Tíminn - 05.10.1918, Blaðsíða 4

Tíminn - 05.10.1918, Blaðsíða 4
208 T í M I N N Ný bók um flskaklak. Einföld aðferð að búa til fiskatjarnir og ala upp fiska. Með myndum. — Nauðsynleg bók á hverju heimili — Verð 1,75 kr., 5 eintök borguð fyrirfram 1,30 kr. Bókin er send, með póstkröfu eða gegn fyrirframborgun, út um land. Útsala á Frakkastíg 12, Reykjavík. öuðm. Davíðsson. mjrnd um hve mikið fylgi slíkar skoðanir hafa innan Miðveldanna. En grunur leikur á að hreyfing i þessa átt sé ailsterk, síðan á dög- unum, að út kom ávarp mikið frá Hindenburg til þýzku þjóðarinnar, þar sem hann fer hörðum orðum um þá veikburða og istöðulausa landa sína, er láti orð óvinanna hafa áhrif á sig. Kennir hann ó- vinunum um allan °þann flokka- drált og sundrung sem í landinu sé, að þeir strái flugritum og seðl- um inn yfir landið og reyni að telja hermönnunum og öðrum trú um að til einskis sé fyrir þá að berjast. Á þessum alvörutímum megi enginn láta eitraðar tungur óvinanna hafa áhrit á staðfestu sina og taugastyrk. í sömu andránni eru lögin um almennan kosningarétt til meðferð- ar í »herdeild« prússneska þings- ins. Mælir kanslarinn þar djarflega með því að almennur kosninga- réttur komist á; sýnir fram á að það sé ekki annað en sjálfsögð sanngirniskrafa að allir fái það jafnrétti sem almennur kosninga- réttur veitir, þar eð allir hafi jafnt orðið að bera byrðar ófriðarins og leggja fram líf sitt fyrir fóstur- jörðina. — Eftirtektaverðust eru þó þau um- mæli kanslarans að þeir sem þvi ráði hvert lögin um almennan kosn- ingarétt nái fram að ganga, þeir verði að taka tillil til þess að vald keisarans og kóróna sé í veði ef þjóðin fái ekki vilja sínum fram- gengt í þessu. — Sýnir það framar öðru að mótspyrna gegn ráðandi flokki Þýzkalands er öflug, þar eð kanslarinn leyfir sér að láta þá skoðun í ljósi, að til sé sú hreyf- ing er kunni að raska tign hins hágöfuga keisara — ef eigi sé Ieit- ast við að koma á samlyndi milli stjórnmálaflokkanna. Sýniíig Ríkarðs Jónssonar. Ríkarður Jónsson myndhöggvari hefir undanfarnar vikur haft sýn- ingu í Barnaskólanum, einkar fjöl- breytta. Voru það yfir eitt hundr- að gripir og allir frá síðustu tveim árunum, svo að auðséð er að eigi hefir þessi listamaður haldið að sér höndum. Enginn . islenzkur listamaður jafnast á við Rikharð í tjölhæfni. Hann leggur á flesta hluti gerva bönd. Hann er tréskeri, teikni- meistari, myndhöggvari. grefur manna bezt í málm, og gerir myndamót betur en nokkur annar íslendingur. Bar sýningin ljósan vott um þessa fjölkunnáttu Rik- arðs. Þar voru margir hlutir hag- lega útskornir, teiknaðar manna- myndir, vangamyndir og brjóst- myndir úr gipsi og eir. Lands- lagsmyndir teiknaðar, skopinyndir, þjóðsagna og kynjamyndir o. s. frv. Frumeinkenni Ríkharðar er fjöl- bæfnin og hugkvœmnin. Til eru hér á landi menn sem engu síður eru skurðhagir. En enginn kemst til jafns við Ríkarð í hugamynda- auði í tréskurðinum. Hver slíkur gripur eftir R. er ekki einungis frumlega smiðaður, en þar að auki frumlegur og sérkennilegur, ber með sér einhverja snjalla nýja hugsun. (NI.) Fréttir. Tíðin hefir verir verið mjög umhleypingasöm þessa viku. Stór- rigningar og hvassviðri annan daginn en hægviðri á milli. Þýður hafa verið seinni partinn. Landsbankinn. Tveir atburðir gerðust 1. þ. m. í sögu Lands- bankans. Tók þá til starfa hinn nýi bankastjóri, í stað Björn Kristjánssonar og er það Ludvig Kaaber ræðismaður. Er það al- mannarómur að eigi hafi verið unt að fá hæfari mann í þá stöðu og jafnvel eitruðustu andstæðingar landsstjórnarinnar treysta sér ekki að ráðast á þessa ráðstöfun. Má nú teijast hin bezta von um að landssljórninni hafi tekist, með skipun hinna tveggja nýju banka- stjóra að koma bankanum út úr því öngþveiti sem hann hefir ver- ið í. Og verði nú saga hans næstu árin ólík næstu undanfarinna, og gagnið að bankanum eftir því. — Hinn alburðutinn var sá, að þá tók til starfa fyrsta útibú bankans í sveit, að Tryggvaskála við Ölfus- árbrú. Verða þeir fastir starfsmenn bankans þar; Eiríkur Einarsson útibússtjóri, áður settur sýslumað- ur í Árnessýslu og Guðmundur Guðmundsson frá Reykholti, gjald- keri. Gæzlustjóri útibúsins er síra Ólafur Sæmundsson í Hraungerði. Bannlagabrot. Ferdinand Eyj- ólfsson kyndari á Lagarfossi hefir orðið uppvís að því að hafa selt áfengi og meira áfengi fanst í fór- um hans. Var hann sektaður um 300 kr. — Samtímis var Ágúst Benediktsson bryti á Lagarfossi sektaður uin 300 kr. Játaði hann að hafa selt farþegum á Lagarfossi áfengi á ferðum kringum land utan landhelgi og varð sömuleiðis uppvís að því að'hafa rofið inn- sigli fyrir vínbirgðum. Virðist leik- mönnum sektin lág fyrir þetta. Fiskaklak. Guðmundur Davíðs- son kennari í Reykjavík hefir sam- ið og gefið út dálítið kver um fiskaklak. Hefir það mál verið lítt rætt áður og litlar framkvæmdir hér á landi. Merkastar munu til- raunir Nývetninga á síðustu árum og ritaði Bjarni Sæinundsson um þær i Andvara 40. ár. — Kver Guðmundar er skýrt og skipulega ritað. Flskiféiagið sendi ungan mann. Jón Einarsson frá Stykkishólmi, vestur um haf með Gullfossi síð- ast. Á hann að kynna sér fisk- verkunaraðferðir Ameríkumanna og hagnýting fiskúrgangs. Embættispróf f læknisfræði hafa þeir tekið nýlega: Hinrik Thorar- ensen, sonur Odds lyfasala á Ak- ureyri, Jón Bjarnason, prests Páls- sonar í Steinnesi og Kristján Arin- bjarnarson, bókbindara Sveinbjarn- arsonar í Reykjavík. Allir tengu þeir fyrstu einkunn. Bj’örn Jósefsson frá Vatnsleysu í Skagafirði, hefir fengið veiting fyrir héraðslæknisembættinu á Húsavík. Hanu var áður settur læknir í Axarfjarðarhéraði. Mýraýsln 29/a. Veðurátta er mjög köld, hefir verið frost á hverri nóttu nú á aðra viku. Heyskapur hefir gengið illa sökum grasleysis, en nýtingin hefir orðið góð. Sumir hér hafa heyjað Iítið meira er helming, á móts við það sem venjulegt er og heyin ekki góð, þar eð mest hefir verið slegið, þar sem aldrei hefir verið slegið áður í manna minnum. Forarflóar hafa sprottið tiltölulega bezt, þó því að eins að þar hafi ekki verið ný- slægja. Kartöíluuppskera mun vera í meðallagi, sumstaðar þó tæplega það. Batmagnsraálið er nú mjög rætt í Bæjarstjórn Reykjavíkur. Takist borgarstjóra, sem nú er ytra, að fá lán, má gera ráð fyrir að byrj- að verði á því verki í vetur. Helst í ráði að lyfta vatninu úr Elliða- vatni og ánum, yfir í Rauðavatn og búa til framrás úr því ofan í Grafarvog. Má þá nota alla fall- hæðina i einu og í annan stað verður yfir meiru og jafnari vatni að ráða, þar eð bæði vötnin verða undir. Eiða-draugurinn var endanlega kveðinn niður f þinginu sama daginn og vantraustið var drepið. Ein- hver andófs þingmaður beindi að forsætisráðherra dylgjum um Eiða- Dagur, frá byrjun, fæst hjá Birni Björnssyni, Laugavegi 18, sími 286. Árgangurinn 2 kr. málið. Varð það til þess að Jón Magnússon forsætisráðherra for- dæmdi með sterkum orðum þá menn, sem utan þings eða innan hafa haldið því fram að austan- þingmennirnir, Sveinn Ólafsson og Þorsteinn Jónsson hafi á nokkurn hátt reynt að neyta pólitiskra á- hrifa í sambandi við væntanlega veitingu kennaraeinbætta við Eiða- skólann. Þar sem veiting þessara embætta kemur að eins við for- sætisráðherra, var yfirlýsingin hörð hirting á Jón á Hvanná, og þá menn aðra sem mest hafa haldið á lofti Eiðarógnum. Stóðu þeir nú stimplaðir ósannindamenn framini fjrrir allri þjóðinni. Saga sú er gömul, að heiðursmenn eru altaf þyrnir í augum sérgæðinga og lítilmenna. Bréf úr Testur-ísafj.sýslu. »Nú er altalað hér að þingmaður okkar, Matthías Ólafsson, muni ekki gefa kost á sér aftur, enda varla samrýmanlegt, að vera er- indreki í annari heimsálfu og þingmaður hér heima. Töluverður áhugi er um að fá mann úr sjálfu héraðinu á þing, framsækinn og heiðarlegan. Hefir síldarmál þeirra þremenninganna orðið til að opna augu manna fyrir þvi, að fyrsta krafan til hvers þingmanns á að vera sú, að hann sé drengskapar- maður, hátt hafinn yfir að nota trúnaðarstöðu sína í eiginhags- munaskyni. Kvis er um það, að milliliðirnir sumir hér í sýslu ætli að fá lánaðan Sjálfstjórnarhöfðingj- ann Sv. Björnsson í sæti Matthí- asar. Er verið að leita hófanna um fylgi við hann við ýmsa. En vonlaust mun það, því að allir betri menn í sýslunni munu hon- um fráhverfir. Enda munu sýslu- búar ekki þurfa að seilast um • hurð til lokunnar, eftir sæmilegra þingmannsefni.« Ljóðmæli Þorsteins Erlingsson- ar, ný útgáfa sem ílytur margt áður óprentað, kemur á bókamark- aðinn fyrir jól. Siys. Barn varð undir bifreið hér í bænum 3. þ. m. Brotnaði annar lærleggurinn. Póstjjoki með ábyrgðarbréfum frá Stykkishólmi kom ekki fram úr siðustu ferð Sterling. Munu hafa verið 2—3 þús. krónur í honum. Er hafin rannsókn í málinu. Bátur fórst nýlega frá Karls- skála .á Reyðarfirði. Voru 3 menn á bátnum og druknuðu tveir. Ritstjóri: Tryggvi Þórhallsson Laufási. Sírai 91. Prentsmiðjan Gutenberg.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.