Helgarpósturinn - 25.07.1985, Blaðsíða 12
Magnús Eiríksson tónlistarmaður í HP-viðtali
eftir Ásgeir Tómasson mynd Sigríður Gunnarsdóttir
Magnús Eiríksson er löngu landsþekktur fyrir lög sín. Hver man t.d. ekki
eftir „Göngum yfir brúna/7 „Draumaprinsinn" eða ##Á rauðu ljósi##? Hann
á feril að baki sem meðlimur í Mannakorni, blúsari og jassari í Blús
kompaníinu eða hljómlistarmaður alveg sóló. Og þessa dagana er ný
sólóplata einmitt að koma út eftir hann. Ásgeir Tomasson, gagnrýnandi
HP, ræðir í eftirfarandi viðtali við Magnús um tónlistarferilinn,
sköpunargáfuna og manninn á bak við músíkina.
Ný Mannakornsplata er komin út, tíu laga og
heitir „í ljúfum leik“. Tíu laga er hún einfaldlega
vegna þess að fleiri komust ekki fyrir. Sex önnur
lög komu einnig til greina en verða að bíða betri
tíma. Allt efni plötunnar er eftir Magnús Eiríks-
son — nema einn texti. í ljúfum leik“ er fimmta
stóra platan þar sem Magnús leikur aðalhlut-
verkið.
Við hittum hann að máli uppi á lofti í hljóð-
færaversluninni Rín á Frakkastígnum. Fyrsta
spurningin var stutt, laggóð og um leið dálítið
heimskuleg:
— Finnst þér gaman ad vinna ad hljómplöt-
um?
„Já,“ svarar Magnús, hálf hissa. „Mér finnst
það dálítið gaman.“
— Hvers vegna hafa þá ekki komid út fleiri
plötur med þér á löngum tónlistarferli?
„Spurningin er alltaf um að hafa tíma aflögu.
Það er erfitt að þurfa alltaf að fást við plötuupp-
tökur eftir fastan vinnutíma, því að auðvitað eru
þær jafnmikil vinna og hvað annað."
— Sídasta platan þín var skráð á þig — sóló-
plata — en þrjár þœr nœstu á undan voru
Mannakornsplötur. Hvers vegna er hljómsveitin
skrifud fyrir þeirri nýju?
„Yrkisefnin eru þess eðlis, að þau passa ágæt-
lega inn í það sem á undan var komið með
Mannakorni. Andinn er svipaður og heildaryfir-
bragðið. Gagnrýnendur myndu orða það þann-
ig, að platan væri í rökréttu framhaldi af hinum."
Þar glottir Magnús lítillega. í bakgrunni heyrist
veðurþulur segja, að veður fari hlýnandi á Vest-
urlandi.
— Þýöir þad svartur húmor í bland við smá-
sögur í textaformi?
„Já, það má segja það. Eitt er þó ólíkt með
nýju plötunni og þeim fyrri; hún hefur ekki
þessa rólegu kafla. Mikil keyrsla yfirleitt."
— Hverjir hafa aðallega unnið með þér að „/
Ijúfum leik ?
„Það hafa nú aðallega verið Pálmi Gunnars-
son og Baldur Már Arngrímsson. Baldur á tækj-
unum og í upptökustjórninni. Páimi söng mest-
allt og spilaði náttúrlega allan bassa. Að öðru
leyti höfum við fengið hljóðfæraleikara inn eftir
hendinni. Eftir því hvað vantaði hverju sinni.
Ragnar aigurjonsson spuaoi a trommur 1 tlestum
• lógunum og Fúsi litli frá Akureyri trommaði í
einu eða tveimur. Við vorum með tvo hljóm-
borðsleikara til skiptis: Guðmund Benediktsson
og Magnús Kjartansson. Ég spilaði allan gítar og
söng eitt lag.“
Tölvuvæðingin
— Hvar er gamli Mannakornstrommarinn
Björn Björnsson? Hcettur?
„Nei, nei. En þegar við fórum í gang á sínum
tíma voru menn að spila hver í sínu horni, ef svo
má segja. Tii að byrja með notuðum við raf-
magnstrommara. Um svipað leyti fóru Ragnar
og Pálmi að spila saman í hljómsveit og náðu
ágætlega saman. Við töldum, að það flýtti fyrir
okkur að fá Ragnar í hópinn. Það er jú alltaf dá-
lítið atriði, að trommari og bassisti séu í góðri
samæfingu."
— Rafmagnstrommari segirðu. Hefur tölvu-
vœðingin haldið innreið stna í Mannakorn? Er
þarna mikið af skrýtnum hljómborðum?
„Nei, nei,“ svarar Magnús fljótmæltur. „Þetta
er mest gamla besetningin: trommur, gítar og
bassi. Gítarinn fær alveg að njóta sín eins og í
gamla daga. Ég nota ekki mikið þessi nýju tölvu-
verkfæri."
— Lýst þér ekki á þau?
„Jú, mér lýst ágætlega á þau." Magnús sveiflar
út hendinni. Rétt hjá okkur stendur tölvuskjár á
borði og hljómborðin standa og liggja allt í
kring. „Þetta eru prýðis gripir og gefa fín hljóð
frá sér.“
— En passa kannski ekki fyrir þína tónlist?
„Jú... jú, jú. Ég get vel heyrt sum lögin mín
hljóma með einhverjum þessara tækja. Hljóm-
borðin sérstaklega. Maður getur fengið heilu
orkestrin til að hljóma úr þeim. Gífurlegar sin-
fóníur ef maður er í því skapinu. En þau henta
ekki fyrir þá tónlist sem ég var að fást við fyrir
nýju plötuna."
— Þeir sem eru með þér á,,/Ijúfum leik" eru