Haukur - 19.09.1898, Blaðsíða 1

Haukur - 19.09.1898, Blaðsíða 1
Kemur út 1—2 í mánuði, að minnsta kosti 8 blað síðuri hv.ert skiíti. Árg minnst 80 arkir, kostar 2 kr. (erlendis kr. 2,50), er borgist fyrir 1. apríl. HAUKUR Uppsögn skrifleg, ógild nema komin sje til út- gefanda fyrir 1. júni, og uppsegjandi sje skuld- laus fyrir Hauk. Utgef- andi: Stefán Runólfsson. •»^<§> ALÞÝÐLEGT 8KEMMTI- OG FRÆÐI-RIT (§>#3^- M1.—2. ÍSAFJÖRÐUR, i g. SEPTEMBER 1898. Á fimm mfnútum. (Þýsk glæpamálssaga.) I. Hann var einstaklega ánægjulegur á svipinn, hann Hans Nordeck, þegar hann kom út úr ráðhús- inu, og hjelt af stað heimleiðis. Hann var svo inni- lega glaður yfir því, að fá að losna um tíma undan hinum erflðu skyldustörfum og oddborgaralegu em- bættisverkum. Hann hafði tæplega vonazt eftir því, að hinn gamli, önuglyndi húsbóndi hans, myndi veita honum þetta tvegga daga fararleyfi, sem hann hafði beðið um. En nú, þegar hann hafði fengið það um- mælalaust, hafði hann líka ásett sjer, að leggja af stað þegar um kvöldið til þorps þess, sem hann var fæddur og uppalinn í, til þess að nota þennan bless- aðan frítima sem allra bezt. Nordeek ritari var kom- inn af bernskualdrinum. Að Afloknu stúdentsprófi hafði hann fyrst lesið læknisfræði 1 fjögur ár, og svo hafði hann farið að hugsa um að læra lögfræði. Hann var því orðinn fullra 27 ára að aldri, þegar hann tók prófið. En hann var góðum hæfilegleikum búinn, og átti auðuga foreldra á lífi, og fyrir því var hann ekkert hnugginn yfir því, þótt námið gengi seint. Hann var svo handviss um það, að það myndi ekki liða á iöngu, þar til hann næði í þá jafnaldra sína, sem á undan honum höfðu orðið. Nú um stund- arsakir gengdi hann skýrsluritarastörfum við undir rjettinn í höfuðstað fylkisins, og gengdi hann þeifri stöðu með frábærum dugnaði og samvizkusemi, þótt honum þætti hún i meira lagi leiðinleg og þreytandi. Með því að eimlest sú, sem hann ætlaði með, átti að leggja af stað að tæpri klukkustundu liðinni, gekk hann svo hratt, sem hann gat, heim til sín, til þess að útbúa sig til fararinnar. Veðrið var kalt og hrá- slagalegt, hraglandarigning og rokstormur. Göturnar voru því næstum því mannlausar, og stormurinn hafði slökkt ijósið á aliflestum Jjóskerunum. Það var þess vegna ekkert undarlegt, þótt Nordeck yrði hálf-for- viða, þegar hann á gatnamótum einum, þar sem storm- urinn var einna ákafastur, sá stúlku eina standa og tala við ökumann, sem leit út fyrir að vera fjúkandi reiður. Ökumaðurinn talaði svo hátt, og með svo dimmri röddu, að Nordeck, þegar hann kom nær, heyrði hvert orð, sem hann sagði. »Peningabuddan yðar er í vaðsekknum, sem þjer hafið skilið eítir á járnbrautarstöðinni? Slíkt getur hver maður sagt, enjegtrúi nú ekki þess konar þvaðri. Og veði tek jeg alls ekki við. Jeg vii fá mína borg- ún fyrir aksturinn, eða þjer gerið svo vel, að fara aftur inn í vagninn, svo að jeg geti ekið með yður á lögreglustöðvarnar; þar verður sjálfsagt hægt að fá enda á þetta«. Nordeck heyrði ekki hverju siúlkan svaraði, en hann sá það á búningi bennar, að hún hlaut að vera II.'ÁR. úr heldri manna röð, og þótt hún sneri við honum bakinu, sá hann einnig á vaxtarlagi hennar, að hún myndi vera ung að aldri. Það var enginn efl á því, að hún var í vandræðum með, að losna við ökumann- inn, og vissan um það, að hún átti í kröggum, hefði verið nóg ástæða fyrir Nordeck til þess að bjóða henni aðstoð sína, jafnvel þótt honum hefði geðjast ver að útliti hennar. Hann vjek sjer því að henni, og heils- aði henni kurteislega. »Jeg bið yður að afsaka hlutsemi mfna en vona, að þjer þiggið þó að minnsta kosti, að jeg borgi þetta smáræði fyrir yður«. Stúlkan tók tilboði hans með meiri djörfung, heldur en hann hafði eiginlega búizt við. »Þjer eruð einstaklega elskuverður, herra minn, að vilja hjálpa mjer, svona alveg ókunnugri, og ef þjer viljið ábyrgjast mjer, að jeg geti fengið tækifæri til, að borga yður þetta aftur, þá þigg jeg tilboð yðar með þökkum«. Nordeck þóttist aldrei hafa heyrtjafn hljómfagra rödd, eins og þessa. Hann hneigði sig fyrir stúlk- unni, tók svo upp peningabuddu sína, og sneri sjer að ökumanninum. »Hvað er það mikið, sem hún skuldar yður? »Fyrir að aka manni frá Norðurstöðvunum og hingað, eru venjulega tekin tvö mörk. En stúlkan heflr hátíðlega lofað, að borga mjer fimm mörk fyrir það, ef jeg yrði fljótur, og þjer getið sjálfur sjeð, hvað klárinn er sveittur eftir sprettinn*. »Hjerna! Og flýtið yður svo að komast á brott, ef þjer viljið ekki, að jeg fari á lögreglustöövarnar, og kæri yður fyrir ósvifni yðar«, sagði Nordeck með einarðlegri og bjóðandi röddu. Ökumaðurinn hjelt þegar af stað, muldrandi eitt- hvað í skeggið. En stúlkan, sem nú var laus allra roála við hann, sneri sjer að Nordeck, og mælti: »Jeg þakka yður fyrir hjálpina, herra minn! Vegna þess að jeg legg að öllum líkindum af stað heimleiðis aftur þegar í kvöld, þá skildi jeg vaðsekkinn minn eftir á járn- brautar3töðinni, en hugsaði ekki út í það, að peninga- buddan mfn var i honum. Jeg bauð ökumanninum hring eða armband sem veð, en hann gerði sig ekki ánægðan með slíka tryggingu, og ef þjer hefðuð ekki komið, 0g hjáipað mjer, þá hefði jeg að líkindum neyðst til þess, að fylgja honum á lögreglustöðvarnar*. Nordeck var sem frá sjer numinn af því, hve rödd hennar var skær og fögur, og þó mátti heyra, að hún var ofurlitið skjálfrödduð, af því hún hafði reiðst við ökumanninn. Honum þótti einstaklega gaman að þessu æfintýri, þótt lítið væri, og með því að hann sá, að skjólstæðingur hans var regnhlífar- laus, bað hann hana um leyfi til þess, að fylgja henni, svo að hún gæti notað hans regnhlíf. »Jeg á nú ekki eftir nema fáeina faðma«, svar-

x

Haukur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Haukur
https://timarit.is/publication/48

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.