Helgarpósturinn - 07.03.1985, Qupperneq 16

Helgarpósturinn - 07.03.1985, Qupperneq 16
FREE STYLE FORMSKUM LOREAL **»« Já — nýja lagningarskúmið jrá L'ORÉALf og hárgreiðslan verður leikur einn. J.H. PARKET auglýsir: Er parketið orðið ljótt? Pússum upp og lökkum P/VRKET Einnig pússumviö upp og lökkum hverskyns viöargólf. Upplýsingar í síma 78074. Geymiö auglýsinguna. SYNINGAR Ásmundarsalur Freyjugötu 41 í Ásmundarsal stendur þessa dagana yfir sýning sem ber nafnið Architecture and Renewal in USA. Sýningin fjallar um arki- tektúr og endurbætur gamalla bæjarhluta. Lýst er I máli og myndum nokkrum viðfangs- efnum arkitekta I Bandarlkjunum, m.a. end- urskipulagningu Ibúðarhverfa I miðborgum, breytingu verslunarhverfis I Ibúðarhverfi, göngugötum, breytingu gamals húss I tón- listarhöll o.fl. Sýningin er opin til 14. mars, virka daga frá kl. 10—21, laugardaga og sunnudaga kl. 14—21. Gallerí Borg Pósthússtræti 9 I dag, fimmtudaginn 7. mars, opnar sýning á ollumálverkum Péturs Behrens. Sýningin stendur til 18. mars nk. Gallerfið er opið virka daga kl. 10—18 og um heigar frá 14—18. Gallerí Grjót Skólavörðustfg 4a í Gallerf Grjóti er að finna ýmiss konar lista- gripi, s.s. gullsmlði, málverk, keramlk, graflk o.fl. Gallerfið er opið á virkum dögum kl. 12-18. Höggmyndasafn Ásmundar Sveinssonar við Sigtún „Vinnan í list Ásmundar Sveinssonar" heitir sýning í safninu. Þar eru jafnt vinnuteikning- ar og höggmyndir til sýnis og fjalla á einn eða annan hátt um vinnuna. Safnið er opið daglega frá kl. 10—17. Gallerí Langbrók Amtmannsstfg 1 Laugardaginn 9. mars opnar sýning á tau- skúlptúrum eftir fjöllistamanninn Sjón. Ljóð fylgja I kaupbæti. Sýningin stendur fram til 24. þ.m. og verður opin virka daga kl. 12—18 og um helgar frá 14—22. Gallerí íslensk list Vesturgötu 17 Laugardaginn 9. mars, kl. 14.00 opnar Gunn- ar örn Gunnarsson myndlistarmaður sýn- ingu á teikningum, monotypum og högg- myndum. Sýningin verður opin alla virka daga frá kl. 9.00—17.00, laugardaga og sunnudaga kl. 14.00—18.00. Sýningunni lýkur sunnudaginn 24. mars. Kjarvalsstaðir viö Miklatún Þeim sem ekki vilja missa af sýningunum sem staðiö hafa yfir á Kjarvalsstöðum undanfarnar vikur, er góöfúslega bent á að bregöa sér um helgina. Hér er um að ræða sýningu á Ijósmyndum Margaret Bourke- White, 109 talsins, frá árunum 1930 — 54; skúlptúra eftir Kristjönu Samper; grafík og málverk eftir Rut Rebekku. Þá er og sýning á höggmyndum eftir Pál Guðmundsson. Listasafn Einars Jónssonar við Njarðargötu Safniö er opiö laugardaga og sunnudaga kl. 13:30—16, sem og garðurinn, sem hefur að geyma afsteypur af höggmyndum lista- mannsins. Heill heimur útaf fyrir sig! Farið bara, sjáiö og sannfærist! Listasafn tslands við Suöurgötu I Listasafni Islands stendur nú yfir sýning á vatnslitamyndum Gunnlaugs Scheving sem er hluti af dánargjöf hans til safnsins. Einnig eru til sýnis glermyndir eftir Leif Breiðfjörð og ýmisönnur verk í eigu safnsins. Safnið er, opið fjórum sinnum í viku; á þriöjudögum, j fimmtudögum, laugardögum og sunnudög- um kl. 13:30-16. Listasafn ASÍ Grensásvegi 16 „Náttúrubörn frá Nicaragua; alþýðumálarar • frá Solentiname" heitir sýning sem var opnuð um sl. helgi. Á sýningunni eru olíu- málverk og Ijósmyndir frá byltingunni í land- inu. Sýningin stendur til 24. mars og er opin daglega, að mánudögum frátöldum, virka daga kl. 14—20 og um helgar frá 14—22. ( Listmunahúsiö Lækjargötu 2 Magnús Kjartansson opnaöi sýningu sína í Listmunahúsinu um síðustu helgi en á henni er áö finna málverk sem eru unnin á þessu ári og í fyrra. Sýningin stendur til 17. mars og er opin frá þriðjudegi til föstudags, frá 10—18 og um helgar kl. 14—18. Lokað á mánudögum. Listamiðstöðin Hafnarstræti 22 í tilefni ársafmælis Gallerís Lækjartorgs var nú fyrir skömmu efnt til sýningar á verkum innlendra og erlendra listamanna sem hafa haft verk sín til sölu og leigu á þessu eina ári. Listamiöstöðin er opin daglega frá 14—18. Mokka Skólavörðustíg 3a Á laugardaginn kemur veröur uppi fótur og fit á Mokkakaffi, en þá opnar sýning þeirra Helga Þorgils Friðjónssonar og Kristins Guðbrands Harðarsonar. Norræna húsið Á laugardaginn kemur opnar Jóhanna Bogadóttir sýningu á málverkum, grafík og teikningum, verkum sem Jóhanna hefur unnið sl. tvö ár. Sýningin stendur til 17. mars og er opin daglega kl. 14—19. Nýlistasafnið við Vatnsstíg 43b Á morgun, föstudag, veröur opnuð sýning í Nýlistasafninu á verkum Georgs Árna. Sýn- ingin stendur til 17. mars og er opin daglega frá 16—20 á virkum dögum og kl. 16—22 um helgar. Þjóðminjasafnið við Hringbraut í Bogasal eru til sýnis Ijósmyndir Péturs Brynjólfssonar frá Reykjavík og nágrenni og lýsa athafnalífinu á árunum 1902—1915. Sýningin stendur til loka mánaöarins. Safn- iö er opið á þriðjudögum, fimmtudögum, laugardögum og sunnudögum kl. 13.30-16. BÍðlN ★ ★ ★ ★ framúrskarandi ★ ★ ★ ágæt ★ ★ góð ★ þolanleg O léleg Austurbæjarbíó Tarsan apabróðir (Greystoke — The Legend of Tarzan, Lord of the Ápes) ★★★ Klofningi Tarsans milli tveggja heima frum- skógarins og breskrar yfirstéttarmenningar er meistaralega lýst í umgjörð darwinisma 19. aldarinnar og umræðunni um áhrif arfs og umhverfis á manninn. Sýnd í sal 1, kl. 5, 7:30 og 10. Forhertir stríðskappar (Inglorious Bastards) ítölsk/frönsk. Með Bo Svenson og Fred Wil- liamson í aðalhlutverkum. Endursýnd í sal 2, kl. 5, 7, 9 og 11. Purple Rain ★★ Bandarísk. Árg. 1984. Tónlist: Prince. Leik- stjórn: Albert Magnoli. Aðalhlutverk: Prince, Apollonia Kotero, o.fl. Sýndísal 3, kl. 5, 7, 9 og 11. Bíóhöllin Heimkoma njósnarans (The Jigsaw Man) Bandarísk. Árg. 1982. Útsendari KGB og gagnnjósnari fær ákveðið verkefni að glíma við. Það er ekki gefiö upp hér. Punktur og basta. Leikstjórinn Terence Young er einkum þekktur fyrir gömlu James Bond myndirnar sínar með Sean Connery, t.a.m. Thunderball. Sýnd í sal 1, kl. 5, 7, 9 og 11. ísræningjarnir (The lce Pirates) Bandarísk. Árg. 1984. Framleiðandi: John Forenmean. Leikstjóri: Stewart Raffill. Aðal-i hlutverk: Robert Urich, Mary Crosby, Mic- hael D. Roberts, Hobb Carradine. Sýndísal 2, kl. 5, 7, 9og11. Þú lifir aðeins tvisvar (You Only Live Twice) Bandarísk. Árg. 1970. Leikstjóri: Lewis Gil- bert. Aðalhlutverk: Sean Connery, Akiko Wakabayashi, Donald Pleasence, Tetsuro Tamba. Framleiðendur: Albert R. Broccoli, Harry Saltzman. Byggð á sögu eftir lan Flemming. Það er sem sé enginn annar en hinn eini sanni James Bond, Sean Connery, sem steytir hnefann að bófunum. Njótiö, þess að hvíla ykkur á Símoni Templar um sinn. Sýnd í sal 3, kl. 5, 7:05, og 9:10. Nikkel fjallið (Nickel Mountain) ★★★ Leikstjóri: Drew Denbaum. Kvikmyndun: David Bridges. Íslensk/bandarísk. Árg. 1984. Handrit: Drew Denbaum upp úr skáld- sögu John Gardner. Framleiöandi: Jakob Magnússon. Aðalleikarar: Michael Cole, Hearther Langenkamp, Patrick Cassidy, Grace Zabriskie. „Sagan um Nikkelfjalliö vekur með manni sérstök hughrif. Þetta er falleg og róleg frá- sögn af því hvað ást og vinátta megnar enn í okkar hörðu þjóöfélögum." Sýnd í sal 4, kl. 9 og 11. Sagan endalausa (The Never Ending Story) Bandarísk. Árg. 1984. Leikstjóri: Wolfgang Petersen. Handrit: Herman Weigel, eftir bók Michaels Ende. Framleiðandi: Bernd Eich- inger og Dieter Geissler. Tónlist: Giorgio Moroder (Cat People, Flashdance). Aðal- hlutverk: Barret Oliver, Noah Hathaway, Tami Stronach, Moses Gunn. Sýnd í sal 4, kl. 5 og 7. í fullu fjöri (Reckless) Bandarísk. Árg. 1984. Leikstjóri: James Foly. Aðalleikarar: Daryl Hanna (skutlan ÍSplash). Aidan Quinn, Cliff Young. Þessi mynd er frá MGMUA um unglinga sem kunna aö lifa og leika sér, eins og þaö heitir víst. Sýnd í sal 3, kl. 11:15. Hóskólabíó Gorky Park ★★ Bandarísk. Árg. 1983. Handrit: Dennis Pott- er eftir sögu Martin Cruz Smith. Leikstjóri: Michael Apted. Aðalhlutverk: William Hurt, Lee Marvin, Johanna Pecula og fl. Þrjú ásjónulaus lík finnast í Moskvu. (Sjá umsögn í Listapósti). Sýnd kl. 9. Regnboginn Hótei New Hampshire Bandarísk. Árg. 1983. Eftir metsölubók John Irvings. Leikstjóri: Tony Richardson. Aðalhlutverk: Nastassia Kinski, Judie Fost- er, Beau Bridges. Gamanmynd með klikkuðu ívafi um hina stórfuröulegu Berry-fjölskyldu. En ansi lík Garp eftir bók sama höfundar. Bönnuö inn- an 16 ára. Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.15. Paris, Texas ★★★★ Stórkostleg kviða Wim Wenders um tilraun manns til skilnings á eigin uppruna og harm- sögu fjölskyldu sinnar og leit hans að konu sinni með ungum syni þeirra hjóna. Sýnd kl. 9. All of Me Bandarísk. Árg. 1984. Leikstjóri: Carl Reiner, Aðalhlutverk: Steve Martin, Lily Tomlin, Victoria Tennant. Ridiculous efni, að hætti gamanmynda. Cannonball — Run II Handritsgerö, iss og leikstjórn, nei takk..." -SER. Vistaskipti (Trading Places) ★★ Bandarísk. Árg. 1983. Handrit: Timothy Harris/Herschel Weingro. Tónlist: Elmer Bernstein. Leikstjórn: John Lands. Aðalhlut- verk: Dan Aykroyd, Eddie Murphy, Denholm Elliot, Ralph Bellamy, Don Ameché o.fl. „Ríkur geröur fátækur, fátækur gerður rík- ur... Leikstjóranum hefur tekist að gera bráðfyndna mynd um þvælt þema... frá- bær afþreying. .. Stjörnuleikur. Handrit pottþétt og plottþétt." -IM. Bryntrukkurinn Endursýnd bandarísk hasarmynd um síð- ustu auðlindirnar. Aðalhlutverk: Michael Beck, Annie McEnroe. Sýnd kl. 7, 9 og 11. Laugarásbíó Conan The Destroyer Bandarísk. Árg. 1984. Framleiðendur: Dino DiLaurentiis, Universal. Leikstjóri: Richard Fleischer. Aðalhlutverk: Arnold Schwarzen- egger hinn vöðvastælti og Grace Jones. Fyrirmyndin er sótt til teiknimyndafígúrunn- ar og jötunsins Conans sem fremur súper- hetjudáðir að hætti þess leiöa þjóðflokks. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Nýja Bíó Steggjapartý (Bachelor Party) Bandarísk. Árg. 1984. Leikstjóri: Neal Israel. Aðalleikarar: Tom Hanks, Tarny Kitaen. Þessi filma hefur að geyma gamanmál: Ungur maður hyggst steypa sér, sjálfviljugur, útí mýrarfen hjúskapar og vinirnir sjá sig knúna til að koma saman og kveðja í hinsta sinn... Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Tónabíó Með ástarkveðju frá Rússlandi (From Russia With Love) ★★ Bandarísk. Árg. 1963. Leikstjóri: Terence Young. Aðalhlutverk: Sean Connery, Dani- ela Bianchi, Robert Shaw. Gamli, góði Bond í Moskvuævintýrum sjö- unda áratungsins. Sýnd kl. 5, 7.10 og 9.15. Stjörnubíó The Natural ★★ Bandarísk. Árgerð 1984. Handrit: Roger Towne/Phil Dussenberry eftir sögu B. Malamuds. Leikstjóri: Berry Levinson. Aðal- hlutverk: Robert Redford, Robert Duvall, Glenn Close og fl. Samsafn góðra leikara í melódrama um hornabolta. Sjá umsögn í Listapósti. Sýnd kl. 5, 7.30 og 10. The Karate Kid Bandarísk. Árg. 1984. Framleiðandi: Jerry Weintraub. Handrit: Robert Mark Kamen. Kvikmyndun: James Crabe. Laikstjóri: John G. Avildsen. Aðalhlutverk: Ralph Macchio, iNoriyuki „Pat" Morita, Elisabeth Shue, Martin Kove, Randee Heller, William Zabka, Ron Thomas, Rob Gerrison, Chad Mc- Queen o.fl. Tónlist: Bill Conti. SýndíA-sal, kl. 5, 7:30 og 10. vIðburðir Norræna húsið Skipulagðar kynningar á norrænum bók- menntum eru nýhafnar á vegum norrænu sendikennaranna og bókasafns NH á yfir- standandi þingi Norðurlandaráös. Um síö- ustu helgi voru finnskar bækur til umfjöllun- ar en á laugardaginn kl. 15 kynnir norski sendikennarinn, Tor Ulset, norskar bækur. Landi hans, rithöfundurinn Kim Smðge, les síðan úr verkum sínum. Laugardalshöllin Anddyri Félag tölvunarfræðinema stendur að tölvu- sýningu dagana 7.—10. mars í anddyri Laug- ardalshallar. Um 20 aðilar sýna þar tölvubún- að og veröur á sýningunni ýmislegt sem telst til nýjunga á þessu sviöi hérlendis. Fólk getur skoðað þessi tímans tákn til kl. 22 alla sýningardagana, frá kl. 10 árdegis á föstud. og frá kl. 13 um helgina. Norræna húsið Kvikmyndaklúbburinn Norðurljós stendur að sýningu danskrar gamanmyndar í Nor- ræna húsinu um helgina, nánar tiltekið í sal Norræna hússins á laugardaginn kemur. Filman nefnist í lauslegri þýöingu Ryksugu- gengið eöa Stövsugebanden á því skondna máli. Leikstjóri fyrirbærisins er Bent Christ- ensen. Veitingahúsið við Þangbakka Á sunnudaginn 10. mars veröur heilmikið um að vera í því nafntogaða veitingahúsi, því þá gengst Danskennarasamband ís- lands fyrir danshátíð einni mikilli. Heims- meistaraparið skoska í suður-amerískum dönsum '84 er hingað komið á vegum DSÍ og ef lætur aö líkum þá mun það stíga dans- inn. Hana nú og enga öfund! Ef svo einhver þorir, þá veröur kærkomið tækifæri til að taka sporiö, og gera sig að fífli eftir nokkra drykki. Hátíðin hefst kl. 20 og stendur til kl. 2 f.h. Fjölskylduskemmtun verður haldin fyrr um daginn og hefst kl. 16.30. LEIKUST Leikfélag Akureyrar Samkomuhúsið á Akureyri Söngleikurinn Edith Piaf eftir Pam Gems verður frumsýndur annaö kvöld, föstudag og er að sjálfsögðu löngu uppselt. önnur og þriðja sýning verða svo á laugardags- og sunnudagskvöld kl. 20.30. Sjá umfjöllun í Listapósti. 16 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.