Tíminn - 14.07.1917, Blaðsíða 4
72
TÍMINN
— B. J. frá Vogi þakkaði flutnings-
manni; landið verði auðvitað að
taka lán, en það yrði svo að greiða
á mörgum árum þegar stríðinu er
lokið á sama hátt og ófriðarþjóð-
irnar greiði herlán sin. Matthías
Ólafsson taldi það bezta bjargráð-
ið að landssjóður tæki lán til vöru-
kaupa, lánaði síðan sveitaféfögum
vörurnar, þau lánuðu aftur þurf-
andi mönnum, en þeir greiddu
siðan það sem þeim væri kleift.
Verðhcekkunartollur á ull. Verð-
hækkunartollslögin eiga að falla úr
gildi í heild sinni 17. sept. í haust,
en nú flytur Gísli Sveinsson frum-
varp um að ákvæði laganna um
ullina falli þegar út gildi. Bændur
sefji ull sína fyrir 17. sept., og
gera þá kaupmenn ráð fyrir verð-
hækkunartollinum í verði því, sem
þeir setja á hana, en vart verði
ullin flutt út fyr en eftir 17. sept.,
en þá lendir tollurinn, eða fé sem
nemur lionum, hjá kaupmönnum,
en hvorki landsjóði né bændum;
væri það þó betur komið hjá þeim
en milliliðunum. í sambandi við
þetta frumvarp kom til tals að
nema öll verðhækkunartollslögin
úr gildi þegar í stað. Þingmenn
sögðu, sem satt er, að grundvöll-
urinn sé hruninn undan þeim, en
grundvöllurinn var sð, að fram-
leiðendur fengu stórum meira fyrir
vörur sinar en sem nam fram-
leiðslukostnaði; en nú liefir fram-
leiðslukostnaður bæði til lands og
sjávar stigið upp úr öllu valdi. En
sumir vildu ei afnema tollinn án
þess að hafa hugsað landssjóði
fyrir tekjum í skarðið. Þó verð-
hækkunartolls-heitið sé kannske
ekki lengur réttnefni á þessum
skatti, hvílir hann þó á báðum,
eða einu stéttunum sem nokkuð
framleiða, en annað er ekki hægt
að kalla liér á landi en einmitt
framleiðsluna; iðnaðurinn er enginn.
Sjál/slceðismálið. 10 þingmenn
bera fram lillögu um »að skipa 7
manna nefnd til þess að íhuga og
koma fram með tillögurum, hverj-
ar ráðstafanir gera skuli til að ná
sem fyrst öllum vorum málum í
vorar hendur og fá viðurkenningu
fullveldis vors«, Þessi tillaga er
komin fram með tilliti til lreims-
styrjaldarinnar. Við friðarsamning-
ana er búist við að hlutskifti landa
og ríkja verði ákveðin, og að ilt
verði að fá þeim ákvæðum breytt
um langan aldur. Nú sé því tæld-
færi til að koma sjálfstæðismálun-
unum í gott horf, en langt yrði að
bíða annars ef þetta sé látið ó-
notað.
Lög um skijrslnr um alidýra
sjúkdóma vilja þeir Magnús Guð-
mundsson og Þórarinn Jónsson
láta afnema; skýrslurnar séu bæði
ónákvæmar og óáreiðanlegar, enda
ekki hægt að krefjast af bændum
að þeir þekki nema allra algeng-
ustu húsdýrasjúkdóma.
Einkasala á kolum. Jör. Brynj.
hefir komið fram með frv. um
einkasölu á kolum; býst við að
landsmenn fengju þá kolin ódýrari
og landið græddi að minsla kosti
150 þús. kr. árlega.
Einkasala á tnjólk i Reykjavik.
Sami þingmaður bar fram frv. um
að bæjarstjórn fái heimild til að
taka að sér einkasölu á mjólk í
Reykjavík, bæði sé með því móti
hægt að útrýma óhreinlætinu í
sambandi við mjólkursöluna, og
skifta mjólkinni réttlátlega milli
manna, þegar of lítið er af henni.
frá útlönðnm.
Það virðist nú sem alt sé aftur
með kyrrnm kjörum í Grikldandi.
Veneselos er þar einvaldur. Hefir
rofið stjórnmálasambandið við
miðveldin en ekki* slitið friðnum
opinberlega.
ítölum miðar seint áfram og
hafa ekkert nálgast Triest lengi.
Orustur standa þar þó öðru hvoru
og veitir ýmsum betur. Ekkert hafa
ílalir samt farið halloka.
Rússar láta nú talsvert á sér
bera í Galeziu, þar sem þeir vinna
hvern sigurinn á fætur öðrum og
taka bæði Iand og lið af fjand-
mönnum sinum, Austurrikismönn-
um. Hafa nú Þjóðverjar orðið að
flytja lið austur á bóginn af vestri
vigstöðvunum og er þeim það þó
alltilfinnanlegt.
Heima í Þýzkalandi er talsvert
farið að brydda á óánægju með
stjórnarfyrirkomulagið. Má vænta
mikilla tíðinda þaðan er minst
vonum varir. Fólkið heimtar full-
komið þingræði sem hér, en á því
hefir verið æðimikill brestur til
þessa, þar sem keisarinn og hans
lið hefir tekið sér vald til að ráða
stjórninni þótt eigi hafi verið í
samræmi við meirihluta þingsins,
ef svo hefir viljað verkast. Nú
silja þeir feðgarnir, Vilhjálmur keis-
ari og ríkiserfinginn, sonur hans, á
ráðstefnu með kanzlaranum um
það hvað gera skuli til lausnar
þessari deilu. Talið er sennilegt að
Bethmann Plolhveg fari frá völd-
um — og því kent um, að fand-
vinningastefna hans muni elcki hafa
nægilegt fylgi í landinu nú orðið.
Af vopnaviðskiftum á veslri víg-
slöðvunum er ekkert markvert að
lierma. Þó hafa talsverðar loftor-
ustur ált sér stað þar um þessar
mundir og fátl sennilegra en þær
fari vaxandi, og það jafnvel stór-
kostlega því að nýkomin símskeyti
vestan um haf skýra frá því, að
Bandaríkjamenn N. A. sé að koma
upp loft-herflola, sem í eru ekki
færri flugvélar en tugir þúsunda.
Zeppelins loftárásir Þjóðverja eru
smámsaman endurteknar á London
og fleiri brezkar borgir. Nýlega
komu þær þangað tutlugu. Drápu
og særðu um 200 manns. Þrjár
þeirra voru skolnar niður af Eng-
lendingum.
Kafbátahernaðurinn liefir aldrei
verið ægilegri en nú. Váhyggingar-
iðgjöld hafa hækkað; eru jafnvel
komin upp í 331/3% af seglskipum
og að sögn 16—17% af gufuskip-
um. Bendir þetta á að voðinn er
ekki lítill. Þó má telja sigling milli
íslands og Norður-Ameríku ekki
mjög hættulega, en er undir hælinn
lagt hvort hægt er að fá þaðan,
óþrjótandi vörubirgðir.
Steinolíulaust er nú með öllu á
Norðurlöndum og kolaskorlur hinn
mesti. í Kaupmannahöfn kosta kol
300 kr. smálestin, þ. e. 30 aura
tvípundið.
JFréttir.
Tíðin hefir verið samnefnd sum-
arblíða alla vikuna. Gras vantar
þó vætu til þess að því fari vel
fram.
Síld er farin að veiðast að
nokkrum mun á ísafirði.
Siglingar. Til ísafjarðar er ný-
komið skip með salt og tunnur.
Scandia heitir skip sem liingað
kom með salt til Kveldúlfsfélags-
ins. Fálkinn koin í fyrradag frá
Austfjörðum, en þangað hafði hann
flutt 80 færeyska fiskimenn til
sumarveiða þar. Þrímastrað segl-
skip kom samdægurs með timb-
urfarm til Árna Jónssonar kaup-
manns. Þá er væntanlegt skip frá
Danmörku til> Kveldúlfsfélagsins
1000 smál. að stærð.
Vestinannaeyjasíiniim slitnaði í
marz í vetur og Eyjarnar því ver-
ið sambandslausar þar til 8. þ. m.
að loksins tókst að koma síma-
þræðinum saman. Höfðu áður verið
gerðar tilraunir til þess sem mis-
tókust, mest fyrir þá sök að eigi
var til það langur sæsímaþráður
að næði til þess að tengsla saman
endana. Var sæsíminn til Viðeyjar
tekinn upp og liafður til viðgerð-
arinnar, en þar látinn Iélegri þráð-
ur. Gisli J. Ólafsson fór til Ame-
ríku i þeim erindum að útvega
sæsímaþráð, er eigi hafði tekist að
útvega hann neinstaðar símaleiðina.
Suðurþingeyjarsýsln, 19. júní
1917. — — — »16. júní var þeim
Yztafellshjónum Sigurði Jónssyni
ráðherra og Kristbjörgu Marteins-
dóttur haldin kveðjuveizla á heim-
ili þeirra. Hátt á annað liundrað
manns tóku þátt í veizlunni, flest-
alt sveitungar þeirra úr Ljósavatns-
hreppi. Baldvin Baldvinsson bóndi
á Ófeigsstöðum og síra Sig. Guð-
mundsson á Vatnsenda héldu að-
alræðurnar og kvöddu hjónin sem
verið höfðu stoð og stytta bygðar-
innar meir en 30 ár. Afhenlu þeir
heiðursgestunum fyrir hönd sveit-
armanna tvo ágæia gripi: gullbú-
inn göngustaf úr svartaviði og fíla-
beini og brjóstnál úr skýru gulli.
Höfðu þeir Ríkarður Jónsson
myndhöggvari og Jónatan Jónsson
gullsmiður í Reykjavík gert grip-
ina. Á brjóstnálinni var lágmynd
þar sem sýnd var burtför þeirra
frá Yztafelli. Bak við þau laut
skógurinn í kveðjuskyni, en fram-
undan stráðu góðar dísir blómum
á veginn. Samsætið fór hið bezta
fram og þótli Ljósvetningum hvergi
bregða skugga á, nema er þeir
mintust þess að þetta var skilnað-
arstund. — — —
Skagafirði 18. júni. . . . Þing-
málafundir afstaðnir. Allir sam-
þyktu þeir hreifanlegan toll af síld,
en afnám verðhækkuna>'tollsins.
Sömuleiðis að breytt yrði lögunum
um launauppbót handa embættis-
mönnum í líka átt og sýslumaður
okkar á þingi liefir átt tillögur um.
Hitt hneiksli að veita stórríkum
framleiðendum launauppbót og
stundum margfalda, það álíka og
farið væri að samþykkja ófrðar-
uppbót handa bændum yfirleitt.
Sauðárkróks fundurinn mótmælti
járnbrautarlagningum fyrst um
sinn. Þá samþykt að styrkur til
búnaðarfálaga yrði framvegis veitt-
ur með því skilyrði, að eigi yrði
hlutábur niður handa hverjum ein-
stökuin félagsmanni, heldur skyldi
lionum varið til sameiginlegra þarfa,
kaupa stærri verkfæra, verðlauna
innan félagsins eða annars þess er
fremur lyfti til notasælla fram-
kvæmda en fyrirkomulag það sem er.
Hrossasýning var haldin á Heg-
ranesþingstað hjá Garði 16,-júní.
Fengu 7 folar önnur verðlaun, en
enginn fyrstu og voru margir hissa
á þvi. Kröfurnar liækka. Einn hafði
verið á takmörkum. . . .
Skipnm sökt. Skeyti barst hing-
að til bæjarins 8. þ. mán. um það
að Flóra hefði verið skotin í kaf,
en menn allir af henni bjargast.
Hefir Flóra verið í siglingum hing-
að til lands um allmörg ár, og
einkum haldið uppi samgöngum
við Noreg, enda var hún norsk
eign. Síðan í febrúar liefir hún
ein verið í stöðugum ferðum milli
íslands og Norðurlanda. Fréttin um
að Flóra væri sokkin barst hingað
nákvæmlega ári síðar en hún var
tekin hernámi og ílult til Englands
. . . sællar minningar.
Þá barst stjórnarráðinu símskeyti
um það 10. þ. mán., að sldpi sem
Kodan hét og landsstjórnin hafði
leigt til kolaflutnings hingað heim,
hefði verið sökt. Var það seglskip,
sem bar 600 smálestir. Var Ivodan
nýlögð af stað.
Hallgrímur Kristinsson fram-
kvæmdarsljóri kaupfélaganna kom
landveg að norðan nú í vikunni
lil þess að setjast hér að.
Um lausn frá embælti sækir
Davíð Scli. Thorsteinson héraðs-
læknir á ísafirði. Heíir hann verið
í læknisembætli 36 ár.
Ritsfjóri:
Guðbrandnr Mng-nússon.
Ilótel ísland 27.
Sími 367.
Prentsmiðjan Gutenberg.