Tíminn - 06.10.1917, Page 1
TÍMINN
kemur út einu sinni i
viku og kostar 4 kr. frá
upphafl til áramóta.
Efe.__________________—
ÁFGREIÐSLA
Bókbandið á Laugav. 18
(Björn Björnsson). Par
tekið móti áskrifendum.
I. ár.
Reykjavík, 6. október 1917.
30. blað.
Hkipasal an.
j, Langstærsta verzlunin sem ís-
lendingar hafa gert í senn, mun
vera sala botnvörpunganna tíu,
sem um var getið í síðasta blaði.
Kvað söluverðið vera hálf íimta
milj. króna.
Misjöfnum au£um mun nú litið
á þessa verzlun, enda hefir sár»»
lítið verið um hana rætt opinber-
3ega, þegar undan eru skilin hnútu-
köst að þingi og stjórn fyrir að
hafa heimilað söluna.
Þótt margt bendi til að pen-
ingavelta fari nú stórum vaxandi
hér á landi og fyrirtæki beri á
gónia sem kosta tugi miljóna, þá
er hér þó um svo óvenjustórar
fjárhæðir að ræða, að full ástæða
er til að menn geri sér nokkura
grein fyrir því sem um ræðir, og
þá eigi síður fyrir því sem vinst,
en liinu sem tapast.
Menn sjá eftir skipunum, þau
hafa aflað vel og fært landinu
mikinn gróða. Kvíða menn nú
aflaleysi og atvinnuskorti úr því
svona margir botnvörpungar eru
seldir.
En þetta er ekki nema önnur
hlið þessa máls.
Allar horfur voru á því, að skipin
hefðu eigi orðið að sama gagni
hér eftir sem hingað til, meðan á
ófriðnum stendur. Veldur því af-
arverð á kolum og salti og öðru
því er til útgerðar heyrir. Skipin
hefðu að öllum líkindum orðið
ómagar á eigendum sínum. Von-
laust um að botnvörpungaútgerð
gæti borið sig meðan alt situr við
það sem er. Skipin mundu hafa
orðið að liggja í höfnum aðgerð-
arlaus og orsaka stórvægilegt rentu-
tap á hverjum degi. Útgerðarmönn-
um stóð stuggur af horfunum og
því var það sízt að undra, þótt
þeir létu skipin föl, þegar boðið
var í þau tvöfalt verð við það,
sem þau höfðu kostað. Frakk-
neska stjórnin gerði boð í skipin.
En ekkert gat úr skipasölunni
orðið án þess að kæmi til kasla
þings og stjórnar, þvi ollu lögin
sem samþykt voru á aukaþinginu
í vetur um að banna sölu skipa
úr landi, og ekki er laust við að
ámælt haíi verið undanþágunni
frá þeim lögum.
En sé ekki um of einhliða litið
á þetta mál, þá mun verða fremur
lítið úr ámælunum. Annars vegar
eigi annað fyrirsjáanlegt en að-
gerðarleysi þessara dýru útgerðar-
tækja, sem þá hefðu orsakað stór-
tap, en hins vegar mjög gott verð
í boði fyrir skipin.
Og stjórn og þing heimila ekki
söluna skilyrðislaust. Seljendurnir
fá eigi útborgað meir en Ú3 af
söluverði, hitt fær landið að láni
og greiðir eigi nema aftur séu
keypt fyrir það fiskiskip. t*á var
það ennfremur gert að skilyrði, að
3°/o af söluverðinu rj'nni í sjóð til
d5Trtíðarráðstöfunar og hjálpar þeim,
sem atvinnu missa við sölu skip-
anna. Nemur sú fjárhæð 135 þús-
undum króna, og verður ráðstöfun
þess fjár í höndum landsstjórnar
og bæjarstjórnar Reykjavíkur í
sameiningu.
Ein lilunniudin að skipasölunni
eru þau, að skipin eru að nokkru
borguð í mjög ódýrum kolum og
salti íluttum heim á Reykjavikur-
höfn. Hefir Tíminn heyrt að beini
gróðinn á kolunum og saltinu
nemi fullri miljón króna, og sá
gróði rennur í landssjóð. Óbeini
hagnaðurinn af þessum heimfluttu
vörum verður eigi metinn, en
mikilsvirði hlýtur það að vera að
hafa þrjú stór skip í þjónustu sinni
á þessum tímum, og ekkert þeirra
skemur en í mánuð, en saltið kom
eins og kunnugt er, þegar mest á reið
og saltleysið krepti einna mest að.
Hlaut landsstjórnin að gangast
fyrir því, að vörum þessum, 6000
smálestum af kolum og 4000 smá-
lestum af salti, var lofað alveg
skilyrðislaust heilu og höldnu hing-
að heim, hvað sem allri kafbáta-
hættu liði, en það loforð gefið ein-
mitt um það Ieyti sem mestu var
sökt af skipum á vegum íslend-
inga.
Úá má enn á það líta, að eigi
er það ólíklegt að þetta geti orðið
upphaf vinsamlegra viðskifta við
frakknesku þjóðina, en þangað
getum við meðal annars sótt það,
sem okkur vanhagar einna mest
um, fjárlán með hagfeldum kjör-
um.
Þeirri mótbáru hefir verið hreyft
manna í milli, að þetta gæti talist
hlutlej'sisbrot, að selja Frökkum
skipin. En slíkt mun eigi hafa
nein rök við að styðjast. Má í því
sambandi benda á það, að Morg-
unblaðinu 21. sept. barst skeyti
um það, að Norðmenn, Svíar og
Hollendingar hefðu boðist til að
selja Bandarikjunum skip sem
bera saintals 750 þúsund smál.
Mundu þessi lönd eigi hrfa gert
þetta, hefði skipasala talist hlut-
leysisbrot. Hitt er aukaatriði þótt
ekkert kunni að hafa orðið úr
þessum kaupum.
Ekkert verður um það sagt hvað
framtíðin ber í skauti, en erfitt
mun að lialda því fram að eigi
hafi flest mælt með skipasölunni
en fæst á móti, enda verður nú
hægra um vik fyrir landssljórnina
að sjá mönnum fyrir annari at-
vinnu, er hún hefir fengið slík
fjárráð. Og hálf fimta iniijón er afl
sem ekki stærri þjóð en okkur
hlýtur að muna mikið um að
leyst sé úr læðingi.
KjStverzInnfn.
Kjötframleiðslan er aðalþáttur
landbúnaðarins hér á landi, og á
hann því mikið undir kjötsölunni,
hvernig hún heppnast. Samning-
arnir við Breta í vetur gáfu sízt
góðar vonir, þar sem kjötverðið
sat við það sem var í fyrra, en
bæði hafði mikil liækkun átt sér
stað á ílestu sem til þessarar fram-
leiðslu þurfti eins og annarar, og
enn meiri hækkun fyrirsjáanleg,
áður en til sölunnar gæti komið.
Situr enn við sama verð á kjöt-
inu, £u sú tilslökun liefir þó feng-
ist af hálfu Breta, að flytja má 15
þúsund tunnur af kjöti til Noregs
og selja það þar. En gengið er að
því sem vísu, að hærra verð fáist
fyrir kjötið í Noregi, en brezku
samningarnir gera ráð fyrir.
Til þes$ nú að verðmismunur
þessi komi réttlátlega niður, hefir
sljórnin fallist á tillögur þeirra
Hallgrims Kristinssonar og Péturs
Jónssonar frá Gautlöndum um það,
hvernig haga skuli kjötsölunni, en
tillögurnar áður bornar undir
kaupmannaráðið og það fallist á
þær óbreyttar.
Með því að hér er um megin-
framleiðslu annars aðalatvinnuveg-
arins að ræða og tilhögun sem
allan almenning varðar, þar sem
ráðstöfunin hefir áhrif á kjötsöl-
una í landinu eigi síður en úr
landi, þá þykir Tímanum við eiga
að birta þær i heild sinni ásamt
athugasemdum tillögumanna. Og
eigi letur það blaðið heldur, að
hér er um einu lieilsteyptu til-
raunina að ræða, sem gerð hefir
verið hér á landi til þess að koma
að jafnvægi i verzlun vörutegundar
sein allur almenningur á mikið
undir. Bendir alt til að hér ætli
að takast að rata' þann meðalveg
sem bæði fjárhóndinn og þurra-
búðarmaðurinn geti sætt sig við.
Tillögurnar.
Á því er bygt, að lieimildir fáist
til þess að flytja á þessu ári til
Norðurlanda (Noregs) tiltekinn
hluta af sallkjötsframleiðslu lands-
ins, en heimildir þessar verði þó
svo takmarkaðar, að nokkur hluti
kjötsins, eða alt að helmingi, verði
útilokað. Um þann liluta verði því
eigi önnur úrræði, en að sæta
samningum við Breta, að því leyti,
sem kjötið eigi selst innanlands.
Ennfremur er á því bygt, að mun
hærra verð fáist fyrir það kjöt
sem fer til Norðurlanda, heldur
en hitt, sem fer til Breta. Með
þetta fyrir augum eru tillögur
okkar um tilhögun á kjötsölunni
á þessa leið:
1. gr. Þegar útflutningsheimildin
er fengin, að tilstuðlun landsstjórn-
arinnar eða erindreka hennar, skal
heimildin eigi af hendi lálin nein-
um öðrum mönnum né félögum,
heldur hefir landsstjórnin öll yfir-
ráð yfir þeim útflutningi í þvi
skyni, að hann fari fram með full-
komnu skipulagi.
2. gr. Landsstjórnin útvegar
framboðstillögur frá stærstu út-
flytjendum, til að byggja á sölu-
tilboð þau, er hún gerir, og geng-
ur salan öll undir hennar nafni.
3. gr. Þá er landsstjórnin hefir
gert sölusamning um alt það kjöt,
sem hún hefir fengið úlflutnings-
lieiinild fyrir til Norðurlanda, skal
gerð áætlun um, hve mikil salt-
kjötsframleiðslan verður og hve
mikið megi alls flytja út úr land-
inu, til þess að eigi verði kjöt-
skortur í bæjum og kauptúnum
fram til hausts 1918. Að fenginni
sem nákvæmastri skýrslu um þetta,
og með þeirri ráðagerð að það af
saltkjöti, sem ekki fæst flutt til
Norðurlanda og ekki þarf til inn-
anlandsnotkunar komi undir brezku
samningana, er fundið meðalverð
útflutningskjötsins.
4. gr. Þetta meðalverð ákveður
landsstjórnin til bráðabyrgða á öllu
útflutningshæfu kjöti, sem hún
hefir með höndum sölu á. Verðið
sé »fob.« á þeirri höfn, sem tekst að
selja það frá. Ábyrgð og kostnað
við flutning á kjöti til slfkra hatna
bera hlutaðeigendur sjálfir á hveij-
um stað.
5. gr. Þeir kjötframleiðendur eða
seljendur, sem koma vilja kjöti
sínu undir úlflutningsheimildir þær
er stjórnin hefir fengið, skulu eins
fljótt og hægt er, og eigi síðar en
15. október, hafa tilkynt stjórninni
hve mikið þeir hafi á boðstólum,
og eru þær tölur, sem þeir þá til-
taka, skuldbindandi fyrir þá. Þau
kjötframboð, sem stjórnin kynni
að fá eftir þann tíma, verða eigi
tekin til greina.
Nú hepnast einstökum mönnum
að selja kjö( til Norðurlanda, sem
útflutningsheimild fæst fyrir, án
tilhlutunar stjórnarinnar, og verð-
ur þeim samningum ekki raskað,
enda liggur slíkt kjöt utan við
kjötsölureikning stjórnarinnar.
6. gr. Þegar fullséð er, hve mikið
kjöt stjórnin liefir til meðferðar og
þegar sala þess er um garð gengin,
skal gerður .jafnaðarreikningur um
verð kjötsins, þó svo, að verð-
munur sé gerður eftir mismunandi
ílokkum og gæðum. Frá kjötverð-
inu dregst útlagður kostnaður við
kjötsöluna.