um gosiö i Heimaey.
Myndlistarsýning.ÁsgrímurJónsson,
Jón Stefánsson og Kjarval. Föstu-
dags- og laugardagskvöld kl. 21.
Árbæjarsafn:
Ásunnudagkl. 16leikúrEinar Einars-
son á gitar i Eimreiöarskemmunni.
Menningarmiðstöðin
Gerðubergi:
Á föstudagskvöld kl. 20 leikur Áshild-
ur Haraldsdóttir á flautu viö undirleik
Hauks Tómassonar. Elisabet F. Eir-
íksdóttir sópran og Július Vifill Ingv-
arsson tenór syngja, Nina Margrét
Grimsdóttir og Sigriöur Hulda Geir-
laugsdóttir leika á pianó og Laufey
Siguröardóttir leikur á fiðlu. A sunnu-
dagskvöld kl. 21 syngur Kristinn Sig-
mundsson við undirleik Jónasar Ingi-
mundarsonar. — Aðgangur ókeypis.
Kjarvalsstaðir:
Á laugardaginn kl. 15 verður dagskrá
i tali og tónum sem nefnist „Reykjavík
fyrrog nú“. Samlestur úr bókum, Ijóð
og laust mál. Söngur og pianóundir-
leikur. Flytjendur: Anna Éinarsdóttir,
Emil Guðmundsson, Valgeir Skag-
fjörð og Þórunn Pálsdóttir, stjórnandi:
Helga Bachmann.
Hljómskálagarðurinn:
Hljómsveitin Vonbrigði leikur kl.
21.00.
viéburéir
Viðey:
Skoðunarferð um eyjuna meö Sigurði
Lindal og Örlygi Hálfdánarsyni. Kaffi-
veitingar. Lagt af stað kl. 14-15 á laug-
ardag.
Kjarvalsstaðir:
Sögustund fyrir börn áföstudag kl. 17.
Félagsmiðstöðvar Æ.R.:
Dansleikir í öllum félagsmiðstöðvun-
um á föstudagskvöldið kl. 21-01 i sam-
vinnu við S.A.T.T.
Lækjartorg:
Fiskmarkaður á vegum B.Ú.R. á
föstudaginn kl. 10-18.
Bláfjöll:
Útsýnisferö i Bláfjöll á laugardag.
Lagt af stað frá Kjarvalsstöðum kl. 10
og fráGerðubergi kl. 10.15. Leiðsögu-
maður: Einar Þ. Guðjohnsen.
Vatnsveita Reykjavíkur:
Opið fyrir borgarbúa á föstudag kl.
14-16 aö Breiðhöfða 13.
Menningarmiðstöðin
Gerðubergi:
Sögustund fyrir börn á föstudag kl.
15.