Tíminn - 04.11.1918, Page 1

Tíminn - 04.11.1918, Page 1
TÍMINN kemar út einu sinni i oika og kostar i krt árgangarinn. AFGREIÐSLA l VegkfatHk Laagavtg 19, simi 296, út um land i Laafási, skni 91. II. ár. Reyfejavík, 4. nóvember 1918. 46. blað. Kj öt^alan. Stýrsla útflntningsnefnðar til stjórnarráðs, ðags. 2. nóv. Skömmu eftir að útílutnings- nefndin var tekin til starfa, tók hún það til íhugunar og umræðu á hvern hátt komið yrði hreyfing á þetta mál, svo kjötsalan gæti. komist í kring fyr en næstl. ár og flutningur kjötsins sömuleiðis. Sökum forkaupsréttar Baudamanua á kjötinu, eins og á öðrum út- flutningsvörum, svo og vantandi heimildar til þess að flytja það til annara landa, var mjög örðugt að koma slíkri hreyfing á. Loks í byrjun ágústmánuðar fékst sam- komulag við brezka ræðismanninn um það, að úiflutningsnefnd inætti hafa kjötið á boðstólum til Noregs, þó með þeim fyrirvara að heimildir fengjust til flutnings á kjötinu þangað og Bandamenn afsöluðu sér forkaupsrétti. þótti nefndinni líkur til þess að Bandamenn myndu síðar meir leyía flutning til Noregs á kjötinu hér, að allmiklum hluta og að sjálfir myndu þeir ekki taka meir en í hæsta lagi þær 10 þús. tunnur, er þeir samkvæmt samn- ingum áskildu sér með lægra verð- inu (140 kr. og 128 kr.). En á því sem þeir tækju þar framyfir var samningsverðið kr. 170 og 158. Tilraunir höfðu verið gerðar nú eins og fyrri af stjórnarinnar hálfu li! þess að fá heimild til ílutnings á kjöti til Danmerkur, en árangurs- iaust, og virtist sú málaleitun þraut- reynd. í 7. gr. samningsins við Banda- menn er svo fyrir mælt, að »Vott- orð matsmanna og vigtarmanna, skipaðra af landstjórninni, skuli fylgja öllum vörum, sem fulltrú- anum verði boðnar til kaups«. Samkvæmt þessu var þá óhjá- kvæmilegt, ef til þess kæmi að kjötið eða eitthvað af því færi til Bandamanna, að alt kjötið væri metið í flokka og vigtað af mönn- um sem til þess væru kvaddir að tiihlutun landsstjórnarinnar. Fór því nefndin þegar í júlímánuði að undirbúa reglur um flokkun kjöts- ins og hat'ði tit þess aðstoð kunn- ugustu manna, er jafnframt höfðu umráð yfir mestri kjötframleiðslu. Var þá þegar slegið fastri þeirri flokkun á kjötinu sem nú er í reglum útflutningsnefndar. lleynsla undanfarandi ára um kjötsöluna til Noregs hafði og bent til þess að nauðsynlegt væri að gera nokkra flokkun og verðmun á kjötinu eftir gæðum og tryggja það með opin- beru ettirliti, að kjötið væri vel verkað og samræmileg og ósvikin vara. Taldi nefndin víst að með þessu móti fengist kjötverðið nolck- uð liækkað. Forsæti'sráðherra skýrði nefnd- inni frá, að hann hefði í utanför sinni síðastl. haust átt tal við þá deild stjórnarráðsins í Noregi, sem hefir með höndum matbyrgðamál- efnin (Provianlerings-Departement) og fengið þær upplýsingar, að um kjöt það, sem heimilt væri að flytja frá íslandi til Noregs, }rrði að snúa sér til Fetevareinportörernes-Lands- forening. Stæði félag þetta undir eftirliti stjórnarinnar, og hefði hún hönd í bagga um bæði innkaup og útsöluverð kjötsins. Umboð fyrir þetta félag hafði norski ræðis- maðurinn hér nú eins og í fyrra. Heimildin til þess að bjóða kjötið til Noregs var líka einskorðuð við norska rikið, eða ofannefnt félag. Og þar eð fyrst um sinn var þá einungis til Noregs að leita uin kjötsölu, snerum við oss til norska konsúlsins hér. í umræðu nefnd- arinnar við hann um málið gat hann þess, að í för sinni til Nor- egs næstliðið vor hefði hann kom- ist að því, að nokkurrar hækkun- ar mundi að vænta í kjötverði þar, frá fyrra árs verði, ef flutnings- heimild fengist. Með brezka sainn- ingsverðið til grundvallar yrði meðalverð um 150 kr. til jafnaðar, en líkega myndu Norðmenn bjóða eitthvað meira. Þetta verð lét nefndin þegar í Ijósi að væri alveg ófullnægjandi, þegar litið væri á núverandi hagi og borfur landbúaðarins og mark- aðsverð erlendis á matvælum. Gerði hún þá til hans ákveðið tilboð*um 20 þús. tunnur kjöts, með áður nefnd- um fyrirvara og flokkað svo sem að framan er bent á fyrir: 200 kr. I. fl. kjöt a—b 185 — —»— c—d 170 — II. fl. kjöt. Símaði hann lilboð þetta til Noregs 9. ágúst og vænii riefndin bráðlega svars við því, en ekkert svar var komið þá er símslitin urðu. Um þessar mundir var það að forstöðumaður Höepfnersverzlunar hér í bænum, kom að rnáli við einn af nefndarmönnum um það, hvort hans íirma í Kaupmanna- höfn gæli eigi komið til greina sem kanpandi að saltkjötinu. Tók nefnd- in þetta til íhugunar og ályktaðþ að rétt væri. að afla sér sem flestrá tilboða í kjötið, ef til kæmi, að Bandamenn afsöluðu sér forkaups- rétti og leyfði þvi nefndin forstöðu- mauninum að síma til liúsbænda sinna í Ivaupmannahöfn, að nefnd- inni væri kært að fá tilboð þeirra, ef kjölið yrði lausl lil sölu og gaf þá bending að hún byggist við, að krafist myndi verða 200 til 220 kr. fyrir hverja tunnu við skipshlið hér. Á meðan sæsíminn var í lama- sessi beið nefndin í fullri óvissu um kjötsölumálið og gat engu við komið út á við. Á þessu tímabili var heldur eigi fengin nein vissa um það hvort heimilt yrði að flytja kjötið til Noregs og því síð- ur hve mikið. Bjó hún þá kjöt- sölumálið undir að þvi leyti, að hún fullgerði nú reglur um meðferð, flokkun og mat saltkjötsins og fékk því til leiðar komið, að lands- stjórnin fyrirskipaði kjötmat, sam- kvæmt þeim reglum og var reglu- gerð um þetta gefin út af stjórn- inni 4. sept., en reglur útflutnigsn. um saltkjötsmeðferðina voru gefn- ar út 6. s. m. Með þessu móti hugði landsstjórnin og útflutnings- nefndin að kjötsalan til útlanda ýrði auðveldari og öruggari nú og síðar. Pá er sæsíminn var kominn í lag aftur kom loks svarið frá Norð- mönnum, dags. 24. ágúst, sem ræðismaðurinn tilkynti nefndinni 14. sept. og hljóðaði svo: »Þær birgðir af kjöti, sem Nor- egi eftir samniugi við Bandaríkin, er heimilt að flylja inn, eru svo lillar, að það er ekki unl að koma íslenzka sauðakjötinu þar undir, nema við fáum leyíi til að flytja það inn i viðbót við þær birgðir, sem við höfum leyfi fyrir. Mat- vælastjórnin er að leita hófanna við stjórnir Bandamanna. Meira seinna«. En rétt áður en svar þetta birt- ist hafði ræðismaður Breta munn- lega látið nefndina vita, að kjöt- flutningur yrði heimilaður til Nor- egs á 3000 smálestum og gat þess þá um leið að Bandamenn ætluðu ekkiaðnota forkaupsrétt sinn á kjö.t- inu. Um þessar inundir barst og nefndinni vitneskja um það, að maður mundi koma hingað með »Botníu« af liálfu h/f. Carl Höepfn- er, til þess að leita samninga um kjötið. , l\ »Botnía« kom til Reykjavíkur föstud. 20. sept. og með henni hr. stórkaupmaður Aage Berléme fyrir h/f. Höepfner til þess að leita samninga við nefndina um kjöt- kaup. Koin hann daginn eftir lil fundar við útflutningsnefndina. Voru þá þegar rædd nokkur helztu samningsatriði til undirbúnings því, ef sainan gæli gengið um kjötverð- ið. En einn nefndarmanna var þá fjarverandi og kom því kjötverðið lítið til meðferðar. Með bréfi dags. 21. sept. tilkynti nú útflutningsnefndin néðismanni Norðmanna. að hún teldi sig lausa við tilboð það um kjötið sem áður er nefnt, en kvaðst þó fús til að taka upp samningsumleitum á ný, ef hann óskaði og gæti gert einhver á- kveðin boð. Þetta gerði nefndin til þess að hafa frjálsar hendur á með- an á samningum stæði við hr. Ber- léme, enda var þá liðið talsvert á annan mánuð siðan tilboðið var gert, án þess því væri svarað. Tveim dögum siðar, eða 23. sept., tilkynnir konsúllinn nefndinni bréf- lega, að hann samkvæmt símskeyti frá 19. s. m., meðteknu í gær, hafi nú umboð til að kaupa 20 þús. tunnur, saltkjöts afþessa árs fram- leiðslu fyrir 170 kr. I. fl. kjöt og 150 — II. —»-- Sama dag og tilboð þetta kom frá norska ræðismanninum, var hr. stórkaupmaður Aage Berléme á fundi með nefndinni, til áfram- halds umræðum frá 21. s. m. um kjötsölusamning við hann. Var fyrst og fremst vikið að því við hann, að ef til samninga kæmi um kaup á kjötinu, þá yrði nefndin að binda samninginn því skilyrði af sinni hálfu, að landsstjórnin samþykti samninginn, að nefndin yrði að setja þetta skilyrði, til þess að landsstjórnin gæti tekið fult til- lit til afstöðu landsins gagnvart erlendum ríkjum. Auk þess voru ýms samningaatriði þess eðlis, að samþykki stjórnarráðsins þurfti-sér- staklega að koma til. Var síðan rætt við hr. Berléme um verð- tilboð, og skýrskotaði nefndin til þess verðs, kr. 200—220 pr. tn„ sem nefndin, eins og fyr er sagt, benti umboðsmanni h.f. Höepfner hér í bænum á að síma um til Kaupmannahafnar. en hr. Berléme byrjaði með 170 kr. boði í I. flokks kjöt. Þegar nefndin lýsti því yíir að slíkt boð gæti ekki komið til álita færði hr. Berléme upp boð sitt í 180 kr. fyrir I. fl. kjöt og 155 kr. fyrir II. fl. kjöt. Eftir að nefndin hafði fengið hálfa stund til umhugsunar, lýsli hún því yfir að hennar fasta boð væri 200 kr. fyrir I. fl. kjöt og 175 kr. fyrir II. II. En eftir nokkrav umræðu kvaðst nefnd- in et til vill slaka til um 5 kr. á tunnur, ef það gæti leitt til sam- komulags. Þessu boði neilaði hr. Berléme og lauk fundinum með því. Áður en samningatilraunirnar við hr. Berléme byrjuðu hafði út- flutningsnefnd fengið vitneskju hjá fulltrúa Bandamanna um það, samkvæmt því sem áður er nefnt, að liann myndi eigi fýrir þeirra hönd nota sér torkaupsrélt á kjöt- inu að neinu leyli. Skrifleg yíir-

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.